Rosalega finnst mér hún góður tónlistamaður. Lagið head over feet hljómar í eyrunum á mér akkurat núna meðan ég vinn. Liggur við að ég geti ekki unnið ég er svo upptekin við að hlusta :-Þ
"You are my best friend, best friend with benefits" (ok veit ekkert hvort þetta er rétt stafsett) finnst mér hrikalega góð setning.
Svo er lagið "Hand in my pocket" ferlega gott líka.
Nú hlýt ég að vera orðinn ekta bloggari þegar einhver vitnar í mig :-Þ það er einhver annar en eiginmaðurinn hann telst nú ekki með!!
Ég settist niður í gær eftir að börnin voru sofnuð og horfði á fólk með Sirrý. Svo sem ekki frásögum færandi þar sem ég geri það flest miðvikudagskvöld (nýt þess að ráða hvað sé í tækinu alveg ein meðan kallinn er í boltanum).
Í þættinum var fólk frá feministafélagi Íslands (held það heiti það). Til að byrja með var rætt við strák og stelpu og farið um bæinn og bærinn skoðaður með kynjagleraugum eins og þau kölluðu það. Ég hef nú voðalega lítið lagt mig fram um að lesa það sem femínistar hafa fram að færa en ef þessi þáttur átti að fá mig til liðs við þau þá mistókst það alveg hræðilega. Tilgangurinn er ekki að fá þér til að líka við okkur mundu þau þá eflaust segja heldur koma málstaðnum á framfæri. En hvers virði er málstaður sem maður hristir bara hausinn yfir og hættir að hlusta þegar maður rekst á marga hluti sem pirra mann. Allavegana er ég þannig. Það dynur stanslaust á manni áróður um hitt og þetta og ef einhver af áróðursfólkinu segir aftur og aftur eitthvað sem pirrar mig þá hætti ég að hlusta jafnvel þó það geti vel verið að eitthvað af því sem það hefur fram að færa sé gott og gilt.
Hvað var þá svona mikið að pirra mig?
Í fyrsta lagi nauðganir sem þau sáu í hverju horni. Ég get ómögulega séð hvernig hægt er að lesa nauðgun út úr myndunum sem sýndar voru. OK stelpan var með sand og drullu nálægt nærbuxunum en hún sat líka í sandi með sjóin nálægt sér svo mér fannst það nú ekki óeðlilegt og hin stelpan sem lá í glenntri stellingu með skugga af hendi að nálgast klofið á henni. Í mínum huga tengdist sú mynd frekar erótík/klámi heldur en nauðguninni sem þau sáu út úr myndinni. Reyndar getur verið að þau sjái allt klám sem nauðgun þannig að þar liggur kannski skýringin!!
Þaðan sem ég sat hljómaði þetta eins og í bíó þar sem sálfræðingurinn lætur sjúklinginn skoða spjald með klessum og sjúklingurinn á að segja hvað hann sér út úr klessunum. Nauðgun væri án vafa svar femínistafélagsins eða allavegana er það álitið sem þátturinn Fólk með Sirrý skildi eftir hjá mér af Femínista félagi Íslands.
Annars hef ég marg fleira að segja um þetta mál en skrifborðið er yfirfullt af óleystum verkefnum svo nú ætla ég að snúa mér að því frekar en pikka meira inn hér.
Jæja nú ætla ég að skrifa blogg pistill!!
Held að það séu strætóferðirnar sem geri Matta að svona góðum bloggara því maður hefur ekkert skárra að gera í strætó en sitja og hugsa upp gott blogg!!
Allavegana var ég að velta fyrir mér í strætó þessari strætó menningu. Sko fólkið situr saman eftir kynjum ef það mögulega getur. Þ.e. karlmenn hlið við hlið og konur hlið við hlið skrítið hvað manni finnst skárra að sitja hjá ókunnugri konu en ókunnugum kalli. Annað ef engin kona er í boði þá vel ég allavegana næst karlmann sem er yngri eða á svipuðum aldri og ég en helst ekki eldri ef ég kemst hjá því!! En nenni nú ekki að standa bara svona til að sitja ekki hjá eldri manni samt.
Svo virðist mér alltaf takast að setjast hjá manneskju (langoftast konu) sem er líka að fara niður í bæ þegar hálfur strætóinn fer úr í Mjódd!! Hef alvarlega velt því fyrir mér að standa þangað til ég kem í Mjódd til að fá gluggasæti en finnst það hálf hallærislegt að standa þegar það eru fullt af sætum veit samt ekki alveg afhverju ekki get ég sagt að það skipti máli hvað fólkinu í strætó finnst um mig!!!
Sætin í strætó eru líka voðalega há þ.e. í nýju vögnunum. Ég næ ekki niður með fæturnar og hendist því fram og til baka þegar vagninn hreifist og reyni að tilla hendinni á glerið fyrir framan mig (sat sko fremst af aftari röðinni í dag þ.e. fyrir aftan hólfið þar sem maður stendur) og að sjálfsögðu reynir maður að koma sem minnst við manneskjuna við hliðina á sér!!
Annars skil ég af hverju Matta líður vel í strætó þegar ég sé Asísku stelpuna (vandamál að koma frá sér að stelpan hafi Asískt útlit, auðvitað getur hún verið alíslensk stúlkugreiið ég veit ekkert um það aldrei talað við hana) sem kemur alltaf inn á hlemmi!!! Alveg rosalega flott stelpa.
Jæja þá ætla ég að klára skyrið mitt ná mér í te og byrja að vinna.
Vííí er búin að fatta hvernig ég kemst inn í dagbókina mína úr vinnunni. Er ég ekki klár. Ok Matti þú færð doldið mikið kredit fyrir þetta en mig langaði svo að ljúga því að ég hefði gert þetta alveg sjálf en fékk samviskubit yfir því :-)
Jæja aftur að vinna nóg að gera.
Þegar ég byrja að skrifa þá get ég ekki hætt :-Þ
Gleymdi að segja frá því áðan að Kolla var að byrja á kisudeild formlega í dag sem sagt stóru deildinni. Hún á nú voðalega bágt er voðalega hátt uppi og búinn að pissa á sig nokkrum sinnum á kisudeildinni (er sko búin að vera í aðlögun þar síðustu vikur).
Hún bað líka sjálf um að fara að sofa rúmlega 7 og var steinsofnuð hálf 8!! Erfitt að skipta svona um þó maður hafi bestu vinkonuna með veit ekki hvernig hún væri ef það væri ekki!! Vonandi venst hún þessu fljótt og kemst í góða rútínu.
Það er alltaf verið að tuða í mér að skrifa eitthvað svo hér kemur eitthvað :-Þ
Alltaf nóg að gera. Vinna, sinna börnum og heimili og sofa!! Fór í bíltúr með Kötu í gærkvöldi sem var fínt en í staðinn er ég þreytt í dag því ég fór þá allt of seitn að sofa!! Er á fullu í vinnunni verkefnin hrannast upp þar sem ég er ekki búin að ná upp almennilegum vinnuhraða og er líka að vinna upp það bil sem leið frá því að sú sem ég tók við af hætti og þar til ég byrjaði. Mér leiðist svo sannarlega ekki á daginn það er á hreinu.