September 30, 2002
Fyrsta eyrnabólgan

Jæja Inga María er búinn að ná sér í fyrstu eyrnabólguna greiið skinnið. Hún er búinn að vera voðalega óróleg síðust tvær nætur og var með 9 kommur á fimmtudagskvöldið.
Ég fór svo með hana á barnalæknavaktina í gær eftir að hún sofnaði ekki fyrr en hálf 2 og fór á fætur 8 aðfaranótt sunnudags og vildi svo bara lúra í 30 mín í stað 3 tíma á sunnudeginum.
Hún er nú ekki með mikla eyrnabólgu en þar sem hún sefur svona illa með þessu þá setti læknirinn hana á pensilín. Hún er sem sagt svona á mörkunum að fá pensilín eða ekki.
Svo er ég að skoða upp í hana og sé 4 tennur vera að koma!!! þannig að það er nú kannski ekki nema von að barnið sé pirrað.
Hún svaf allavegana betur í nótt sem er nú án efa meira að þakka stærri verkjalyfjaskammti heldur en fyrri nætur því pensilín er nú ekki alveg svona fljótt að virka sko :-)
En ég hef nú ekki gefið henni verkjalyf í dag og hún er búinn að sofa 1 klst núna vonandi sefur hún alveg 3 tíma svo hún geti farið að vera hressari.

Posted by gydaa at 11:31 AM
September 27, 2002
Lífið að komast í eðlilegt horf

jæja við erum báðar orðnar hressar Kolla og ég. Kolla fór í leikskólann í gær voða kát og glöð. Svo þegar ég var að sækja hana mættum við Stellu sem kíkti í kaffi til okkar og tók svo Kollu með sér.

Ég notaði þá tækifærið og kíkti á kaffihús með Matta (það er sko ekki einfalt að fara á kaffihús með þær báðar og eiginlega valla fyrirhafnarinnar virði) og jú jú ég tók smá til fyrst.

Áróra fór á fyrsta diskóið sitt barnið mitt er að verða fullorðið snökt snökt. Því miður skemmti hún sér ekki vel eins og hana var nú búið að hlakka til. Strákarnir vildu ekki dansa við hana og vinsælu stelpurnar voru að stríða henni!!! Voðalega er ég döpur yfir þessu en hún fór samt með vinkonu sinni og það vildi víst enginn dansa við hana heldur svo hún var ekki ein í kvölinni sem betur fer.

Núna er ég bara að slaka á í tölvunni en ætla nú að fara að skella í þvottavél og taka smá til. Eins gott að fara að koma einhverju skikki á þetta hús fyrst að ég er loks orðin hress.

Posted by gydaa at 11:17 AM
September 25, 2002
veikindi

Búið að vera veikindafjör hér hjá okkur. Ég var rosa slöpp í lok síðustu viku og Matti var því heima að hugsa um stelpurnar á föstudaginn. Svo var Kolla kominn með hita á mánudagskvöldið!! Hún var reyndar bara með 7 kommur í gærkvöldi svo vonandi kemst hún á leikskólann á morgu og vonandi verða Inga María og Áróra ekki veikar líka.

Posted by gydaa at 09:13 AM
September 18, 2002
Hittingshópur

Jæja þá er ég búinn að stofna hóp til að hitta eitthvert fólk fyrst að stelpurnar á born2001 grúbbunni minni eru meira og minna að fara að vinna og hættar að mæta í daghittinga :-(
Allavegana þá er þetta linkurinn á grúbbuna sem ég var að stofna
http://groups.yahoo.com/group/heimavinnandi109/
og þessu er sérstaklega beint að þér Hildur :-) þér er hérmeð boðið að vera með :-)

Posted by gydaa at 02:08 PM
Foreldrafundur

Ég fór sem sagt á foreldrafund í skólanum hennar Áróru í morgun sem var mjög áhugavert en fyrst ætla ég að renna yfir nóttina.

Inga María svaf mjög vel þegar hún svaf :-) en hún vaknaði hálf 4 og sofnaði ekki aftur fyrr en hálf 5 eða 5!!! Ég var orðin þokkalega pirruð og satt best að segja var hún það líka því hún var alltaf að reyna að sofna þetta grei. Hún prílaði upp um mig alla og kom svo og lagðist á koddann minn eða ofan á hausinn á mér í smá tíma og gat ekki sofnað svo hún fór aftur að príla!! Svo fékk hún sér sopa og fór svo aftur að príla osfrv. Í staðinn svaf hún svo til 8 en ekki hálf 7 þannig að það var mjög notalegt en gott að Áróra átti ekki að vera mætt í skólann 10 mín yfir átta eins og venjulega því ég man ekki einu sinni eftir að hafa slökt á klukkunni.

