Örvitinn

Afsakið biðina
Ég sé að sumir aðdáendur mínir í hópi nafnlausra nýnasista á Twitter kíkja eftir því hvort ég hafi skrifað meira um þá hér. Ég hef nóg að gera við annað en hafið ekki áhyggjur, grafið góða uppfærist reglulega.

Auðvitað mun ég skrifa meira um óða fólkið hér síðar. Skemmtilegast verður að nefna suma af nafnlausu hálfvitunum fullu nafni. Þú heldur nefnilega að þú sért að skoða internetið en í raun er internetið að skoða þig!

Ellefu ljótir og asnalegir nasistar
norðanátt fær ekki að vera með í þetta skipti

Nasistinn LoginTerm er ekki með vegna þess að ég hef áður tekið hann fyrir en ekki gleyma honum, sama gildir um nasistann og barnaperrann svennipopp.

Ég veit að einhverjum finnst það ýkt að kalla sumt af óða fólkinu á Twitter nasista og aðrir hafa dylgjað um að ég kalli alla sem eru ósammála mér nasista. Það er auðvitað kjaftæði, ég vil þvert á móti halda því fram að ég sé alltof ragur við að kalla fólk nasista og geri það ekki nema mér finnist ekkert annað koma til greina, margir rauðir á kortinu ættu líklega að vera dökkbrúnir (og sumir verða það að lokum).

Hvað um það, hér koma ellefu dæmi af 78 sem eru dökkbrúnir á grafinu. Helsti vandinn við þessa samantekt var að velja bara ellefu, ég var strax kominn með rúmlega 30 nöfn þó ég gerði mitt besta þannig að margir fleiri komu til greina á þennan lista, en komast á þann næsta.

hh88bbc

hh88bbc, áður hh881076889, hefur ekki verið virkur í nokkurn tíma en það er ágætt að byrja samantektina á fígúru sem kennir sig við Hitler (HH augljóslega og 88 er líka vísun í HH, nei, þetta er ekki gáfulegt). Það þarf varla að deila um að þessi fígúra er nasisti. Góðu fréttirnar er að hann hefur ekki verið virkur á Twitter síðan í maí í fyrra. Sem er áhugaverð tímasetning en kannski meira um það síðar.

UserAncient45

UserAncient45 vitnar í Goebbels, er augljóslega rasisti og upptekinn af því að vernda hvíta kynstofninn.

Nei og nei. ást fyrir eigin kynstofni er að öllu leyti nátturuleg. Þegar þú segir blandast, vegna þess að þú veist það vel sjálfur að stofnarnir í Afríku og Asíu eru ekki að blandast, þannig þú meinar aðeins Hvít blöndun ekki satt? #

ég meina ég er sjálfur rasisti en er að spyrja fyrir þá sem óttast þetta orð #

noticerofthejew

Notendanafið vísar til þeirra sem taka eftir áhrifum gyðinga út um allt og er þekkt stef í heimi nýnasista. Virðist afar hugfanginn af Nick Fuentes. Skrifar lítið en tjáir sig með því að dreifa tvítum annarra.

SchmittMoneyM

Í umræðum um að Ísland hefði ekki hleypt gyðingum inn i landið fyrir síðari heimsstyrjöld:

Hrikalegt... ef ekki hreinlega sorglegt! Við hleyptum þeim ekki hingað inn? Þvilíkur glæpur! #

Sítrona

Sítróna er undarlega upptekin af því að afneita helförinni, og deilir reglulega tvítum um efnið, sem er óneitanlega mjög súr hegðun.

Villi

Villi er ekki nafnlaus og birtir mynd af sér í prófíl þar sem hann kynnir sig með orðunum:

Íslendingur sem er orðinn þreyttur á útlendingum.

Villi er ekki bara grófur rasisti heldur deilir líka efni frá nýnasistum. Villi er nasisti.

Flóttapakk nei takk

Flóttapakk nei takk aðgangurinn, „Burtu með þá alla, konur börn og karla“ í prófíltexta. Var nokkuð virkur en virðist í einhverjum dvala. Helsti kostur þessa aðgangs er að fylgjendur hans stimpla sig mjög rækilega, geta ekki haldið því fram að þeir viti ekki hvaða skoðunum þeir gerðust áskrifendur að.

stillfootling

Góðkunningi bloggsins var áður footler420. Nasisti og óskaplega stoltur af því.

theudanaz

Þeudanaz ᛟ „Þjóðernissinni“ segir hann. Nasisti er raunin eins og fjölmörg dæmi eins og þetta hér að ofan sýna.

Shulman of Shamhuth

Æi, það þarf ekki að eyða orku í þetta! Þessi hefur verið afar duglegur að dreifa myndum og myndböndum af Hitler.

Addi

Addi / arnar03 kynnir sig með orðunum „white guy, mass deportations“

Hvað svo?

Ekkert svosem, annað en að það er áhugavert hverjir eru áskrifendur að skoðunum nasista því það segir mjög mikið um þá. Mín skoðun er einföld, sá sem fylgir eða á samskiptum við marga svona nasista er nasisti. Þannig blasir við að draga þá ályktun að Norræna karlmennskan og Sverrir félagi hans séu nasistar. Meira um þá síðar.

Viðbót (11.02)

Allir 123 fylgjendur þessa 11 nasista

Hvað má lesa úr þessari mynd? Fyrst og fremst að þetta er frekar þéttur hópur og svo hitt að það dugar mér í þessar "flokkun" að ef fólk fylgir nasista er það ekki blátt!

Kílómetragjaldið
Jeppinn góði

Er að skoða kílómetragjaldið aðeins.

Áætlunin (og reikningur) fyrir akstur á jeppanum í janúar er ansi langt frá notkun, rúmlega tvöfalt hærri (991 - 450). Þegar ég skoða tölurnar passa þær við meðaltalið síðustu tvö ár, frá skoðun í júlí 2024 til skráningar á kílómetrum 2. janúar, 32km á dag.

