jæja við vorum að koma heim eftir fjórða leikskóladaginn. Ég var með Kollu í hálftíma í morgun. Komum níu og ég var búinn að ákveða að fara áður en alstundin (söngstund) byrjaði því ef ekki þá yrði ég að vera í a.m.k klst. Henni fannst nú voðalega erfitt að kveðja mig var ekki alveg tilbúinn eftir þennan hálftíma en langaði líka voða mikið að fara og syngja með krökkunum. Fór inn í herbergið að syngja en kom 3 fram að kyssa mig en fór samt alveg sjálf inn aftur og vildi vera með í söngunum bara doldið erfitt að mamma væri ekki með sem var skiljanlegt.
Stórmerkilega fréttin er svo að hún vildi fara bleijulaus í leikskólann!!! Hún er sko mjög mikið bleijulaus hérna heima en í samráði við fóstrurnar þá ætlaði ég að hafa hana með bleiju þar fyrstu vikurnar svo það væri ekki að trufla hana meðan hún vendist staðnum. Hún vildi sem sagt ekki bleiju áður en við fórum, ég var svo sem ekki mikið að rökræða það við hana enda vil ég mikið frekar hafa hana bleijulausa en bauð henni bleiju nokkrum sinnum.
Ég sótti hana svo rétt fyrir eitt en fann hana ekki strax og kom þá í ljós að hún hafði skelst sér inn í hvíldarherbergið með krökkunum sem leggja sig á daginn og lá þar hin ánægðasta undir teppi :-) Hún var nú ekki sofnuð svo ég tók hana og hún liggur núna með duddu og horfir á múmínsnáðana vonandi sofnar hún smá því hún var alveg úrvinda seinni part dags í gær. Þarf eiginlega að sofa þegar svona mikið nýtt er að gerast þó hún sé alveg hætt að leggja sig á daginn.
Ég var nú voða tóm hérna í morgun og saknaði stóru leikskólastelpunnar minnar. Það munar alveg ótrúlegu um þessa 1-2 tíma sem hún er lengur á leikskólanum heldur en hún var á róló og svo borðar hún heldur ekki með okkur Ingu Maríu.
Jæja þá ætla ég að klára bókina mína er sko að lesa Mýrina eftir Arnald Indriða mæli með henni.
Það gekk bara mjög vel í morgun enda átti ég svo sem ekki von á öðru. Ég var með henni í tæpann klukkutíma og svo fór ég heim og Matti í vinnuna. Hún var að fara út að leika þegar ég fór og smellti á mig kossi og hljóp svo að leika nennti varla að kveðja mig :-)
Þegar ég kom að sækja hana 2 timum seinna var hún hin ánægðasta að borða. Borðaði voða vel og fannst mjög góður matur á leikskólanum.
Hún mun svo vera 9-1 á leikskólanum til að byrja með. Ég mun allavegana sækja hana fyrir hálf 2 því þá byrjar alstund eftir hádegið og svo er farið beint í val þannig að annað hvort þarf ég að vera búinn að sækja hana hálf 2 eða bíða til að verða 3 svo ég sé ekki að koma í miðju prógrammi.
Jæja ég var varla neytt í tölvunni í gær eftir leikskólann svo nú sit ég hér klukkan korter í 7 og skrifa þetta. Sko ég þarf að byrja að vakna klukkan 7 með Áróru en þá tekur Inga María upp á því að vakna hálf 7 í gær og korter yfir 6 í dag !!! geysp
Jæja sem sagt aðlögunin. Lesið um það í framhaldinu.
