Matthías Ásgeirsson

Ég heiti Matthías Ásgeirsson. Er giftur Gyðu Ásmundsdóttur viðskiptafræðingi.  Við eigum þrjár stelpur.


Ef þú þarft að ná af mér tali er messenger vísunin matthias_asgeirsson hjá hotmail punktur com, ekki senda mér póst á þetta póstfang, ekkert víst að ég sjái hann. Síminn hjá mér er 8600644.

Dagbókin er aðalsíðan á þessum vef. Ég uppfæri hana reglulega með misjafnlega áhugaverðu þvaðri. Sumt af því er illa ígrundað, restin tómt rugl.

Ég fæddist 23. nóvember árið 1973 á Siglufirði, flutti til Reykjavíkur þriggja ára gamall og ólst svo upp í Garðabæ frá fimm ára aldri. Spilaði fótbolta með Stjörnunni til meistaraflokks og spilaði með KS sumarið 93, tók Stúdent í Verzló. Fór í Háskólann og eyddi ári í að læra heimspeki og fleiri árum í tölvunarfræði. Kláraði ekki gráðuna heldur fór að vinna hjá Stefju og líkaði vel. Fór yfir til CCP árið 2000 og var þar til júlí 2003. Hóf störf í hugbúnaðardeild Landsbankans í október 2003 og var þar í eitt og hálft ár, þar til ég færði mig aftur yfir í Stefju sem nú heitir Trackwell í maí 2005. Dunda mér þar við vefforritun með Python með sérstaka áherslu á bjórdrykkju og pílukast. Um þessar mundir skrifa ég líka hugbúnað fyrir Android síma.

Fór aftur í skóla og kláraði tölvunarfræði veturinn 2010-2011 og má nú nota titilinn tölvunarfræðingur. Dunda mér í meistaranámi í tölvunarfræði við Háskóla Íslands með vinnu næstu árin.

Ég er tölvudellukarl, finnst gaman að forrita og þykir C++ skemmtilegt forritunarmál. Python er líka í miklu uppáhaldi. Hef áhuga á forritun símtækja og fikta dálítið í forritun Android síma þessa dagana.

Er líka með ljósmyndadellu og áhuginn á ljósmyndun hefur stóraukist eftir að ég eignaðist Nikon D70. Í september 2006 uppfærði ég svo í D200 og svo toppaði ég vitleysuna með því að kaupa Nikon D700 haustið 2008. Held hún dugi mér í bili en ég hef svosem sagt það áður. Er ekkert sérlega fær en er þó sífellt að læra eitthvað. Á myndasíðunni er slatti af myndum, mest af fjölskyldunni. Einnig eru nokkrar í myndaflokknum í dagbókinni. Ég dunda mér einnig við að setja myndir á flickr.