Við keyrum að jafnaði minna en áður, ég hjóla nær alltaf í vinnuna og Gyða tekur oftar strætó en hún gerði. Janúar er auk þess frekar rólegur mánuður í akstri, sérstaklega þar sem við fórum ekkert í bústað. Í áætlun er ekkert gert ráð fyrir að að notkun sé breytileg eftir mánuðum/árstíð. Með tveimur bústaðaferðum hefði þetta verið nær lagi.

Ég hef ekki áhyggjur, ég skrái nýjar kílómetrastöður á morgun og þetta jafnast líklega næstu mánaðarmót.

Kom við í Costco bensínstöðinni á bakaleiðinni eftir að hafa sótt Ingu Maríu út á flugvöll (að skutla og sækja á flugvöll var 36% af akstri jeppans síðasta mánuð, það eru 42 km frá Bakkaseli að Leifsstöð), setti 60 lítra á bílinn (fyllti síðast 2. jan) og staðfesti með hugarreikning að nýja fyrirkomulagið er ódýrara fyrir okkur á Landcruisernum.

Áramótaflugeldar á Völlunum
Vorum hjá foreldrum mínum á Völlunum um áramótin. Röltum út eftir skaupið og horfðum á flugelda og í stað þess að stilla myndavélinni á þrífót eins og vanalega rölti ég bara um með Insta360 x5 vél og tók myndband.

Óða fólkið á Twitter
Dæmi um tengingar

Ég fann ekki upp á frasanum „óða fólkið“, þetta er útúrsnúningur á ruglinu um „góða fólkið“ sem þróaðist yfir í „vók“. „Óða fólkið“ er samt frábært yfir fólkið sem hér er fjallað um!

Ég dundaði mér við það, svona meðan ég var ekki að gera annað í fríinu á Spáni um daginn, að fara yfir helstu íslensku nasistana, rasistana og fylgjendur þeirra á Twitter og kortleggja tengslin.  Þetta er óskaplega lítil og einföld vefsíða sem notar d3.js til að reikna út staðsetningu punkta í neti út frá tengingum.

Í þessari fyrstu útgáfu harðkóða ég liti á nóðurnar, frá dekkstu rasistum yfir í bláa fólkið sem getur talið sér trú um að það sé alls ekki rasistar, bara að spyrja spurninga og fylgja rasistum af forvitni! Ég byrjaði einfaldlega á nasistunum sem ég vissi af og fór svo yfir fylgjendur þeirra og þá sem þeir fylgja. Auk þess skoðaði ég innlegg og setti í sumum tilvikum á listann þá sem voru að dreifa efni eða kommenta hjá þeim sem fyrir voru. Að sjálfsögðu er það að lokum alltaf huglægt mat hver endar inni og ekki. Finnst þér vanta einhvern á listann? Láttu vita í athugasemd. Líka ef þér finnst einhver vera þarna að ósekju. Ertu á listanum en það vantar einhverjar tengingar? Sendu mér endilega yfirlit af follow og followers listunum og ég skal uppfæra síðuna.

Einn sturlaðasti gaurinn á Twitter var byrjaður að lesa mikið úr hluta af vefslóðinni en þetta er einfaldlega staðsett þarna því þetta er í greinaflokknum. Kíkið endilega á greinarnar til að sjá hvað þar er í gangi.

Ég blokkaði Gunnar vegna þess að hann fékk furðulegt þráhyggjukast um það að ég væri sérlegur talsmaður ofbeldis (geng nasistum!) eftir að ég benti á að hann er kumpánlegur við þá.

Ég setti two "teasera" inn á Twitter og hef haft gaman að því að fylgjast með hugleiðingum óða fólksins. Reyndar er sumt sem þar hefur verið sagt mjög langt frá því að vera í lagi og sumt augljóslega nóg til að kæra fólk fyrir en látum það liggja milli hluta. Arnar Arinbjarnarson er aumingi og verður alltaf lúser hvort eð er. Fólk semsagt sá bara "preview" en las heilmikið úr því, sem er svosem skiljanlegt.

Arnar er gott dæmi um mann sem mátti alls ekki við því að fá covid ítrekað

Stóra spurningin er auðvitað; „af hverju er ég að gera þetta“. Svarið er, „af því bara“. Af hverju ekki. Ég var í fríi, hafði tíma til að dunda mér. Hef verið aðeins of mikið að pæla í þessu síðustu tvö ár og oft spáð í hvort ekki væri hægt að taka þetta saman.

Aðrar spurningar:

„Er hann ekki með vinnu“

Jú, og ég var í fríi.

„Er hann með þráhyggju“

Já, kannski! Ég hef a.m.k. eytt of mikilli orku í heimsku rasistana á Twitter. Samt ekki nærri nálægt því eins mikilli og þessir fábjánar eyða í rasisma og almenna fordóma. Mikið af þessu liði skrifar tugi tvíta á dag, grafa upp gögn sem þeir misstúlka og halda uppi vikulegum þáttum um hvað vók er skelfilegt. Sjúkleg þráhyggja!

„Er hann eitthvað geðveikur?

Ég held ekki!

Tengingar óða fólksins á Twitter

Kýlanlegt andlit
Ég á mér fjölmarga "aðdáendur" meðal nasista á Twitter.

Herjólfur er lítill
A.m.k. í samanburði við skemmtiferðaskip.

Herjólfur siglir framhjá skemmtiferðaskipi á leið frá Vestmannaeyjum.

Samræður við rasista og aðra samsærissinna
Bókaþrep á Selfossi

Umræðan um að við eigum að „taka samtalið“ við samsærissinna (sem stór hópur rasista er) gengur ekki upp.

