January 31, 2003
Eyrnabólgur Ingu Maríu

Áður en ég fór til eyrnalæknisins tók ég saman eyrnabólgurnar sem Inga María hefur fengið og ætla ég að skella þeim hér inn svo ég eigi þetta :-)
30. sept. fyrsta eyrnabólgan
4. des 35 dagar frá því síðast og fékk Augmentin
24. des 20 dagar frá því síðast og fékk Amoksiklav
11. janúar 18 dagar frá því síðast og fékk Primazol
16. janúar 5 dagar frá því síðast og fékk Amoksiklav

Vonandi er hér með upptaldar eyrnabólgurnar hennar þó ég sé ekkert rosalega bjartsýn um það.

Posted by gydaa at 01:26 PM
Nótt #3

Jæja þessi nótt var mikið betri sem betur fer veit ekki hvernig ég hefði komist í gegnum aðra svona erfiða nótt!!
Ég fór að sofa um hálf 11 en hafði farið upp að sinna Ingu Maríu um hálf 10. Klukkan 2 vaknaði ég svo upp við að hún var ennþá sofandi!!! Ég lá og velti mér viss um að nú hliti að vera eitthvað að hjá henni og átti erfitt með að hemja sjálfan mig í að fara ekki inn til hennar og pota í hana til að vera viss um að hún andaði :-) Hljómaði stannslaust í eyrunum á mér það sem Sirrý sagði við mig þegar Inga María var að byrja að sofa 3 tíma í einu á daginn og ég viss um að nú hlyti hún að vera hætt að anda eða eitthvað: Gyða það er ekki nema von að börnin þín sofi ekki þú lætur þau aldrei í friði!! :-) Hún vaknaði svo klukkan 2:30 og ég var nú voðalega feginn ;-) en stolt af sjálfri mér að hafa ekkert potað í hana. Hún svaf sem sagt í 5 tíma í einu lagi!!!!! Gerði það reyndar líka eina nótt í síðustu viku en vonandi fer hún að gera meira af því.
Slæmu fréttirnar eru svo þær að ég gat hreinlega ekki sofnað aftur fyrr en rúmlega 4 skil ekki hvað er að mér að vera andvaka þegar ég hef sofið svona lítið síðustu nætur.
Inga María vaknaði svo aftur 3:30 en svaf svo næst í 2 tíma sem ég náði ca klst af þar sem ég loksins sofnaði þá. Hún vaknaði svo klukkan 6 og ég komst ekki út úr herberginu fyrr en 7 en gat legið á dýnunni sem ég er með þar inni en það er nú ekkert rosalega þægilegt að liggja á rimlarúmsdýnu!! Ég svaf svo milli 7 og 8 aftur í mínu rúmi. Vaknaði reyndar við að Áróra og Matti voru að fara á fætur og spjalla eitthvað en sofnaði svo strax aftur.

Posted by gydaa at 08:58 AM
January 30, 2003
nótt nr. 2

Jæja þá er nótt númer 2 án brjóst búinn. Þá er ég allavegana einni nóttu nær betri svefni hvort sem að hann kemur eftir fáeinar nætur eða 5 ár :-)
Ætli ég hafi ekki náð að sofa í ca 4 tíma sem að sjálfsögðu var brotið niður í 30-60 mín bita en enginn 10 mín lúr í nótt en í staðinn komst ég ekkert í rúmið mitt milli hálf 1 og hálf 4 sem var pínulítið erfitt sérstaklega þar sem ég var bara búinn að sofa í ca klst á þeim tímapunkti!!
Annars þoli ég ekki hvað ég á erfitt með að sofna eftir að vakna svona á nóttinni. Mér finnst t.d. að ég hafi ekkert sofnað í gær þegar ég lagði mig meðan hún tók lúrinn sinn og í nótt var ég allavegana 30 mín að sofna eftir löngu vökuna og 30 mín eru sko anskoti dýrmætar þegar maður sefur svona lítið. Ætli ég sé ekki líka að venjast því að sofa án þess að fá róandi því hormónið sem kemur mjólkurflæðinu á stað gefur líka frá sér róandi fyrir konuna æi kann ekki að lýsa þessu betur á 4 tíma svefni en geri það kannski seinna ef einhver hefur áhuga :-)
Annars skulum við hugsa svefnhugsanir til Anastasiu í Ástralíu en mamma hennar er líklegast ákkurat núna að byrja á nótt númer tvö án brjósts held að það sé kvöld þar þegar það er morgun hérna. Er ekki sniðugt hvað Internetið gerir heiminn lítinn og maður getur "haldið" í hendina á einhverjum sem er að ganga í gegnum það sama og maður sjálfur.