Kolla sagði nú um morguninn að hún vldi ekki fara í leikskólann skil ekki hvaðan það kom þar sem hún hafði verið svo ánægð daginn áður. Kannski hafði fyrsti dagurinn verið heldur of viðburðarríkur. Hún sagði allavegana bara ekki í dag þegar ég fór að tala um leikskólann. En jæja við fórum nú samt og ekkert í illu. Þegar kom að því að klæða sig sagði hún bara já leikskóli og fór ánægð í úlpuna sína doldið skrítið barn sem ég á :-)
Núna voru allir krakkarnir inni og hún var doldið feiminn fyrst. Þegar við komum var alstund sem þær kalla en þá sitja allir krakkarnir saman og það er sungið (allavegana sungið í dag kannski gera þær eitthvað meira í þessari stund). Kolla settist hjá hinum krökkunum og horfði hugfanginn á alla syngja og gera hreifingarnar. Sko þetta er nú smábarna deild (fara um 3 ára inn á næstu deild sem Kolla verður í jan en það voru bara svo fá pláss á eldri deildinni þannig að það eru ennþá einhver 99 börn þarna) þannig að það voru aðalega fóstrurnar sem sungu og gerðu hreifingar börnin umluðu eitthvað og hreifðu sum hendur smá. Það var voðalega gaman að fylgjast með henni. Hún sat alveg kjurr með beinar lappir svo í ca miðri stundinni dróg hún lappirnar upp og sat með þær beigðar en leit svo í kringum sig og sá að hin börnin sátu með beinar lappir svo hún flýtti sér að rétta úr sínum löppum líka maður verður sko að vera eins og hinir ha :-) Börn eru fljót að læra að falla inn í hópinn. Eftir alstundina var frjáls leikur og máttu börninn velja um heimabæ, hvítabæ eða útibæ (æ man ekki hvað úti heitir kalla það bar a útibæ :-) Flest börnin fóru í hvítabæ þar sem er dúkkur, eldhúskrókur og kubbar og já málað og litað líka en þau voru ekki að því í dag samt. Konan sem sá um heimabæ kom svo inn og sagði vill ekki einhver koma og perla með mér og einhverjir fóru þá með henni svo þau væru ekki öll á sama stað og jú nokkrir fóru líka út. Allavegana voru svona 7-8 börn í hvítabæ með Kollu. Hún skemmti sér mjög vel að elda súpu með krökkunum, keyra dúkkurnar í dúkkuvagni, kaupa í matinn (fóru með dúkkubuxur að kubbakassanum og settu í kubba og þuldu upp kjúklingur, epli osfrv.) og klæða sig í fínar húfur og svona.
Ég fór svo fram á kaffistofu rúmlega 10 og var þar í ca 20 mín hún var sko ekkert fúl með það og tók varla eftir að ég færi. Svo hringdi Sirrý líka og ég skrapp fram á gang að spjalla við hana og Kollu var alveg sama um það.
Í dag á ég svo að koma með hana 9 og vera hjá henni meðan hún er að byrja að leika við krakkana og svo fer ég heim og sæki hana ca korter yfir 12. Ætli ég sé ekki hjá henni í 30-60 mín og svo er hún ein í 2-3 tíma. Fóstrurnar hringja svo bara í mig ef hún verður eitthvað leið. Ég hef nú ekki miklar áhyggjur af því þar sem hún hefur verið svo ánægð þarna hingað til.
Ég má svo taka Ingu Maríu með mér þegar ég kem og sæki hana þannig að í dag getur Matti farið aftur í vinnuna um 10 í stað þess að fara aftur hálf 1 eins og í gær!! Erfitt að ná 60 tímunum með slíkri vinnu!! Og hvað þá þegar Liverpool er að spila klukkan 7 svo hann varð að sjálfsögðu að vera kominn heim að horfa á það :-)
Gyða sem kláraði ekki bréfið fyrr en rétt fyrir 8!!