Það er augljóst að margir sem segja þetta hafa aldrei prófað slíkar samræður (eða eru kannski einfaldlega sammála). Þú getur bent á augljósar staðreyndir sem hrekja hugmyndir samsærissinna/rasista og það hefur ekki minnstu áhrif nema í algjörum undantekningartilvikum. Sköpunarsinnar verða áfram sköpunarsinnar jafnvel eftir að hafa klárað háskólanám sem hrekur allar þeirra bull-hugmyndir. Að þvæla um að „það megi ekki taka umræðuna“ er þreytandi rugl. Það má alveg taka umræðuna, en ef rök og staðreyndir hafa engin áhrif er umræðan tilgangslaus, og jafnvel verra, dreifir ruglinu. Það er ekki hægt að eiga umræðu ef annar aðilinn tekur ekki þátt í góðri trú.

Auðvitað reynum við fyrst að hrekja þvaður og benda fólki á að það fer með rangt mál en það þarf ekki nema nokkrar mínútur eða fáein tilsvör til að sjá hvort það er tilgangur með því. Ef það er tilgangslaust þá hættum við!

Spurningar

„En má ekki spyrja spurninga?“ segja aðrir og spyrja iðulega spurninga sem er búið að svara. Eins og þeir viti ekki að það er algeng áróðursaðferð að spyrja bara spurninga; „ertu hættur að berja konuna þína?“ „hvað ef gyðingar eru með áætlun um að skipta út hvíta kynstofninum?“, „er það satt að allir innflytjendur séu á bótum?“.

Siðlausir skíthælar

Það eina sem sannarlega virkar er að benda öðrum á að það sem þetta fólk er að segja er sturlað kjaftæði og það virkar vel harðort, þannig getum við hugsanlega takmarkað útbreiðsluna eitthvað. Það skiptir ekki máli þó rasistum sárni. Vandinn er að á sama tíma eru háværar raddir, eins og til dæmis Frosti Logason, Brynjar Barkarson eða Þórarinn Hjartarson hér á landi, eða Joe Rogan/Jordan Petersonn/Gad Saad svo við tökum stærra dæmi erlendis, að dreifa þessu kjaftæði gagnrýnislaust til að græða peninga því þetta eru siðlausir skíthælar.

Þess vegna meðal annars segjum við upphátt að rasistar séu rasistar og jafnvel stundum klikkaðir samsærissinnar; til að vega upp á móti áróðri og reyna að koma í veg fyrir faraldur ranghugmynda (sem er hugsanlega of seint).

Sólin og snjórinn
Sólin bræðir snjóinn í Bakkaseli

Skugginn er það eina sem verndar snjóinn í dag.

Leiðinlegir fávitar
Þessi fugl er rosalega leiðinlegur og þröngsýnn, agalega kantaður.

Stundum langar mig að taka utan um fyrrverandi háværa trúleysingjann sem er með það á heilanum hvað hann* hafi verið leiðinlegur fáviti.

Elsku vinur, þú ert enn ótrúlega leiðinlegur fáviti. Sveppatrippið lagaði ekkert. Enginn kippir sér upp við að kirkjur séu notaðar sem tónleikasalir.

*En sérstaklega allir aðrir trúleysingjar sem tjá sig.

Norðurljósasýning við Bláfjöll
Ég að taka myndir af norðurljósum við Bláfjallaveg í kvöld

Nokkrar myndir hér.

Nasistinn @svennipopp
Mannréttindi þarf að verja með valdi og ofbeldi!

Hlutirnir gerast hægt á þessari bloggsíðu enda er ég, eins og flestir bloggarar, afskaplega latur að blogga.

Í framhaldi af samantekt á tvítum @loginTerm, þar sem ég færði rök fyrir því að hann er nasisti, er rétt að skoða félaga hans, nasistann @svennipopp sem notar dulnefið Páll Vilhjálmsson vegna þess að næstum allir þessir nasistar eru nafnlausar gungur. Groyper sem hann notaði áður og sést á skjáskotum hér, er hópur nasista. Afsakið hvað þetta er langt, stutt samantekt er svona: @svennipopp er nasisti.

Byrjum bara á því augljósa. Það slitnar ekki slefan á milli loginTerm og svennipopp.

svennipopp og loginTerm eru rúnkfélagar

Hér gæti ég endað umfjöllunina og sagt að ég hafi sýnt fram á það sem ég vildi sýna fram á, að svennipop sé nasisti. Í raun þarf ekkert að segja meira. Hafið þó engar áhyggjur, auðvitað skoðum við þessa fígúru örlítið betur.

Þetta finnst honum t.d. tilefni til að setja „like“ við.

Innleggið er svar við tvíti þar sem svört teiknimyndafígúra var birt.

Rasisminn er ekki miklu "merkilegri" en þetta en svennipopp heldur samt að hann sé gáfaður og birtir gjarnan vísanir í tölfræði eða gögn sem hann skilur augjóslega ekki. Stundum verður þetta átakanlega fyndið eins og þegar hann talaði gegn fjölbreytileika mannkyns með því að vísa í einsleitar landnámshænur. Sú saga hefst með þessu tvíti.

Páll var að svara tvíti Helgu Völu Helgadóttur sem velti fyrir sér muninum á að bjarga fólki frá Úkraínu og Palestínu

Ég brást við þessu með því að benda á að það væri bara til ein tegund fólks, eitt mannkyn og auðvitað fór svennipopp að skæla, þessir gaurar eru sívælandi.

Hver var að tala um ritskoðun? Ekki ég!

Vert að taka fram að þegar ég tala um að láta svona rasista ekki komast upp með þennan málflutning er ég að hvetja fólk til að svara rasisma, ekki endilega að hvetja til ritskoðunar. En auðvitað á að ritskoða grófan rasisma.

Áfram hélt hann og póstaði færslu en ég ætla bara að birta fyrri part hennar.

svennipopp heldur því fram að það sé „á mörkunum“ að ólíkir kynþættir séu sama tegundin

Höfum á hreinu að þeir sem trúa þessu og halda fram eru bullandi rasistar, ekki helgar-rasistar eða diet-rasistar heldur 100% viðbjóðslegir rasistar. Sem betur fer játar hann það einfaldlega.

Já, þú ert rasisti

Já, þetta er eiginlega skilgreiningin á rasisma.

