Mjög áhugavert umræðuefni finnst ykkur ekki!!
En ég var sem sagt að byrja aftur á blæðingum eftir að ég átti Ingu Maríu og hún er rúmlega 11 mánaða. Ég var sem sagt síðast á blæðingum í byrjun febrúar 2001 og þá hafði ég verið á blæðingum í 6 mánuði eftir að hafa átt Kollu. Þannig að ég hef sem sagt verið með blæðingar ca 6 skipti síðan í byrjun apríl 1999 er þetta ekki skemmtileg tölfræði.
hæ ég var að setja inn gömul bréf frá því áður en að ég byrjaði á þessari dagbók. Október 2001 og nóvember 2001 ætla svo að setja meira inn við tækifæri.
Við mæðgur löbbuðum um allar trissur í gær púff hvað ég var þreytt þegar við komum heim.
Sko fyrst labbaði ég að sækja Kollu þaðan niður í Mjódd og svo um alla Mjóddina og svo heim aftur. Ég var á göngu í 3 tíma ja settist reyndar aðeins niður í Mjóddinni en ekki lengi.
Í Mjóddinni byrjuðum við á að fara á heilsugæslustöðina til að sprauta Kollu. Ég spurði í leiðinni hvenær ég ætti að láta sprauta Ingu maríu og hún var þá bara sprautuð líka. Þetta var sko alger færibanda vinna þar sem hvert barnið á eftir öðru var sprautað því það áttu öll börnin af Kollu deild að vera sprautuð á klukkutíma. Doldið erfitt að vera að sinna tveimur börnum í sprautu í einu :-) en það var aðalega Kolla greiið sem þurfti knús og kossa. Inga María kipptist aðeins við en kom ekki svo mikið sem boffs upp úr henni! Kolla var sko sprautuð fyrst og var nú ennþá hálf fúl meðan verið var að sprauta Ingu maríu og ég var aðalega tala við Kollu á meðan en reyndar að reyna að fá Ingu Maríu til að tala við hana líka svo kannski hefur bara virkað svona vel á Ingu Maríu að athygli hennar var algerlega annarsstaðar. Held að færibandavinnan hafi í raun verið erfiðust fyrir KOllu því börn á hennar aldri eiga svo erfitt með að koma strax inn í herbergi með 3 ókunnugum konum og vera svo stunginn svo til strax hún var eiginlega bara frekar móðguð út í konuna heldur en að hún hefði meitt sig.
Svo fórum við í bakaríið og fengum okkur sætabrauð og sátum í smá stund en Kolla hefur nú ekki eirð í sér að sitja nema rétt á meðan kleinuhringurinn entist svo ég hakkaði í mig eplabökuna sem ég keypti mér og við fórum. Áróra er í keilu í mjódd milli 4 og 5 og ég ákvað að það væri betra að reyna að dunda okkur eitthvað í Mjóddinni svo við gætum allar verið samferða heim. Við fórum því í dýrabúðina og skoðuðum dýrin og keyptum nýjan sand í fiskabúrið. Röltum svo um Mjóddina fórum og keyptum strætókort fyrir Áróru og svona. Um hálffimm röltum við svo upp í keiluhöllina og þá var vinkona Áróru þar með henni og taskann hennar Áróru hjá vinkonunni þannig aðhún ætlaði bara heim með henni eftir keilu og koma svo heim. Svona er þetta þegar maður ætlar að vera voða góður og vera samferða stóra barninu sínu manni er bara hafnað snökt snökt :-)
Við röltum því bara af stað heim og komum þangað alveg úrvinda eða sko aðalega ég því Kolla sat ofan á vagninum hennar Ingu Maríu mest alla leiðina og borðaði barbí ópalið sem góða mamman keypti handa henni!!
Við borðuðum svo Quisnos í kvöld mat namm namm. Meira að segja Inga María hámar það sko í sig borðaði eiginlega meira af samlokunni hennar Kollu heldur en Kolla!!
