Þá er ég búinn að fara með Áróru til tannlæknisins púff það eru sko engin smá átök sem felast í því!! Þetta er sko tannréttingartannlækningar. Hún er að fá góm og beisli. Það var settur vír utan yfir öftustu tennurnar til að festa beislið og það var kvartað og kveinað yfir því enda örugglega ekki þægilegt en svo er hún nú alveg agalega óhemja!! Síðan þurfti að taka mót og það gekk ennþá verr. Hún tosaði með hendinni sem ég hélt ekki í í hendina á tannlækninum og barðist um með hausnum svo að hann þurfti að byrja upp á nýtt. Það hjálpaði alveg örugglega ekki til að þetta er tannlæknanemi sem við erum hjá. Erum sko í tannréttingum hjá tannlæknanemum upp í Háskóla því það er svo mikið ódýrara. Eftir miklar fortölur fékk tannlæknirinn að reyna aftur og þá hélt ég í báðar hendurnar á henni og hún sat nokkuð kjurr með hausinn en tárin láku stannslaust og þá vorkenndi ég henni nú doldið :-(
Jæja þá er Kolla búinn í röraðgerðinni. Pabbi hennar fór með henni í aðgerðina og hún var orðin alveg hress þegar hún kom hingað heim ca hálf 10. Hann sagði að hún hefði ekki vælt eftir að hún vaknaði eins og hún gerði í fyrra en ældi tvisvar. Hún var víst doldið hrædd við svæfinguna en gekk samt bara vel. Læknirinn setti rör í öðru meginn eða þar sem var dottið en tók rörið úr hinum megin en gat ekki sett nýtt í þar sem gatið eftir gamla rörið var svo stórt að það þarf að leifa því að gróa fyrst. Svo fóru þau í bakaríið og komu heim kát og hress með snúða og kleinuhringi handa stelpunum og mér :-)
Þær fengu sér kornflex og borðuðu kleinuhringinn sinn og smá af snúðnum og svo eru stelpurnar bara að leika sér hérna á gólfinu í kubbaleik ekki að sjá að þetta barn hafi verið í aðgerð fyrir 2 tímum síðan!!
Ég fór áðan og stimplaði mig eins og ég verð að gera á tveggja vikna fresti ok með það. En ég var að fá launaseðilinn frá atvinnuleysissjóði og sko ég vissi alveg að ég ætti að bíða í 40 daga eftir fyrstu greiðslu þar sem að ég sagði sjálf upp en komon af hverju benti enginn mér á að þetta eru 40 virkir dagar!! Er sjálfsagt mál að maður fatti það. Ef ég segði við þig hittumst eftir 5 daga þá myndir þú ekki sjálfkrafa halda að það væri eftir 5 virka daga er það???
Kannski er ég bara svona vitlaus!!
Jæja ég fór með Ingu Maríu í fyrsta sinn út á róló áðan. Hún skemmti sér voða vel að moka og renna í rennibrautinni. Fór nú bara á litla leikvöllinn hérna fyrir neðan húsið. Hún labbaði þangað voðalega stolt með fötuna sína í hendinni. Ótrúlegt að ég hafi ekki farið með hana áður en hún er bara einhvernveginn litla barnið mitt og á að vera ungabarn en er það víst ekki lengur!!
Hugsa sér að þegar Kolla var jafngömul henni þá var Inga María meira að segja orðin til :-)
Inga María hefur sofið voðalega illa síðustu nætur :-( Hún hefur ekki sofið almennilega langan dúr síðan í fimmtudag!! Hún svaf reyndar einn 3-4 tíma dúr í nótt en Kolla kom til mín í miðjum þeim dúr og sagðist þurfa að pissa svo ég fór á fætur með henni að pissa svo ekki fékk ég að sofa 3 tíma í einu!! En frábæru fréttirnar við það eru að Kolla vaknaði með þurra bleiju í fyrsta sinn. Vííí Kolla hetja. Hún fékk fullt af hrósi fyrir það enda rosa flott hjá henni að fara frekar fram að pissa í klósettið heldur en að pissa í bleijuna ekki getur hún að því gert að eiga systur sem vekur mömmu oft á nóttu.
Annars vaknaði Inga María sem sagt á tæplega klst fresti alla nóttina fyrir utan að hún var vakandi í rúma klst millli 5 og 6.