Þetta er svo fáránlega heimskulegt hjá svennipopp því íslensku landnámshænurnar eru alveg jafn fjölbreyttar í útliti og mannkyn.

Mynd frá Bændasamtökum Íslands. Íslenska landnámshænan er hvít, brún, rauð, grá, svört og marglita. Smellið á mynd til að sjá stærri.

Það er erfitt að taka svona greindarskert fólk alvarlega en við skulum halda aðeins áfram því þetta er ekki trúður, heldur nasisti.

svennipopp var mjög duglegur við að setja "like" við statusa sem fjölluðu um yfirburði hvíta kynstofnins og virðist honum sérstaklega í nöp við þeldökkar konur.

Þetta krakkar mínir er dæmi um mjög kláran rasisma

Því miður tók Musk út þann möguleika á að sjá við hvað fólk setur "like" sem er heppilegt fyrir rasistana!

Svo setur hann like þegar fólk notar myndir af Hitler

Ekkert óvænt í gangi hér

Góða fólkið fær kveðju

Annars finnst mér fólkið sem skilgreinir sig sem andstæðu "góða fólksins" alltaf frekar forvitnilegt. Ég meina, hvenær varð gott vont?

svennipopp er of vitlaus til að skilja tölur um greind

Það þarf ekki að lesa mikið til að sjá að þessar tölur koma frá nasistum og standast enga rýni.

Hvað er hægt að segja?

Um flóttafólk

Fólk á flótta er ekki "legitimate class of people"! Þessir rasistar eru með orma í heilanum.

Barist fyrir ættjörðina

Rasistahægrið!

Ef það lítur út eins og fasismi, labbar eins og fasismi og hljómar eins og fasismi, þá er það svennipopp sem er fasisti, rasisti og bölvaður nasisti.

Það er endalaust til af efni frá þessum blessaða skíthæl og aumingja en ég nenni honum ekki. Þessi færsla er búin að vera til í drögum í marga mánuði en alltaf bætist eitthvað við og eins og ég sagði í annarri færslu, þegar maður er með svona mikið efni í höndunum er erfitt að klára!

Að lokum skulum við renna yfir einhverja af aðdáendum hans.

Your browser does not support the video tag.

Ljósin í Gröningen
Ljósin við Grote Markt torgið í Gröningen

Það er vesen að taka símamyndir sem ekki eru í fókus. A.m.k. kann ég ekki að gera það nema með brellum!

Örsaga um Arnar Arinbjarnarson í þremur skjáskotum
Í tímaröð.

Aulinn er ég!

Gamaldags punktablogg
Eldgosið séð frá svölunum í vinnunni

Sit í stofunni í jogging buxum og þykkri peysu, drekk te og hangi á netinu. Gyða er niðri að vinna á laugardegi. Þessir ríkisstarfsmenn! Ég skýst bráðlega að kaupa rjómabollu handa henni. Er ekkert voðalega hrifinn af rjómabollum þannig að ég fæ mér eitthvað annað.

Ítalskar kjötbollur eru mínar bollur!

Fórum á Fosshótel í Reykholti síðustu helgi með foreldrum mínum og systkinum. Jólagjöf okkar systkina til foreldrar okkar. Óskaplega huggulegt og kósý. Fullir prestar á sprellanum dálítið kómískir!

Frosti vikunnar fylgdi stilla og úrkomuleysi og því hjólaði ég til og frá vinnu alla dagana. Hef hjólað í allan vetur en sleppt því í allra verstu veðrum. Finn yfirleitt ekki fyrir kulda enda nokkuð vel búinn, stundum aðeins frosinn á puttum. Það er dálítið kómískt að þetta hjólastúss stuðar frjálshyggjusamsærisgaura. Þeim finnst þetta örugglega dygðarskreyting en málið er að mér finnst þetta skemmtilegt og þetta gerir mér gott. Það er frábært að byrja og enda vinnudaginn á því að hjóla frekar en að sitja í umferð. Ég meina, við eigum tvo bíla, þar með talið Land Cruiser, og þeir eru báðir á nagladekkjum eins og er. Þó þeir flokki mig með „góða fólkinu“ þá er ég í alvöru ekkert rosalega góður!

Ég er óskaplega ánægður með hjólið mitt því færðin hefur ekki verið mikið vandamál.

Nasistaskrif ganga hægt vegna þess að ég er latur, frekar upptekinn og líka vegna þess að það er úr svo fáránlega miklu að moða. Það styttist í næsta kafla, ég lofa. Mér finnst enn dálítið hlægilegt að sumir láta eins og ég kalli alla sem eru ósammála mér nasista. Það er glórulaust rugl. Og jújú, það eru alveg þokkalega margir búnir að sjá færslurnar.

Það munu aftur á móti óskaplega fáir sjá þessa!

Ég óttast að Manchester City eigi ekki eftir að tapa stigi það sem eftir er leiktíðar. Svo verði liðið dæmt fyrir brot á reglum deildarinnar á næstu leiktíð, eftir að Klopp er farinn. Ég er enn að jafna mig á því að Klopp ætli að hætta. Samt ekkert mjög dramatískt, ég sver.

Þetta myndband er bara fjórar mínútur en útskýrir vel vandann við stjórnmálaumræðuna í dag.

Nasistinn @LoginTerm
Sennilega fyrstu samskipti mín við loginTerm endaðuðu svona

Þessi samskipti við loginTerm eru eflaust upphafið af þessu ferli sem ég er að rembast við að skrifa mig út úr. Ég hafði skrifað athugasemdir við tvær færslur hjá einstakling sem vísaði á greinar hjá fasistum. Sá mun koma síðar við sögu.

Færslan er mjög löng, með fáránlega mörgum dæmum, vegna þess að furðulega margir frjálshyggjusamsærisgaurar munu segja eitthvað eins og; ég er kannski ekki sammála honum um allt en hann er ekki nasisti.

@loginTerm er gott dæmi um nútíma net-nasista. Hann hatar alla kynþætti fyrir utan þann hvíta, hatar gyðinga og hann hatar kvenfólk.