Inga María svaf svo voða vel um kvöldið en vaknaði um 2 og sofnaði ekki almennilega aftur fyrr en um 6!!! Fyrst var ég með hana á brjósti í 2 tíma og dottaði þá svo sem en svo gat ég ekki meira af því takk fyrir og þá bara vældi hún á okkur. Pabbi hennar var að reyna að rugga henni og ég eitthvað líka en hún bara vældi og dottaði og vældi svo meira. Eigum við ekki að gefa henni stíl sagði Matti rúmlega 5 og við gerðum það, ég skil ekki af hverju okkur datt það ekki fyrr í hug. Hún sem sagt sofnaði fljótlega eftir stílinn og vaknaði reyndar hálftíma seinna og fékk smá að drekka og svaf svo til 9. Ætli sprautan frá því í gær hafi ekki verið eitthvað að angra hana. Matti greiið fór á fætur klukkan 7 með Áróru og ég svaf til 9. Voða góður eiginmaður sem ég á :-)
Núna er hún að horfa á Stubbana og svo er ég að hugsa um að leggja mig í sófanum á meðan hún sefur á eftir, bara vonandi að hún sofi vel greiið Matti sem getur ekkert lagt sig í vinnunni.
Aaahh hvað það er alltaf notalegt að koma heim til sín þegar maður hefur gist annars staðar :-)
Við sem sagt þrifum og þrifum og fórum margar ferðir á sorpu um helgina!! og nóg er samt eftir af drasli í rauða herberginu niðri og úti í bílskúr eflaust margar sorpuferðir í viðbót ótrúlegt hvað maður á mikið af drasli.
Meindýraeyðirinn kom svo og eitraði í gærmorgun og ég, Inga María og Kolla gistum hjá mömmu og pabba í nótt. Meindýraeyðrinn mælti sem sagt með að svona lítið barn eins og Inga María svæfi ekki fyrstu nóttina innan um eitrið svo ég tók nú bara Kollu með líka en Áróra og Matti sváfu hérna í eitrinu. Inga María vaknaði á klst fresti í alla nótt svo ég er nú frekar þreytt í dag og er að fara á tupperver kynningu í kvöld hjá Hröbbu svo ekki fer ég snemma að sofa í kvöld ja maður getur bara sofið þegar maður kemur í gröfina segi ég bara eins og hann afi minn var vanur að segja :-)
Jæja þá ætla ég að slaka á með tebollann minn meðan Inga María sefur.
Jæja ég vann það afrek í gær að hringja og panta meindýraeyðir og hann kom strax og kíkti á og ætlar svo að koma á mánudaginn og eitra. Það hafa sko verið silfurskottur hérna síðan við fluttum en ég sem sagt ekki búinn að koma því í verk að hringja og láta eyða þeim.
Meindýraeyðirinn mælir með að það sé þrifið vel áður en að eitrunin sé framkvæmd þannig að við eyðum þá helginn í þrif ekki uppáhalds iðjan mín!!
Annars ætlum við líka að tæma rauða herbergið niðri svo kannski gerum við það bara :-) það væri nú óskandi að við næðum því svo við getum farið að flytja sjónvarpsherbergið niður og Áróru hingað og útbúið herbergi fyrir Ingu Maríu.
Jæja verð að vekja Matta bráðum því Liverpool og Leeds eru að keppa eftir 40 mín og þá verðum við að vera komin til mömmu og pabba.
Mér var bent á þessa góðu grein eftir Elisabeth Pantley (sömu og skrifaði No cry slep soloution).
Mér finnst þetta mjög góð grein og góð ábending til foreldra. Þarna er hún að tala um þennan leiðinlega ávana foreldra að tala um börnin sín eins og þau séu ekki á staðnum.
Tekur t.d dæmi um mömmu sem er að kjafta við afgreiðslukonu í búð að nú sé að koma sumarfrí og hún viti ekki hvað hún eigi að gera við krakkaormana í allt sumar púff hún heyri nú bara strax öll lætin í hausnum á sér!!! púff má bjóða þér tvö börn :-) ónei takk ég á sko mín eigin þú mátt eiga þín. Hvernig hljómar svona samræða í augum barns og ef við höldum að þau séu ekki að hlusta prufið þá bara að bæta mmm ætti ég að kaupa ís handa börnunum inn í miðja setningu og athugaðu hvort þú færð viðbrögð.
