Jæja ég passaði vel að Matti spyrði foreldra sína um stærð og lengd þegar þau hringdu áðan :-)
Litla prinsessan er 3.460 gr og 50 cm sem er mjög svipað og Áróra var. Hún fór aftur í hitakassan í morgun svo hún sé ekki að eyða orkunni sinni í að halda á sér hita eins gott að nýta orkuna í að stækka og dafna eins og hún hefði átt að gera áfram inn í mallanum. Vonandi kemst hún samt fljótlega aftur í fangið á mömmu.
Jóna Dóra og Óttar eignuðust stúlku í gær. Til hamingju með það. Skvísurnar mínar orðnar stóru frænkur vá :-)
Matti spurði ekkert um stærð og lengd svo ég veit ekkert um það!! Hlakka til að sjá skvísuna en ætli það verði ekki einhver bið á því þar sem að Kolla er búinn að ná sér í einhverja pest og ekki vill maður fara að bera það í barnið.
Kolla er voðalega slöpp greiið og ældi áðan en mér finnst hún nú pínu vera að njóta allra þessara athygli sem hún er að fá frá mömmu og pabba sem eru bæði á fullu í að vorkenna henni :-)
Ingu Maríu er búið að ganga alveg rosalega vel í aðlöguninni í leikskólanum eins og Matti er svo sem búinn að segja frá í dagbókinni sinni.
Hún er sem sagt búin að vera ánægð með leikskólann frá fyrsta degi og er alltaf jafn kát og hress að fara þangað og að tala um skólann og allt bara.
Í dag fór Matti með hana í 18 mánaða sprautuna og skoðun (já já hún er vel rúmlega 18 mánaða ég veit) og hún tók því með sama jafnaðargeðinu og heyrðist víst ekki bofs í henni á meðan hún var sprautuð.
Í staðinn fyrir að fylgja dótturinni í sprautu þá var ég í pulsupartíi í vinnunni :-)
Það voru sem sagt grillaðar pulsur fyrir utan vinnustaðinn minn fyrir alla þá sem vinna á Eiríksstöðum (sem er sem sagt Eiríksgata 5). Gaman að sjá fleiri andlit þó ég hafi nú bara kjaftað við þá sem ég þekkti fyrir gerir maður ekki alltaf svoleiðis. En sniðugt að hafa hitting öðru hvoru fyrir allar deildirnar svo maður sjái þá sem vinna í húsinu.
Núna er Matti að horfa á einhverja stökkbreytinga mynd. Ég er búinn að gefast upp á að þykjast geta horft á hana. Sjaldan sem ég sé myndir sem mér finnst hreinlega hundleiðinlegar!! En Matta finnst hún góð þó ég skilji ekki af hverju. Mæli ekki með henni.
Það er stórfurðulegt hvað ég glaðvakna alltaf þegar börnin eru sofnuð!! Ég svaf sko bara ca 6 tíma í nótt og var svo dauðþreytt þegar ég kom heim úr vinnunni en um leið og þær eru sofnaðar þá glaðvakna ég!! Er reyndar búinn að liggja í heitu baði í millitíðinni sem er alltaf voðalega notalegt.
Annars er nú betra að taka það fram að það er ekki beint Ingu Maríu að kenna að ég svaf svona lítið í þetta sinn heldur fór ég ekki að sofa fyrr en um 1 og get engum kennt um það nema sjálfum mér ja eða kannski Matta :-) ef ég reyni vel að finna einhvern sökudólg :-Þ
Inga María byrjar svo í leikskólanum á morgun. Hún er voða spennt að fara og leika við krakkana. Matti og hún eiga að mæta klukkan 10 og verða alveg saman á morgun meira svona heimsókn. ÉG var að reyna að rifja upp nöfnin með henni á krökkunum á deildinni þar sem að Kolla er nú bara nýhætt þá kann maður ennþá nokkur nöfn. Hún sagði allavegana já við að hún ætlaði að leika við Sven og Ágúst Snæ osfrv.
