March 31, 2003
Jaxl

Jæja þá er allavegana hluti af ástæðu þess að skvísan er búinn að vera svona pirruð og sofa illa síðustu nætur. Ég kíkti upp í hana áðan og þá er kominn upp hálfur jaxl. Mér sýnist hún vera voðalega bólgin eins og þeir séu allir 4 að fara að koma!! Svo það verða eflaust enginn lát á óþægindunum næstu daga/vikur!! Ég gaf henni allavegana verkjalyf fyrir nóttina og hún sofnaði í fyrsta sinn lengi án þess að ég þyrfti að strjúka henni um bakið. Bara lagðist niður og sofnaði.
Vonandi ekkert annað að angra hana samt ég fer alltaf að spá í hvort að hún geti verið með í eyrunum ennþá en það er hætt að leka úr eyranu og læknirinn hringdi í dag og sagði mér að úr ræktuninni hefði komið mjög auðlæknanleg baktería sem er alltaf jákvætt þar sem maður er orðin hræddur við ónæmar bakteríu eftir allar þessa pensilínkúra.

Áróra er ennþá með hita en hann fer samt lækkandi var kominn í kringum 38 í kvöld á móts við yfir 39 í gær!!

Posted by gydaa at 11:06 PM
Þróunarsamvinnustofnun Íslands

Jæja ég var loksins að fá svar frá þeim og ég fékk ekki starfið :-( uhu ferlega er ég svekt. Ég er búinn að bíða svo lengi eftir svari og búinn að gera mér vonir um starfið í næstum 2 mánuði.

Jæja svona er þetta ég fæ bara eitthvað ennþá betra ekki satt??

Posted by gydaa at 02:04 PM
helgin og morguninn


Við fórum í þrítugsafmæli til Davíðs á laugardagskvöldið og skemmtum okkur rosalega vel. Það var ofboðslega góður pinna matur þarna en afmælið var haldið á Grand hóteli. Bjarni Ara kom og söng 2-3 lög og svo var afmælisbarnið, pabbi hans, og tveir vinir búnir að æfa saman nokkur lög og svo voru fullt af ræðum líka voða gaman bara að horfa/hlusta á þetta allt. Ég fór heim hálf 12 en skildi Matta eftir og kom hann heim um 5 skil ekki úthaldið í drengnum annað djammkvöldið í röð!!

Aðfara nótt sunnudagsins var nú ansi erfið. Ég náði klst svefn áður en að Áróra fór að kvarta í mér og eftir mikla erfiðleika druslaðist ég fram úr og mældi hana og gaf henni svo verkjatöflu hún ældi henni svo stuttu seinna og ég náði svo aftur öðrum klukkutíma svefni áður en Inga María vaknaði púff það var doldið erfitt sko !! Ég vakti svo Matta 11 og lagði mig í 2 tíma áður en ég rauk í afmælisveislu til Tinnu Bjarkar dóttur Sirrýjar. Borðaði fullt af rosa góðum kökum og kjaftaði þar. Inga María og Kolla skemmtu sér rosavel að leika við krakkana en aumingja Áróra var bara skilin eftir heima á meðan og svo fórum við heima í ca 2 tíma og fórum svo í mat til tengdó og Áróra greiið aftur eftir heima. Ég fór svo snemma að sofa enda veitti ekki af, Inga María vaknaði reyndar um 2 og vældi og vældi svo ég endaði með að taka hana upp í til okkar. Hún lá því voða mikið á brjóstinu fram undir morgun en það góða við það er samt að hún svaf í staðinn til 10 mín í sjö í staðinn fyrir að vakna um 6. Áróra er ennþá voða veik en samt mikið betri heldur en í gær.