Inga María er ennþá kvefuð greiið litla. Hún hóstaði doldið í nótt og ansi mikið núna þegar hún er að leggja sig. Vonandi fer þetta að verða búið samt.
Kolla hefur verið allan daginn á leikskólanum þessa dagana frekar en að vera heima hjá kvefaðri systur og er voða kát með það. Sagði mér t.d. í gær að hún hefði sko farið tvisvar út í gær!!! og ég þurfti sko að lyfta henni upp og halda á henni út því hún ætlaði sko ekkert að hætta að leika sér og koma heim!! Gott að hún er ánægð og eiginlega er ég mikið að velta fyrir mér hvort að ég eigi að hafa hana lengur meira en einn dag í viku fyrst hún er svona ánægð þarna. Ég sé til.
Við Inga María vorum bara inni í allan gærdag nema ég skrapp út að sækja Kollu og Áróra passaði Ingu Maríu á meðan. Voða gott að komast aðeins út og við löbbum því voða hægt og skoðuðum stokka og steina :-) Yndislegt að eiga stóra stelpu að hjálpa sér. Inga María hefur nú verið alveg hitalaus (ja hef reyndar ekki mælta hana en hún er ekkert heit) en það lekur stannslaust úr nefinu á henni!!
Hún svaf þvi ekkert rosa vel í nótt en samt allt í lagi til klukkan 5 ja eiginlega bara nokkuð vel til klukkan 5 (vaknaði bara tvisvar) en hún vildi
svo bara liggja á brjóstinu eftir 5 og klukkan 7 gafst ég upp og rak Matta á fætur með hana svo ég gæti sofið og ég svaf svo til 9.
Það lekur aðeins minna úr nefinu á henni í dag en samt þokkalega alveg en ég held að hún sé ekki alveg jafn hás. Vonandi getur hún aftur sofið vel inni eins og í gær en þá svaf hún í tæpa 3 tíma í vagninum sínum á ganginum niðri.
Eins gott að gleyma ekki að segja frá því að elsku Matti minn var svo yndislegur að fara á fætur með Áróru í morgun og taka Ingu Maríu fram með sér og leifa mér að sofa til hálf 9. Hann er hetjan mín. Og þetta gerði hann þrátt fyrir að hafa vakað í nótt við litla vesenisbarnið sem gat ekki sofið og var að príla um allt. Hann fær besti eiginmaður ársins verðlaunin það er á hreinu.
Jæja litla snúllan mín er kominn með kvef og hálsbólgu. Hún er voðalega hás og það lekur og lekur úr nefinu á henni aumingja litla barnið mitt. Hún er nú samt hitalaus og vonandi líður þetta fljótt hjá. Kolla er samt hin hressasta og fór kát og hress á leikskólann áðan.
Inga María vildi bara liggja á brjósti í alla nótt og hún vakti í rúman klukkutíma en þá gaf ég henni verkjalyf og hún svaf eftir það ef að brjóstið var upp í henni!! ekki uppáhaldsstellingin mín.
Kollu tókst svo að opna verkjalyfið í morgun (fljótandi finnst mikið þægilegra að gefa þeim það) og ég vaknaði við að hún var að reyna að hella því í skeiðina til að fá sér!!! Það er sem sagt klístrað lyf út um allt rúmið okkar urr þvílíkir foreldrar að skilja lyf eftir þar sem barnið náði í það og undrabarn að geta opnað barnalæsinguna sem ég bisa alltaf við í margar margar mínútur áður en mér tekst að opna það!!!
Við fórum í gær að hitta stelpurnar í heimavinnandi grúbbunni minni. Það var voða gaman mættu fimm þannig að það var bara passlegur hópur. Hildur kom með Markús litla extra gaman að sjá hann náttúrulega :-) en stóra systir hans var heima lasinn vonandi verður hún fljótt hress svo hún geti leikið við Kollu næst.
