September 21, 2003
Helgin mín

Ég er búin að hafa ágæta helgi þó ég hafi verið meira og minna eiginmannslaus um helgina!! Matti var með lokahóf Henson (fótboltaliðið hans í utandeildinni) hérna heima hjá okkur og góða eiginkonan hans flutti til foreldra sinna eina nótt svo strákarnir gætu verið í friði :-)
Við fórum til mömmu strax eftir vinnu eða svo til vorum komin þangað rétt um 6 ég fór sem sagt bara heim og tók saman dótið okkar og sængur og svo fórum við. Fengum Mcdonalds hjá mömmu og pabba sem stelpunum fannst ekki leiðinlegt. Svo fór Inga María að sofa en Kolla sofnaði ekki fyrr en klukkan 10 var rosalega spennt að fara í rúmið en gat svo ekkert sofnað svo ég tók hana fram til okkar aftur. Horfðum á einhverja hundleiðinlega hundamynd og ég las bók þess á milli. Kolla vaknaði svo 7 og tókst að vekja systur sína fljótlega þar á eftir með því að þurfa nauðsynlega að kyssa hana aftur og aftur á tærnar. Hún var sko ekkert að vekja hana þetta voru bara svo krúttlegar tær!! Mömmu hennar fannst þetta nú ekkert sniðugt enda dauðþreytt eftir að hafa sofið illa um nóttina. Kolla þurfti nefnilega nauðsynlega að fara á klósettið klukkan 3 og svo voru líka rosaleg læti í veðrinu. Svaf sko í herbergi með stórum gluggum að sjónum og rokið barði bókstaflega stannslaust á gluggunum. Síðan kom Inga María upp í til mín um 4 og hún var alltaf að velta sér alveg á brúnina þannig að ég var alltaf að næstum grípa hana áður en hún rynni út á gólf svaf sem sagt ekki mjög fast með hana svona.
Kosturinn var samt sá að herbergið okkar er við hliðina á sjónvarpsherberginu, sófinn við hliðina á hurðinni svo ég lá og dottaði í tæpa klst meðan Kolla horfði á banatímann og Inga María lagði sjónvarpsherbergið i rúst!! Þvílíkir gestir. Svo klukkan 9 fór ég með þær fram að fá morgunmat og þá vöknuðu gömlu hjónin fljótlega enda ekki mjög hljóðlegir næturgestir sem þau höfðu.
Stebbi bróðir og frú komu svo um hádegið með Matta glæran af svefnleysi og þynnku (hann var að skemmta sér til 6 eða 7 um morguninn!!). Við borðuðum ástamt foreldrum Margrétar (kærustu Stebba) og það var gaman að hitta þau í fyrsta sinn. En þau komu sko að skutla stráknum hennar til þeirra og kíktu inn í hádegiskaffi. Um leið og Matti var búinn að borða lagðist hann í sófann og svaf þar þangað til ég rak hann í rúmið sem ég hafði sofið í um nóttina svo stelpurnar gætu horft á spólu. Ég vakti hann svo um 4 til að við gætum farið heim. Við fórum heim og hann náði í íþróttafötin sín og ég skutlaði honum í fótbolta og þaðan fór hann beint á næsta djamm sem var 10 ára reunion með Versló.
Við stelpurnar borðuðum afganga frá kvöldinu áður hjá Matta og svo fóru litlurnar að sofa en ég fór út í sjoppu og keypti nammi og gos handa okkur Áróru og við horfðum á sjónvarpið þar til hún fór að sofa rúmlega 10. Ég naut þess þá að liggja í sófanum með ferðatölvuna alveg fyrir mig og fjarstýringuna líka en það var reyndar ekkert í sjónvarpinu!! Ég fór svo bara að sofa um miðnætti og rumskaði um 5 við að eiginmaðurinn skilaði sér í rúmið til mín (sem þýðir að hann kom heim milli 3 og 4 því hann fer aldrei beint að sofa!!) og ég var voða glöð yfir því að hann kæmi svona snemma heim :-)
Vaknaði svo með skvísunum í morgun (ekkert í boði að sofa út þessa helgi) og lág upp í sófa áfram með ferðatölvuna meðan stelpurnar horfðu á barnatímann og vakti svo Matta rúmlega 11. Hjálpaði Áróru með ritgerð um Vespur sem verður skilað á morgun og gerði tilraun til að lesa bók þess á milli. Endaði nú í pirring upp í rúmi og skipaði eiginmanninum að hugsa um dæturnar þar sem ég ætlaði að fá korters pásu með bókina mína. Pásann entist nú ekki nema í 5 min en þá kom Kolla upp til mín og talaði og talaði og svo kom Inga María fljótlega á eftir urr ég var nú ekekrt rosakát með eiginmanninn þá. Reif mig þá á lappir og í að koma liðinu í spariföt þar sem við vorum boðin í afmæli. Vorum svo í 4 ára afmæli milli 5 og rúmlega 8. Ætlaði fyrst ekki að fá stelpurnar til að koma heim og svo tók tíma að koma kallinum út líka þó hann vildi ekki viðurkenna að hann væri verri en börnin ;-) En við skemmtum okkur öll vel í afmælinu. Alltaf gaman að kjafta við ættingja en Ásthildur (afmælisbarnið) er dóttir Ásmundar bróðir Ásgeirs tengdapabba (voðalega er þetta eitthvað flókið hjá mér þegar maður les þetta). Ásthildur og Kolla ná alltaf vel saman enda bara nokkrir mánuðir á milli þeirra og Dóra Sóldís (eldir dóttir þeirra) og Áróra skemmtu sér ágætlega saman líka. Það er helst að Inga María hafi verið út undan og var hún mikið uppi hjá okkur á milli þess sem að stelpurnar notuðu hana sem hálfgerða dúkku í mömmuleiknum!!
Annars var ferðatölvan hans Matta að bila aftur svo það er spurning hversu mikið ég fæ að komast í tölvu þangað til hún kemst í lag!! Fyrst þarf ég að slást við dæturnar en á kvöldin við eiginmanninn um tölvuna!! Eins gott fyrir heimilisfriðinn að við fáum fleiri en þessa einu tölvu í lag.

