Jæja kvefið hennar Ingu Maríu er að skána og hún svaf mikið betur í nótt. Hún sem sagt vaknaði bara á 1-2 tíma fresti í stað þess að liggja á brjóstinu alla nóttina!! Ég er því úthvíld er ekki sniðugt að maður geti verið úthvíldur af að vakna bara á 1-2 tíma fresti :-)
Kolla er farinn að sofa í rúminu sem Áróra átti. Við ætluðum nú ekki að láta hana fara í það rúm strax. En hún vissi að hún átti að fá herbergið hennar Áróru (Áróra fluttist niður á miðhæð og Inga María fær Kollu herbergi) og tók því einhvernveginn þannig að hún ætti að fá rúmið hennar Áróru. Fór að segja stolt frá því að nú ætti hún þetta rúm og myndi sofa í því!! Þannig að við ákváðum að leifa henni það bara. Hún er búinn að sofa í því núna í 4 nætur held ég örugglega er ekki alveg viss. En við sem sagt hrukkum upp í nótt við óp frá Kolllu og grátur. Okkur dauðbrá náttúruelga yfir því að hún hefði dottið fram úr og Matti rauk fram og huggaði hana og kom svo með hana upp í. Ég var að gefa Ingu Maríu en skildi ekkert í því að hann kæmi bara með barnið og léti það fara að sofa eftir höfuðhögg. Ætlaði aldrei að geta sofnað. Potaði í Matta sem sagði bara nei nei hún datt ekkert á hausinn hvernig gat hann vitað það. En þegar við fórum svo á fætur í morgun útskýrði hann það fyrir mér að hún hefði bara hrasað í stiganum niður úr rúminu og pomsað á rassinn. Hún hafði sko ætlað að koma upp í til okkar og ætlaði að vera voða góð og vekja ekki mömmu og pabba litla snúllan.
Jæja ekki var Inga María mikið betri í nótt!!!! Ég vona sko innilega að næsta nótt verði skárri eða ég fer að panta herbergi á kleppi. Hún hefur samt sofið vel á daginn bæði í gær og búinn að sofa í tvo tíma núna. Ég á samt voðalega erfitt með að sofa á daginn og sofnaði í hálftíma en hef svo ekkert getað sofnað aftur!! Ég ætla nú ekki að leifa henni að sofa meira en sína venjulegu 3 tíma í dag og athuga hvort að hún sefur þá skárr í nótt hún má ekki fara að venja sig á að bæta sér upp nætursvefninn á daginn.
Eins gott að Matti komi þá heim á skikkanlegum tíma svo ég verði ekki farinn að standa upp á stól og öskra þegar hann kemur heim :-)
Annars reyndum við Áróra að eiga notalega stund í gærkvöldi sem gekk nú ekkert of vel fyrir Ingu Maríu. Við vorum að skreita krukkur. Áróra kláraði að skrita einn kertastjaka með myndum af servéttum meðan ég hljóp upp og niður að sinna Ingu Maríu og reyna að gera mína krukku þess á milli. Ég náði bara að mála lokið og líma þrjár myndir á mína áður en að Áróra þurfti að fara að sofa. Ég svindlaði nú samt smá og gat ekki hætt og málaði einn ramma og límdi á hann myndir eftir að hún var sofnuð. Ramminn er bara fínn hjá mér en myndirnar komu af eldhúsrúllubréfi :-)
Í gær fór ég á kaffihús með Sirrý, Evu og Sigurrós. Það var rosalega gaman að komast aðeins út og spjalla. Sérstaklega þar sem að Inga Maria er búinn að vera rosalega kvefuð og hefur sofið illa síðustu 2 daga. Hún svaf bara einn oghálfan tíma í fyrradag sem mér fannst lítið en toppaði það í gær með því að sofa bara einn tíma!!! Og var svo pirruð eftir því allann daginn.
Þegar ég kom heim var hún steinsofandi í sófanum hjá Matta og hann að lesa nýju bókina sína. Þetta var svo notalegt að ég lagðist í sófann hjá honum og las bókina mína og svona lágum við til hálf 1 í stað þess að fara snemma að sofa eins og ég ætlaði.