Verður gaman að sjá hvernig fyrsti dagurinn hjá litla/stóra barninu mínu gengur.
Allir að koma til baka úr sumarfríi og sumarstarfsfólkið flest farið úr vinnunni. Soldið skrítið þar sem að ég byrjaði svo til um leið og sumarstarfsfólkið. Alltaf nóg að gera samt og ekki minnkar það við að hafa ekki sumarfólkið við að taka af sér álagið!!
Jæja Inga María vaknaði 6:15 ég hefði nú alveg þegið meiri svefn!! Sérstaklega þar sem ég fór ekki að sofa fyrr en hálf 1 ekki alveg nægur svefn fyrir mig takk fyrir. En jæja ég fæ að hafa ferðavélina á svona dögum og ligg hér upp í sófa.
Inga María hakkar í sig Ritz kex sem er hérna á borðinu síðan ég og Matti vorum að borða ritzkex og hummus meðan við horfðum á pianist í gærkvöldi. Mjög fín mynd. Sem sagt boðið upp á hollan og næringarríkan morgunmat á mínu heimili í dag!!! En hún segir allavegana takk fyrir eftir hverja kex köku svo þetta er ekki alsæmt :-Þ
Ég hef bara unnið 8 tíma vinnudag í þessari viku sem eru viðbrigði miðað við vikuna þar á undan en á móti kemur að ég ætla að reyna að vinna eitthvað í dag til að bæta þetta upp. Alltaf nóg að gera svo sem.
Jæja dettur ekkert meira í hug að segja svo þá leggst ég bara í sófann og dunda mér eitthvað á netinu.
Ég er búin að hafa það voðalega gaman síðustu daga (ja gærdagurinn var nú samt doldið slappur!!)
Loksins búin að klára að ganga frá því sem mér viðkemur í þetta 6 mánaða uppgjör og farinn að vinna eðlilega aftur. Reyndar rosalega mikið að gera hjá mér og sumarstelpan sem hefur unnið hluta af störfunum mínum að hætta á föstudag veit ekki hvað ég geri þá!!
Á laugardag fórum við æðislega brúðkaupsveislu Sirrýjar og Badda og skemmtum okkur alveg rosalega vel bæði ég og Matti. Takk kærlega fyrir okkur. Fyrst var falleg athöfn í Fríkirkjunni í hafnarfirði og meira að segja Matti hafði ekkert mjög mikið út á prestinn að setja :-Þ Sirrý var æðisleg í brúðarkjólnum, með flotta hárgreiðslu og bara æðislega fín í alla staði. Tinna Björk var algert krútt og Arnar Leó rosalega mannalegur svona herramannslega klæddur :-) Þau voru líka alveg ótrúlega þæg systkynin alveg fram eftir öllu kvöldi enda soddan engla börn ekki við öðru að búast. Já Baddi var náttúrulega fínn líka ætlaði ekki að skilja hann útundan :-)
Eftir athöfnina ruku brúðarhjónin í myndatöku svo hratt að við sáum bara rétt glitta í skottið á bílnum hverfa fyrir hornið þegar við komum út úr kirkjunni. Við fórum svo og drukkum kampavín á fullu meðan þau létu mynda sig. Ja reyndar þurfti Gyða klaufi aðeins að skreppa heim fyrst skildi nefnilega gjöfina þeirra eftir heima á ganginum!!
Svo komu brúðhjónin og aðeins seinna fengum við að borða þennan líka æðislega mat sem pabbi Sirrýjar eldaði handa okkur mmmmm fæ sko vatn í munnin við að hugsa um matinn namm namm. Bróðir Sirrýjar var veislustjóri og stóð sig bara vel í því. Borðhaldið tók sinn tíma eins og gerist í veislum en við létum okkur sko alls ekki leiðast á meðan. Kjöftuðum saman og hlóum að bróður Sirrýjar á milli þess sem við borðuðum já og drukkum víst ansi vel með matnum líka!!