Þetta var sko viðburðarríkur dagur hjá henni Kollu minni í gær. Bæði fyrsti leikskóladagurinn og fyrsta bíóferðin. Við fengum boðsmiða á myndina lilo & stretch held að hún heiti það!! í gær klukkan 6. Fyrst þegar við komum inn í bíóhúsið (kringlubíó) var hún rosaspennt og virti allt mjög vel fyrir sér. Svo var risabangsi af stretch og hún var dauðhrædd við hann þorði ekki nálægt honum þó við Áróra værum að reyna að sína henni að þetta væri bara bangsi. Loksins þorðihún aðeins að koma við tásurnar á honum en ekki meir. Svo keyptum við sprite og popp og hún var mjög ánægð með það. En þegar við ætluðum inn i myrkraðan bíósalinn þá harðneytaði hún meiru. Ég tók hana í fangið og fór með hana inn dauðhrædda. Myndin var aðeins byrjuð og Áróra fann sæti fyrir okkur við ganginn sem betur fer. Ég stóð svo fyrsta korterið með hana á öxlinni og ruggaði henni eins og ungabarni!! Svo gat ég ekki haldið lengur svona á 15 kílóa barninu mínu svo ég settist niður þrátt fyrir mótmæli hennar (ekki hávær mótmæli samt). Þá sat hún klofvega í fanginu á mér og snéri baki í bíóskjáinn hélt fast í mig en gaf sér þó tíma til að maula poppið :-) eftir smá stund var hún svo farinn að teigja hausinn til að sjá bíóskjáinn. Rétt fyrir hlé snéri ég henni svo þannig að báðar lappirnar snéru í sömu átt en hún var nú ekki alveg sátt við það fyrst en sættist svo á það og sat þannig með poppið í fanginu og horfði á myndina en hélt dauðahaldi í mig með annarri hendinni.
Í hléinu röltum við um og skoðuðum alla krakkana og hún hresstist mikið við það og skemmti sér mjög vel eftir hlé. Þá sat hún bara í fanginu á mér með poppið sitt og snéri að bíóskjánum og var farinn að tala fullt við persónurnar. Hrópa yfir salinn nei nei ekki bíta hann. Sjáðu hann er að dansa osfrv. Hún skemmti sér sem sagt mjög vel eftir hléið og vill fara sem fyrst aftur í bíó samt ekki á morgun bara hinn :-)
Jæja Kolla fór í klst í heimsókn á leikskólann í dag. Hún var sko hrikalega spennt og hljóp á undan mér og Matta en Matti labbaði sko með okkur og svo fóru hann og Inga María aftur heim en ég og Kolla inn á leikskólann. Hún hljóp fyrst um alla deild að skoða hvern krók og kima og svo lék hún sér að dótinu með fóstrunni sinni. Það var annar strákur þarna í aðlögun líka en hann er mikið minni fæddur í febrúar 2001. Þau voru bara tvö inni og restin af krökkunum var úti að leika (hugmyndin er sem sagt að þau kynnist umhverfinu fyrst án þess að hinir krakkarnir séu að trufla).
Á morgun verðum við í tvo tíma og þá á ég að skreppa fram á kaffistofu. Ég hef nú engar áhyggjur af því þar sem að Kolla var mest með fóstrunni bara í dag og lengi meira að segja inn í öðru herbergi en ég (fór sko inn í hitt herbergið að skoða dúkkurnar með fóstrunni en ég sat bara áfram í hinu herberginu). Hún er líka svo stór og finnst þetta bara rosa gaman. Ætli ég skilji hana svo ekki bara eftir eitthvað eftir á fimmtudaginn.
Allavegana er hún voða ánægð með að vera orðin leikskóla stelpa :-)
Jæja í dag var skólasetning hjá Áróru. Við fórum allar fjórar. Kolla átti nú mjög erfitt með að sitja kjurr meðan aðstoðarskólastjórinn talaði og Inga María svo sem líka. Svo fórum við inn í stofu. Áróra er búinn að fá nýja stofu og kominn inn í skólabygginguna en var í fyrra í útiskúrum reyndar mjög fínum.
Kolla vildi endilega fá sæti eins og krakkarnir í bekknum og settist hin ánægðasta í eitt sæti sem var laust. Fyrst var dreift bæklingum um skólann og fékk hún ekki eintak og var nú fúl með það. Svo dreifði kennarinn nokkrum blöðum um hvað á að kaupa og slíkt og fékk Kolla eintak af því og sat hin kátasta þarna eins og hver annar nemandi í fimmta bekk :-)
Við hjónin fórum með stelpurnar allar þrjár í sund. Voða gaman. Kollu fannst æðislegt að fara í rennibrautina með pabba sínum og ég og Inga María vorum orðnar doldið einmanna þar sem Áróra, Matti og Kolla voru endalaust í þessari rennibraut :-) en svo komu þau og léku við okkur. Inga María var alltaf rosakát að sjá þau koma niður.