Rasisminn

Ólíkt sumum öðrum nasistum á netinu talar LoginTerm lítið í kringum hlutina heldur skellir kynþáttafordómunum bara beint út án þess að skammast sín nokkuð.

Þetta gengur voðalega mikið út á að vernda hvíta kynstofninn.

Takið eftir leiðréttingunni, rasistar eru heimskir og afar trúgjarnir og vísa oft á lygaáróður.

Þarna fáum við tvennu, klassískan nasisma varðandi greind kynþátta og það þarf að vernda hvíta kynstofninn.

George Carlin hataði fasista.

Eins og ég sagði, þá er ekkert talað í kringum hlutina heldur er þessi einstaklingur stoltur af rasismanum.

N-orðið er ítrekað notað. Ekkert þýðir að tilkynna færslurnar, á X hjá Elon Musk er þetta í lagi.

Greindarskertir rasistar eru mjög uppteknir af greindarvísitölum og vísa iðulega á vafasamar rannsóknir máli sínu til stuðnings. Ekkert af því stenst minnstu rýni.

Gyðingahatrið

Það er kaldhæðnislegt að margir rasistanna og nasistanna lenda í vandræðum með Ísrael og gyðinga. Rasistarnir halda auðvitað með Ísrael í fjöldamorðum þeirra á Palestínumönnum en nasistarnir hata gyðinga enn meira! Á sama tíma og margir hægrimenn saka alla sem vilja vopnahlé í Gasa um gyðingahatur láta þeir eins og þeir sjái ekki gyðingahatur þessa gaura.

Samsæriskenningar um að gyðingar stjórni eða vilji stjórna heiminum eru ekki nýjar.

Hér vísar LoginTerm til gyðinga. Lögmaðurinn Guðmundur St. Ragnarsson setur like við færsluna.

Kvenhatrið

Incel eins og LoginTerm hata konur því þeir kunna ekki að eiga samskipti við þær.

Þetta er auðvitað bara aumkunavert.

Nasisminn

Ekki bara rasisti og kvenhatandi aumingi heldur líka pjúra nasisti.

Fylgjendur og viðhlæjendur

Þegar ég rakst á LoginTerm og kallaði hann fasista brugðust margir við því með því að gera lítið úr mér. Þú kallar bara alla fasista sögðu þeir, þrátt fyrir að ég sýndi þeim skjáskot af því sem þessi aðili var að setja fram.

Þrátt fyrir að ég hafi ítrekað bent á þetta halda þeir áfram samskiptum við hann eins og ekkert hafi í skorist.

Almar Örn deilir færslu frá loginTerm, sem nú hefur eytt færslunni.

Arnar Arinbjarnarson viðskiptafræðingur hefur vitað í marga mánuði að loginTerm er nasisti.</figcaptions>

Sigurjón Þórðarson fyrrverandi alþingismaður fylgir loginTerm á Twitter

Tveir nasistar tjá sig í athugasemd hjá Þórði Pálssyni fjárfestingarstjóra Sjóvá. Hann gerir ekki athugasemd við málflutning þeirra.

Bjarki Viðarsson þáttastjórnandi á Brotkasti hæðist að umræðu um fasista á Twitter

Auminginn á bak við notandann loginTerm á Twitter er nasisti og viðhlæjendur hans og vinir geta ekki látið eins og þeir hafi ekki vitað af því, hann var ekkert að fela það. Viðhlæjendur nasista eru nasistar.

Nýlega eyddi LoginTerm öllum eldri færslum og nú hreinsar hann reglulega til hjá sér.

Takk fyrir ráðið. Ég hef vistað helling, það sem ég birti hér er bara brot.

Að mínu mati á lögreglan að hafa uppi á þessum skít því það sem ég hef birt hér brýtur svo sannarlega gegn lögum um hatursorðræðu. Ef einhver sem les þetta veit hver er á bak við þennan aðgang, gerðu það ekki vernda þennan aumingja.

Köllum þá nasista
footler er nasisti

„Hann er kannski rasisti sem aðhyllist hugmyndir um yfirburði hvíta kynstofnins, er á móti blöndun kynstofna, gyðingahatari, karlremba og skíthæll, en hann er ekki nasisti. Til að hægt sé að kalla einhvern nasista þarf hann að koma frá nasistan héraðinu í Þýskalandi“.

Næstum því sagt á Twitter ítrekað þessa dagana af gaurum sem eru alls ekki nasistar.

Hvað eigum við að kalla svona fólk sem aðhyllist hugmyndir um yfirburði hvíta kynstofnsins? Nei, það er ekki beint þjált að nota skilgreininguna svona og segir ekki heldur nóg. Rasisti er líka alltof vægt að mínu mati, allskonar fólk er mismiklir rasistar en langt frá því að aðhyllast einhverja ýkta kynþáttahyggju.

Nasisti er þjált orð og það segir alveg allt sem segja þarf, jafnvel þó umræddur einstaklingur sé hvorki meðlimur í Nasistaflokknum né með hakakross húðflúraðan á bringuna (þó gruni suma þeirra um það). Að mínu mati er nóg að einstaklingurinn samsvarar sig nasistum, segir það sama og nasistar, hugsar eins og nasisti.

Í Bandaríkjunum risu stoltir strákar upp frá lyklaborðunum og fóru í kröfugöngu í Charlottesville þar sem þeir hrópuðu að gyðingarnir myndu ekki koma í þeirra stað, „Jews will not replace us“. Íslensku nasistarnir á Twitter eru afar duglegir að tala um sömu samsæriskenningu.

Nasistar.

Aðrir internetgaurar sem eru of miklir aular til að fara út úr húsi og eiga samskipti við annað fólk, sérstaklega kvenfólk, og eru áhangendur nasistans Nick Fuentes, trolla á netinu og kalla sig Groypers. Stundum láta þeir eins og hatursboðskapurinn sé hálfgert grín en það hlær enginn með þeim.