Í morgun klukkan 10 átti ég svo tíma hjá þjálfara í sporthúsinu til að búa til prógram fyrir mig. Konan í gæslunni var veik og einhver stelpa að leysa hana af. Ferlega óþægilegt meðan maður er að venja þau við gæsluna að það sé ekki sama konan. Hún kvaddi mig nú voða kát en ég var svo sótt eftir 10 mín þar sem hún grét bara :-( bara búinn í upphitun og viktun og fitumælingu. Ég pantaði tíma aftur klukkan 8 á miðvikudag og þá ætlar Matti bara að vera með hana. Spurning að ég fari aftur bara rólega með hana þegar hin kemur aftur.
Inga María vældi nú samt á mig áfram eftir að hún var kominn til mín vildi bara úpa úpa og vildi ekki fara í skó og úlpu þar sem ég sagði að hún fengi ekki að úpa fyrr en heima. Dottaði svo í bílnum og steinsofnaði svo á brjóstinu heima. Vonandi var hún bara svona uppgefinn eftir grátinn í gæslunni en ekki að verða lasinn. Ég setti hana nú samt út í vagn og hún sefur þar núna.

Posted by gydaa at 12:38 PM
March 29, 2003
Velkomin á fætur

Við fórum á fætur 5 mín í 6 svo við erum búnar að vera á fótum í 2 tíma sko!! Inga María vaknaði á klst fresti í nótt. Ég held að eyrnadroparnir séu eitthvað að pirra hana en góða við þá er að það var ekkert í eyranu á henni þegar hún vaknaði í morgun svo þeir eru greinilega að virka. Þegar ég skoða þá þá stendur á þeim augndropar!! Er það ekkert skrítið? Þetta segir www.doktor.is um lyfið
Og þarna er reyndar sagt að það geti sviðið í augun af þessu svo kannski ekki skrítið að henni svíði eitthvað í eyrun. Læknirinn sagði að ég ætti að gefa henni þetta í 1-2 daga eftir að hætti að leka úr eyranu spurning hvort ég ætti ekki að gefa henni lyfið í dag og á morgun til að vera viss.

Annars eru það náttúrulega dásemdir excemissjúklinga að um leið og kólnar ríkur excemið upp svo það getur líka verið að hrjá hana greiið. Bar á hana krem sem á að slá á kláðan fyrir svefninn og hún vaknaði reyndar eftir klst svefn en svaf svo í rúma 3 tíma þannig að kannski hefur það virkað fyrst og eitthvað annað vakið hana eftir klst svefninn og svo verið hætt að virka seinni part nætur. En hvað það verður gaman þegar hún getur farið að segja manni hvað er að hrjá hana hverju sinni.

Annars er þessi stúlka nett pirruð sko hefði þurft að sofa lengur mmm ég hefði nú alveg þegið meira en 5 tíma svefn líka sko!! Freystandi að skella henni út í vagn núna og sofna svo aftur geysp.

Ég fór í þetta foreldrarölt í gær. Við mættum tvær úr Ölduselsskóla og bara röltstjórinn úr Seljaskóla mætti þaðan!! Hólmasel var svo lokað en þeir eiga að sjáu um að segja okkur hvert á að rölta í hvert sinn og taka skýrslu um hvað við urðum varar við. Við röltum um í klst áttum reyndar að vera tvær en æi var ekkert vesen neinstaðar og við nenntum ekki meiru :-/

Matti var á árshátíð inniboltans í gærkvöldi og kom heim klukkan 4 en var nú ekki búinn að skila sér upp í rúm klukkan 6 þegar við fórum á fætur. Ég heyrði hann sko bara koma inn nennti ekki niður að rabba við hann!! Æi var svo þreytt. Ég reyndi svo að ýta við honum til að senda hann upp í rúm þegar ég kom niður en ekki séns að vekja hann svo ég breyddi bara teppi yfir hann og hann svaf í sófanum til 8 þangað til hann vaknaði loksins og kom sér upp í rúm. Ótrúlegur að sofa hérna með sjónvarpið yfir sér og Ingu Maríu að pota pabbi pabbi í hann reglulega :-) Hann hefur verið svona þreyttur greiið :-Þ

Posted by gydaa at 08:26 AM
March 28, 2003
Undrabarnið mitt ;-)