Ég er að hugsa um að prufa að gefa henni stíl fyrir svefninn í kvöld til að sjá hvort að það breyti einhverju því hún var að sofa 5-6 tíma dúr á stílunum og svo fyrst eftir rörin án stíla. Ég var nú að vona að röraðgerðin hjálpaði til með að laga svefninn en ekki að gera hann verri!!
Þá er Inga María búinn að fara í bíó í fyrsta sinn :)
Það var auglýst kötturinn Brandur á 250 kr í dag í regnboganum þannig að ég fór með stelpurnar tvær meðan Matti horfði á Liverpool. Kolla sat stjörf allan tímann og horfði. Inga María sat kjurr í fanginu á mér til hlés, borðaði popp og var voða kát með það. Eftir hlé var hún nú fljótlega búinn að fá leið á að sitja kjurr. Lék sér í stiganum við hliðina á mér og var svo sem ekki með neytt vesen og ekkert að trufla neinn þannig að ég leifði henni það bara.
Við skemmtum okkur sem sagt allar vel.
Gyða sem er alltaf í bíó þessa dagana :-)
Inga María sagði áðan mamma taka og þetta er reyndar í þriðja sinn sem hún hefur sett saman tvö orð en alltaf margir dagar á milli svo mér finnst erfitt að segja hvenær hún sé í raun farinn að nota tveggja orða setningar en það er að koma allavegana.
Man nú ekki hvenær Kolla byrjaði á þessu en held að hún hafi verið töluvert eldri.
Við fórum í afmælið hans Stebba í gær þ.e. partíafmælið. Það var fullt af fólki og voða gaman.
Diddi passaði Ingu Maríu og hún vaknaði rétt áður en við komum heim þ.e. hann var að koma niður með hana því hún glaðvaknaði. Hún var svo vakandi hjá okkur í rúma klst áður en ég fór upp með hana. Hún vaknaði svo voðalega oft í nótt og reyndar nóttina þar á undan líka. Ég er að reyna að horfa á þetta sem eitt skref aftur og bíð eftir þessum tveimur áfram sem eiga að fylgja á eftir :-)
Við Inga María fórum í Smáralind í gær að leita að afmælisgjöf handa Stebba bróðir sem átti þrítugsafmæli. Eftir að fara fram og til baka endalaust um Smáralindina keypti ég loks samlokugrill í Hagkaup og hann gæti bara skipt því ef hann ætti slíkt þar sem ég mundi ekkert hvort að hann átti það til. Hann átti það náttúrulega en jæja hann velur sér bara eitthvað annað þá. Það var svo afmælisboð hjá honum um kvöldið og Jóna Dóra (systir Matta) kom og passaði meðan ég og Matti fórum í afmælið. Inga María svaf allt kvöldið sem er í fyrsta sinn sem einhver passar hana og hún sefur, yfirleitt vaknar hún fljótlega eftir að ég fer eins og hún hafi svona radar á mig mmmm hvert heldur mamma að hún sé að fara :-)
Það var virkilega gaman í afmælinu að kjafta og borða kökur. Matti varð svo eftir hjá Stebba til að horfa á Liverpool leikinn sem þeir neyddust til að taka upp !! Því leiðinlegu systurinni/eiginkonunni fannst sko ekki við hæfi að hafa kveikt á leiknum yfir afmælisgestunum.
Inga María vaknaði ekkert fyrr en hálf 3 (sofnaði frekar seint að verða 9 en ekki 8 eins og venjulega) og svo svaf hún til 5 og svo 6:10 og 6:20 og svo 7 en þá fórum við á fætur. Ég þurfti aldrei neytt að hafa fyrir henni og held (mér finnst voðalega erfitt að fullyrða um smáatriði þegar maður er hálfsofandi!!) ég hafi ekki einu sinni þurft að snerta hana sem að mér finnst mikill kostur. Kolla var voðalega mikið að umla og bylta sér þarna rúmlega 6 sem að ég held að hafi að hluta til orsakað það að Inga María var að vakna aftur 6:20.
Inga María svaf til hádegis og er búinn að vera hress eftir það. Hún leikur sér hress og kát og borðar vel ekki að sjá að hún hafi verið í aðgerð í morgun :-)
Vonandi er þetta endinn á eyrnaveseni hennar.
