Jæja nú er virkilega langt síðan ég skrifaði síðast í dagbókina heilar tvær vikur!!
Ég hef sem sagt ekkert skrifað síðan ég byrjaði að vinna!! Ætla að reyna að bæta það aðeins upp.
Ég byrjaði sem sagt að vinna hjá Landspítalanum fyrir 2 vikum síðan (var reyndar búin að mæta 3 hálfa daga í apríl til að læra af þeirri sem var að hætta). Ég er að vinna þar á reiknishaldssviði og þar undir í tekjudeild. Á venjulegri íslensku þá er ég sem sagt að vinna í bókhaldinu hjá Landspitalanum :-) Starfsheitið mitt er verkefnastjóri og ég sé um uppgjör á göngudeildum ofl. Það er voða gaman að læra fullt af nýjum hlutum og komast innan um fullorðið fólk aftur.
Inga María hefur verið voða dugleg hjá dagmömmunni. Hún vældi nú þegar ég skildi við hana frá því ca þegar ég byrjaði að vinna (ekki í aðlöguninni, tíbískt) og í svona viku þar á eftir. Hefur svo ekki vælt en fer í fangið á Guðmundu með fílusvip og vinkar mér þaðan en grætur ekki beint kjökrar stundum. Þegar ég sæki hana svo sé ég hana leika sér þar til hún sér mig þá fer hún að væla svona til að ég viti að hún vilji nú frekar vera hjá mér :-) fallega hugsað hjá henni auðvitað :-)
Annars gerðist nú stórviðburður með hana Ingu maríu. Það var hringt í mig frá leikskólanum hennar Kollu og leikskólastjórinn spurði mig hvort að Inga María væri byrjuð í aðlögun. Málið er sem sagt að það var eitt barn að fara að hætta svo Inga María kemst inn :-) vííí Ég vildi nú að vísu ekki rugla hana í miðri aðlögun en hún byrjar í haust í staðin. Ég á samt eftir að fá að vita nákvæmlega hvenær en er að vonast til að koma henni að beint eftir sumarfrí svo hún fari ekki í 5 vikna frí og svo aftur til Guðmundu í fáeinar vikur. Ég verð nú að viðurkenna að mig kvíður pínu fyrir að færa hana þar sem hún er svo ánægð hjá Guðmundu en það munar um að þurfa bara að skutla stelpunum á einn stað og svo já auðvitað um peninginn líka.
Annars verð ég að segja frá einu í viðbót með Ingu Maríu og Guðmundu. Aðalega við Hröbbu samt en skrifa það samt hér en ekki í prívat bréf til hennar þar sem ég man þetta núna og aldrei að vita hvenær ég myndi skrifa henni um þetta annars :-Þ Einn daginn segir Guðmunda við mig. Eru þið skild Einari Magnúsi ha já sagði ég stórundrandi hvernig hún vissi það. Nei þá finnst henni Inga María og EInar Magnús svona lík að hún fattaði það út frá því!!!! Hún var sko að vinna á leikskólanum hans Einars Magnúsar á litlu deildinni meira að segja skildist mér!! Hún var voða stolt af því að hún var fyrsta konan í skólanum sem hann lærði að segja nafnið á þó að hún heiti ekki auðveldu nafni. Finnst ykkur þetta ekki sniðugt og sérstaklega með tilliti til þess að Inga María dökk yfirbragðs eins og pabbi sinn en Einar Magnús dökkur yfirbrags frá föðurafa fjölskyldunni sem ég er sko ekkert skild he he mér fannst þetta stórsniðugt. Þegar ég sagði mömmu þetta sagði hún já mér hafði einmitt dottið þetta í hug en fannst það ekki beint geta verið út af því hvaðan oftast er talað um að þau fái svipinn frá fjölskyldum sem eru ekkert skildar.
