Jæja nú er ég búin að vera í sumarfríi í rúma 3 daga og njóta þess heilmikið. Sérstaklega var gærdagurinn skemmtilegur.
Við stelpurnar (reyndar var Áróra hjá pabba sínum) fórum til Heiðu og hittum þar Sirrý, Evu, Jónellu og börn. Veðrið var það gott að krakkarnir röltu inn og út og dunduðu sér með hléum við það og við mömmurnar skemmtum okkur vel að kjafta og kjafta. Heiða var svo hrikalega myndarleg að hún bakaði gómsætar brauðbollur og gulrótarköku handa okkur og Jónella kom með vínarbrauð mmmm namm namm.
Um eitt varð ég að fara heim með Ingu Maríu að sofa og á meðan spiluðum við hjónin Baldurs gate (tölvuleikur). Þegar Inga María vaknaði ákváðum við að fara í sund og skemmtum við okkur öll vel þar þó að við fullorðnu höfum nú verið orðin vel þreytt á að hjálpa upp í rennibraut og taka við úr rennibraut taka á móti hoppandi börnum og láta börn synda osfrv. en það var allavegana voðalega gaman. Hittum Evu og fjölskyldu í sundinu :-)
Við fórum svo heim grilluðum pulsur og komum börnunum í rúmið og héldum áfram með Baldurs gate þangað til rétt fyrir 10 þegar ég þaut í 10 bíó með Kötu og skemmti mér vel á myndinni what a girl want. Kom svo heim og spilaði Baldurs gate með Matta til hálf 2 í nótt!! Sem sagt mjög góður dagur frá morgni til kvölds.
Jæja nú styttist í sumarfrí hjá mér. Ég ætla að vinna á morgun og svo er ég komin í 2 vikna frí vííí ætli sólin fari þá ekki :-(
Það er rosa mikið að gera í vinnunni hjá mér og sumrin eru víst rólegi tíminn!!
Við fórum í mat til mömmu og pabba áðan og hámuðum í okkur grillaða hamborgara úti í sólskyninu. Sátum úti til hálf 9 í stuttbuxum og stuttermabol og fórum bara inn því við urðum að koma stelpunum heim það mættu sko vera fleiri svona dagar á sumri og þá sérstaklega um helgar eða þegar ég er í fríi :-Þ
Við hjónin áttum yndislega kvöldstund á föstudagskvöldið. Fórum út að borða á la prima vera og í bíó á eftir. Æðislegt að eiga mannin út af fyrir sig :-)
Við erum svo eiginlega bara búin að liggja í leti alla helgina!! Matti fór á fyllerí í gærkvöldi og er að borga fyrri það núna liggur og mókir í sófanum verst að ég finn ekki myndavélina til að taka af honum þynkumynd :-Þ
Hann er svo búinn að lofa okkur KFC í kvöldmatinn vonandi heldur hann kvöldmatnum niðri strákgreiið!!
Hrikalega er ég þreytt!!
Ég fór á kaffihús með Sirrý í gærkvöldi sem var alveg rosalega fínt. Manni líður alltaf vel eftir að hafa setið og kjaftað og kjaftað en verst hvað maður sofnar seint bæði koma seint heim og svo sofnaði ég nú ekkert mjög auðveldlega eftir kaffidrykkjuna!!
Sofnaði því ekki fyrr en langt gegnin í 2 og svo var Inga María alltaf að vakna (jú Matti hugsar um hana á nóttinni en ég vakna samt alltaf) og ég átti erfitt með að sofna aftur og svo vöknuðu þær báðar skvísurnar rúmlega sex!!! Hoppuðu á hausnum á mér góða stund fóru svo fram að leika í 20 mín og komu svo aftur inn og þá druslaðist ég á fætur (rúmlega 7) og tók svo strætó í vinnuna 10 mín yfir 8.
Ég hef svo verið í vandræðum að halda mér vakandi í allan dag!! Fór svo á pöbb með vinnufélugonum eftir vinnu sem var fínt líka þó ég hafi þurft að stoppa stutt þar sem ég varð að taka strætó 20 mín yfir 6 til að Matti kæmist í fótboltann.