Jæja þá er litla snúllan mín kominn með rör í eyrun. Hún var voðalega kát á læknastofunni fyrir aðgerðina og vildi helst vera inni á kaffistofu starfsfólksins!! Hún kvartaði ekkert yfir svæfingunni sem kom mér á óvart en grét voðamikið þegar hún vaknaði og er búinn að vera voðalega lítil síðan. Hún sefur reyndar núna en vælir öðru hvoru upp úr svefninum svo henni líður ekkert of vel. Hjúkkan sagði að svæfingarlyfið væri alveg upp undir 4 tíma að fara úr líkamanum þannig að það væri ekkert óeðlilegt þó hún svæfi mikið í dag.
Vonandi líður henni betur þegar hún vaknar.
Annars voru Kolla og Matti ennþá sofandi þegar ég kom heim og sváfu til 9:30 þegar Inga María var sofnuð og ég fór upp og vakti þau!!! Meiri svefnburkurnar.
Jæja Inga María á að fá rör á morgun. Við fórum sem sagt til eyrnalæknisins klukkan 5 í dag og hann skoðaði hana og bauð okkur tímaá morgun sem ég þáði með þökkum get ekki beðið eftir að þessu eyrnaveseni ljúki!!
Vonandi fer henni nú að líða betur og sofa betur!!
Jæja ég gaf Ingu Maríu stíl áður en hún fór að sofa og hún svaf vel til 2, rumskaði aðeins um 11 en þurfti bara rétt að vita af mér og fór aftur að sofa svo það var í fínu lagi. Ég gaf henni svo nýjan stíl um 3 en hún sofnaði samt ekki fyrr en að verða hálf 5 og vaknaði svo um rúmlega 6 og ég var inni hjá henni til 7 þegar ég rak Matta á lappir!!
Þetta eru orðnar of margar nætur til að vera bara eftirköst eftir veikindin svo ég pantaði tíma hjá lækni á barnalæknavaktinni. Hann skoðaði hana og hún er með vökva í báðum eyrum. Önnur hljóðhimnan lítur vel út og glær vökvi við hana en hin lítur ekki vel út lítur svona uuuu druslulega út sagði læknirinn til að reyna að útskýra þetta fyrir mér. Hann sagði það ekki ósennilegt að henni liði illa þó svo að það sé enginn sýking í eyrunum. Hann sagðist hafa hitt börn á skólaaldri með samskonar einkenni sem komi vælandi af sársauka þannig að þó að 1 árs barn kvarti þá sé það ekki skrítið. Hann mælir með að ég sé dugleg að dæla í hana stílum á nóttinni og mælir með að ég hafi stíl nr. 2 tilbúinn fyrir nóttina og reyni að gefa henni þann stíl án þess að kveikja ljósin (en það er svo mikið myrkur að ég veit ekki hvernig ég á að gera það en ætla að reyna og án þess að taka hana úr rúminu. Með þessu móti get ég vonandi stytt vökutíman hjá henni á nóttinni en eflaust er það rétt hjáhonum að hún glaðvaknar bara og á þess vegna svona erfitt með að sofa almennilega það sem eftir lifir nætur þó að hún sé kominn með stíl.
Hann vill svo að ég komi henni sem fyrst til eyrnalæknisins míns svo hann geti ákveðið hvernig best sé að losa hana við vökvann. Ég var búinn að panta tíma í gær en fékk ekki tíma fyrr en á þriðjudaginn eftir viku!! Mér finnst það nú voðalega langur tími að bíða með þennan svefn sérstaklega þar sem að hann gerir aðgerðir á miðvikudögum og ósennilegt að hún komist að daginn eftir og þá þarf ég að bíða í að minnsta kosti viku í viðbót áður en hún kemst í aðgerð. Ég hringdi því áðan og Sigurður er með símatíma á eftir klukkan 1 ég ætla að hringja þá og segja honum hvað hinn læknirinn sagði og kannski getur hann þá skoðað hana fyrr.