Hún er farinn að biðja um að striplast öðru hvoru sem ég skil vel. Hún kom sem sagt áðan og tosaði í buxurnar uuu buxur ok ég tek hana úr buxunum og bleijunni og hún var voða kát með það að leika sér hérna bleijulaus. Svo kemur hún til mín uuuu kúka kúka og bendir á lítinn pissublett. Æ æ pissaðir þú á gólfið segi ég maður á að pissa í koppinn á ég að sækja bleiju fyrir þig segi ég þar sem ég sé að hún hlítur að þurfa að pissa meira því þetta var bara smá piss á gólfinu. Ég fer upp að sækja bleiju og er í ca hálfa mínútu að því. Þegar ég kem niður stendur hún rétt hjá koppinum og ég ætla að bjóða henni að setjast á hann en kíki í hann og hún var búinn að pissa í hann á meðan ég var í burt!!!!! Ég byrjaði nú á að skoða hvort að kolla væri ekki örugglega í buxunum og hefði ekki skotist og pissað en nei hún var saklaus. Litla barnið mitt pissaði sjálft í koppinn!!!!!
Ekki það að ég á nú ekki von á að hún sé að hætta með bleiju í bráð en komon barnið er bara 16 mánaða hvarlaði ekki að mér að hún gæti þetta!!!

Posted by gydaa at 05:48 PM
Farið yfir síðustu 10 daga

Voða langt síðan ég hef skrifað svo hér kemur heillöng skýrsla yfir síðustu daga.

Við Matti fórum í foreldraviðtalið á leikskólann eins og ég sagði frá um daginn. Það sem að stakk okkur foreldrana aðalega er að þeim fannst barnið okkar voðaleg frekjudolla en við eigum náttúrulega aðra súperfrekjudollu og erum því miklu vön ;-) Hún vill helst gera eitthvað annað en hún á að vera að gera og notar óspart að hún nenni því ekki þegar hún sé beðin að gera eitthvað!! Hún var meira að segja tekin úr hópastarfstíma um daginn þar sem hún var að trufla alla kennsluna með þessu athæfi sínu!! Þessi frekja hefur aukist eftir áramót og okkur datt nú ekkert í hug meðan við töluðum við fóstruna en eftir á föttuðum við náttúrulega að hún hætti með snuð á daginn í janúar spurning hvort að það er að gera hana pirraðri og svo hefur þetta eyrnavesen náttúrulega verið eftir áramót. Sjáum til hvort þetta sé ekki bara tímabil hjá henni allavegana er hún ekkert mjög óþekk við mig en auðvitað er hún á þeim aldri sem hún þykist ráða voða miklu :-)

Ég er svo búinn að vera að vinna í skattaskýrslum þ.e. okkar og svo Stebba skýrslu á ömmu skýrslu alveg eftir. Á bara eftir að slá inn örfáar upplýsingar og þá eru þær búnar.

Kata fór svo að tala við mig um að koma með sér í Sporthúsið en hún kann voða vel við sig þar. Ég tók hana bara mjög alvarlega og fór strax daginn eftir og skoðaði barnagæsluna. Við lékum okkur þarna og ræddum við konuna og leist bara vel á. Ég meira að segja skrapp aðeins fram í fáeinar mín og það var ekkert mál. Við fórum svo aftur daginn eftir og þá skildi ég Ingu Maríu eftir í korter meðan ég fór og keypti kort og las alla auglýsingarnar sem héngu uppi og spjallaði við Matta í gsm símanum!! Hún kom hlaupandi á móti mér þegar ég kom til baka og hékk í mér ætlaði sko ekki að sleppa mér aftur. Þannig að ég var nú pínu stressuð yfir að hún yrði fúl í dag.

Það er búið að vera að leka úr eyranu á Ingu Maríu síðan á laugardag og samþykkti eyrnalæknirinn að gefa henni fram á fimmtudag til að sjá hvort hún jafnaði sig sjálf þar sem hún er hitalaus og kvartar ekkert. Það var samt ennþá að leka úr eyranu í gær :-(

Þá erum við kominn að deginum í dag uuu já já ég veit búinn að fara ansi hratt yfir sögu man bara ekkert hvað ég hef verið að gera!!