Eftir matinn og leiki og fleiri ræður þá var dansað við hljómsveitina sem var mjög fín þó þeir hafi ekki viljað spila Begees í hvert sinn sem við báðum um það!! Langt síðan ég hef dansað svona mikið og ennþá lengra síðan ég hef dansað eitthvað að viti við kallinn minn!! Ja svona á milli þess sem hann var ekki of upptekin við að spjalla við gamlar bekkjasystur (hann og Sirrý voru sko saman í bekk í barnaskóla). Við vorum svo samferða brúðhjónunum út um hálf 2 og ég vil bara einu sinni enn segja takk fyrir okkur og æðislegt kvöld.
Já sunnudagurinn!! Hann var ekki alveg jafn skemmtilegur eins og gengur eftir svona skemmtileg kvöld :-Þ Annars verð ég sko aldrei þunn en var doldið slöpp á sunnudaginn þó ekkert alvarlega og ekkert á við eiginmanninn minn. Hann verður hreinlega fárveikur skil ekki að hann nenni að drekka!! En hann var voðalega stolltlur af því að hann missti heilt kíló frá því að hann viktaði sig um morguninn og þar til að hann viktaði sig aftur um eftirmiðdaginn (sem sagt eftir að hafa legið með hausinn ofan í klósetti hálfan daginn!!) gott að hann sér eitthvað jákvætt við þetta drengurinn. Við fórum svo með skvísurnar í bíó rúmlega 3 (útpælt að velja eitthvað þar sem við gætum bara setið og horft út í loftið og ekki þurft að elta þær út um allt!! Þær skemmtu sér allar mjög vel og meira að segja Inga María sat alveg stjörf með popppokann sinn allan tíman. Við sáum Grísling (grísinn í Bangsimon) og þetta var fínast mynd en hrikalega er dýrt að fara með 5 manna fjölskyldu í bíó!!! Þarna fauk rúmlega 5 þúsund kall eins gott að gera þetta ekki of oft greinilega mikið ódýrara að kaupa reglulega spólu handa skvísunum og poppa svo handa þeim!!
Ég fór svo í vinnuna hálf 8 í morgun, hrikalega var erfitt að vakna. Borðaði þorsk í hádegismat og vann á fullu og Matti sótti mig svo 4 og hann fór í ræktina en við stelpurnar heim. Já þetta var fyrsti dagurinn hjá Kollu eftir sumarfrí í leikskólanum og hún var rosalega ánægð með að vera komin aftur í skólann. Dreif sig víst í föt strax og hún vaknaði sagði Matti ætlaði sko ekki að mæta of seint :-)
Jæja þá erum við komin heim eftir að hafa verið í viku í bústað með mömmu minni og pabba. Við erum búin að hafa það rosalega gott. Ég las þrjár bækur (rosalega langt síðan ég hef gert það á einni viku) spiluðum Liverpool á kvöldin og fórum í sund og heita pottinn og slökuðum á.
Reyndar skruppum við hjónin heim í vikunni þar sem að matta snillingi tókst að skemma einhverja skrá í tölvunni sinni og gat alls ekki verið tölvulaus!! Þá komum við að húsinu rafmagnslausu og hefur rafmagnið eflaust farið af fljótlega eftir að við fórum í bústaðinn. Ég þreif því endalaust af kjúklingablóði út úr frystinum (ojjj) og henti 5 kjúklingum og dálitlu meiru (náði samt ekki 15þ kallinum sem sjálfsábyrgð tryggingafélagsins er). Matta tókst á ótrúlegan hátt að vera loksins búinn að redda tölvunni þegar ég var búinn að þrífa frystiskápinn hátt og lágt!! Jæja ok hann var reyndar aðeins lengur en ég að þessu.
Gott að við skruppum heim áður og komum ekki að þessu úldnuðu í dag!!
Svo er það bara venjulega lífið sem tekur við aftur!! Voðalega eru sumarfrí fljót að líða!!