Það voru svo vespur að stríða okkur eftir sundið en Matti hetja bjargaði Kollu frá vespunni sem reyndi þó að elta þau smá vegalengd!!
Matti fór svo að vinna en ég fór með Áróru að kaupa afmælisgjöf og skutlaði henni svo í afmæli hjá bekkjarsystur hennar. Við hinar fórum svo til mömmu og pabba og ætluðum að fá þau til að skutlast eftir hjólinu mínu en mamma hafði farið á jeppanum og var ekki væntanleg aftur fyrr en um kvöldmatarleitið þannig að það verður víst að bíða betri tíma.
Núna erum við að bíða eftir að klukkan verði 5 svo við getum sótt Áróru í afmælið, Matta í vinnuna og farið til Stellu og Ásgeirs.
Á föstudagskvöldið fórum við í mat til mömmu og pabba og hittum Ásu (systur pabba) og Jens en þau búa í Danmörku og eru hér í heimsókn. Voða gaman að hitta þau. Við borðuðum æðislegan mat og kjöftuðum til 10 þegar börnin voru orðin brjáluð af þreytu enda vön að fara að sofa 8.
Ég og stelpurnar hittum þau svo aftur í hádeginu í gær þegar við fórum í hádegiskaffi til mömmu og pabba. Stebbi og Matti fóru á players að horfa á einhvern fótboltaleik og voru því ekki með okkur. Kolla tók alveg ástfóstri við Jens og knúsaði hann og kyssti bless þegar við fórum.
Á fimmtudaginn fórum við stelpurnar í sveitaferð. Við heimsóttum sem sagt Evu Mjöll sem var að passa bú tengdaforeldra sinna. Sirrý, Heiða og Sigurrós fóru líka með börnum. Við skemmtum okkur rosalega vel en veðrið hefði náttúrulega mátt vera betra svo börnin hefðu geta verið úti þ.e. þessi stóru.
Við kíktum aðeins á dýrin. Það var einn boli inn í fjósi sem var duglegur við að baula og börnin voru því dauðhrædd við hann!! Ég endaði með báðar stelpurnar í fanginu vælandi sem betur fer er Áróra orðin allt of stór til að vera hrædd við svona veit ekki hvernig ég hefði haldið á þriðja barninu!!
Svo skoðuðum við hænsnabúið. Reyndar rétt kíktum þar inn og það er hræðileg lykt inni hjá hænum ojjj og ég sem hélt að það hefði verið vond lykt í fjósinu!!
Svo fengum við rosafínar pönnukökur hjá Evu. Hún stóð sig sko rosavel sem ekta sveitakona í móttökum :-)
Við hjónin áttum 4 ára brúðkaupsafmæli í gær. Í stað þess að vera setja liðið okkar í pössun þá pöntuðum við mat frá Austur India félaginu og nutum þess að borða hann í stofunni heima hjá okkur yfir kertaljósi. Það var sko rosalega notalegt og maturinn var ofboðslega góður ekki það að ég hafi átt von á öðru frá Austur India félaginu. Matti sótti matinn handa okkur og kom með fjórar rósir handa mér alger dúlla :-) og konan hans fattaði ekkert fyrr en hann bendi henni á að hann hafði valið 4 rósir því við ættum 4 ára brúðkaupsafmæli ég er sko hrikalega fattlaus !!
Ég sit svo bara hér með stubbuna á hrikalega þreytt eftir að hafa vakað allt of lengi fram eftir!!
| Tími | Hvernig vakti hún mig | Hversu lengi vakandi/Hvað gerði ég | Sofnaði aftur kl. | Hvernig sofnaði hún | Hversu langt er síðan hún vaknaði síðast | |
| 07:50 | Fór að sofa | Sofnaði á brjósti og ég lagði hana svo í sitt rúmm | 08:00 | Á brjósti/lögð niður | ||
| 09:50 | Grét þegar ég kíkti á hana því hún var búinn að sofa svo lengi! | Gaf henni liggjandi | 22:00 | Á brjósti | 1 klst 50 mín | |
| 23:10 | Grét | Gaf henni liggjandi | 23:15 | Á brjósti | 1 klst 10 mín | |
| 23:35 | Grét | Gaf henni liggjandi | 23:40 | Á brjósti | 20 mín | |
| 02:52 | Grét | Gaf henni liggjandi | 02:52 | Á brjósti | 3 klst og 12 mín | |
| 07:00 | Grét | Gaf henni liggjandi | Á brjósti | 4 klst og 8 mín | ||
| 07:30 | Var að kjafta og leika sér | Fórum á fætur | 30 mín |
Jæja litla snúllan er 9 mánaða í dag!!! Sem sagt búinn að vera jafn lengi utan á mér sem innan í mér. Ótrúlegt alveg hvað þessi tími líður hratt
Nú situr hún hér og tætir sjónvarps og nettóblaðið og skríður um og leikur sér!!