Barnalæknirinn (var ekki laus tími hjá eyrnalækninum svo ég fór bara á barnalæknavaktina) gaf Ingu maríu eyrnadropa og tók sýni til ræktunar úr eyranu á henni. Ef að það er ekki hætt að leka úr eyranu á sunnudag þá á ég að hringja í læknirinn og þá fer hún á pensilín sem passar við það sem er að hrjá hana sem er náttúrulega stóri kosturinn við að taka sýni til ræktunar. Sko venjulega þegar þú færð pensilín þá veistu í raun ekki almennilega hvort að það sé pensilínið sem er að virka á 3 dögum eða líkaminn hreinlega bara að jafna sig og það er náttúrulega doldið stór galli við sýklalyfjagjöf bara svona að deila fróðleik með ykkur :-)

Í morgun vaknaði Inga María hálf 5 og var alltaf að vakna aftur og aftur til korter yfir 6 þegar ég fór fram með hana. Ég hafði vakað til miðnættis með eiginmanninum þannig að ég fékk nú ekkert of mikinn svefn svo ég rak Matta á fætur 7 og svaf svo eitthvað til 8 en var sko trufluð ansi oft!! Fyrst kom Matti að spyrja hvaða föt Áróra ætti að taka í sundið (þau eiga sko að æfa að synda í fötum í dag) og ég sagði honum að senda hana í víkingsgallanum og svo kom Kolla upp í til mín og var nú að pota alltaf í mig öðru hvoru en vildi samt vera hjá mér.

Ég skutlaði svo Kollu í leikskólann, fór á atvinnuleysisskrifstofuna með listan yfir störf sem ég hef sótt um til að sanna að ég sé eitthvað að gera!! Maður skilar því sko á 2 mánaða fresti og þarf að sækja allavegana um 8 störf!! Ég setti 20 störf á listann hef nú sótt um fleiri en þetta var það sem ég gat fljótlega fundið upplýsingarnar um þar sem ég hef ekki skrifað þetta inn á eyðublaðið jafnóðum eins og maður á náttúrulega að gera. Skutlaði svo Matta í vinnuna því hann var með jakkafötin með sér því hann fer beint úr vinnunni á árshátíð inniboltans.

Svo fórum við Inga María í Sporthúsið. Hún ætlaði sko að fara beint í gæsluna skildi ekkert í þessari mömmu sem dró sig inn í búningsherbergi fyrst og skipti um föt og hengdi upp úlpuna hennar þar. Um leið og ég lokaði skápnum og sagði jæja þá æddi hún af stað að hurðinni til að fara í gæsluna og ég varð að hálfdraga hana með mér á klósettið!! Við fórum svo í gæsluna og hún var bara voða heimavön og fór strax að dótakassanum sem var út í horni enda bara ný búið að opna og reyndi að tosa hann út á gólf og heimtaði aðstoð frá mér við það. Hún fór svo bara að leika að dótinu og var alveg til í að vinka mér bless ekkert mál!! Ég fór þá á hlaupabrettið í 20 mín og hljóp svo í snögga sturtu þegar ég kom í gæsluna var mín dama þar hágrátandi :-( Hún hafði þá séð mig hlaupa úr salnum og yfir í búningsherbergin og varð svona rosa sár að ég kæmi ekki til hennar. Konan í gæslunni sagði að hún hefði allt í einu rokið að hliðinu og kallað mamma mamma en hafi bara verið rétt ný byrjuð að gráta þegar ég kom enda var ég mjög stutt í sturtunni. Vonandi verður hún samt sátt á mánudaginn en þá á ég tíma hjá þjálfara til að búa til prógram fyrir mig og það tekur 45 mín skv. konunni í afgreiðslunni.