Posted by gydaa at 09:52 AM
January 29, 2003
Úpa úpa

Jæja ég stóð við það stúlkan fékk ekkert brjóst í nótt. Í staðinn fékk ég nú ekkert mikinn svefn en samt töluvert meiri en nóttina þar á undan þar sem hún tók enga langar vökur. Ætli ég hafi ekki sofið svona 4-5 sinnum í klst en hún svaf aldrei í lengri dúr en klst og mjög oft bara 10 mín í einu. Um 7 leitið var hún nú alveg að gefast upp á þessari mömmu sem skildi greinilega ekki hvað hún vildi fá og kallaði þegar ég strauk á henni bakið í stað þess að taka hana nei nei úpa úpa (sem þýðir sko súpa sem er orðið sem við notum yfir að drekka af brjóstinu) en hún sofnaði samt aftur í 30 mín í viðbót.

Posted by gydaa at 08:35 AM
January 28, 2003
Læknirinn

Eyrun á Ingu Maríu eru fín og hún hefur sem sagt enga líkamlega ástæðu fyrir því að vaka svona á nóttinni. Enda er hún svo sem ekki að kvarta vill bara vaka og hafa fjör!!
Vonandi verður næsta nótt skárri en stefnan er á ekkert brjóst!!! Sjáum til hvað klukkan verður orðin þegar ég brýt þá reglu á mínum 3 tíma svefni!!

Posted by gydaa at 05:17 PM
Erfið nótt

Púff þessi nótt var extra erfið. Fyrst náði ég 1 klst áður en Inga María byrjaði vökupartíið þ.e. milli 11:30 og 12:30 og svo náði ég aftur ca klukkustund milli 4:30 og 5:30 og svo aftur ca klst milli 6 og 7. Þrír tímar eru án vafa ekki nægur svefn fyrir mig sérstaklega þar sem þetta er nótt númer tvö með litlum svefn :-(
Ætli ég byrji ekki á að láta læknir skoða hana og svo fer að líða að því að ég gefi mig og hringi í svefnráðgjafan!!

Posted by gydaa at 09:48 AM
January 27, 2003
göngugarpur

Inga María var voðalega dugleg að ganga í gær og svo aftur í dag. Nú förum við bara að geta sagt að hún sé farinn að ganga vííí svo sem kominn tími til þar sem barnið er orðið 14 mánaða og 10 daga :-)

Posted by gydaa at 04:41 PM
January 26, 2003
Hugguleg helgi

Ég sit hér og slaka á meðan Inga María sefur og Kolla er að horfa á leikfangasögu eitt og Matti er í vinnunni. Voðalega huggulegt hjá okkur.
Í gærmorgun komu Eva og Sirrý í kaffi til mín. Við leifum köllunum okkar allar að sofa út á laugardögum (við sofum á sunnudögum) svo við ákváðum að það væri sniðugt að halda hvor annarri félagsskap á meðan. Stebbi kom svo í kaffi til mín í hádeginu en Matti vaknaði rétt fyrir 11 og fór beint í vinnuna. Stebbi kom með nýju gleraugun mín sem hann keypti fyrir mig í fríhöfninni. Ég á nú voðalega erfitt með að venjast nýju gleraugunum fékk fljótlega hausverk af þeim í gær en var lengur með þau í dag. Veit ekki hvort að ég er bara svona út af því að Sirrý sagði mér frá því að Baddi fékk einu sinni vitlaust afgreidd gleraugu!! Vonandi eru þau rétt og ég er bara að venjast þeim. Þetta er reyndar í fyrsta sinn sem ég greinist með sjónskekkju og fæ gleraugu við því. Ég sé mikið skýrar það er engin spurning en finnst stundum erfitt að fókusera eins og augun séu smá stund að fókusera aftur þegar ég horfi á nýjan hlut æi erfitt að útskýra þetta.
Klukkan fjögur sótti ég svo Áróru til Þrúðu (mamma Hrundar) og við fórum að hitta stelpurnar sem lágu með mér þegar ég átti Áróru. Það er allt of langt síðan ég sá þær síðast og gaman að hitta þær og Áróra skemmti sér vel þegar hún var laus við mestu feimnina.
Við sóttum svo Matta í fótboltan en því miður 40 mínútum of seint fyrirgefðu elsku Matti minn.
Í dag svaf ég til 10 og fór Matti þá í vinnuna og ég og stelpurnar slökum bara á í rólegheitum. Röltum áðan út í búð og keyptum okkur svið og rófustöppu namm namm :-)