Sá þetta ljóð á netinu flott:
The cleaning and scrubbing can wait for tomorrow
for children grow up, as I've learned to my sorrow.
So quiet down cobwebs. Dust go to sleep.
I'm rocking my baby, and babies don't keep.
~ Ruth Hamilton 1958 ~
Kolla var eitthvað að vesenast í nótt. Kom upp í klukkan 11 rétt eftir að við fórum upp í rúm. Stuttu seinna fór hún aftur í sitt rúm og svo ca hálftíma eftir það vildi hún koma aftur upp í til okkar og svaf svo þar restina af nóttinni!! Á erfitt með að ákveða sig greinilega :-)
Framhald í framhaldinu :-) en ekki hvar he he
Ingu Maríu fannst svo komin morgun klukkan 5 enda held ég hún hafi verið búinn að sofa þá í einum rikk síðan um miðnætti sem er hrikalega mikill svefn fyrir hana :-) Ég var nú ekki alveg til í að fara á fætur þá og gaf henni brjóst aftur og aftur til að reyna að svæfa hana en það tókst ekki fyrr en rúmlega sex og svaf hún þá til átta. ÉG var sko öll lurkum laminn klukkan átta þegar við fórum á fætur enda finnst mér eiginlega erfiðara að vaka svona í klst heldur en að vakna oft í 5 mín hvert sinn!!
Matti og Kolla sváfu svo til níu algjörar svefnburkur. Við borðuðum svo morgunmat saman ferlega huggulegt og skutluðum svo Matta í vinnuna. Komum við í smáralind og ætluðum að láta Matta kaupa sér buxur sem ég sá á útsölu en það opnar víst ekki fyrr en 11 svo við fórum bara beint í ccp.
Þegar við komum þangað ákváðum við stelpurnar að fara að labba um bæjinn í góða veðrinu. Á lækjartorgi var mér orðið svo kalt (Áróra var kominn í jakkann minn því hún var jakkalaus) að við snérum við og fengum lánaðann Matta jakka og héldum svo áfram búðarrölti. Stuttu seinna byrjaði svo að rigna!! Ég skaust þá í Fífu og keypti regnslá á kerruna hennar Ingu Maríu og svo fórum við í aðra búð og keyptum regnhlíf fyrir okkur Áróru og klæddum Kollu í pollajakkann sem var í bílnum. Þá vorum við sko til í slaginn og röltum um laugarveginn og skoðuðum útsölur en keyptum nú ekkert.