Þetta var sem sagt skýrsla morgunsins :-) Í kvöld er ég svo að fara í foreldrarölt en foreldrar barna í selja og ölduselsskóla skipta með sér að rölta um hverfið og hafa auga með unglingunum. Jóna Dóra ætlaði að passa en var að hringja áðan og er lasinn greiið og tengdó er að vinna þannig að mamma ætlar að koma og passa. Mér fannst nú voða leiðinlegt að þurfa að biðja hana þar sem hún er líka að fara að passa fyrir mig annað kvöld en þá erum við að fara í þrítugsafmæli!! Nóg að gera í útstáelsi sem sagt Matti t.d. Að fara á fyllerí bæði föstudags og laugardagskvöld uss hann verður sko örugglega í ég ætla aldrei aftur að drekka fíling á sunnudaginn ;-) Ég á nú von á að fara á undan honum heim úr þrítugsafmælinu (sko Davíð vinur Matta á afmæli) þar sem ég verð eflaust vel þreytt eftir að vera í þessu foreldrarölti milli 11 og 1 og svo vaknar Inga María alltaf um 6 þannig að ég verð nú ekki mikið sofinn.

Posted by gydaa at 01:46 PM
March 20, 2003
Vaknað snemma

Jæja dagurinn byrjaði nú doldið mikið snemma fyrir minn smekk!! Inga María vaknaði 5:45!!! Eftir að reyna að koma henni niður í klst fórum við fram þar sem að Áróra átti að fara á fætur eftir hálftíma og ég nennti þessu ekki lengur og sá ekki tilganginn í að fá innan við 30 mín svefn ef ég væri heppinn. Inga María er búinn að vera voða kvefuð og hóstar mikið þegar hún liggur svo eflaust hefur það verið að pirra hana en hún svaf samt vel í nótt þannig lagað vaknaði rétt fyrir miðnætti og svo ekki aftur fyrr en 5:45. Hún var að sofna núna og hóstar og hóstar í vagninum sínum hérna á ganginum, greiið stelpan.
Kolla svaf til hálf 9 og tekur greinilega að sér svefninn fyrir systur sína!!

Við Matti eigum svo að mæta á foreldrafund í leikskólanum klukkan 14:30 og ég hlakka til að heyra í þeim ætla að reyna að koma að hvenær Inga María fái pláss ;-) en hún sagði mér hjá leikskólum Rvíkur í gær að fólk færi bráðum að fá bréfin sín og svo hefur það mánuð til að staðfesta plássið. Vonandi hafa margir af biðlistanum farið eitthvert annað :-) og Inga María komist bara inn strax he he ein rosalega bjartsýn.

Posted by gydaa at 10:19 AM
March 15, 2003
Svefn og nammi

Inga María svaf bókstaflega alla nóttina þ.e. frá því að hún sofnaði 8:10 þar til hún vaknaði 6:35 þannig að henni er að fara mikið fram en á örugglega eftir að eiga sína slæmu nætur fyrir því t.d. væri mjög tíbískt að hún svæfi illa í nótt þar sem við hjónin erum að fara í matarboð.

Ég og Kolla röltum út í búð áðan og keyptum nammi í poka fyrir Kollu þar sem það er nammidagur. Kolla var voðalega glöð með nammipokann sinn og situr og horfir á leikfanga sögu. Nema það að hún tekur frá tvo mola einn sem hún segir að Áróra eigi og einn sem hún segir að Inga María eigi. Svo klárast nammið og þá verða afgangs molarnir altaf girnilegri og girnilegri. Eftir að hafa horft á þá góða stund segir hún mamma ég ætla bara að bíta smá af Áróru mola. Allt í lagi Kolla mín þú mátt alveg borða hann Áróra er hjá pabba sínum. Nei nei bara lítinn bita segir hún. Svo fær hún sér annan lítinn bita nokkru seinna og á endanum segir hún mamma þú kaupir bara nýtt nammi handa þeim og borðaði restina :-) Það er erfitt að ætla sér að vera voða góð systir en hjartað er allavegana á réttum stað :-)

Posted by gydaa at 02:00 PM
March 13, 2003
Svefn

Jæja haldi þið ekki að skvísan mín hafi bara sofið alla nóttina!!! Og þá meina ég sko frá því að hún fór að sofa og til morguns!!! Hún vældi samt 2-3 sinnum en ég þurfti ekkert að sinna henni. Hún er eiginlega farinn að gera þetta væla upp en er svo hætt eftir hálfa mínútu eða svo allavegana næ ég kannski að standa upp úr sófanum og labba að stiganum og þá er hún hætt.