Ég hljóp svo af stað á foreldrafund sem byrjaði 8:10 og var nokkrar mín of sein á hann en sem betur fer ekki mikið.

Á fundinum var rennt yfir hvaða bækur krakkarnir eru með. María (kennarinn) sagði okkur t.d. frá því að krökkunum finndist nýja stærðfræðibókin hræðileg og þetta væri meira lestrarbók heldur en stærðfræði :-) en ég skoðaði hana og hún er mikið orðadæmi en mér sýndist þetta fín stærðfræðibók. Hún hélt að þessir fordómar út í bókina hjá börnunum stafaði aðalega af því að þarna væri ekki 2+2= og svo eigi þau að svara. Þannig að þau þurfi að læra nýja tegund af hugsun sem sé bara mjög gott en geti verið erfitt.

Hún sagði okkur líka frá því hvað þau eru rosalega metnaðargjörn í lestrarkeppninni og hreinlega ætli að vinna hana þetta árið. Rosa gaman að fylgjst með þeim lesa og lesa til að ná sem flestum bls.

Síðan voru rædd tengslamál bekkjarins og þeim virðist vanta upp á að ná betur saman. María benti á að í bekknum séu rosalegt skapfólk og því sjóði mjög oft upp úr og enginn vill gefa sig og efast ég ekki um að Áróra er ein af skaphundunum. Það voru kostnir nýjir bekkjarfulltrúar og þeir voru ég, mamma Elí og mamma Eddu. Við ætlum svo að stefna af því að hafa meira starf fyrir krakkana utan skóla og að stofna vinahópa.
Einnig var rætt um afmælismál og að nauðsynlegt væri að bjóða öllum stelpunum, öllum strákunum eða öllum bekknum. Það hefur víst komið upp að bara sumum hafi verið boðið og að sjálfsögðu verða þeir sem verða útundan sárir. Einnig var rætt um að nauðsynlegt væri að afboða sig ef viðkomandi kemst ekki. Ein hafði t.d. lent í því að það komu þrír í afmælið!!! og við héldum að það hefði verið slæmt hjá okkur með að það voru 10 af 20 krökkum.
Mig hlakkar til að fara að vinna í þessum málum og sjá um að stelpunni minni líði betur í skólanum.

Posted by gydaa at 12:25 PM
September 17, 2002
Gærdagurinn

Ég var voðalega þreytt í gær eftir helgina og gerði því bara eins lítið og mögulega er hægt sem heimavinnandi kona með þrjú börn.
Er samt mikið hressari í dag og er búinn að halda áfram verkefni mínu að taka til hjá Áróru í korter á dag :-) Hillurnar búnar og meira að segja farið að sjást í skrifborðið vííí
Er svo að hugsa um að kíkja í Smáralindina á eftir þegar Inga María vaknar og kaupa skó handa Ingu Maríu í afmælisgjöf frá mömmu (sko bara 2 mán í afmæli svo ekki seinna vænna en að fara að kaupa afmælisgjafirnar :-)

Posted by gydaa at 12:09 PM
September 16, 2002
Helgin

Jæja við stelpurnar fórum um helgina á ættarmót eins og við gerum alltaf árlega. Matti var heima að vinna eins og alltaf þessa dagana!!! strákgreiið. Þar sem að hann var ekki með voru sárafáar myndir teknar í ferðinni en ég hljóp einu sinni upp og tók myndir af sem flestum og brúkaði svo ekki myndavélina meira í ferðinni og þetta var um kvöld þegar börnin voru sofnuð :-)
Jæja ferðasagan í framhaldinu. Hrikalega löng sko bara vara ykkur við.