Á föstudagaginn var verið að halda upp á útgáfu EVE-oneline
Ég mætti sem sagt klukkan 4 upp í CCP og þaðan fórum við konurnar í Baðhúsið og þar í heitapottinn og fengum kampavínsglas (eða glös eftir því hvað við vildum mikið sem voru auðvitað glös hjá mér!!). Við sátum þarna í pottinum og röbbuðum saman í rúman klukkutíma og svo fórum við að punta okkur og þaðan niður í Apótek að hitta eiginmennina í fordrykknum. Það teigðist nú voðalega á fordrykknum og var ekki byrjað að borða fyrr en um 9 en átti að borða 8 samkvæmt dagskrá. Ég og Hildur vorum orðnar ansi vel svangar og hámuðum í okkur brauðið um leið og okkur var hleypt inn í salinn ;-) kallarnir okkar voru líka orðnir ansi vel í glasi enda búnir að vera í koktel og svo fordrykk síðan um 5 og það var líka verið að bjóða upp á skot með fordrykknum!! Maturinn var ágætur en mér finnst nú alltaf vanta meðlæti með veitingahúsamat!! Ég fór svo heim um 11 að sinna börnum og búi en hef svo ekki grun um hvenær eiginmaðurinn skilaði sér heim því ég svaf það af mér og hann var það drukkinn að hann hefur ekki grun um það sjálfur!! Ætli Hildur viti það ekki helst því hann endaði víst kvöldið í að fara heim með þeim að glápa á vídeó.
Við erum svo búinn að eiga voðalega góða fjölskyldu helgi og löngu kominn tími á slíkt. Rosalega var gott að hafa eiginmanninn heima hjá sér heila helgi vá ekki verið heima í 2 heila daga síðan um jól held ég!! Í gær fórum við til mömmu og pabba og þegar við komum heim sofnaði Inga María og Áróra passaði þá stelpurnar báðar (Ingu Maríu sofandi en Kollu lék hún við) og við hjónin röltum út í Ölduselskóla og kusum. Við fórum svo og versluðum grillmat (með stelpurnar með okkur) og grilluðum og horfðum svo á kostningarsjónvarpið.
Í dag fórum við í Heiðmörk og svo heim. Matti að horfa á Liverpool tapa en ég að vinna í garðinum meðan stelpurnar léku sér. Ég náði að afkasta ótrúlega miklu miðað við síðasta sumar sé hvað það munar rosalega miklu um þetta ár sem stelpurnar hafa elst. Núna leika þær sér meira sjálfar þó ég þurfi nú að sinna þeim reglulega og Inga María hafi voða gaman af að setja mold á mig alla og sig alla enda vorum við drullugar upp fyrir haus!! Matti kom svo út eftir leikinn og rakaði saman einhverjar greinar en aðalega sagðist hann að sitt hlutverk væri að spjalla við mig meðan ég inni í garðinum ;-) en ég var svo sem alveg sátt við það. Fórum svo í mat til tengdaforeldra minna og fengum rosa góðan grillaðan kjúkling namm namm.
Svo er það bara fyrsti vinnudagurinn á morgun!! Sælan búin púff voðalega hefur þetta eina og hálfa ár verið fljótt að líða ja reyndar bara allur tími almennt líður voðalega fljótt ég verð níræð áður en ég sný mér við!!
Mér finnst hún yngsta dóttir mín alveg ótrúleg. Hún pissar orðið aftur og aftur í koppinn!! Hún sem er ekki einu sinni orðin 18 mánaða ég hélt að það væri bara í gamla daga sem börn hefðu getað þetta ;-)
Auðvitað getur hún hætt þessum leik fljótlega líka en hún hefur nógu mikla stjórn á bununni til að setjast pissa pínu standa upp og klappa og fá hrós setja pissið í klósettið og sturta niður og koma svo til baka og pissa pínu meira og er búinn að gera þetta 3 og er að reyna í 4 sinn en kemur því miður ekkert!!
Jæja ég gaf mér aldrei tíma í gær til að segja ykkur hvað ég var að bralla í gær og þið getið auðvitað ekki verið án þess að vita allt sem að ég geri ;-Þ
Ég skildi Ingu Maríu eftir í 20 mín hjá dagmömmunni í gær og það gekk bara mjög vel. Við höfum hraðað aðeins ferlinu þar sem að þetta gengur allt svo rosalega vel að hún virðist alveg þola þetta aðeins hraðar og þá ætti ég líka að geta unnið róleg rúmlegan hálfan dag á mánudaginn sem ég verð eiginlega að gera.