Posted by gydaa at 10:30 PM
September 17, 2003
Rök 3 ára barna ofl

Inga María kom óvenju snemma upp í til okkar og tók svo til allt rúmið og Kolla kom líka upp í en svaf reyndar á dýnunni við hliðina á okkar þannig að það var í fínu lagi en ég svaf nú ekkert mjög vel. Rauk svo á fætur 20 mín yfir 7 þar sem að Áróra hafði ekki stillt klukkuna sína og ég þurfti að drífa hana á fætur. Gerði það og rauk svo og náði strætó 10 mín í 8 hálfsofandi ennþá.

Langaði alls ekki í steiktan fisk og ekki í salatbarinn þar sem að ég fékk mér hann í gær þegar það voru soðnar kjötbollur (og örugglega ógeðslega mikil fita í þeim eða var það allavegana síðast þegar ég gerði tilraun til að borða þær). Ég hringdi því í mömmu og við fórum út að borða í hádeginu. Gekk ekki áfallalaust að finna stað samt. Hittumst fyrir utan Pasta basta en þar var allt læst, fórum næst á Cafe List en þar voru 2 reyklaus borð mitt á milli reyk borðanna og fólk að reykja við hliðina á reyklausu borðunum spennandi að borða þannig ekki satt!! Við horfðum bara hneikslaðar á þjóninn fyrir að ætla að bjóða okkur upp á þetta og fórum út. Næst fórum við á vegamót en það eru engin smá læti þar sem að mér skilst að sé bara "eðlilegt" fyrir þennan stað svo við flúðum þaðan líka og enduðum á Ítalíu. Keypti mér hálfmána og var mjög ánægð með matinn át reyndar yfir mig en það fylgir víst.

Mamma sagi mér frá samræðum sem hún átti við Kollu á laugardaginn var. Þær voru að ræða um litlu frænku (dóttur Jónu Dóru og Óttars) og mamma segir við Kollu. Borðar hún eitthvað (því við borðum alltaf öll saman á sunnudögum hjá tengdó). Já hún gerir það segir Kolla en hún borðar bara heima hjá sér. Nei segir mamma svona lítil börn drekka bara úr brjóstinu sínu þau borða ekki mat. Jú víst gera þau það segir Kolla en hún borðar bara mat heima hjá sér ekki hjá ömmu Stellu. Mamma reyndi áfram að rökræða þetta við hana en hún gaf sig ekki. Hún sagðist nefnilega vita vel að lítil börn dykkju bæði úr úpa (orðið sem Inga María notar yfir að drekka brjóst) og borðuðu mat því að Inga María gerði bæði og reynið ekki að plata hana að fyrst að litla systir hennar geri bæði þá geri ekki öll lítil börn bæði!! :-)

Annars fór ég með Kollu aftur á læknavaktina þar sem læknirinn mælti með því um daginn að við létum kíkja í eyrun á henni eftir 1-2 daga. Rörið í því eyra sem enn hafði rör er að detta úr en eyrnabólgan er samt að hjaðna svo hún sleppur við sýklalyf í þetta sinn.