Í gærkvöldi gáfum við stelpunum skyr en elduðum uppáhalds kjúklingaréttin okkar hjóna fyrir okkur og vorum búinn að kaupa okkur hvítvín með. En um 9 þegar maturinn var lagður á borðið vaknaði Inga María og mér tókst ekki að koma henni niður með góðu móti og var reyndar orðin sjálf voðalega svöng svo ég endaði meðað taka hana niður. Svo rómantíski kvöldverðurinn okkar var með 1 árs borðfélaga sem var reyndar mjög kát með þetta :-) namm namm sagði hún og fékk svo gos með matnum líka (sótavatn þótt hún vældi mikið á appelsínið mitt!!).
Ég gaf henni stíl þegar ég tók hana niður en hún kúkaði nú mest af honum út aftur!!! Þorði samt ekki að gefa henni annan veit ekki hversu mikið var í kúknum og hversu mikið hafði síast inn í hana. Hún sofnaði svo eftir smá vesen um 11 og svaf til hálf 6 sem er nú mjög góður lúr fyrir hana en hún sofnaði svo ekki aftur eftir það!!! Þar sem við fórum ekki að sofa fyrr en hálf 1 þá var þetta nú doldið stutt fyrir mig enda rak ég Matta greiið á lappir um 7 og reyndi að sofna aftur en gekk nú ekki vel þar sem hún vældi bara á pabba sinn!! Þannig að ég svaf nú ekki mikið en ætti að vera orðin vön því.
Hún var svo í fínu skapi hjá mér en vildi helst vera úti að pota í snjóinn. Samþykkti svo að koma inn og leika en sefur núna úti í vagninum sínum.
Við fórum í gær í kaffi til mömmu og pabba eins og alla laugardaga (Matti fór reyndar í vinnuna) og gáfum mömmu hanskana/vetlingana sem við keyptum handa henni í afmælisgjöf og skoðuðum myndir sem Stebbi bróðir tók í Japan en hann kom heim á föstudag úr 10 daga Japans ferð. Þetta er sjötta Japansferðin hans en í fyrsta sinn sem hann tekur sér einn dag í fríi þar!!! Og það var reyndar út af því að flugið var ódýrara þennan dag þannig að ráðuneytið lét hann vera einum degi lengur. Honum fannst það virkilega gaman sko að hafa dag til að skoða sig um og fór og skoðaði margt ótrúlegt að hann hafi ekki beðið um þetta sérstaklega!! Skrítinn bróðir sem ég á :-)
Ég og Matti fórum svo í skírn til Kötu vinkonu minnar. Stelpurnar voru hjá tengdaforeldrum mínum á meðan. Drengurinn hennar Kötu fékk nafnið Baldur Rökkvi. Baldur er eftir föðurafanum en Rökkva nafnið fann hún á lista nafnanefndar. Fallegt nafn en sérstakt en Kata segir samt að 10 drengir beri þetta nafn sem fyrsta nafn!! Þegar Kata pantaði kökuna sagði konan í bakarínu Rökkvi með fyrirlitningartón er það leifilegt!! Það er nú ekki í lagi með kellinguna í bakaríinu. Allavegana vorum við öll sammála um að þetta væri virkilega fallegt nafn.
Í morgun fékk ég svo að sofa til 10 en þá fór eiginmaðurinn í vinnuna. Stelpurnar voru voðalega litlar í sér. Vældu báðar út af allt og öllu. Ólíkt Kollu sérstaklega svo ég gaf henni verkjalyf ef eyrun skildu vera að pirra hana en hún svaf samt vel í nótt!! Hún er samt betri í skapinu eftir að fá verkjalyf og að borða spurning hvort virkaði og svo er Inga María sofandi sem þíðir að hún er ein um athyglina sem er alltaf kostur líka. Búnar að sitja og lesa saman og leika okkur þannig að það hefur hjálpað líka. Inga María svaf hræðilega í nótt!!! Hún sofnaði um 9 en vaknaði um hálf 1 rétt eftir að ég fór að sofa og hélt mér vakandi til svona hálf fimm!! Hún dottaði sko alveg en harðneytaði að ég væri ekki með hendi á henni vældi svo inn á milli en ekki mikið ef ég bara var að strjúka á henni bakið alla nóttina sem virkar ekki mjög vel til að ég geti sofið!! Ég gaf henni verkjalyf rúmlega 3 til að prufa hvort að það breytti einhverju en það gerði það nú ekki. Tók hana svo yfir í okkar rúm klukkan rúmlega 4 eða hálf 5 og þá sofnaði hún og svaf til 8.