Eftir dagmömmuna fórum við til Kötu og Baldurs Rökkva en við ætluðum með þeim í Smáralindina. Þau voru steinsofandi!! Lúxus líf á þessum heimavinnandi húsmæðrum að vera steynsofandi hálf 11!! En ok þau höfðu víst farið á fætur um 7 og voru að leggja sig svo ég hafi þetta nú rétt. Allavegana fórum við svo í smáralindina og borðuðum á Fridays namm namm rosagott. Síðan fórum við í Debenhams og náðum í gjafabréfið mitt og ég keypti mér hyljara (nei nei auðvitað þarf ég ekki að hylja neitt hvernig datt ykkur það í hug!!) og svo kíktum við á sundboli í Útilíf og bara röltum um og kjöftuðum eins og hægt var með börnin því auðvitað harðneytaði Inga María að sofna!! Ég keyrði svo Kötu og Baldur heim rúmlega 2 og þá steinsofnaði Inga María í bílnum sem var ágætt því við áttum að vera mætt til eyrnalæknis klukkan 3 þannig að hún náði nú rúmum hálftíma sem er eiginlega nauðsynlegt.
Hjá eyrnalækninum vildi Inga María ekki að ég sæti undir henni heldur sitja sjálf í stólnum hjá lækninum og læknirinn sagði að þetta væri örugglega yngsti sjúklingurinn sinn sem sæti bara sjálfur :-) Hún var líka alveg kjurr meðan hann skoðaði eyrun. Hann sagði að allt liti vel út, miðað við aðstæður sem sagt, en eitthvað af vökva í öðru eyranu svo annað hvort er rörið dottið eða stíflað. Hann hélt að það væri frekar stíflað. Ég á að gefa henni dropana í 4 daga í viðbót og koma aftur eftir mánuð. Persónulega væri það nú hátíð ef það liði heill mánuður þangað til ég hitti hann en við skulum vera bjartsýn og segjast ekki fara til hans fyrr en eftir mánuð!!
Matti var á fullu að leggja lokahönd á EVE sem kom út í morgun og kom því ekkert heim í nótt.
Í morgun var Inga María klst hjá dagmömmunni (og ég skrifaði byrjunina á bréfinu á meðan!!) og það gekk bara nokkuð vel. Var orðin pínu stúrinn í lokinn en ekkert alvarlega. Á morgun er því stefnan á að hún verði aftur í klst og svo jafnvel að prufa að láta hana vera lúrinn hinn daginn sjáum til ég er voða stressuð yfir lúrnum hennar hjá dagmömmunni þar sem hún er svo erfitt svefn barn.
Við fórum svo og stimpluðum mig atvinnulausa og ég ræddi við konuna þar út af vinnunni og þessum tímum sem ég vann í síðustu viku. Þær vildu frekar taka við tímunum á föstudaginn þegar ég vissi meira því það er ekki ennþá búið að ganga frá laununum!!! Þannig að í raun er ég ekki ráðinn ennþá.
Við fórum svo og sóttum Matta og Inga María var nú ekki leið yfir því að fá pabba heim en núna er hann farinn að sofa en ekki hún en hún dottaði í bílnum og vaknaði þegar ég færði hana yfir í vagninn og harðneytaði meiri svefn!!
Ég ætla svo í bónus á eftir og elda eitthvað sem Matta finnst gott fyrst hann er í mat hjá okkur þessi elska ;-) Kannski ég prufi kjúklingaréttinn hennar Sirrýjar!!
Já það var nóg að gera hjá mér í gær. Drifum okkur klukkan 10 í kaffi til mömmu og pabba þar sem að við (þá meina ég ég og stelpurnar Matti er næstum hættur að teljast í við strákgreiið!!!) kæmust ekki í það seinna. Um 12 drifum við okkur í skólann hennar Áróru. Skoðuðum aðeins það sem krakkarnir höfðu verið að gera og fundum svo tónlistastofuna. Áróra kom svo stuttu seinna (hún var hjá pabba sínum) og fjölskylda pabba hennar og við horfðum saman á hana dansa línudans og svo skiptidans. Hún og allir krakkarnir stóðu sig voða vel og það var voða gaman að horfa á þau.
Þegar dansinn var búinn flýttum við okkur yfir í leikskólann hennar Kollu þar sem að það var ca 3 korter eftir af opna húsinu þar. Í Kollu leikskóla var voða gaman líka. Kolla og Inga María leiruðu og ég skoðaði bæði myndir af Kollu og hinum krökkunum í starfinu og alskonar verk eftir þau. Svo fylgdi kennarinn hennar Kollu okkur yfir á stóru deildina sem Kolla byrjar á um næstu mánaðarmót og kynnti okkur fyrir konunum þar og sýndi okkur aðstöðuna þar. Mér kvíður pínu fyrir að færa hana þar sem að okkur líður svo vel á litlu deildinni en leist samt voða vel á konurnar og deildina þannig að þetta verður örugglega fínt líka.