Við lögðum af stað úr bænum rúmlega 4 (mamma vildi taka það sérstaklega fram að þau voru mætt 5 mín í fjögur og það var ekki henni að kenna hversu langan tíma tók að raða í bílinn og koma börnunum á sinn stað :-)

Við stoppuðum svo á Selfossi og keyptum í matinn fyrir helgina og leifðum börnunum að hreifa sig í leiðinni. Verst að við vorum sem sagt að gera innkaup rúmlega 5 á föstudegi og því langar raðir við alla kassa. Við keyrðum svo áfram og vorum komin um hálf 7 minnir mig á Geysi. Fengum okkur þá að borða köld svið. Kolla var mjög dugleg að ná sér í það sem henni fannst girnilegast hverju sinni og borðaði því frekar pulsur eins og Hrjabba, Jói og börn og sat með þeim til borðs :-)

Við komum okkur svo fyrir og spjölluðum við fólkið sem smá saman týndist inn í húsið. Börnin voru nú doldið æst svona fyrsta kvöldið en léku sér úti fram eftir því það var alveg yndislegt veður og mjög hlýtt.

Litlu stelpurnar sofnuðu um hálf 10 en Áróra fór að sofa um leið og ég eða um 11 leitið.

Stelpurnar vöknuðu svo allar hálf 7 (Inga María fyrst en hinar vöknuðu líka) og fórum við allar fram og fengum okkur morgunmat og lékum okkur frammi. Gerða frænka vaknar alltaf svona snemma og var frammi með okkur og restin af börnunum kom frekar snemma fram eitthvað fyrir 8 en almennt var fólk að týnast á fætur um 9.

Ég vakti mömmu og pabba korter í 9 því við ætluðum í réttir sem byrjuðu 9. Við fórum þangað og skemmtum okkur mjög vel (skildi myndavélina að sjálfsögðu eftir heima!! og Matti er búinn að hóta því að ég fái aldrei að taka hana með mér aftur). Stelpurnar voru ekkert hræddar í réttunum. Áróra hljóp um með hinum krökkunum og Karítas dró tvær rollur í dilka (fékk einhverja bóndakonu til að kenna sér að lesa merkið á kindunum og sýna sér hvert hún ætti þá að fara með þær). Kollu fannst gaman að klappa rollunum og horfa á þær. Hún var ekkert hrædd þó þær væru stundum allt í kringum okkur og maður væri í miðjum rollutroðningin. Inga María skemmti sér líka vel að skoða rollurnar og hestana en var samt bara í fanginu á mömmu/afa enda ekki hægt að skríða um á milli dýranna.

Við gerðum svo heiðarlega tilraun til að fara snemma heim úr réttunum en gekk illa að komast burtu. Það var ekki séns að mæta bílum á veginum frá túninu þar sem við vorum látin leggja bílnum. Allsstaðar þar sem mögulega var hægt að komast aðeins út af veginum þá var
búið að leggja bílum þar. Ég beið því og beið við upphaf vegarins meðan
umferðin var stannslaust á móti okkur (við komum í upphafi réttanna og fórum
því snemma). Það voru þarna menn frá hjálparsveitinni en þeir stóðu bara og
horfðu á, ég spurði hvort að þetta væri endalaus bílaröð og hann sagði bara
já það lítur út fyrir það. Þetta endaði með að yfirmaðurinn tók yfirhöndina
í móður minni og hún fór að stjórna hjálparsveitamönnunum. Hún byrjaði sko
á að spytja hvort það væri ekki vit í að stoppa umferðina við hinn enda
vegarins til að hleipa fólki út jú jú sagði maðurinn en sko talstöðin okkar
er biluð svo við náum ekki sambandi við mennina á hinum endanum!!! (kannski
5 mín gangur ef þú labbar hægt). Mamma sendi manninn þá fótgangandi að
stoppa umferðina og þá gátum við loks komist heim á leið :-) En þeim var
sko líka farið að vanta bílastæði á túninu því það komst enginn út!!! og ég
var sko langt því frá að vera ein að bíða.

Eftir að slaka aðeins á og borða hádegismat fórum við á safnið í sjoppunni (man ekki hvað það heitir). Kolla var dauðhrædd við myrkrið og bara allt þar inni og hékk bara í fanginu á afa sínum þar inni. Hún vildi ekki prófa jarðskjálfta tækið eða neytt (maður stendur á svona stand þar sem síðan er allt að hristast eins og jarðskjálfti upp á minnir mig 5,1 á Righter. Við vorum samt sammála um að þeir ættu að hafa sterkari skjálfta því manni finnst þetta ekki neytt og 17. júní skjálftinn miklu verri. Enda var hann líka sterkari og svo náttúrulega er það miklu óhugnalegra að allt tekur að hristast heima hjá manni heldur en að standa og vita að nú fari allt að hristast :-)

Við fórum svo upp á byggðasafnið og þar lifnaði Kolla við og skemmti sér vel að skoða hlutina og uppstoppuðu dýrin. Þurftum að draga hana út úr þeim hluta.