Jæja ég ætla að fara að kippa Ingu Maríu inn þó að það sé nú skjól hérna fyrir framan en þeir spá 30-40 vindstigum um 3 leitið!!
Jæja ég fór og stimplaði mig atvinnulausa í fyrsta sinn í dag. Ekki tók það nú langan tíma, rétti fram stimpilbókina mína og hún stimplaði og ég fékk hana aftur það var nú allt og sumt!! Ég á svo að bíða í 40 daga eftir fyrstu greiðslu. Verst að ég veit ekki hvort að það er talið frá 14. janúar þegar ég sótti fyrst um eða 28. janúar þegar ég komst að á kynningarfundi og gekk frá restinni af gögnunum!! Munar heilum 14 dögum sko en annars ætla ég auðvitað að vera komin með vinnu áður en ég þarf að hugsa um það ekki satt!
Hvor dóttirin haldi þið að hafi komið niður í sjónvarpsherbergi, þar sem móðir hennar var að sinna veikri systur hennar, og sagt ertu búinn að borða með aumkunarsvip. Nei Inga María er svo lasinn sagði ég. Þá lagði hún hendina og horfði móðurlega á mig og sagði viltu nú ekki fá þér að borða? Svo náði hún í dót handa Ingu Maríu og reyndi að sýna henni. Inga María sleppti mér reyndar ekkert en við fórum samt saman upp og ég fékk mér 2 bita og fór svo með Ingu Maríu í rúmið. Já þessi stúlka var ekki nema 3 ára en samt farin að passa mömmu sína!!
10 ára stelpan mín bauðst nú reyndar síðan til að klæða Kollu í náttföt og lesa fyrir hana svo ég fékk nú loks að borða :-) en hún gerir aldrei neytt ókeypis svo ég skráði hana í Galdrastelpurnar klúbbinn á meðan ;-)
Það eru veikindi í mínu húsi :-( Inga María var kominn með 39 stiga hita um 5 leitið í gær. Ég fór nú strax með hana á læknavaktina ef þetta skyldi vera eyrnabólga en það sást bara smá roði í eyrunum, kannski af því að þetta er einhver allt önnur pest og kannski af því að þetta er eyrnabólga á byrjunarstigi. Ég á að vita betur heldur en að fara með barnið um leið græði ekkert á því annað en margar læknisferðir!! Jæja hún fékk samt eyrnadropa sem virka á staðbundnar sýkingar og vonandi virkar það og þetta verður ekkert verra. Hún var með tæplega 39 í morgun og svaf svo sem ágætlega. Gaf henni stíl klukkan 9 og aftur klukkan 1 og tók hana svo upp í til mín um 2 eða 3 (meira af því að ég vorkenndi henni svo heldur en að hún væri verri en venjulega!!) og þá svaf hún þar til að vekjaraklukkan vakti okkur klukkan 7:15
Kolla er með voðalegan barkarbólgu hósta en engann hita (hún fær reyndar mjög sjaldan hita) og ég hefði nú viljað halda henni heima. En Inga María þoldi ekki að ég talaði við neinn annan svo ég fór með hana í leikskólann og bað um að hún væri inni.
Þvílíkt rok úti. Ég þorði ekki að senda Áróru gangandi svo ég skutlaði henni. Skrifaði miða með henni þar sem ég bað kennarann að taka tillit til þess að ég væri heima með veikt barn en hefði samt viljað skutla henni vegna veðursins og væru það orsök þess hversu seint hún mætti en hún kom ca korter í 9 í stað 8:10. Aumingja Inga María að vera druslað út í bíltúr í svona veðri með 39 stiga hita ekki gaman að vera þriðja barn!!
Eiginmaðurinn er svo ennþá í vinnunni síðan í gærmorgun og kemur eflaust ekki heim fyrr en vinnudegi líkur í dag hvenær sem það svo verður en eflaust bara um eftirmiðdaginn í dag eða ég vona það allavegana.
Það er nú doldið einmannalegt svona til lengdar að hafa eiginmanninn alltaf í vinnunni :-) Voðalega leiddist mér það í gærkvöldi enda var nákvæmlega ekkert sem mig langaði að horfa á í sjónvarpinu. Ég horfði samt á Djúpu laugina ekki er það merkilegur þáttur!!