Verst hvað ég er ógeðslega þreytt þessa dagana!! Er ekki með hita en lagði mig í 45 mín í gær meðan hún svaf sem ég geri sko helst ekki og var kominn upp í rúm hál 11 og hefði í raun átt að fara mikið fyrr og ég er ennþá þreytt skil þetta ekki.

Posted by gydaa at 10:15 AM
March 08, 2003
Nóttin

Jæja Inga María svaf aftur vel eftir 3 nætur þar sem hún svaf ekki eins vel. Samt svaf hún ekki illa miðað við áður en maður verður ótrúlega fljótt vanur því að fá góðan svefn svo ég var mjög þreytt ;-)
Í gær svaf hún fyrst bara tæplega 1 klst en vaknaði svo ekki aftur almennilega (vældi aðeins öðru hvoru en ekki þannig að ég þyrfti að sinna henni) fyrr en klukkan 5 í morgun. Þannig að hún svaf ca 8 tíma og svo svofnaði hún aftur og vaknaði 7 (eftir að væla öðru hvoru í hálftíma en ég þurfti bara einu sinni að fara til hennar).
Þá er ég mikið að hugsa hvað var öðruvísi í gær heldur en hina dagana!! Hún borðaði vel í gærkvöldi en ekki hina dagana sem getur spilað mikið inn í veit samt ekki alveg hvernig ég á að laga það samt þar sem hún er voða mikið annað hvort borðar hún eða ekki erfitt að plata ofan í hana mat en get reynt samt. Hún fékk bara mjólk ofan á cheriosið um morguninn en engan annan mjólkurmat allan daginn. Ekkert annað sem mér dettur í hug.

Posted by gydaa at 09:22 AM
March 07, 2003
Rólóferð

Þá er Inga María búinn að fara í fyrsta sinn á gæslurólóinn hérna fyrir ofan sem Kolla fór alltaf á. Við röltum þangað eftir að hafa farið með Kollu á leikskólann sinn og það var enginn krakki þarna. Fyrst hélt ég að það væri lokað en nei nei tvær rólókonur að vinna en ekkert barn. Ekki skrítið að það standi til að loka rólóunum!! Þær sögðu þó að það væru yfirleitt þrjár stelpur þarna á morgnanna sem stemmir við að dagmamman sem ég er búinn að ráða fyrir Ingu Maríu sagðist oft fara með þær þangað á morgnanna. Þær voru samt ekki í dag því miður annars væri gott að Inga María gæti byrjað að kynnast þeim.
Við Inga María létum þetta ekkert stoppa okkur í að leika okkur. Lékum okkur lengi í sandkassanum gaman að hafa fullt af nýju sandkassadóti að leika sér að. Svo fórum við að róla og renna og Ingu Maríu fannst voða gaman að róla. Hún sagði hátt og skýrt nei þegar ég spurði hvort hún vildi renna meira og dró mig aftur að rólunum :-)
Vonandi verða fleiri börn þarna þegar við förum næst.

Posted by gydaa at 12:50 PM
March 05, 2003
Inga

Við Inga María fórum á læknavaktina eins og ég skrifaði í gær en þegar kom að okkur kallaði konan Inga og aftur Inga og ég sat bara sem fastast enda kannaðist ég ekki við að vera þarna með Ingu. Skrítið hvað nafnið Inga eitt og sér er ekki nafnið hennar og ég kipptist ekki einu sinni við að heyra það kallað enda heitir hún Inga María :-) Ég áttaði mig nú samt eftir nokkur köll en skrítið að konan skuli ekki kall upp fullt nafn hef ekki lent í þessu áður og er nú víst langt frá því að mæta þarna í fyrsta sinn.

Posted by gydaa at 04:51 PM
Öskudagur

Öskudagur byrjaði á því að ég vaknaði hálf 8 og Inga María var ennþá sofandi. Satt best að segja hef ég ekki hugmynd um hvenær hún vaknaði síðast!! Sko ég man að ég var inni hjá henni þegar Matti kom upp í rúm og hélt að það hefði verið um 3og var nú bara ánægð með mína að hafa sofið í hátt í 5 tíma en Matti segist hafa komið upp í klukkan 1 svo þá er ég ekki viss um hvort ég vaknaði 3 að sinna henni eða svaf alveg frá 1!!!