Posted by gydaa at 08:55 PM
September 15, 2003
Dagurinn í dag og eyrnabólga

Ég byrjaði daginn á því að koma við í mötuneytinu og kaupa mér kjallarabollu og setja kjötálegg ofan á mmmm namm namm þó að ég verði nú að viðurkenna að brauð með kjöti flokkist frekar undir kvöld eða hádegismat heldur en morgunmat en alltaf jafn gott samt. Þægilegt að hafa svona mötuneyti í vinnunni sem er með allar máltíðir svo maður getur alltaf fengið eitthvað gott í gokkinn. Ekki er það heldur dýrt brauðbolla með áleggi kostar bara einn miða sem er 55 kr.

Síðann fékk ég þennan fína gratineraða fisk í hádeginu svo ég haldi nú áfram að hrósa mötuneyti Landspítalans ;-)

Síðan var hringt í mig úr leikskólanum klukkan 3 í dag þar sem að Inga maría var komin með hita. Það hefur verið að leka úr eyrunum á þeim báðum síðustu daga svo við kíktum á læknavaktina eftir vinnu og létum kíkja í eyrun á þeim báðum.

Kolla er með væga eyrnabólgu í því eyra sem er ekki rör og við máttum ráða hvort við fengjum pensilín eða létum kíkja á hana aftur á morgun. Ákváðum að bíða og kíkja frekar aftur á morgun. Hún hefur verið rosalega lengi að sofna síðustu kvöld en í kvöld gaf ég henni verkjalyf fyrir svefninn og hún sofnaði svo til strax!!! Stelpu greiið henni hefur bara liðið illa að liggja þar til hún gat ekki setið og leikið sér lengur og svefninn náð yfirhöndinni. En aldrei kvartar þetta barn nei það er á hreinu!!

Inga María er með eyrnabólgu í öðru eyra og smá roða í hinu. Hún fékk eyrnadropa og verður heima hjá pabba á morgun. Ég mældi hana nú ekki fyrir svefninn en hún var doldið heit ekkert rosa mikið. Henni hefur samt ekkert liðið illa og sofið vel síðust nætur svo rörin eru að vinna sitt verk við að losa

Við komum svo við á kínverska staðnum í smáranum (í sama húsi og læknavaktinn) meðan við biðum eftir að eyrnadroparnir hennar Ingu Maríu væru tilbúnir. Tókum með okkur 4 rétti heim: kjúklingarétt, lambarétt, nautarétt og núlðlurétt. Allt mjög gott nema nautakjötsrétturinn hann var hreinlega vondur!! En hitt var borða upp til agna í staðinn.

Ekkert í sjónvarpinu í kvöld. Matti að horfa á fótbotla rosa fjör jæja ég skoða bara eitthvað á internetinu í staðinn og mmm fæ mér snakk sem ég á afgangs frá pottapartíinu mmm ætla upp að sækja það. Bannað að tuða Matti :-)

Posted by gydaa at 08:55 PM
September 14, 2003
Leikhús og pottapartí

Ég og mamma fórum á dýrin í hálsaskógi í gær með stelpurnar. Það var alveg rosalega gaman. Við skemmtum okkur allar mjög vel. Inga María sat alveg stjörf og glápti bókstaflega allan tímann og var ekkert hrædd. Kolla var líka mjög hrifinn en náði söguþráðinum betur og var pínu hrædd við refin þó hún vildi nú alls ekki viðurkenna það :-)
Við fórum svo og fengum að skoða sviðið og húsið hans rebba og sjá leikarana í búningunum sínum í návígi. Kolla var nú voðafeimin og Inga María hreinlega hálf illa við að hafa þá svona nálægt sér :-)

Í gærkvöldi fór ég svo í pottapartí til Heiðu. Elduðum saman stelpurnar (já ok sirrý eldaði nú eiginlega og við hinar hjálpuðum til við að leggja á borð!!) og það var rosalega góður maturinn. Æðislegt líka að sitja og kjafta ætluðum aldrei að koma okkur af stað út í pottinn!! Fórum loks út um 11 og það var virkilega notalegt að liggja í heitum pottinum og kjafta og drekka hvítvín :-)

Óðinn maðurinn hennar Jónellu kom svo að sækja hana og slapp ekki fyrr en hann var búinn að nudda okkur allar :-) harðneytaði samt að koma ofan í pottinn til okkar aumingja drengurinn ;-)

Ég fór svo heim um 4 og skutlaði Sirrý mér heim á bílnum mínum og kom svo aftur um 11 heim með bílinn hrikalega góð þjónusta!! Takk fyrir það Sirrý.