Það er verið að gagnrýna mig fyrir að skrifa ekkert svo ég verð að rífa mig upp og vera dugleg í skrifunum. Hef verið voða upptekinn eitthvað við allt annað en tölvuna sem er náttúrulega algert kæruleysi af minni hálfu ;-)
Best að renna yfir það sem ég man af því sem ég gerði í vikunni.
Á mánudaginn fyrir viku fórum við stelpurnar á bókasafnið að skila og taka bækur og síðan á keiluæfingu hjá Áróru. Já Áróra er sem sagt byrjuð að æfa keilu hjá ÍR.
Þriðjudag: Ég og Inga María röltum yfir til Kötu, í hádeginu, með viðkomu í bakarínu. Voðafínt að sitja og kjafta en Inga María átti reyndar að sofa lengur!! Við fórum svo að sækja Kollu og þaðan í kaffi til Sirrýjar. Hámuðum í okkur pönsur og kryddbrauð namm namm og kjöftuðum meira.
Miðvikudagur: Fórum í Mál og menningu og skiptum bókum sem Áróra fékk í bókaklúbbnum sínum en langaði ekki í. Steingleymdum keiluæfingunni!!
Fimmtudagur: Fórum í Smáralindina með Sirrý og börnum. Ég keypti mér voða fín undirföt á 10% afslætti í Debenhams uss finnst nú að ég heðfi getað dregið betra afsláttarspjald (maður dró sko afslátt í poka við innganginn) en jæja betra en ekkert. Keyptum svo ís handa börnunum ja og okkur líka.
Föstudagur: Ég, Matti og Inga María sóttum tengdó upp á flugvöll en þau voru að koma heim frá Portugal. Rosagaman að sjá alla skotana sem voru að koma að horfa á leikinn.
Ég fór svo að versla og síðan heim að baka fjóra marensbotna. Þeir tókust allir vel nema sá síðasti en þá var eiginmaðurinn kominn heim og gat ekki hætt að vera með læti!! svo hann féll en kva ég setti hann bara undir og kökurnar komu fínt út.
Ég eldaði svo rétt sem heitir allt í einum potti og Jóna Dóra kom í mat til okkar og svo fórum við út að hitta pörin sem voru með okkur í dansi. Inga María vaknaði nú en vildi samt sofa en ekki bara vaka allt kvöldið en hún vildi samt bara sofa í fanginu á frænku sinni svo Jóna Dóra varð bara að sitja og horfa á sjónvarpið með litla snúllu í fanginu allt kvöldið. Við skemmtum okkur voða vel með dansfélugunum.
Laugardagur: Áróra fór á handbóltamót fyrir fimmtu, sjöttu og sjöundu bekkinga í Breiðholti hjá ÍR svo ég keyrði hana þangað klukkan 9 og fór með henni inn meðan allt var að fara í gang og svona. Fór svo í bakarí og heim að smyrja nesti fyrir Áróru hafði sko ekkert pælt í því um morguninn. Skutlaði svo nestinu til hennar og kom Ingu Maríu út í vagn. Kom heim og fékk mér að borða og dreif mig svo aftur að horfa á Áróru spila einn leik en þær töpuðu því miður 3-1. Ég og Kolla skreittum svo kökurnar fyrir ömmu og ég og mamma skutluðum svo kökunum til ömmu. Ég skaust svo aftur upp í íþróttahús til Áróru og svo heim að klæða mig og stelpurnar og pakka inn gjöfinni og svo drifum við okkur í afmælið í hálfleik á leiknum Ísland-Skotland.
Það var voðafínt í afmælinu og Matti er búinn að setja inn myndir af því á myndasíðuna okkar. Ég skaust reyndar úr afmælinu eftir ca klst og sótti Áróru af hamdboltamótinu þær fengu engin verðlaun sem þeim fannst sjálfum ferlegt svindl og eiginlega bara algert svindl að þær sem unnu fyrir flottustu búningana hefðu unnið en ekki þær :-)
Um kvöldið stakk Matti okkur Áróru af á fyllerí meðan við kúrðum undir sæng með popp og gos og horfðum á Run away bride voða notalegt hjá okkur.