Nasistar.

Frjálshyggjusamsærisgaurar
Geir er forsíðumynd því hann setti like við status!

Drögum andann djúpt, höldum honum inni, slökum á, lesum fyrirvarana...

Frjálshyggjumenn eru ekki allir nöttarar (ekki allir sammála mér um það)

Frjálshyggjumenn aðhyllast ekki allir samsæriskenningar

Frjálshyggjusamsærisgaurar eru ekki endilega rasistar, fasistar eða nasistar.

...og öndum hægt og rólega frá okkur.

Geir, Glúmur, Sigríður, Frosti og Frosti, Erna Ýr, Arnar Ar og Arnar Þór, Almar Örn, Guðmundur St, Bjarki, Þórður, Skúli, Kristján, Addi, Andri... Listinn er svo langur að það er ekki nokkur leið að taka hann saman enda er það aukaatriði. Þá vantar auðvitað herskara nafnlausra aðganga sem aðhyllast sömu hugmyndir og tengjast oft innbyrðis og tilteknum nafngreindum einstaklingum.

Hvers vegna fjalla ég um frjálshyggjusamsærisliðið í greinaflokk (ef ég má nota það orð) um nasista, fasista og fylgjendur þeirra?

Ég var einu sinni frjálshyggjumaður (og nörd)

Kommon, ég ólst upp í Garðabæ og gekk í Verzló. Mér var ekki viðbjargandi, auðvitað studdi ég Sjálfstæðisflokkinn og aðhylltist ýkta frjálshyggju, einkaframtakið bætir (allt) og kætir (alla).

Tíminn leið, hann getur ekki annað, ég óx úr grasi, þroskaðist eitthvað og vanþroskaðist dálítið á móti líka, og flestar skoðanir mínar breyttust eða þróuðust. Suss, ég er ekki að segja að það sé merki um vanþroska eða skort á lífsreynslu að aðhyllast harða frjálshyggju þó það mætti stundum halda. Mér finnst reyndar oft skrítið þegar fólk hefur aldrei skipt um skoðun á nokkru á fullorðinsaldri.

Ég held ég geti sagt að ég sé nokkuð vinstrisinnaður en sósíalistarnir (úr Sósíalistaflokknum) sem elska mig ekki, kalla mig "libba" og finnst fátt hræðilegra, ekki einu sinni öfgafrjálshyggjufólk! Ætli mætti ekki kalla mig einskonar krata, félagshyggjumann með jákvæð viðhorf til einkareksturs á flestum sviðum og með mikla andúð á dólgakapítalisma, Evrópu- og alþjóðasinnaður. Er hlynntur innflytjendum og fjölmenningarsamfélagi, en aðhyllist ekki hugmyndir um engin landamæri.

Meðlimur í framkvæmdastjórn Sósíalistaflokksins skrifar athugasemd um mig hjá torfi_k sem mun koma meira við sögu

Ég átti ágæt samskipti við einhverja frjálshyggjumenn á Twitter þó við værum ekkert sammála um allt, eflaust voru þeir dálítið ánægðir með mig meðan ég baunaði á Eflingarforystuna (hóp sem ég er enn ósammála um margt), en einhvern vegin tókst mér að missa þá flesta, sennilega þegar ég brást furðu lostinn við sumum tvítum. Þeir hættu að fylgja mér einn af öðrum og ég varð í alvöru dálítið leiður inni í mér. Það sama gerðist með nokkra róttæka vinstrimenn, suma sem ég hefði kallað vini eða kunningja. það væri barnalegt að líta ekkert í eigin barm en hver er ég að afneita mínu innra barni? Þetta er öllum öðrum að kenna!

Ég er semsagt að reyna að koma því frá mér að ég hef alveg getað átt samskipti við fólk sem ég er ekki sammála og geri engar kröfur til þess að allir hafi sömu skoðanir og ég. Þar til mjög nýlega blokkaði ég enga á Twitter.

Einar greinir mínan pólitík dálítið skakkt í athugasemd við tvít mitt þar sem ég sagðist hafa látið bólusetja mig

Samsæriskenningar og covid

Svo kom covid og þá virtust, frá mínum bæjardyrum séð, ansi margir frjálshyggjumenn finna sér nýtt áhugamál og nýjan persónuleika. Skiljanlega brást þessi hópur afar illa við takmörkunum á frelsi borgara, annað væri úr takti við hugmyndafræði þeirra. Það þýðir ekki að eðlilegt sé að stökkva skyndilega á allar jaðarkenningar sem í boði eru, eyða næstu árum í að útvarpa næstum eingöngu slíkum kenningum og láta eins og vísindasamfélagið sé að stóru leyti partur af einhverju trylltu samsæri.

Mynd eftir J. Burrello

Ég hef verið áhugamaður um samsæriskenningar ansi lengi og las greinar um falsaða tunglendingar, djöfladýrkendafár, sköpunarkenningar, Area 51 og hina ýmsu fljúgandi furðuhluti seint á síðustu öld. Margt af þessu var áhugavert en samsærissinnar voru sárafáir og umræður ekki á allra vitorði.

Árásin á Tvíburaturnana í New York 11. september 2001 varð upphafið að ótrúlega lífseigum samsæriskenningum og fólk sem aðhylltist ekki ýktustu kenningar tók jafnvel undir einhverjar vægari útgáfur. Það lenti stundum á mér að deila við fólk um það. Ekki láta ykkur dreyma að ég ætli að rökræða samsæriskenningar hér og nú, grínlaust, ég mun bara eyða athugasemdum um 9/11.