Við borðuðum svo hádegismat á Mcdonalds og fórum svo aftur upp í CCP. Matti skutlaði okkur svo heim því hann ætlar í World Class en hann er sko alger!!! Kom aftur heim rúmlega hálftíma seinna því hann hafði gleymt íþróttartöskunni!!! Alger bjáni :-)
Meðan ég sit og slaka á í tölvunni og drekk teið mitt þá situr Inga María og er að
henda alls konar dóti sem hún finnur á gólfinu niður stigann í gegnum
hliðið. Svo er hún ferlega fúl af því að skórnir hennar Áróru komast ekki í
gegnum rimlana á hliðinu :-)
mmm já það er sko nóg af drasli sem hún getur hennt niður á gólfinu!!! en
ekki mikið lengur bráðum verður ekkert drasl á gólfinu hérna slepp ég þá
ekki bara við að taka til og passa mig bara á að horfa ekkert niður stigann
:-)
| Tími | Hvernig vakti hún mig | Hversu lengi vakandi/Hvað gerði ég | Sofnaði aftur kl. | Hvernig sofnaði hún | Hversu langt er síðan hún vaknaði síðast | |
| 08:10 | Fór að sofa | Drakk ég sat og lagði hana svo niður á dýnuna | 08:20 | Á brjósti/lögð niður og sneri sér á hliðina | ||
| 09:05 | Grét | Gaf henni liggjandi | 09:10 | Á brjósti | 45 mín | |
| 09:12 | Grét | Gaf henni/strauk bak/ gaf henni aftur | 09:22 | Á brjósti | 2 mín | |
| 10:05 | Grét | Gaf henni liggjandi | 10:10 | Á brjósti | 43 mín | |
| 10:15 | Grét | Gaf henni liggjandi | 10:17 | Á brjósti | 1 klst og 5 mín | |
| 00:34 | Grét | Gaf henni liggjandi | Á brjósti | 2 klst og 17 mín | ||
| 03:58 | Grét | Gaf henni liggjandi | Á brjósti | 3 klst og 32 mín | ||
| Vaknaði | tvisvar milli 4 og 5 en | ég skrifaði ekki niður tímann | ||||
| 05:00 | Grét | Gaf henni liggjandi | Á brjósti | |||
| 06:30 | Grét | Gaf henni liggjandi | 07:10 | gafst upp og fór á fætur | 1 klst og 30 mín |
Inga María svaf voða illa í nótt og við fórum allt of seint að sofa svo nú er ég hrikalega þreytt :-(
Matti leifði mér samt að sofa klukkustund eftir að ég vakti hann svo ég get ekki kvartað mikið!
Ég er orðin alveg hrikalega leið á þessu krönsi í vinnunni hans Matta. Það eru takmörk fyrir því hversu lengi maður getur verið heimavinnandi "einstæð" móðir!! Sirrý er búinn að sjúkdómsgreina mig og segir að ég þjáist af athyglisleysi :-) það er alltaf gott að hafa nafn á sjúkdómunum sínum :-)
Þá viti þið það!!
Inga María stóð upp við sófann inn í sjónvarpsherbergi í fyrradag (mánudag) voða dugleg. Settist svo niður aftur og stóð upp aftur og stóð þar og las bók!! Hún hefur nú ekki staðið upp aftur reyndar en getur þetta greinilega litla snúllan.
Henni er að fara voðalega hratt fram núna, litla barnið mitt!!
Stúlkurnar vöknuðu voða snemma í morgun. Matti var svo duglegur að vakna 6 en Inga María hefur vaknað við klukkuna eflaust. Lá fyrst á brjósti í einhvern tíma en heimtaði svo að fara á fætur. Klukkan var akkurat 7 þegar við fórum fram uhu heðfi sko vilja sofa mikið lengur enda svaf hún ferlega illa í nótt með þetta kvef greiið stelpan.
Jæja mér datt ekkert betra að setja sem fyrirsögn :-)
Ég er bara hér í tölvunni að taka því rólega en Kolla og Matti fóru að skutla Áróru til pabba síns og svo í bakarí. Áróra kom heim í eina nótt frá fríinu hjá pabba sínum bara svona til að við hittum hana aðeins. Við horfðum saman á spólu mæðgurnar og borðuðum nammi :-) eftir að stelpurnar voru sofnaðar. Það var mjög notalegt en reyndar vorum við líka í tölvunni til skiptis !!!
Kollu hefur farið mjög mikið fram í máli gaman að fylgjast með því. Hún er kominn með svo mikinn orðaforða og talar orðið mikið skýrar. Svo gengur henni alltaf betur og betur að pissa í koppinn sinn. Hún pissaði tvisvar í hann í gær og kúkaði einu sinni í hann jibííí. Hún er nú samt búinn að pissa einu sinni í buxurnar í dag en þetta kemur allt saman hægt og rólega.
Inga María er farinn að skríða um allt en samt alltaf með vinstri fótinn undir sér!! Hún er farinn að dunda sér við að skríða um og finna nýtt dót og tæta smá líka :-) Finnst rosa gaman að rífa í blöðin í blaðagrindinni.