Á laugardagskvöldinu elduðum við öll saman. Hver fjölskylda átti að koma
með læri (sameinuðumst þannig að það passaði ca um læri) og það voru því sex
læri grilluð fyrir 26 fullorðna (unglingar inn í þeirri tölu) og 6 börn.
Það var sko rosa stór hrúga af kjöti eftir. Svo voru margar gerðir af
kartöflum því allir settu bara sínar kartöflur á borðið og svo fékk maður að
smakka af öllu, það voru soðnar glænýjar (teknar upp áður en þau lögðu af
stað) kartöflur, hefðbundnar grillaðar í álpappír, hitaðar í ofni í bátum,
soðnar og svo steiktar í olíu og kryddi (mamma mín). Svo voru líka margar
tegundir af salati. Ferlega gaman að hafa svona hlaðborð af mat en við
höfum hingað til alltaf keypt matinn tilbúinn þar sem við höfum verið
(hittumst sko allataf einu sinni á ári). Svo áttu allir að koma með einn
desert líka sem var nú það sem pirraði okkur mömmu því við nenntum ekki
að búa til desert og hvað þá að ferðast með hann en við duttum niður á þessa
sniðugu hugmynd á Selfossi því við vissum ekki hvar bakaríið er (ekki það að
við hefðum spyrst fyrir um það!!) að kaupa bara osta, vínber og ritskex og
vorum voða ánægðar með sjálfan okkur ;-) og held að hinir hafi bara verið
ánægðir líka :-) Maturinn var sem sagt rosagóður en Inga María var ekkert mjög hress við borðhaldið svo ég naut þess nú ekkert mikið að borða en fékk Karitas til að passa hana fyrir mig (Áróra nennti því ekki!!) þegar hún var búinn að borða svo ég gat borðað. Ég fór svo strax eftir það að koma stelpunum litlu í náttföt enda voru þær orðnar dauðþreyttar eftir að fara á fætur hálf 7 (klukkan var rúmlega 8).

Svo var bara setið og kjaftað fram eftir kvöldi. Ég fór að sofa rúmlega eitt og margir fóru víst stuttu eftir mér en sumir sátu fram undir morgun og voru því verr útlítandi en aðrir við morgunverðinn bara svona eins og gengur :-)

Á sunnudagsmorgninum vaknaði Inga María hálf 7 eins og er að verða vani hjá henni. En Áróra og Kolla sváfu áfram til að verða 8. Ég dundaði mér við að taka af borðunum (bjórdósir, glös, servéttur og svona partídót) og svo kom Gerða frænka og við fórum að setja í uppþvottavélar og ganga frá. Að vísu voru dætur mínar orðnar hálfpirraðar svo Gerða fékk að gera mikið meira en ég en mamma kom svo fram eitthvað rúmlega 8 og hjálpaði henni. Loksins byrjaði svo barnatíminn klukkan 9 :-) og Inga María fór út í vagn að sofa. Hinir voru líka þá að tínast fram svo ég gat kjaftað við þá og fengið mér morgunmat.

Annars vorum við búinn að finna út (og skála fyrir en ekki hvað) að Gerða væri aldursforsetinn á staðnum og ætti að koma fram við hana að virðingu en svo stóð hún bara á haus í þrifum á sunnudeginum!!

Fyrir morgunmatinn sópaði pabbi allan salinn (meðan mamma var að þvo upp pottana í eldhúsinu) svo það komi nú fram hvað hann var duglegur líka :-)

Við fengum okkur svo afganga af kjötinu enda nóg til af því og brauð í morgunmat. Rosa gott. Fórum svo að taka saman dótið okkar og koma því út í bíl. Gerða var samt ennþá á fullu að þrífa!! En aðrir tóku samt við að skúra og ryksuga (við erum sannfærð um að við fáum afslátt næst út á hvað við skildum vel við :-) t.d. var nafna mín að ryksuga úr gluggakistunum í herbergjunum þegar við fórum!!! og ég tala nú ekki um þegar Ingibjörg klifraði uppá loftið fyrir ofan eldhúsið til að ná í píluna hans Einars Magnúsar og sópaði rykinu niður af því um leið og hún sópaði pílunni niður!!!