Í kvöld bíður RÚV upp á Simon Birch og ég ætla að vona að hún sé allavegana þolanleg.
Jæja ég fór í atvinnuviðtalið í dag og leist bara vel á. Mér fannst viðtalið ganga vel, mikið léttara andrúmsloft heldur en í fyrsta viðtalinu. Í þetta sinn hitti ég fjármálastjórann og konu/stelpu af viðskiptaborðinu sem hefur séð um þessi mál hingað til. Þau eru bæði á mínum aldri að sjá (veit að hann er ári eldri en ég en veit ekki með hana) og þau eru bæði viðskiptafræðingar eins og ég þannig að ég held það hafi hjálpað til að við náðum vel saman. Vonandi eru þau svo ekki bara svo viðkunnalega að öllum líði vel hjá þeim :-) Ég á svo að fá svar í næstu viku.
Ég fór svo eftir viðtalið og sótti Kollu og hún lét alveg eins og bavíani!!! Hún hefur reyndar verið voðalega hátt uppi eftir leikskóla alla vikuna. Hún hleypur inn í sal og yfir á stóru deildirnar aftur og aftur og harðneitar að fara í fötin sín. Í gær þurfti ég að halda á henni óklæddri (sko ekki í útifötum) út í bíl meðan ég lét Ingu Maríu labba í rólegheitum en hún er svo lengi að labba að ég gat haldið á Kollu og fest hana meðan Inga María rölti frá hurðinni og í áttina að bílastæðunum. Jæja mér tókst í dag með hjálp annarrar mömmu að koma henni í skóna og hún labbaði með mér út í bíl. Hún var reyndar voðalega mikið að fíflast í snjónum og að borða snjó en ekkert sem ég var að gera veður út af. Ég festi svo Ingu Maríu og tók svo Kollu og reyndi að festa hana í bílstólinn sem hún vildi ekki. Hún lét sig alltaf síga niður á gólf og ég var að halda henni í bílstólnum. Ég hélt í vinstri hendina á henni og hún tosaði á móti og ég fann mjög greinilega þegar hún kipptist úr liðnum. Hún orgaði náttúrulega af sársauka stelpu greiið. Ég fór beint með hana upp á slysó. Hún grenjaði nú ekki lengi en notaði ekki hendina eins og börn gera þegar þau fara úr lið í olnboga. Sko Áróra þurfti mjög lítið álag til að fara úr þessum lið svo ég er mjög vön :-) Ég sagði við konuna í afgreiðslunni að hún hefði farið úr lið og svo fengum við að leika okkur í leikherberginu þar til læknir var laus og kippti henni í lið. Hún grét auðvitað mikið við það enda er það rosalega sárt en svo var það líka búið. Hún þrjóskaðist við að nota hendina eftir á samt en ég heyrði samt alveg smellinn þegar hún fór í liðinn svo ég hafði ekki áhyggjur. Læknirinn kom aftur og þar sem að hún vildi ekki nota hendina þá potaði hann doldið í hendina og hreifði hana til. Hún varð voða fúl við hann en sársaukinn var greinilega farinn svo við fengum að fara heim. Á leiðinni út kom hjúkrunarkonan með dótakörfu og hún mátti velja sér verðlaun. Hún fékk sápukúlur og var þvílíkt glöð með það. Hún talar núna bara um sápukúlurnar en virðist alveg hafa gleymt því að læknirinn hafi meitt hana. Inga María var nú doldið fúl að fá ekkert en ekki hægt að gefa henni líka því það á að vera umbun fyrir hvað hún stóð sig vel og því varð hún svo sérstök að fá ein gjöf. Þær voru svo alveg himinlifandi þegar ég blés sápukúlur fyrir þær fyrir utan slysó og Inga María hló og hló.
Þegar ég fór að borga sagði Kolla já þú verður að borga sápukúlurnar með mjög ábyrgðarfullum svip uuu nei ég borga bara lækninum fyrir að hafa laga hendina sápukúlurnar voru gjöf sagði ég og átti í vandræðum með að skella ekki upp úr.
Það var hringt í mig í gær og ég er að fara á morgun í viðtal númer tvö hjá Lífeyrissjóði Starfsmanna Ríkisins þetta fer að vera spennandi :-) Við erum sem sagt þrjú núna sem verið er að velja úr.