Covid

Covid kom, fólk dó og skynsömum manneskjum þótti ástæða til að bregðast við. Það er nefnilega frekar óheppilegt þegar margt fólki deyr, eða það finnst okkur libbunum! Auðvitað má deila um það eftirá hvort hin og þessi ákvörðun hafi verið rétt, það er auðvelt að vera vitur eftirá. Sannarlega voru gerð mistök og ýmislegt sem ákveðið var snemma í covid reyndist rangt, t.d. áherslan á snertismit en ekki loftgæði og grímunotkun eins og Frosti Sigurjónsson benti réttilega á, en fólk tók ákvarðanir út frá þeim upplýsingum sem það hafði og aðstæðum sem þá voru. Annað er nefnilega ekki hægt, tíminn gengur nefnilega áfram eins og ég nefndi áður. Það er líka dálítið skemmtilegt að rifja upp að hugtakið "fasisti" var töluvert notað af frjálshyggjusamsærisnötturum á þessum tíma.

Uppúr mótlætinu sem covid aðgerðir voru gengu fjölmargir frjálshyggjusamsærisnöttar af göflunum, gerðust á einni stundu alvitrir um sóttvarnir, sem þeim þóttu tilgangslausar og bóluefni sem þeim þykja hættuleg. Fólk sem ég hefði áður talið nokkuð skynsamt var skyndilega farið að daðra við hugmyndir um að sjúklingar, aldraðir og annað viðkvæmt fólk gæti bara drifið sig að drepast til að við hin þyrfum ekki að taka á okkur meiri kostnað og óþægindi.

Þegar búið var að bólusetja flesta landsmenn og aflétta öllum takmörkunum tók við endurskoðun sögunnar og nýlega hefur sumt af þessu fólki dregið þá ályktun að fyrst veikum hafi fjölgað eftir að sóttvarnaraðgerum var hætt hafi lítill tilgangur verið með þeim, sem er furðulega öfugsnúin röksemdafærsla! Sífellt er vitnað í að Svíþjóð hafi staðið sig þjóða best og margir á því að allt hafi þetta verið algjört leikrit, covid ekkert verra en slæmt kvef og flest fólk muni jú deyja að lokum, þetta sé því stormur í vatnsglasi.

Ég bloggaði fyrir tveimur árum.

Sjálfstæðisflokkurinn, covid og Trumpismi

Einu sinni tengdi ég flestar samsæriskenningar við fólk langt til vinstri, fyrir utan þá sem ekki trúa á Þróunarkenninguna, sem voru og eru (kristna) hægra megin. Nýöld og samsæri voru kokteill. Síðustu ár hefur þetta algjörlega snúist við og langflestir sem aðhyllast samsæriskenningar opinberlega eru frjálshyggjumenn. En það má líka segja að nú sé uppskriftin að kokteilnum breytt; nýöld, frjálshyggja og samsæri. Með dassi af rasisma stundum.

Reglulega gera þeir samt lítið úr slíkum ásökunum, vísa á bullgreinar og segja eitthvað í átt við; „á ekki bara að kalla allt samsæri“. Svarið er óþægilegt of já, þetta sem þú ert að fjalla um núna er samsæriskenning, það tekur 30 sekúndur að staðfesta það.

Uppruni covid

Hugmyndir um uppruna covid eru ágætt dæmi um það hvað umræðan getur verið flókin. Vissulega voru uppi kenningar (ekki samsæris-) um að covid hefði orðið til á rannsóknarstofu. Vísindamenn skoðuðu þá kenningu ásamt kenningu um náttúrlegan uppruna og komust að lokum að því að nær útilokað væri að covid hefði orðið til á rannsóknarstofu og allt benti til að covid hefði borist frá dýrum í menn. Auðvitað tjá vísindamenn sig varlega og útiloka helst ekkert fyrr en þeir hafa öll gögn. Þannig er hægt að vitna í Fauci sem útilokaði þetta ekki, því það var verið að skoða málið.

Það var ekkert að því að aðhyllast kenningu um leka af rannsóknarstofu, en þegar niðurstöðu liggja fyrir, er það orðin samsæriskenning að halda sig við kenninguna.

Wikipedia: COVID-19 lab leak theory

LA Times: U.S. government debunks COVID lab-leak conspiracy theory, enraging conspiracy theorists

msnbc: Those insisting the pandemic was human-made are ignoring the known facts

Kemur síðar í ljós að þetta var allt samsæri og Kínverjar hafa falsað gögn til að fela þá "staðreynd" að covid-19 á uppruna sinn á rannsóknarstofu? Það getum við ekkert vitað um núna, en í besta falli er hægt að segja að sú kenning byggir á afar veikum grunni í dag.

Ekki bara covid

Frosti Sigurjónsson telur kaldan vetur afsanna hnattræna hlýnun

Ef þetta væri bara covid væri staðan einföld en svo er bara alls ekki. Þessi hópur sem ég uppnefni sem frjálshyggjusamsærisnöttara hefur flestar af eftirfarandi skoðunum:

covid er flensa, bóluefnin virka ekki og drepa fólk

veðurfar jarðar er ekki að breytast

ef það er að breytast er það ekki af mannavöldum

ef það er af mannavöldum eru breytingarnar jákvæðar

annars er ekkert hægt að gera!

það sem við gerum dregur úr hagvexti

Olía er góð

"Góða fólkið" eða "woke" liðið hefur alltaf rangt fyrir sér og því eru:

málefni trans-fólks bull og tilvera trans-fólks árás á konur og samkynhneigða

kynfræðsla á ekki heima í skólum

Jafnrétti kynja löngu náð, öll frekari barátta fyrir því bull

Allt sem gert er til jafna stöðu minnihluta, sérstaklega í Bandaríkjum (nú síðast DEI) er bull.

Evrópusambandið er hrikalega slæmt reglugerðafargan (þó gaurinn búi í evrópusambandsríki)

Rafmyntir, rafmyntir, rafmyntir (vita nær ekkert um bálkakeðjur, finnst samt að þær eigi að leysa allskonar leyst vandamál)

Gervigreind, gervigreind, gervigreind (vita mjög lítið um gervigreind)

Javier Milei er Jesús endurfæddur!

Russel Brand, Alex Jones, Tucker Carlson, Joe Rogan, Jordan Peterson!