Á leiðinni heim stoppuðum við í skógi fyrir ofan Geysi sem ég held að heiti Haukadalsskógur og löbbuðum um (tókum að sjálfsögðu engar myndir þar heldur!!). Við vorum þar í yndislegu veðri (góða veðrið sem var spáð á laugardeginum var nefnilega á sunnudeginum en rigning allan laugardaginn!!). Við ætluðum að labba bláa göngustíginn á kortinu hjá bílastæðinu því hann var styðstur (800m) en bara rauða leiðin var merkt á göngustígana svo við gáfumst upp á því en að öðruleiti var allt vel merkt þarna fullt af skiltum með fróðleik um trén og svæðið svo ég skil ekki af hverju gönguleiðirnar voru ekki merktar!!! Kolla var nú voðalöt að labba (en það stoppaði hana reyndar ekki í að hlaupa í burtu eftir göngustígum sem við ætluðum ekki að fara í) svo seinnipart leiðarinnar var ég með hana á háhest og mamma hélt þá á Ingu Maríu þannig að þetta var þokkaleg líkamsrækt fyrir okkur mömmu og allt upp á móti ja nema heimferðin öll niður á móti reyndar.

Við keyrðum svo í Eden í Hveragerði og fengum okkur ís og þaðan heim.

Ég var sko alveg búinn þegar ég kom heim og tókst alls ekki að halda augunum opnum yfir myndinni sem Matti tók handa okkur hjónunum þó að mér litist mjög vel á hana (Amelie). Eftir að hafa hrotið í fanginu á Matta í klst fór ég upp í rúm svo hann gæti horft á restina af myndinni án hrota (en ég hrýt samt að sjálfsögðu ekki, bara hafa það á hreynu!!).

Ég var samt ennþá dauðþreytt þegar ég vaknaði hálf 7 í morgun (sofnaði í sófanum ekki seinna en 10) en er öll að koma til eftir 2 tebolla.

Jæja ætla að drífa mig í að gefa Ingu Maríu og mér að borða því við þurfum að fara að sækja Kollu.

Posted by gydaa at 12:49 PM
September 11, 2002
rólegheit

jæja rólegt og þægilegt hjá mér. Inga María er búinn að sofa síðan um hálf 10 (sofnaði á leiðinni heim af leikskólanum) og ég er búinn að slaka vel á í tölvunni og taka til. Búinn að setja í þurkara, taka til í herberginu hennar Áróru í 20 mín og taka til í tölvu-sjónvarpsherberginu sem var nú ekkert smá afrek get ég sagt ykkur!!! Vá gólfið var bara í þessum lit mmm vissi það ekki ;-)
Annars með Áróru tiltekt þá er ég sem sagt í því þessa dagana að taka til inn í hennar herbergi í 15 mín á dag. Með því að taka svona smá til á hverjum degi þar hef ég náð að sortera og finna stað fyrir mikið af draslinu hennar án þess að hún hafi einu sinni kvartað og eflaust án þess að hún taki eftir því!!! Nú er ég búinn með 4 hillur af 12 plús þess að vera búinn að koma skikk á gólfið. Þegar hún tekur sjálf til á hún það nefnilega til að hrúga öllu í hillurnar svo nú eru þær stútfullar af drasli!!!
Jæja þá ætla ég að sjá hvort ég geti borðað Findus Lasagniað mitt áður en Inga María vaknar.

Posted by gydaa at 12:00 PM
September 10, 2002
mömmumonnt

Matti var að kvarta yfir að það sé svo langt síðan ég hef skrifað hér þannig að hérna kemur smá mömmumont (sem er svo sem ekkert smá þegar maður á þrjár duglegar stelpur :-)

Áróra: Mér finnst Áróra vera búinn að fullorðnast voðalega mikið. Enda er hún náttúrulega orðin 10 ára. Á morgun ætlar hún t.d. að fara í fyrsta sinn með strætó í skólann frá pabba sínum en strætó stoppar rétt hjá pabba hennar og rétt hjá skólanum svo það er ekkert stórmál en samt dæmi um hvað hún er orðin stór.
Hún hjálpar mér voða mikið með stelpurnar og var til dæmis um daginn ein með þær meðan ég skaust til vinkonu hennar og sótti töskuna hennar sem hún gleymdi þar. Lúxus að geta skotist svona út ein þó það hafi bara verið í korter. Hún hjálpar mér líka að koma þeim í næturbleijuna og náttfötin á kvöldin og margt fleira.