Þegar við fórum svo upp í rúm hóstaði Inga María svo lítið að ég gat ekki sofið. Ég gaf henni því neseril þegar hún rumskaði og hún vaknaði svo vel við það að hún sofnaði ekki aftur fyrr en fjögur?? Ég fór svo á fætur rúmlega 7 með áróru þannig að ekki fékk ég mikinn svefn þessa nótt. Ég fékk nú reyndar að leggja mig aftur milli 10 og 12 svo ég er ágæt í dag.
Inga María svaf svo í rúma 3 tíma (sefur venjulega um 3) svo hún var að bæta sér upp vöku nóttina.
Í gær héldum við upp á 1 árs afmæli Ingu Maríu og reyndar var þetta afmælisdagurinn hans Matta svo hann fékk fullt af pökkum líka :-)
Það kom fullt af fólki og ég bakaði fullt fullt af kökum og brauðréttum ;-)
Matti er búinn að setja inn myndir af veislunni á myndasíðunni.
Drengurinn hennar Kötu er mættur í heiminn. Hann fæddist í nótt klukkan 3:12 og var 12 merkur og 50 cm.
Innilegar hamingjuóskir með drenginn Kata, Arnaldur og Eyjólfur.
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Inga María
Hún á afmæli í dag
Hún er 1 árs í dag
Hún er 1 árs í dag
Hún er 1 árs hún Inga María
Hún er 1 árs í dag
Vá að hugsa sér að það sé komið heilt ár síðan hún kom í heiminn !!! Rosalega líður tíminn hratt. Ég vildi að ég væri hressari samt :-( er búinn að ná mér í einhverja niðurgangspest og búinn að fresta afmælinu :-( Gott að hún er bara eins árs og alveg sama.
Tvær greinar sem mér finnast áhugaverðar af BBC fréttavefnum þær eru reyndar tæplega 2 ára gamlar en nýjar fyrir mér því ég var bara að sjá þær :-)
Sú fyrri heitir "Breast milk 'reduces heart risk'" og var gefinn út í febrúar 2001.
Þar er fjallað um niðurstöðu rannsókna þar sem fyrirburar sem fengu þurrmjólk voru með hærri blóðþrýsting seinna á ævinni heldur en fyrirburar sem fengu brjóstamjólk. Þar sem að hár blóðþrýstingur er einn af áhrifaþáttum hjartasjúkdóma þá koma þeir með fyrirsögnina Brjóstamjólk minnkar líkurnar á hjartasjúkdómum. Persónulega finnst mér að fyrirsögnin eigi að vera þurrmjólk eykur líkurnar á hjartasjúkdómum en það er annað mál :-)
Hin greinin er af svipuðum toga en samt alveg í hina áttina!! Fyrirsögnin þar er "Prolonged breast feeding warning" og er þessi grein byrt mánuði seinna en sú fyrri.
Þarna er fjallað um rannsókn á fullorðnum einstaklingum og æðar þeirra voru skoðaðar með sónar og einstaklingarnir síðan spurðir hversu lengi þeir höfðu verið á brjósti. Þar sem að ég er mikil bjróstagjafamanneskja og dagbókinn mín er fyrir mínar skoðanir þá ætla ég að ræða aðalega um gagnrýni á niðurstöðuna :-) þið getið svo bara bætt í komentin ef þið eruð ekki sammála eftir að hafa lesið greinina.
Það fyrsta sem mér finnst stórmerkilegt er að talað er um "prolonged" brjóstagjöf að vera með börn yfir fjögra mánaða á brjósti!!! Hvað kalla þeir þá 8 ára guttann úr Goodmorning America!!
Málefnalegri gagnrýni sem ég les reyndar bara beint upp úr greininni er að það eru bara 37 í úrtakinu sem voru á brjósti lengur en 4 mánuði svo það er ansi lítið úrtak. Þó að það komi ekki fram í greininni þá finndist mér áhugavert að skoða hvað annað greindi þessa 37 aðila frá hinum. Kemur ekki fram að það hafi verið skoðað fæðuval þeirra að öðru leiti.
