April 24, 2004
ein heima

Datt í hug að skella hérna inn laugardagspistlinum til póstlistans míns en Matti kvartar alltaf öðru hvoru um að ég skrifi ekkert svo ætla að muna eftir að henda laugardagspistlunum mínum hingað inn svo það komi þá eitthvað einu sinni í viku :-)

Ja sko eina fullorðna mannsekjan á heimilinu þó að ég getir bráðum farið að kalla Áróru fullorðna :-Þ en sem sagt Matti er í útlöndum í fjóra daga svo ég er án hans. Hann fór í fótboltaferð til Manchester að sjá Manchester united og Liverpool spila. Í gærkvöldið fóru þeir á stand up og á sunnudagskvöldið eiga þeir miða á Duran Duran tónleika og svo á mánudag er stefnan tekin á Liverpool borg þar sem Matti og Stebbi bróðir ætla að skoða heimavöll Liverpool (ætluðu að gera það í gær en af einhverjum ástæðum frestuðu þeir því). Þeir koma svo heim á mánudagskvöldið. Vonandi koma hryðjuverkamennirnir hvergi nálægt þeim :-(

Við stelpurnar höfum það mjög gott. Á sumardaginn fyrsta svaf ég út (ja til rúmlega 10 Inga María er alveg hætt að leifa mér að sofa lengur, Matti þarf alveg að vakta hana stannslaust því hún stelst upp og segist ætla að kúra hjá mér en er farinn að hoppa á mér eftir hálfa mín!!). Þegar ég kom niður fengum við okkur morgunmat og fórum út í garð í góða veðrið. Ég vann í beðunum og um eitt hjóluðum stelpurnar litlu af stað í átt að Hólmaseli. Við vorum nú bara komin fram hjá svona 4-5 húsum þegar ég snéri við með hjólin!! Kolla var að fá fyrsta tvíhjólið sitt og er að læra að nota pedalana og vældi yfir því í öðru hverju skrefi og Inga María var á þríhjóli með petala og vældi í takt við Kollu!! Áróra kvartaði svo og kveinaði yfir því að þurfa að fara út í göngutúr með okkur!! Foreldrarnir voru orðnir nett pirraðir og ákváðu að skila hjólunum og allir myndu ganga. Áróru var sagt að gangan myndi leiða okkur í Hólmasel þar sem væri skemmtun svo allir tóku gleði sína. Eina sem skyggði á gleðina var að kláru foreldrarnir höfðu ekkert hugsað um hádegismat svo börnin kvörtuðu og kvörtuðu um hungur við vorum ekki heldur með peningaseðla til að kaupa pulsur í básnum hrikalega klár. Svo föttuðum við að við höfðum gleymt að setja bleiju á Ingu Maríu og ég reyndi mikið að fá hana til að pissa í klósettið í hólmaseli en hún vældi og vældi og harðneitaði því. Það endaði náttúrulega með að hún pissaði í buxurnar svo ég og hún röltum af stað heim að skipta um föt en Matti fór með hinar í næstu sjoppu að kaupa samlokur handa þeim. Við Inga María vorum heila eilíf að rölta heim með stoppum að skoða hvern einasta stein og prik sem við löbbuðum fram hjá en það var svo sem allt í lagi í þessu yndislega veðri. Við keyrðum svo til baka þar sem ég nennti ekki að labba með hana til baka, hún vældi samt alla leiðina yfir því að við færum ekki labbandi enda var hún orðin hrikalega svöng og þreytt í ofan á lag. Við fórum fyrst í sjoppuna og fengum okkur samlokur og keyptum smá nammi líka og fundum svo restina af fjölskyldunni sem var þá búin að skemmta sér vel. Ég er alveg farinn að sjá kostina við að hafa skemmtanirnar svona í hverfinu þó mér hafi fundist það asnalegt í byrjun að hafa þetta ekki í bænum. Í bænum var maður í troðningi dauðhræddur að týna börnunum og rakst á einn og einn en börnin hittu engan sem þau þekkja. Þessar skemmtanir eru í raun mikið betri fyrir krakkana. Þau geta hlaupið um (eins mikið og maður þorir því með stóra tjörn við hliðina á sér!!) og hitta fullt af krökkum af leikskólanum/skólanum og nokkrar konur sem vinna á leikskólanum líka. Auðvitað er mikið skemmtilegra að leika sér að henda boltum, á trambolíni og í hoppikastala með vini sína með sér.
Eftir að ég kom til baka fórum við í garðheima og keyptum okkur klippur og til mömmu og pabba að ná í klippurnar okkar (öðru vísi klippur veit samt ekki um annað orð yfir þetta tæki!!) og Matti hófst svo handa við að klippa trén. Stelpurnar léku sér við barnabörn nágrannanna og ég hélt áfram í beðunum. Garðurinn er því betri en hann var fyrir utan að hann er troðfullur af greinum þar sem ekki var tími til að fara í sorpu og Matti ekki heima fyrr en í næstu viku svo þær verða eflaust þarna fram til næstu helgi en hvað um það!! Verður rosaflott þegar við erum búin að losa okkur við greinarnar og ef ég kæmist nú í að klára beðin (tók hálft stóra beðið og aðeins af beðunum fyrir framan hús) en það er sko nóg eftir þar og rigning alla helgina núna skv. spá!!
Dagurinn endaði svo að sjálfsögðu í grilli og rauðvíni og bjór og meiri bjór!! Matti fór í eitthvað kæruleysi yfir því að vera á leið til útlanda og því væri ágætt að hefja fyllerísferð á að fá sér nokkra bjóra. Allavegana tókst honum að fylla konuna sína (á 3 rauðvínsglösum og rúmlega einum bjór) og við bara tvö ein heima haldiði að það sé!! En við höfðum það allavegana gott saman :-)

Í gær þurfti ég bæði að keyra stelpurnar og sækja þær ágætt að ég átti einhverjar mínútur inni hjá vinnuveitandanum því mér tókst ekki að vinna 8 tíma og skutla og sækja. Gæti kannski tekist það ef ég væri mætt akkurat 8 á leikskólann en ég var mætt rétt rúmlega og mætti í vinnu 8:30 og fór svona 20 mín yfir 4 og var komin á leikskólann rétt fyrir 5. Ætli ég þyrfti ekki að borga 9 og hálfan tíma ef ég væri einstæð!! En gott að maður finnur fyrir því að kallinn geri eitthvað gagn ;-)

Á eftir förum við til mömmu og pabba og á morgun erum við líka búin að mæla okkur mót svo við ættum að hafa nóg fyrir stafni meðan kallinn er í burtu. Vilji þið pæla í því að fyrir ári þá var ég svo til alltaf ein en núna var ég virkilega með áhyggjur af 4 dögum yss hvað maður er bara einn stór vani.

Posted by gydaa at 09:02 AM