Sunnudagur: Matti dró mig á lappir um 4 að hleypa sér inn í húsið en hann hafði skilið lyklana eftir heima!!!
Inga María vaknaði svo klukkan 7 og Matti fór fram úr með henni enginn miskunn á þessum bæ (hann vissi það sko alveg þegar hann ákvað að fara á djammið að þetta væri hans dagur að vakna). Hún sofnaði svo aftur um 8 og hann kom þá aftur upp í og rak Áróru á lappir að passa Kollu. Inga María vaknaði svo aftur 10 og fór ég þá á fætur og lét fyllibyttuna sofa lengur!! Vakti hann svo klukkan 12. Við fórum svo í að taka til í rauða herberginu niðri en vorum bara ný byrjuð þegar pabbi kom og stal Matta í fluttningar í vinnunni svo ekki voru afköstin hjá okkur mikil þann daginn.
Við fórum svo í mat til tengdó og stelpurnar fengu fullt af dóti og nammi og við fengum öll köku því tengdó átti afmæli á fimmtudaginn var. Klaufarnir við gleymdum afmælisgjöfinn heima!!! Jæja hún fær hana bara fljótlega.
Við slökuðum svo bara á í gærkvöldi og veitti sko ekki af :-)
Jæja Inga María klifurdýr er búinn að læra að klifra upp í sófa og gerir það nú í tíma og ótíma!!! Móður hennar til mikillar hrellingar. Það sem meira er henni finnst mjög sniðugt að klifra ofan í gatið í horninu fyrir aftan sófann (er svona hornsófi og það myndast bil á mill veggjar og sófa í horninu) helst með hausinn á undan!!! Það að henni fyndist sniðugt að henda öllu mögulegu ofan í þetta gat var nú stundum þreytandi en að henda sjálfum sér þarna ofan í púff!!!
Jæja þrjár af þessum fjórum tönnum sem ég sé að eru að koma í Ingu Maríu eru komnar upp í gegnum holdið hún svaf því aðeins betur í nótt.
Við Inga María fórum á fætur rúmlega 7 en Kolla svaf til hálf 9 notalegt hjá henni.
Hrabba kom í heimsókn í gær með krakkana. Áróra var að vísu voðalega busy og lék því ekkert við Karitas en Karitas var með vinkonu sína með svo það var allt í lagi. Krakkarnir léku sér voðavel meðan við kjöftuðum og svo borðuðu þau fullt af vöflum :-) Ég og Hrabba þurftum næstum að hafa mikið fyrir því að fá smá bita sjálfar :-)
Þegar Áróra kom heim úr afmælinu sem hún fór í varð hún alveg brjáluð yfir því að krakkarnir hafðu verið að tæta í herberginu og þau höfðu víst tekið hluta af Harry Potter kastalanum hennar í sundur :-( ég lofaði að hjálpa henni að byggja hann aftur. Ég ætla að reyna að gefa mér tíma til að byggja hann áður en hún kemur heim á morgun svo hún fari nú ekki að rífast yfir þessu aftur :-) erfitt að eiga lítil frændsystkyni stundum sko :-)
Jæja Krönsið hjá Matta búið vííííí ég brosi sko hringinn núna :-)
Æ hvað það var notalegt að hafa eiginmann heima í gærkvöldi og hann var kominn heim rúmlega 5 bara um miðjan dag svei mér þá :-)
Svo var fyrsti hittingur hjá nýju grúbbunni minni og það mætti ein önnur en ég :-( sem sagt virkilega fámennt en góðmennt ;-)
Áróra kom heim með rosalega flotta einkunn í gær. Hún fékk 9,7 í náttúrufræði!!! Ekkert smá flott hjá henni enda var hún hæðst í bekknum. Hún kom reyndar hágrátandi heim og ég hélt því að einhver hefði verið að stríða henni en nei nei hún sagðist bara vera að gráta af gleði :-)