Síðan fórum við heim og ég hafði Ingu Maríu til í vagninn meðan Kolla lék sér úti og svo löbbuðum við yfir til Kötu vinkonu minnar. Komum við í sjoppu og Kolla fékk ís þar sem það var nammidagur og ég keypti snakk handa mér og Kötu sem ég og Kolla borðuðum nú aðalega!! Við vorum hjá Kötu til rúmlega 5 og röltum svo heim. Heimferðin var nú mikið erfiðari þar sem að Inga María var vakandi og vildi ekki sitja í vagninum og stelpurnar voru stannslaust að stoppa að leika að hinu og þessu og við ætluðum aldrei að komast áfram. Endaði með að ég fékk Kollu til að vera í vagninum og þá var aðeins auðveldara að ýta bara eftir einu barni!!
Heima eldaði ég svo uppáhaldssúpuna mína og borðaði þar til mér var illt af henni!! Matti kom heim í kvöldmat sem var æðislegt yndislegt að sjá drenginn okkar svona einstaka sinnum ;-) Hann las svo fyrir Kollu en ég setti Ingu Maríu ekki í rúmið fyrr en rúmlega 9 þar sem hún svaf seinna umd aginn en venjulega (fer sko venjulega að sofa um 8)
Ég horfði á maður eins og ég með Jón Gnarr og hafði bara gaman af og Law and order svo mér leiddist ekkert í gærkvöldi sem er nú kostur :-)
Jæja nú þarf ég að fara að vekja Matta svo hann komist í vinnuna búinn að fá ca 8 tíma frí úr vinnu er það ekki nóg ;-O
Já nú er ég sem sagt ekkert að vinna næstu 6 virka daga. Mér hefur líkað vel þessa þrjá hálfu daga sem ég hef verið en samt verið alveg voðalega þreytt eftir þá!! Ótrúlegt hvað það fer mikil orka í að læra nýja hluti.
Ég valdi dagmömmu sem býr á Seljabraut og hefur verið dagmamma í 4 ár mínus 1 árs barnseignarfrí.
Er að aðlaga Ingu Maríu þar og gengur bara voða vel hingað til alla vegana. Við erum búnar að fara tvisvar í heimsókn (þrisvar ef maður telur skoðunar heimsóknina með) og svo í dag (þriðja skiptið okkar) þá skildi ég hana eftir í 10 mín svona til að æfa hana í að kveðja mig og svo hún héldi ekki að við ætluðum alltaf að vera saman í heimsókn þarna og leika við krakkana ;-) Ég var búinn að ræða við hana um að hún ætlaði að leika við krakkana og segja svo bless við mömmu og mamma myndi skreppa aðeins. Hún samþykkti það alveg í bílnum og sagði bless bless mömmu við mig, enda er hún svo klár :-) Við vorum hjá dagmömmunni í ca hálftíma þar til ég sagði henni að nú ætlaði ég að skreppa aðeins og hún kyssti mig bless og ég fór fram á gang með jakkann minn með mér í svona ca 10 mín. Það gekk bara voðalega vel. Dagmamman sagði að hún hefði verið aðeins óörugg í smá stund en svo bara verið að leika sér við hina krakkana. Hún hljóp nú samt upp í fangið mitt þegar ég kom aftur og var svo litla stund að sleppa mér aftur en svo var allt í lagi aftur að leika við krakkana áfram og svo fórum við stuttu síðar. Gekk sem sagt bara mjög vel. Ég mun svo skilja hana aftur eftir í ca 10 mín á mánudaginn og svo höldum við bara rólega áfram 20-30 mín næstu tvo daga eftir það en svo heldur hraðar þar á eftir enda er það mín reynsla að þegar þau eru orðin örugg og vön að kveðja mömmu þá skiptir tíminn orðið minna máli sem þau eru og dagmamman er sammála mér í því. Maður dagmömmunnar keyrir strætó og er því stundum heima á daginn, hann var heima í dag svo mér fannst gott að fá að hitta hann aðeins líka.
Voandi heldur þetta áfram að ganga vel.