Jæja ég er farinn að vakna fyrir allar aldir!! Í gær vaknaði Inga maría hálf fimm (eins og ég sagði ykkur í gær) og í dag vaknaði hún sex. Ég að vísu þrjóskaðist við að halda henni í rúminu til 7 en þá fórum við fram. Hún lagði hausinn í smástund og svo poppaði hann upp aftur en ég held hún hafi samt haft gott af því að kúra til 7 þó hún hafi viljað fara fram. Ég fór í rúmið 11 þannig að í rauninni gat ég alveg vaknað 6 það var ekki erfitt en ég vil samt frekar að hún sofi til 7 svo að hún haldi dagrútínunni sinni og haldi áfram að fara að sofa á sama tíma á kvöldin en sé ekki búinn hálf 7 eða eitthvað álíka.
Hún situr nú bara og leikur sér að kubba núna svo vonandi getur hún þá vakað til 11 og haldið sig á réttu róli með daglúrinn. Annars ætla ég að rölta til Kötu þegar hún sofnar og borða hádegiskaffi með henni.
Áróra: Áróra er að verða fullorðin bara!! Ótrúlegt hvað ég á orðið gamalt barn. Hún leikur sér aðalega í sims ja og playmó reyndar. Hún er orðin mikið ánægðari í skólanum og virðist aldrei vanta leikfélaga. Hún er voðalega dugleg að hjálpa mér með stelpurnar þó ég segi nú kannski ekki að það sé alveg gert kvartlaust alla daga :-) Hún stendur sig alltaf voða vel í skólanum og fékk t.d. 9,5 í kristnifræði um daginn sem okkur foreldrunum fannst mjög sniðugt svona miðað við hvað hún fær kristilegt uppeldi ;-)
Kolla: Kolla er nú alveg voðalegur gaur og hefur voðalega gaman af því að óhlíðnast mömmu sinni þessa dagana. En það ristir nú ekki mjög djúpt og er hún mikið fljótari að gefast upp heldur en Áróra var. Ekki það að hún endurtaki ekki leikinn við næsta tækifæri!!
Hún er að þroskast alveg rosaleg mikið og farinn að segja mér frá svo mörgu og hugsa svo mikið um lífið og tilveruna. T.d. Sagðu hún við okkur um daginn. "Seinna Kollar rosalega stór svo pínu pínu lítið í mallanum á Kollu og svo kemur það svona út og svo þarf ég að skipta um bleiju á því" svona er tilgangur lífsins greinilega :-) Hún hjálpar mér líka voðalega mikið og gengur mjög oft sjálf frá diskinum sínum eins og áróra þó hún haldi því stundum fram að hann sé svo þungur að hún geti það ekki. Æ æ þú ert víst ekki nógu stór svara ég og þá að sjálfsögðu er diskurinn ekki lengur svona rosalega þungur!! Svo var ég að ganga frá eftir saumó í morgun og hún var voðalega fullorðinsleg að hjálpa mér. Hellti úr öllum glösunum í eitt og ætlaði svo að stafla þeim saman svo það væri hægt að fara með þau í einu lagi!!! Sem er reynda ekki hægt að gera með spariglösin en þetta er samt það sem við gerum við hin glösin og eflaust gert á leikskólanum eða eitthvað slíkt.
Inga María: Púff hún er sko hætt að vera ungabarn. Hún er farinn að ganga um allt og núna vill hún helst bara ganga úti líka og verður mjög reið þegar hún fær það ekki. Hendir sér organdi í gólfið!! Hún vill helst ekki leiða mig heldur svo það er ansi erfitt að leifa henni að labba úti í hálkunni. Hún samþykkir samt að leiða Kollu og réttir henni oft höndina af fyrra bragði til að byðja hana að leiða sig.
Henni er alveg rosa mikið búið að fara fram í máli. Segir alls konar orð og ég hef ekki hugmynd um hversu mörg orð hún kann orðið. Hún sagði t.d. Blaðra í gær og ég heyri eiginlega nýtt orð á hverjum degi. Hún hefur líka rosa gaman af því að láta lesa fyrir sig og lærir eflaust mörg orð af því.
Hún hefur ekki fengið að drekka á nóttunni í viku núna en lætur það nú ekki trufla sig í að vakna mörgum sinnum á nóttu!!