Kolla: Kolla leikskólastelpa er líka orðin voða stór :-) Hún reyndar harðneytar að pissa á leikskólanum en fer samt bleijulaus þangað og heldur sér oft þurri í þessa 4 tíma sem hún er þarna. En hefur 2 þurft að fá ný föt því hún hefur pissað á sig. Svo hef ég einu sinni þurft að skella á hana bleiju á leiðinni heim því hún gat ekki haldið í sér lengur!!! Hún er samt að öðru leiti bleijulaus og pissar í koppinn hérna heima. En hún kúkar bara í bleiju og biður um bleiju til þess. Hún er líka langt frá því að vera þurr á morgnanna eftir nóttina.
Hún er farinn að klæða sig meira eftir að hún byrjaði á leikskólanum fer t.d. alltaf sjálf úr skónum en þarf hjálp við að komast í þá (losar sko alltaf franska rennilásinn alveg af hönkunum þannig að ég þarf að setja hann á aftur) og í morgun fór hún sjálf í nærbuxurnar.

Inga María: Hún er farinn að labba með um allt og reisir sig upp orðið við hvað sem er. Maður tekur vel eftir því að hún er farinn að nota fæturnar til að lifta sér upp en ekki tosa sig upp á höndunum eins og hún gerði fyrst.
Henni er líka voða mikið að fara fram í félagsþroska. Vinkar bless og klappar. Hún kann líka að segja mamma þó hún noti það reyndar á pabba líka og svo kann hún að segja takk hrikalega kurteist barn sem ég á :-) Reyndar segir hún ta ta en notar það þegar hún réttir manni hluti (því þá segi ég venjulega takk).

Jæja best að gefa henni hádegismat áður en við förum að ná í leikskólastelpuna

Posted by gydaa at 12:46 PM
September 02, 2002
Klappa saman lófunum

Jæja núna er litla skvís búinn að læra að klappa saman lófunum og sýnir þann hæfileika í tíma og ótíma :-) Ekkert smá stolt af sjálfum sér.

Posted by gydaa at 10:03 PM
Nóttin Jæja komnir 10 dagar síðan ég skráði næturvökurnar síðast ja reyndar rúmlega það.
Tími Hvernig vakti hún mig Hversu lengi vakandi/Hvað gerði ég Sofnaði aftur kl. Hvernig sofnaði hún Hversu langt er síðan hún vaknaði síðast
08:45 Fór að sofa Drakk og lagði hana svo í rúmið. Var lengi að leika sér. 09:07 Í rúminu eftir tæpl. 5 mín kvörtu væl  
09:45 Grét Gaf henni liggjandi 09:51 Á brjósti 38 mín
10:45 Grét Gaf henni liggjandi 10:50 Á brjósti 54 mín
00:09 Grét Gaf henni liggjandi 00:09 Á brjósti 1 klst og 19 mín
02:00 Grét Gaf henni liggjandi 02:00 Á brjósti 1 klst og 51 mín
03:30 Grét Gaf henni liggjandi   Á brjósti 1 klst og 30 mín
06:30 Grét Gaf henni liggjandi   Á brjósti 3 klst
07:45 Kjaftaði Sótti hana   1 klst og 5 mín
Inga María svaf semsagt í rúmlega 10 og hálfan tíma og vaknaði 6 sinnum. Lengsti lúrinn hjá henni var 3 klst. Góðu fréttirnar eru þær að þetta var alveg hræðilega slæm nótt :-) hehe ég hef nefnilega verið að hugsa það í morgun að fyrir 3 mánuðum hefði mér þótt þessi nótt vera góður svefn en í dag er hún alveg hræðileg :-) Hún hefur verið að sofa mikið betur að undanförnu en þetta. Vaknaði til dæmis fyrir tveim nóttum bara tvisvar sinnum, við það að ég fór að sofa og einu sinni meðan ég svaf. En það var reyndar extra góð nótt. Allavegana sé ég framfarir í svefninum þó að þessi tafla sýni það ekki. Annars erum við mæðgur heima í dag því það er starfsdagur kennara á leikskólanum hennar Kollu.
Posted by gydaa at 10:05 AM