Þeir elska Musk, finnst hann snillingur og þykjast aldrei sjá þegar Musk er í tómu rugli

(fólk getur samt aðhyllst eitthvað af þessu án þess að falla í flokk frjálshyggjusamsærisgaura)

Það er alveg ótrúlega algengt að frjálshyggjusamsærisnöttarar dreifi röngum og/eða fölsuðum upplýsingum og yfirleitt krefst ekki mikillar fyrirhafnar að sjá að svo er, en það virðist aldrei skipta máli.

Ég gæti skrifað alltof mikið um þetta og ein ástæða þess að það hefur tekið mig tíu daga að koma þessari bloggfærslu frá mér er að ég er með alltof mikið efni í höndunum, ég hef ekki tíma til að hafa þetta styttra! Ég ætla að fjalla um annað, þessi grein er bara útúrdúr, en þó ekki.

Musk og einsleitar skoðanir

Musk keypti Twitter, sagði upp flestu starfsfólki og ákvað að tjáningarfrelsi fordómafullra væri mikilvægasta frelsið. Lofaði að hætta allri ritskoðun/ritstýringu og viti menn, rasistarnir skriðu úr skúmaskotum (4chan).

Eins og ég sagði í fyrstu grein, brá mér þegar íslensku nasistarnir birtust allt í einu og hvað þeir eru margir. Það kom mér líka algjörlega í opna skjöldu þegar ég sá að frjálshyggjusamsærisgaurarnir hópast í kringum og eru viðhlæjendur þeirra. Mér finnst það grafalvarlegt. Kannski er hluti ástæðunnar að nasistarnir "stuða" woke/góða fólkið og allt sem stuðar "góða fólkið" er gott. Óvinur óvina minna.

Þegar níu einstaklingar sitja við borð og nasisti sest hjá þeim, og enginn stendur upp, þá sitja tíu nasistar við borðið. Hvað þá ef allir tíu hlæja saman. Sem er það sem hefur gerst á Twitter/X undanfarið.

Þess vegna fjalla ég um frjálshyggjusamsærisliðið í greinaflokk um nasista, fasista og fylgjendur þeirra.

Tölum um íslenska nasista og viðhlæjendur þeirra
Notandinn TermLoginSite er pjúra nasisti og viðbjóður

Undanfarnar vikur hef ég eytt óþarflega miklum tíma í að drulla yfir íslenska rasista, nasista, fasista og fylgjendur þeirra á Twitter/X. Ég segi „drulla yfir“ vegna þess að ég hef engan áhuga á að rökræða við þennan hóp.

Það hefur komið mér á óvart hvað þessi hópur er stór og hvað hann skammast sín lítið. Verstu nasistarnir hafa auðvitað vit á að vera nafnlausir en í kringum þá eru gaurar sem skammast sín ekkert fyrir að hafa samneyti við sorann, finnst það jafnvel þrælfyndið.

Það gerir þessa umræðu dálítið skrítna þegar stemmingin hjá sumum er sú að sá sem bendir á nasistann sé skrítni aðilinn, ekki nasistinn. Þessi skopmynd var t.d. alveg sérstaklega vont innlegg í umræðuna enda stukku þeir til og endurbirtu í sínum þráðum.

Skopmynd eftir Halldór Baldursson, tekin af Vísi

Þá gelta þeir í kór nasistarnir og viðhlæjendur þeirra; „eru allir sem eru ekki sammála þér nasistar/fasistar“? Og svo ég svari því strax; nei, alls ekki. Ef ég á að segja alveg eins og er, þar til fyrir nokkrum mánuðum grunaði mig ekki að það væru svona einstaklingar að tjá sig opinskátt á samfélagsmiðlum á Íslandi og að þeir ættu sér viðhlæjendur og vini sem sjá ekkert athugavert við málflutning þeirra. Ég get meira að segja rakið nokkuð nákvæmlega hvenær ég rakst á þetta lið fyrst og mun gera það í annarri færslu.

Það kaldhæðnislega við umræðuna er að sumir þeirra sem koma við sögu voru óskaplega duglegir við að saka alla sem mótmæltu fjöldamorðum á Palestínumönnum um gyðingahatur og stuðning við Hamas.

Ég ætla að taka mér góðan tíma í að blogga um þetta enda er ég augljóslega latur bloggari, skrifa nokkrar færslur og það munu eflaust líða dagar á milli. Áður en ég fjalla um nasistana sjálfa ætla ég að koma inn á tvennt; hópinn sem ég kýs að kalla frjálshyggjusamsærisnöttara og rifja upp hvernig þjóðernis-hægrið hindrar gagnrýni á íslam.

Einhverjir þeirra, eins og fígúran á fyrri myndinni, eru byrjaðir að eyða gömlum færslum. Það vill svo vel til að ég á skjáskot sem munu koma að góðum notum.

Meira síðar.

Norðurljós í Borgarfirði síðasta föstudag
Vorum í bústað um helgina og á föstudagskvöld fór ég út og tók myndir af norðurljósum. Fyrst voru þau ansi skýr en ég nennti ekki strax út, tók símamynd af pallinum sem kom bara ansi vel út, myndavélin í Samsung Galaxy S23 Ultra virkar ágætlega í næturstillingu. Þegar ég drattaðist loks út voru ljósin daufari en náðust samt vel á mynd.

Mynd tekin rétt rúmlega ellefu um kvöld. Ljósop opið í 24.5 sekúndur.

Þegar ég ætlaði að ganga til rekkju um tvö um nótt voru ljósin orðin ansi björt og ég skellti mér því aftur upp á hól og tók nokkrar myndir.

Mynd tekin klukkan tíu mínútur yfir tvö. Ljósop opið í 11 sekúndur.

Ég hef dálítið gaman að þessu þó norðurljósamyndir séu næstum allar eins. Passa mig á að ýkja myndirnar ekkert mikið í vinnslu, eins og sést eru þær dálítið dramatískar úr símanum enda skrúfar sjálfvirka myndvinnslan í símanum allt upp í ellefu.

Nokkrar í viðbót í myndum mánaðarins.