Nú sit ég hér að pústa aðeins út áður en ég ætla að skríða undir sæng enda stelpurnar sofnaðar.
Við höfðum það voða gott um helgina. Ég fór að vinna á laugardaginn voðalega dugleg :-) Gott að klára doldið af öllum þeim verkefnum sem bíða þar.
Á sunnudag svaf ég út ja svona næstum því, ég var vakin klukkan hálf 10!! Fórum svo í hádegismat til mömmu og pabba og fengum þar hamborgara og meðlæti voða gott. Hittum Natan son Margrétar kærustu Stebba bróðirs í fyrsta sinn. Hann er sko 14 ára og hávaxinn svo það er nú doldið skrítið að litli bróðir sé með mömmu svona fullorðins stráks. En svona er lífið og gaman að fá þau mæðgin í fjölskylduna.
Frá mömmu og pabba fórum við í bíltúr en skutluðum Kollu til Stellu og Ásgeirs fyrst því henni fannst nú ekki gaman bíltúr en Inga María svaf (enda var biltúrinn til þess). Það var voðalega notalegt að hafa eiginmanninn alveg út af fyrir sig í klukkustund og kjafta og skoða fín hús.
Við fórum svo til Stellu og Ásgeirs og fengum góðan mat eins og vanalega.
Mér fannst ég svo hrikalega dugleg að koma mér á fætur í morgun klukkan 7:10 og taka 7:29 vagninn í vinnuna. Mamma sótti mig svo í vinnuna og skutlaði mér heim lúxus líf hjá mér sem sagt.
Matti sagði að ég ætti að skrifa eitthvað til að sýna að ég væri á lífi svo ég nota það sem ágætis byrjun :-)
Annars er allt gott að frétta af okkur ja fyrir utan það náttúrulega að Matti missti vinnuna fyrir tæpri viku síðan svo kannski er ekki við hæfi að segja að allt sé gott að frétta!! En ég á loksins mann sem er afslappaður og brosir meira að segja líka svo ég get hreinlega ekki tekið það sem mjög slæman hlut því hann fær auðvitað bara mikið betri vinnu fljótlega (þ.e. þegar hann er búinn að slaka aðeins á eftir allt of langan tíma í brjáluðu vinnuálagi).
Áróra er út á spáni með pabba sínum og fjölskyldu og skemtir sér rosalega vel. Hún hefur verið úti að borða í 24-28 stiga hita að kvöldi til þegar ég hef talað við hana svo ekki er það slæmt!! Hún ætlar að vera í burtu í tvær vikur og á örugglega eftir að skemmta sér rosalega vel allan tímann.
Inga María kvaddi Guðmundu á föstudaginn og er því kominn í sumarfrí og byrjar svo á Hálsaborg 18. ágúst. Hún er orðin voðalega stór stelpa allt í einu finnst mér. Talar orðið heilmikið og leikur sér orðið með Kollu eins og krakki en ekki smábarn. Að vísu er hún orðin alger frekjudolla líka!! Svo maður verður nú að reyna að passa að Kolla lúffi ekki ofmikið fyrir henni og maður sjálfur auðvitað þegar hún hendir sér organdi í gólfið og æpir og æpir!!
Kolla er líka voða kát og hress þessa dagana. Er farið að líða voðalega vel á kisudeild og gaman að heyra hvað hún er að gera á daginn. Hún talar stannslaust orðið og vill nú stundum fá ansi mikla þjónustu. Var t.d. að leika sér við borðstofuborðið með smádót og svo datt eitthvað af því á gólfið og þá var kallað mamma mamma komdu og þegar ég kom þá átti ég sko að beygja mig og rétta henni dótið svo hún þyrfti ekki að teygja sig sjálf í það!! Jæja hún hendir sér nú samt ekki í gólfið og öskrar og æpir þegar maður segir uuu náðu bara í þetta sjálf góða kostur að hafa bara eitt barn í einu á því stigi!!
Jæja nú er ég búinn að skrifa fullt og ætla að heimta að Matti fari að horfa á spóluna með mér sem hann valdi fyrir okkur úti á leigu áðan.