Áróra klæddi sig upp sem Fróði Baggat úr Hringadrottinssögu og fór út með vinkonum sínum fyrir 9. Þær fóru fyrst niður í Mjódd svo heim til ömmu einnar vinkonunnar og fengu þar pitsu og svo fór amman með þeim í Glæsibæ og svo fór þær á skólaballið. Hún kom heim voðalega ánægð með daginn og fullt af nammi í poka.

Kolla fór í leikskólann um 10 þar sem hún var klædd í búninginn sem hún bjó til og var kóngur. Þau slógu svo köttinn úr tunnunni og sungu og dönsuðu og fengu popp og skúffuköku. Þau voru svo máluð aftur akkurat þegar ég kom að ná í hana og ég beið á meðan hún fékk kisumálningu þannig að þá var hún orðin kisukóngur ;-)

Inga María var bara heima hjá mömmu og fékk engan búning en er núna að háma í sig nammið hennar Áróru!!! Hvað varð um ekkert nammi handa henni erfitt að vera með þá reglu og tvær systur sem eru að borða nammi svo hún verður að fá smá líka.

Ég var líka bara heima í dag eins og Inga María en ekki hvað ;-) og er líka að háma í mig nammið hennar Áróru namm namm :-)
Annars skúraði ég miðhæðina í morgun svo það var afrek dagsins he he

Posted by gydaa at 04:48 PM
March 04, 2003
eyrnabólga og saltkjöt og baunir

Ég fór með Ingu Maríu á læknavaktina áðan og hún er með það slæma eyrnabólgu að læknirinn vildi setja hana á pensilín :-( Hún er því kominn á einn en pensilínkúrinn og fer svo í skoðun næsta þriðjudag til eyrnalæknisins. Hún er samt hress og kát stúlkan svo þetta er ekki mikið að plaga hana.
Við fórum í salt kjöt og baunir til mömmu og pabba og ég borðaði yfir mig af því eins og tilheyrir mmm namm namm allavegana svona einu sinni á ári.

Posted by gydaa at 10:11 PM
Æla og eyrnabólga

Inga María vaknaði um 11 í gærkvöldi og byrjaði að æla og æla hún hélt ekki einu sinni niðri brjóstamjólk!! Þetta tók ca klst og svo fórum við að sofa um 1 eftir að hún drakk hjá mér og hélt því niðri. Ég lét hana sofa upp í hjá okkur svo ég tæki eftir því ef hún ældi og hún svaf bara vel en fékk að súpa bæði áður en hún sofnaði og klukkan 4 svo ætli ég verði ekki viku að ná henni góðri aftur á nóttinni!! En maður verður að geta tekið þau upp í þegar þau eru lasinn greiin.
Svo lak voða mikið úr eyranu á henni bæði í gærkvöldi og svo í morgun þannig að hún er með eyrnabólgu spurning hvort að slímið hafi verið að valda ælunni fyrsta að hún stóð yfir í svona stuttan tíma en samt finnst mér þá skrítið að æla aftur og aftur og hósta ekki. Ég pantaði tíma hjá eyrnalækninum og það er vika í lausan tíma og æi ég ætla að láta það nægja ef hún helst hitalaus þar sem ég veit alveg að hún er með eyrnabólgu hverju bætir læknirinn við. Henni líður ekkert illa en ég er aðalega hrædd um að rörin stíflist hef heyrt fólk tala um það verð að spyrja læknirinn að því næst þegar ég sé hann.
Rosalega hlakkar mér til vorsins þegar fer að hlýna og eyrnabólgum að ljúka :-)