Posted by gydaa at 02:41 PM
January 24, 2003
Haltu mér - slepptu mér

Mér finnst titillinn passa vel við hvernig mér líður þessa dagana. Það togast voðalega á í mér það að langa til að komast aftur út á vinnumarkaðinn og þægindin við að vera heima og njóta þess að vera með stelpunum mínum.
Ég er búinn að sækja um nokkur störf og meira að segja fara í eitt atvinnuviðtal. Þegar ég les um störfin verð ég voðalega spennt að byrja aftur að vinna og nota heilann aðeins meira heldur en í barnatal!!
Aftur á móti er voðalega gott að lifa svona stresslausu lífi. Við vöknum í rólegheitum (ja nema þegar við sofum yfir okkur með að vekja Áróru ég verð að fara að koma því í verk að kaupa handa henni vekjaraklukku) og borðum morgunmat, leikum okkur og röltum/keyrum Kollu á leikskólann. Dúllum okkur svo hérna heima eða förum út að erindast eftir því sem við á. Svo fer Inga María út í vagn að sofa og ég sest hérna við tölvuna i tvo til þrjá tíma ja ok sit kannski ekki hérna allan tíman!! Síðan sækjum við Kollu í leikskólann og komum við í búðinni á leiðinni heim ef við þurfum. Leikum okkur og eldum kvöldmat, borðum og stelpurnar fara svo að sofa og ég að glápa á sjónvarpið eða að sitja hér (mjög oft bæði). Matti kemur svo heim seint og síðar meir og við röbbum aðeins áður en ég fer að sofa. Svona líða dagarnir hjá mér sem sagt voðalega notalegir :-)
Ég er allavegana að njóta hverrar mínútu og vel meðvituð um að áður en ég veit af verð ég kominn aftur út í daglega stressið.

Posted by gydaa at 02:13 PM
January 17, 2003
Veikindi Ingu Maríu

Inga María er mikið betri í dag og hún er eiginlega bara allt annað barn :-) Hún var með 38,5 í morgun og var svo komin í 38 rétt eftir hádegi og er eflaust eitthvað á svipuðu róli núna er allavegana ekkert mjög heit. Hún svaf mjög vel í nótt fór að sofa korter í 8 og svaf til hálf 10 í morgun (jú auðvitað vaknaði hún eitthvað á milli ég var nú ekki að tala um kraftarverk!!) en í staðinn hefur hún harðneytað að leggja sig nokkuð í dag!! Hún er því orðin voðalega pirruð núna og ég líka :-( en það eru bara 3 tímar í að ég geti sett hana í rúmið svo það er eiginlega orðið of seint fyrir lúr en ég myndi nú alveg þyggja einn stuttan lúr samt sem lagaði skapið.

En allavegana er þetta pensilín sem sagt að virka mjög vel og svo þetta var greinilega eyrnabólgan að angra hana

Posted by gydaa at 04:40 PM
January 16, 2003
meiri eyrnabólga


Jæja Inga María var ennþá með 39,5 í morgun svo ég pantaði tíma hjá lækni. Ég fékk tíma hjá Ýr hef aldrei farið til hennar áður en Geir var ekki við í dag. Hún skoðaði Ingu Maríu sem var rosalega slöpp og hún er ennþá með eyrnabólgu!!! Hún er á 5. degi pensilíns þannig að hún á ekki að vera ennþá með bullandi eyrnabólgu. Hún skipti því um pensilín hjá henni og ef hitinn verður ekki kominn niður í 38,5 seinni partinn á morgun þá á hún pantað blóð- og þvagtest upp á landspítala (þeir vita af því sem sagt að hún kemur kannski). Við skulum bara vona að hitinn verði kominn niður fljótlega svo hún þurfi ekki að fara í fleiri test því ég get nú ekki sagt að ég sé spennt yfir að senda barnið að fá þvaglegg nema þurfa þess nauðsynlega.
Við eigum svo pantað hjá eyrnalækninum á þriðjudag sem er náttúrulega allt of snemmt til að hann geti metið hvort hún jafni sig en Ýr sagði mér að láta hann skoða hana samt svona ef ske kynni að hún væri ekki að lagast nógu mikið af Amistoklavinu heldur.

Posted by gydaa at 01:42 PM
January 15, 2003
veikindi

Inga María er komin með einhverja pest ofan í eyrnabólguna:-( Hún er með háan hita og svo fyllti hún bleijuna af niðurgangi áðan uhu aumingja nefið á mér.