Jæja þá eru komin veikindi í þetta hús!! Ég er búinn að vera með í maganum í 2 daga er reyndar ekki með mikla verki en það kemur allt í fljótandi formi frá mér :-(
Inga María er með rosa mikið kvef og er kominn með hita líka :-( Hún er reyndar bara með 38 stiga hita en hún hefur reyndar aldrei fengið háan hita eins og börn fá oftast heldur fær bara svona smá hitavellur með kvefi.
Vonandi líður þetta fljótt frá hjá okkur báðum og fleiri í fjölskyldunni veikist ekki.
Jæja nú ætla ég að lýsa því yfir að Kolla sé hætt með bleiju. Hún hefur núna verið bleijulaus í 2 vikur og gengið rosalega vel (er samt með bleiju á nóttinni auðvitað). Í þetta sinn var þetta hreinlega ekkert mál. Hún pissar í venjuleg klósett hvar sem við förum án vandamála og það gerast sjaldan slys, bara pissað 3 sinnum í sig þessa 14 daga sem mér finnst bara mjög flott. Hún þurfti greinilega bara að vera tilbúinn andlega og þá kom þetta.
Jæja þá er það bara snuðið!!! En ætla að fara að ráðum fóstranna og leifa henni að hafa það fram til janúar svo hún sé orðin vel vön bleijuleysinu fyrst. Þær mæltu sko með að ég tæki bara annað í einu og biði svo nokkra mánuði.
Inga María tók upp á því seinnipartinn í gær að standa upp út á miðju gólfi. Hún var sko ekkert smá stolt af sjálfri sér ljómaði öll. Svo er ekki verra að hafa fjóra fjölskyldumeðlimi til að dást af sér þegar maður uppgötvar eitthvað nýtt. Til að byrja með stóð hún bara í nokkrar sekúndur en áður en hún fór að sofa var hún farinn að standa í þó nokkurn tíma. Nú styttist í fyrstu skrefin.
Voðalega hef ég verið löt að skrifa í dagbókina mína, er ég alltaf að tuða um þetta!! en æi mér finnst þetta bara svo ólíkt mér sjálfri fer bráðum að hafa áhyggjur af sjálfum mér ;-)
Allavegana þá átti ég sem sagt afmæli á föstudag eins og þið vitið og ég og Sirrý fórum í Smáralindina og settum eldri börnin í veröldin okkar og settumst svo á kaffihús með þær yngri og höfðum það notalegt ja svona eins notalegt og maður getur haft það með eins og eins og hálfs árs barn en það var mjög fínt. Röltum svo aðeins um smáralindina áður en við fórum heim.
Ég fór svo í mat til mömmu og hún fór í Austur India félagið og keypti mat handa okkur namm namm :-) Kallinn minn var á vinnustaðafylleríi (já með mínu samþykku auðvitað) svo ég tók mér bara spólu og ætlaði að hafa það notalegt. En spólan var hundleiðinleg (K-pak mæli ekki með henni) og Inga María vaknaði 2 sinnum og var sko 40 mín að fá hana niður fyrsta skipti
fyrir nóttina 20 mín fyrstu vakningu og 45 mín aðra!! Þannig að ég naut nú kvöldsins ekkert rosalega vel!! Ég vaknaði svo upp klukkan hálf 6 til að gefa Ingu Maríu og enginn karl við hliðina á mér!! Jæja ég fór niður eftir að ég var búinn að gefa Ingu Maríu og þá var hann sofandi í sófanum með lítið barnateppi ofan á sér :-) Hafði sko ekki viljað koma upp í til okkar fullur og vekja okkur æi þessi elska ég var nú samt soldið fúl :-)
Laugardeginum var kallinn vakinn hálf 11 og við fórum með stelpurnar til mömmu og pabba. Við hjóninn byrjuðum á að labba um Arnarnesið því ég ætlaði að svæfa Ingu Maríu áður en ég færi en eftir hálftíma göngu með glaðvakandi barn gáfumst við upp og fórum með hana til mömmu og pabba og kvöddum bara.