Posted by gydaa at 11:46 AM
March 03, 2003
Inga María svaf

Ætli það sé eitthvað sérstakt í bollum!! Reyndar borðaði Inga María enga bolllu með öllu á vildi það ekki en borðaði 2-3 tómar þ.e. Ekkert súkkulaði einu sinni bara bolla. Hún fór sem sagt í rúmið um 8 eftir bað en ætlaði aldrei að sofna tók örugglega 40 mín að koma henni niður mamma hennar var nú orðin dildið pirruð sko :-)
Hún vaknaði svo um 11:30 og vældi mikið (var reyndar búinn að væla upp tvisvar fyrr um kvöldið en aldrei meira en bara væl í 1 sec svo búið) og ég var nú örugglega 10 mín að fá hana til að róa sig og fara að sofa aftur. Hún vakanaði svo aftur og aftur þangað til einhverntíman milli 12 og 1 veit ekki alveg hvenær hún sofnaði alveg en svo vaknaði ég næst við að Matti kom heim úr vinnunni líklegast svona um 3 leitið og ég var alveg vá Inga María sofandi ennþá og svo vaknaði ég næst við vekjaraklukkuna!!!! Ég rauk náttúrulega inn til barnsins til að athuga hvort hún andaði ekki örugglega ennþá og hún gerði það :-) en hefur eflaust vaknað við þetta eða kannski bara vekjaraklukkuna því fljótlega fór hún að kalla á mig og við fórum saman á fætur.

Þannig að ekki get ég kvartað yfir svefnleysi eftir þessa nótt þó mér hafi nú líklegast ekki þótt rúmir 6 tímar langur svefn fyrir barneignir ;-) þá eru 6 tímar í einni lotu frábærir í dag.

Posted by gydaa at 08:56 AM
March 02, 2003
Bolludagur

Já er sunnudagurinn ekki orðinn bolludagur enda ekki hægt að fara í bollukaffi þegar allir eru að vinna.
Ég fékk sem sagt þá hugmynd um hádegið að hafa bollukaffi og náttúrulega heimilið í rúst!! Hringdi og bauð mömmu og pabba, Stebba bróðir, Jónu Dóru og Óttar og afa og ömmu. Svo var vinkona hennar Áróru hérna líka. Ég bakaði næstum 80 bollur og tók til á meðan þær bökuðust en verð nú að viðurkenna að ég tók ekkert mikið til enda ákvað ég að ættingjar mínir myndu alveg fyrirgefa það og hefði alveg mátt skúra líka en hvað um það.
Kolla setti á bollurnar meðan ég bakaði og tók til. Var reyndar doldið gjafmild á sultu og rjóma en voða fínt hjá henni samt. Það kláraðist hver einasta bolla þetta er svo gráðugt fólk!! Eða svona rosalega góðar bolllur :-)

Þannig að þessi sunnudagur var sko ekkert leiðinlegur hjá mér :-) Annars fékk ég að sofa út í morgun eins og alla sunnudaga þó svo að kallinn hafi verið að koma heim úr vinnunni klukkan 3, hrikalega er ég vel gift! Hann fékk svo að leggja sig aftur en ég fór á fætur klukkan 10 hafði ekki samvisku í að sofa lengur þar sem að hann hafði ekki náða að sofa nema rúma fjóra tíma.

Rosalega var gott veður í dag ég hefði betur verið úti að njóta þess en ekki inni yfir bollubakstri nee miklu betra að borða allar bollurnar :-)

Posted by gydaa at 10:09 PM
March 01, 2003
Jóna Dóra afmæli

TIl hamingju með afmælið í gær Jóna Dóra. Við fórum sem sagt í afmæli til hennar í gær voða gaman og stelpurnar skemmtu sér voða vel held það hafi nú verið doldill svefngalsi í þeim að fara í svona kvöld afmæli :-)
Inga María vildi fara beint í kökurnar sagði aftur og aftur kaka kaka og tosaði í stól við kökuborðið. Skildi ekki að við skildum ekki gefa henni köku um leið og við komum. Erfitt að bíða eftir að þessu fullorðna fólki þóknist að segja gjörið svo vel :-)
Við Matti förum ekki í matarklúbb í kvöld þar sem að Tinna Björk er með hlaupabólu og komin með fullt fullt af bólum og líður voða illa. Frestum því þá þar til hennir líður betur stelpu greiinu. Sendum þér batnaðar kveðjur Tinna mín og vonandi fer þér að líða betur sem allra fyrst.

Posted by gydaa at 09:40 AM