Henni finnst líka voða gaman að hjálpa mömmu sinni og hjálpar mér t.d. Að setja í þurkarann verst hvað hún treður öllu þar inn sama hvort það komi úr óhreinatauskörfunni eða þvottavélinni :-)
Gyða: Bara allt voðalega fínt að frétta af mér. Nýtt þess að vera heimavinnandi þessa síðustu daga sem ég er það reyni að hugsa um hvern dag eins og hann sé sá síðasti sem ég er heimavinnandi. Hlakka líka til þess að fara aftur út á vinnumarkaðinn fljótlega.
Matti: Ja Matti hver er það æi já þessi sem kemur alltaf heim um miðnætti og liggur við hliðina á mér í rúminu á nóttinni vissi að ég kannaðist við kauða ;-) Hann er sem sagt að vinna og vinna og meira að vinna þessa dagana og verður alveg fram yfir 8. mars þegar Eve-online kemur út. Annars líður honum bara ágætlega drengnum þó hann sé lítið að léttast þessa dagana enda minni tími til að fara í world class vegna vinnuálags. Annars skrifar hann svo mikið í dagbókina sína þannig að ef þið viljið vita eitthvað meira þá lesi þið það bara :-)
Dagurinn byrjaði nú heldur snemma fyrir minn smekk!!
Inga María vaknaði 4:30 sem er svo sem ekki merkilegt í sjálfum sér nema það að í stað þess að sofna aftur þá kúkaði hún svo ég þurfti að taka hana fram og skipta á henni og þar með er hún glaðvöknuð og ég kem henni ekki niður aftur. Eftir að vera búinn að reyna í tæpa tvo tíma og halda vöku fyrir bæði Matta og Kollu þá ákvað ég að fara bara fram með hana og hætta að slást við þetta. Við leggjum okkur bara saman á eftir. Þannig að núna situr hún hér á gólfinu og kubbar voðalega fegin að það sé ekki verið að skipa henni að liggja osfrv.
Verst að þar sem ég var með saumó í gær sofnaði ég ekki fyrr en hálf 1 í stað þess að fara í rúmið fyrir 11 eins og ég geri venjulega og hefði þá verið búinn að sofa rúma 5 tíma í staðinn fyrir ca 4!!
Uss ég held maður geti sofið nóg í gröfinni var afi minn vanur að segja!!
Jæja ég er að fara í starfsviðtal seinni partinn í dag. Þetta er starfsviðtal númer tvö síðan ég byrjaði að leyta að starfi og eiginlega viðtal númer tvö af þremur störfum sem að eru komin svona langt þannig að ég er mjög ánægð með það.
Starfsviðtalið er hjá lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og felst starfið í "Deildarstjóri hefur umsjón með daglegum rekstri séreignardeildar, hann annast ráðgjöf um ávöxtunarleiðir séreignarsparnaðar og þjónustu við sjóðfélaga, utanumhald gagna auk þess að svara bréflegum fyrirspurnum. Hann hefur jafnframt umsjón með kynningar-efni sjóðsins, en í því felst m.a. útgáfa fréttabréfa og kynningarbæklinga sem og umsjón með efni á heimasíðu sjóðsins."
Ég fór með stelpurnar út á sleða áðan voða gaman. Áróra dró Kollu út að sleðabrekku og ég dró Ingu Maríu. Áróra renndi sér svo með Kollu og skemmtu þær sér hið best. Ég lét Ingu Maríu snúa fram fyrir framan mig en lét bandið vera aftur fyrir sleðann (er sko með böndum báðum meginn) og lét hana svo renna niður brekkuna með mig hlaupandi niður brekkuna á eftir henni. Hún skemmti sér bara voðalega vel og svona gat ég stjórnað hraðanum. Eftir svona 5 ferðir var Kolla búinn að fá nóg svo við fórum bara heim. Alveg nóg að renna sér bara smá líka og fannst mér þetta alveg passlegt.
Gaman að fá smá vetur jæja nú má sumarið koma ;-)
Við eldri meðlimir fjölskyldunnar sitjum og spilum risk. Áróra og Matti eru búinn að rústa mér svo ég fór bara niður að slökkva á tölvunni meðan þau slást um landsvæði. Ferlega fúlt að tapa svona :-(
Gyða tapsára