Jæja ég skrifa bara á afmælum greinilega!! En litla barnið mitt varð sem sagt 2 ára í dag. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Mér finnst það hafi verið í gær sem ég fékk hana fyrst í hendurnar!!
Dagurinn er búinn að vera góður en ég er nú alveg voðalega þreytt eftir erfiðar helgi. Búinn að taka til og þrífa og baka eins og gengur þegar maður er með í afmæli. Nema það að ég tók heldur meira til heldur en venjulega. Kom leikherberginu niðri í almennilegt horf og tók til í herberginu hennar Áróru (sem er stórkostlegt afrek í sjálfum sér þó ég hafi svindlað með því að henda öllu bókstaflega í 3-4 dótakassa og fara með þá út úr herberginu og hún fær þá bara einn í einu og verður að koma öllu fyrir áður en hún fær þann næsta það er á hreinu!!). Verður spennandi að sjá hversu langur tími líður þar til hún biður um fyrsta kassann.
Matti tók auðvitað myndir í dag og skellti þeim á síðuna okkar. Hann er svo duglegur myndamaður, gott að einhver sér um það ef ég myndi gera það þá ætti fjölskyldan líklegast engar myndir!!
Jæja nú er ég farinn að sofa
Ég er bara búin að eiga voðan fínan dag. Ja fyrir utan það að hann byrjaði allt of snemma!! Inga María sem sefur venjulega til 8 eða hálf 9 á virkum dögum með pabba sínum vaknaði hálf 7 þegar það var minn dagur að vakna!!! Tíbískt!!
Ég fór svo að skera niður grænmeti í grænmetissúpuna sem ég bauð upp á í hádegisafmælisboðinu mínu (á sem sagt afmæli í dag). Bakaði svo eina súkulaði köku og ætlaði að baka eplakaköku ala Inga en fann ekki lyftiduft svo Matti keypti bara osta líka um leið og hann fór í Jóa fel að kaupa brauð með súpunni. Var svo að dúllast með skvísunum mínum til 10 og vakti þá Matta sem fór já mm sem sagt að kaupa brauð ég var víst búin að segja það :-)
Tengdaforeldrar mínir og systkyni Matta komu svo rúmlega 11 og foreldrar mínir og Matti um hálf 12 en aumingja Matti hafði þurft að fara í Hagkaup líka þar sem að hvítlauksbrauðið var víst ekki til hjá Jóa fel en hagkaup selur líka brauð frá honum og þar var það til!! Hann sótti líka Áróru og þau fóru saman og keyptu afmælisgjöf handa mér. Vasaútvarp til að hafa í strætó en ég er orðin voðalega leið á að eiga ekkert slíkt. Fékk svo pyls, topp og hneppta peysu frá tengdafjölskyldunni já og jólasvein til að standa á borði. Frá foreldrum mínum fékk ég svo kort þar sem framan á var svaka gella og stóð á cool inn í var skrifað að mamma ætlaði með mig í bæinn og gera mig cool :-Þ Hún sagðist svo ætla að gefa mér t.d. buxur af því mig langar mest/vantar það mest. En kortið var flott :-)
Stelpurnar fengu svo allar pakka líka frá mömmu meira að segja Ásdís Birta hennar Jónu Dóru enda var mamma að sjá hana í fyrsta sinn já og auðvitað pabbi líka.
Ég sat svo í tölvunni eftir að gestirnir fóru og spilaði civilization 3 en langt síðan ég hef spilað civ og Matti og áróra pössuðu stelpurnar á meðan og Áróra heldur meira því Matti fór í boltann klukkan 5 eins og vanalega á laugardögum. Áróra fór svo til pabba síns aftur um 6. Rétt fyrir 7 kom Matti svo heim og við ákváðum að fara út að borða og fórum á Galbi (hægt að lesa matargagnrýni Matta hér). Mjög fínn staður mæli með honum. Er á móti Nings í Kópavogi skrifstofuhverfinu fyrir ofan Smáralind. En spurning hvort að staðurinn lifir lengi því við vorum einu gestirnir á besta tíma á laugardagskvöldi!! Fengum líka rosa fína þjónustu í takt við það. Kolla hefði nú setið kjurr allan tímann ef litla skottið hefði ekki verið að æsa hana í að gera annað en eflust allavegana 1-2 ár í að Inga María verði veitingahúsahæf. Við nutum nú matsins vel samt og stelpurnar skemmtu sér vel. Mikil upplifun fyrir þær að fara á veitingahús gerum það sjaldan með þær með okkur. En þær voru sem sagt komnar í eltingaleik í lokinn!!! En þar á undan hafði nú konan (þjóninn) hjálpað þeim að lita við næsta borð og gefið þeim nælu í peysurnar og kjaftað við þær þannig að við fengum virkilega góða þjónustu.