Vonandi virkar pensilínið á eyrnabólguna þó að hún fái niðurgang og vonandi gengur þetta fljótt yfir og restin af fjölskyldunni sleppur.

Posted by gydaa at 12:30 PM
January 14, 2003
Atvinnulaus

Jæja þá er ég orðinn formlega atvinnulaus. Fór sem sagt áðan og skráði mig atvinnulausa. Maður fyllir út umsókn um starf og umsókn um atvinnuleysisbætur. Ég var nú að hugsa um það meðan ég var að fylla út umsókn um starf hversu miklar líkur eru á að maður fái vinnu í gegnum þá sem viðskiptafræðingur ekki miklar held ég!! Finnst líklegra að skráning hjá t.d mannafla og strá þar sem ég búinn að skrá mig skili einhverju.

Posted by gydaa at 10:52 AM
January 13, 2003
Atvinnuleit

Jæja ég er byrjuð á fullu að sækja um störf er búinn að sækja um tvö og er að undirbúa þrjár umsóknir voðalega dugleg :-) Ég byrjaði reyndar á því að setja saman náms- og starfsferilskrá.

Vonandi fæ ég vinnu sem fyrst.

Posted by gydaa at 06:08 PM
Inga María vigtun

Við Inga María gerðum tilraun til að láta hana fá 12 mánaða sprautuna en hún er enn einu sinni kominn á pensilín (fékk eyrnabólgu á laugardaginn) og vildi hjúkrunarfræðingurinn því ekki sprauta hana þó svo að læknirinn á læknavaktinni hafi sagt að það væri í lagi!!

Inga María var samt vigtuð og er orðin 9,8 kg og hefur sem sagt þyngst um hálft kg síðan hún var vigtuð síðast fyrir ca 2 mánuðum síðan. Hún er nú voðalega sérstök þessi hjúkrunarkona!! Sagði tvisvar á meðan við töluðum samn er hún 16 mánaða nei 14 svaraði ég og svo þegar hún var búinn að vigta hana þá sagði hún að hún þyrfti að koma í aukavigtun og væti ekki að þyngjast nóg sem mér fannst nú voðalega skrítið miðað við að síðast þyngdist hún bara um 50 gr á tveim mánuðum en núna næstum 500 gr en hún sem sagt skráði hana á grafið sem 16 mánaða!!! Já en þú sagðir að hún væri 16 mánaða og ég var nú ekkert að reikna það út sjálf þá urrr nei ég sagði að hún væri 14 mánaða tvisvar bjáninn þinn hugsaði ég en sagði það því miður ekki, er alltaf of kurteis.

Svo segir hún líka að Inga María þurfi að fá heilahimnubólgusprautuna aftur því hún hafi ekki verið orðin 12 mánaða þegar hún var sprautuð (hún var 11 mánaða) af hverju í ósköpunum sagði hún mér þá ekki að láta sprauta hana eftir mánuð í stað þess að sprauta hana 11 mánaða!!! urrr

En við gerum sem sagt eina tilraun enn til að fara í 12 mánaða sprautu á þriðjudaginn eftir viku.

Posted by gydaa at 05:08 PM
January 10, 2003
svefn Ingu Maríu

Það er soldið síðan ég hef skrifað um svefn Ingu Maríu hér mmm kannski af því að ég skrifa mjög sjaldan hérna nú orðið!! Já já ég lofa ég lofa geri betur.

Fyrir jól var hún byrjuð að fara að sofa alveg sjálf í sínu rúmi og ég frammi. Að vísu kem ég inn og knúsa hana á ca 2 mín fresti (hún kallar á mig á ca 2 mín fresti ég læt hana ekki væla og tek tímann) en hún sofnar samt sjálf.

Næsta skref hjá okkur var/er að minnka næturgjafirnar. Ég beið nú fram yfir jól þar sem að ruglingurinn í svefni um jólinn hefði áræðinlega ekki hjálpað til en ákvað að minnka um eina klst á viku (eða meira ef ég nenni/treysti Ingu Maríu til). Ég var reyndar aðeins byrjuð að gefa henni ekki við fyrstu vakningu fyrir jól og hélt því eitthvað áfram um jólin en lét það samt soldið ráðast eftir því hvernig lá á Ingu Maríu og mér. Eftir jólin fórum nokkuð hratt upp í að hún fær ekki að drekka fyrir miðnætti og á sunnudaginn var (5. janúar) sofnaði hún í fyrsta sinn í sínu eigin herbergi og er hún þar þangað til ég tek hana upp í til okkar (einhverntíman á tímabilinu 12-hálf 3).