Við byrjuðum daginn á Ítalíu ég fékk mér hálfmána og matti fékk sérkjöttbollupastarétt. Hálfmáninn minn var mjög góður en timbraði maðurinn minn rétt nartaði í matinn sinn!! og sagði að konan sín eldaði mikið betri kjötbollur (ætli hann hafi bara sagt það til að breiða yfir timburmennina jæja það virkaði allavegana :-)
Næst fórum við í Þjóðarbókhlöðuna að rifja upp gamla tíma :-) Ég er sko búinn að eyða síðustu dögum í að lesa gömul bréf frá því að ég og Matti
vorum að byrja saman og gaman að rifja upp umhverfið líka og það er meira að segja ennþá nákvæmlega sama lyktin þarna inni :-) Ég stakk nú upp á að bjóða matta upp á appelsínute og appelsínu á kaffistofunni en hann neytaði því he he sko við sátum alltaf og kjöftuðum þar og matti satt og reif niður appelsínu börkinn af appelsínunni svo hann var kominn niður í litlar tætlur þegar við loksins fórum upp aftur að lesa.
Svo fórum við í keiluhöllina í öskjuhlíðinni og ætluðum fyrst í keilu en það var 20-30 mín bið svo við fórum staðin í pool. Ég byrjaði ágætlega en fór bara niður á við og eftir að Matti var búinn að bursta mig tvisvar sinnum þá neytaði ég að spila meira!! Við fórum þá í þythokkí í staðinn og það var mikið jafnari leikur og rosa fjör. Við kláruðum svo spilapeningana okkar í tölvuleikjasalnum :-) Matti vann mig þar eins og annarsstaðar!!
Því nærst vildi ég fara í göngutúr um öskjuhlíðina því mér datt ekkert annað í hug. En það var rok og rigning úti svo mér leist ekki einu sinni á það og hvað þá timbraða kallinum en hann kvartaði nú aldrei undan timburmönnunum greiið en það sást nú samt langar leiðir :-)
Þar sem að mér bókstaflega datt ekkert annað í hug þá fékk eiginmaðurinn þessa líka frábæru hugmynd að skella sér á sport kaffi og horfa á Liverpool spila!! og ég hreinlega fann ekkert skárra að gera svo ég samþykkti það en minnti hann nokkrum sinnum á það að hann skuldaði mér sko heilmikið. Enda var hann alger já maður minn það sem eftir var dags og meira segja vakti mig með baknuddi og kossum á sunnudagsmorgninum líka he he ég ætti kannski að fara oftar á sport kaffi :-) En það var ágætt að sitja þarna og sötra hvítvínsglas og horfa á Liverpool vinna eitthvert lið sem ég man ekkert hvað heitir en þeir voru í hvítum búningum og voru orðnir ansi skítugir á rassinum í rigningadrullunni í Englandi er ekki nóg að vita það um leikinn!!
Við sóttum svo stelpurnar og mamma gaf okkur vöfflur með rjóma eða sko mér og stelpunum staðfasti maðurinn minn borðar ekkert slíkt og svo fórum við stelpurnar heim og Matti í fótbolta.
Á sunnudeginum svaf ég út og svo fór ég út og keypti baquettur í hádegiskaffi og við nutum þess að borða það og svo kom pabbi í kaffi að láta
okkur fá spóluna sem Kolla hafði gleymt daginn áður. Þegar hann fór var hafist handa við að rífa niður vegginn i stóra herberginu niðri og er Matti búnir að setja myndir af verkinu í dagbókina sína ef þið viljið kíkja rosalega er þetta stórt herbergi :-) En mig hlakkar til að koma því í notkun og að Inga María fái sitt eigið herbergi.
Næst fórum við í sund og þrifum af okkur rykið eftir vegginn og stelpurnar höfðu mjög gaman af sundinu. Inga María spriklaði og spiklaði eins og óð manneskja og Kolla fór ienu sinni í rennibrautina en það var svo kalt að hún neytaði að fara aftur upp úr lauginni til að renna sér meira. Sunnudagurinn endaði svo í mat hjá tengdó eins og venjulega nema að núna fékk ég líka afmælisgjafir rosaflott veski og peysu eina afmælisgjöfinn sem ég er búinn að fá ja nema dagur með eiginmanninum er víst líka afmælisgjöf.