Þyngdarsíða

Málið er ekki flókið, ég þyngist afar auðveldlega. Árið 2000 var ég 114 kíló. Ég tók mig svo taki árið 2001 og var kominn í fínt form ári síðar. En árið 2004 fór ég að bæta á mig aftur og áramótin 2006-7 var vigtin komin í 108kg. Þá var þetta orðið ágætt og ég ákvað að losna við þyngd aftur.

Eitt af því sem ég verð að gera er að fylgjast vel með þyngdinni. Því vigta ég mig á hverjum degi og set svo upp graf með þyngdartölum dagsins (punktarnir) og meðalþyngd síðustu tíu daga (línan). Ég reyni að setja nýtt graf á vefinn á hverjum degi, stundum mætir það afgangi, en tölurnar eru alltaf skráðar. Ég vigta mig um leið og ég vakna á morgnana.

Átakið er einfalt, ég borða minna, sleppi öllu sælgæti og hreyfi mig aðeins meira. Fyrsta markmið er að fara undir hundrað kíló. Næsta markmið er að komast í nægilega gott form til að fara aftur í utandeildarboltann. Þriðja markmið er að fá þvottabrettamaga...æi sleppum þessu þriðja markmiði :-)

síðasti mánuður
frá áramótum