Ég druslaðist svo í vinnuna með strætó um 1 og Matti og stelpurnar sóttu mig svo um hálf 7. Við fórum svo í mat til tengdó og fengum rosagóðar kjötbollur og expressó kaffi á eftir, eins gott að nýta nýju expressóvélina :-) Litla frænka dafnar vel er komin með voða fínar bollukinnar :) þyngdist um 300 gr í síðustu viku svo hún er að flýta sér að stækka enda var hún að verða stóra frænka ekki fékk hún að vera minnst lengi!!

Posted by gydaa at 10:48 PM
September 12, 2003
Hitt og þetta

Jæja Sirrý að kvarta yfir því hvað ég skrifa lítið og það er víst alveg rétt hjá henni. Alltaf nóg að gera hjá mér og ég mér dettur svo sjaldan eitthvað í hug að skrifa hér.

Vikan byrjaði nú ekki vel þegar Kata hringdi í mig á mánudaginn og lét mig vita af andláti Dagmars Hrundar (dóttir Bryndísar systur Siggu). Jafnvel þó hún hafi verið að berjast við krabbameinið í rúmt eitt og hálft ár þá var maður svo viss um að hún myndi ná sér. Hugsa sér hvað lífið getur verið óréttlátt að lítil börn þurfi að deyja!! Ég sendi hér með allar mínar ynnilegustu samúðaróskri til Bryndísar, Siggu og fjölskyldna þeirra. Ég sá þetta fallega ljóð á Barnalandi undir þræði um Dagmar Hrund. Það stóð því miður ekki rétt nafn höfundar undir og ég vona að höfundurinn sé ekki mótfallinn að ég byrti það hér en mig langaði að leyfia ykkur að njóta þess með mér.

Ég finn hve sárt ég sakna,
hve sorgin hjartað sker.
Af sætum svefni að vakna,
en sjá þig ekki hér;
því svipur þinn á sveimi
í svefni birtist mér.
Í drauma dularheimi
ég dvaldi í nótt hjá þér.
(Káinn)

En á bjartari nótum þá hef ég aðalega verið að njóta skvísanna minna og maður verður svo meðvitaður um hvað maður er heppinn að eiga heilbrigð börn á svona stundum. Við erum búin að leika okkur saman og horfa á barnamyndir í tölvunni. Já og svo hjálpaði ég Áróru að skrifa ritgerð um Túnfífil. Komst þá að því að maðurinn minn vissi ekki að fíflar breyttust í bifukollur!!

Áróra er núna á Akureyri með vinkonu sinni og er án vafa að skemmta sér vel. Þau (fjölskylda vinkonunnar og áróra) af stað um kvöldmatarleitið í gær og verða fram á sunnudag.

Posted by gydaa at 09:01 PM
September 02, 2003
Kveðjur og litla frænkan

Matti lagaði forsíðuna hjá mér þannig að athugasemdirnar sjáist betur. Gott að fólk getur notað athugasemdirnar mínar til að koma kveðju á gamla vini ;-)

Litla frænka er að kljást við hefðbundna fyrirburakvilla en dafnar að öðru leiti vel eftir því sem ég best veit. En þar sem að Kolla er búinn að vera veik og ég var sjálf hrikalega slöpp í dag þá höfum við ekki ennþá hitt hana. Ekki viljum við bera ábyrgð á að smita krílið.

Hún vill sem sagt aðalega sofa enda á hún auðvitað að sofa bara ennþá í móðurkviði og fá næringuna í gegnum naflastrenginn vitleysa í þessu fullorðna fólki að vilja alltaf vekja mann og trufla!! Ungbarnagula hefur líka verið að hrjá hana svo hún fær að liggja í ljósalömpum milli þess sem hún fær sopann sinn. Vonandi lækka bilirubin (sorrý veit ekki hvað þetta heitir á íslensku og doktor.is hefur ekkert um ungbarnagulu á síðunni sinni!!) stiginn hennar fljótt svo hún geti verið sem mest hjá mömmu og farið að koma heim fljótlega.

Jæja ég ætla að fara að sofa svo ég verði hressari á morgun enda er ég að fara að flytja í aðra skrifstofu í fyrramálið eins gott að hafa hausinn í lagi til þess.

Posted by gydaa at 10:35 PM