Ég verð nú að viðurkenna að það stendur doldið í mér að færa ekkert brjóst regluna yfir á þann tíma sólahringsins sem ég er sofandi sjálf en það stendur til að gera það núna mjög fljótlega.

Stæðstu framförin í þessu öllu eru samt þau að síðan síðasta laugardag þá hefur Matti getað farið inn og sinnt henni líka. Það munar rosalega miklu um þetta og hef ég hugsað mér að nýta þetta óspart þegar kemur að því að sinna henni inn í hennar eigin herbergi á nóttunni:-) Aumingja Matti fer að sjá eftir því að hafa náð þessari kunnáttu :-)

En svona til að það komi fram að þá hefur það að taka brjóstið af henni þennan tíma ekki lengt svefninn neytt ennþá allavegana en það tekur samt ekki langan tíma að róa hana þegar hún vaknar. Bara rétt að kíkja á hana og hún legst yfirleitt strax niður aftur og fer að sofa. Tekur kannski 2-5 mín í það heila.

Posted by gydaa at 01:37 PM
January 07, 2003
Kolla 3 ára

Voðalega er það skrítið að hún Kolla mín varð 3 ára í gær. Mér finnst alveg voðalega stutt síðan ég eignaðist hana en samt er ég nú búinn að eiga eina stúlku síðan sem meira að segja er að verða 14 mánaða svo það hlítur að vera doldið síðan !!!

Þetta er fyrsti afmælisdagurinn sem hún er svona spennt fyrir. Búið að bíða mikið eftir þessum degi og hún var líka rosalega ánægð með afmælisboðið sitt og ekki síður með að gefa krökkunum í leikskólanum íspinna og fá þessa líka flottu kórónu (var reyndar doldið svekt yfir að ég leifði henni ekki að taka hana aftur með í leikskólann í dag).

Þau merku tímamót verða líka í hennar lífi við 3 ára aldurinn að nú er hún bara með næturduddu en ekki duddu á daginn. Við höfum rætt það mikið síðustu vikur að 3 ára stelpur séu svo stórar að þær séu ekki með duddu á daginn og ef maður spurði eru 3 ára stelpur með duddu þá svaraði hún neiiii með hneikslitón ;-)

Posted by gydaa at 01:57 PM
January 03, 2003
Gráta sig í svefn

Mér fannst áhugaverðar upplýsingar sem ég fékk frá einni sem er með mér á póstgrúbbu. Hún segir í bréfi sínu 2. janúar 2003:

I wanted to tell you about a study I read about in this month's Mothering Magazine. A recent study looked at 6-12 month old infants who were having sleep problems. Half were instructed in a controled crying routine and the others were not. Two months later 79% of the CIO's problems had resolved and only 39% of the control group had resolved. BUT 4 months later the two groups were identical with both having 50% with sleep problems.

Hérna kemur svo upplýsingar um hvaðan Mother magazin fékk upplýsingarnar:

Hisock and Wake, "Randomised Controlled Trial of Behavioural Infant Sleep Interventiion to Improve Infant Sleep and Maternal Mood," BMJ 324, no 7345 (2002): 1062-1065.

Með öðrum orðum skv. þessari könnun þá er engin munur á þessum tveimur hópum hvað svefn varðar, áhugavert.

Eftir að hafa lesið um könnuninaá allar hjá British Medical Journal. Þá finnst mér nú erfitt að lesa þetta út úr henni ég verð að viðurkenna það. Þeir sem gera könnuna gera mest úr því að eftir 2 mánuði hafi fleiri af þeim sem notuðu CIO verið farin að sofa betur og andlegri heilsu mæðranna hefði farið fram í þeim hópi. Könnunin gengur sem sagt út á að skoða mæður með börn með svefnvandamál og fæðingarþunglindi á mis háu stigi og tengslin þarna á millli og hvort sé hægt að lækna fæðingarþunglindið með því að lækna svefn barnsins. Allavegana finnst mér mjög áhugavert að skoða gagnrýnina aftast í könuninni svo þetta er alls ekki óáhugaverð lesning þó að það sé erfitt að sjá niðurstöðuna sem Mother magazine sér.

Mér finnst þessar upplýsingar eiga vel við þar sem við sitjum hér hjónin ásamt 13 og hálfsmánaðargamalli dóttur sem vill ekki sofa meira í kvöld!!

Posted by gydaa at 11:30 PM