Inga María lærði að setjast upp áðan. Hún var mjög stolt af sjálfri sér. Var reyndar ansi lengi að sofna því hún þurfti að setjast nokkru sinni upp og horfa svo skælbrosandi og stolt til mín :-)
Það var rosa stuð í grillboðinu með stelpum og mökum úr born2001. Ég komst sko að því hvað það eru komnar margar nýjar tegundir af vínblöndum. Ég var nú ekkert að drekka mikið enda með Ingu Maríu á brjósti en fékk eina flösku af einhverju sem ég man ekki hvað heitir hjá Sirrý var Romm og appelsínusafi mmm mjög gott. Er samt bara 5, eitthvað % þannig að það er nú í fínu lagi að drekka smá af því :-) Hlakka til að smakka meira svona þegar ég fer að drekka aftur eftir svona ár eða svo :-) Síðast fyllerí hjá mér var 1. maí 1999 en þá var árshátið Stefju og ég fann svo út nokkrum dögum síðar að Kolla væri á leiðinni.
Annars ætlaði ég nú að skrifa um grillboðið ekki fyllerí :-) Maturinn var æðislegur og félagsskapurinn ennþá betri :-) Kallarnir okkar náðu bara mjög vel saman en þeir hafa sko aldrei hisst áður. Allavegana hef ég ekki skemmt mér svona vel lengi.
Ég fór með Ingu Maríu í skoðun fyrir viku síðan og var aldrei búinn að skrifa hingað inn stærðina á henni!!!
Allavegana þann 22. júlí var Inga María 8.690 gr og 70 cm. Þetta þýðir að hún er heldur að falla úr línunni sinni í þyngd og lengd en bæði helst samt í hendur og er hún núna mjög nálægt meðaltalinu. Hún borðar ennþá mjög mikið en ég þarf bara að vera dugleg að bjóða henni mat og svo drekkur hún náttúrulega endalaust brjóstið. Við eigum að mæta næst 10 mánaða þ.e. 20. september klukkan 13:00.
Annars er henni líka að fara mikið fram. Hún er farinn að skríða um allt en samt alltaf með annan fótinn undir sér eins og hún sitji á honum!! En hún kemst svona þangað sem hún vill. Svo segir hún mamma hátt og skýrt spurning hvort hún viti hvað það þýðir en hún segir allavegan orðið.
Hún stóð upp í fyrsta sinn í sumarfríinu fyrir vestan. Við vorum að þrífa bústaðinn og hún var að leika sér í rimlarúminu og stóð upp við rimlana. Mamma telur það náttúrulega vera augljósa sönnun þess að barnið þurfi að sofa í rimlarúmmi svo hún geti lært að standa mmm einmitt allt í lagi!!
Inga María er líka komin með tvær tennur sú seinni er ný komin upp. Hún var rosaóróleg fyrir ca viku síðan milli 12 og 4 um nótt (af hverju er svona alltaf um miðja nótt!!) og svo fékk hún hita á laugardag í einn dag (hæst í 38,4 stig) og enginn önnur veikindamerki svo ég kenni bara tönninni um það líka.
Ég varð að deila með ykkur þessari sögu mér fannst þetta ekkert smá fyndið.
Annar fórum við á fætur á okkar venjulega tíma (ég og Inga María klukkan hálf 8 Matti og Kolla letiblóð sváfu til hálf 9). Við stelpurnar vorum svo bara hérna heima til eitt og leifðum letiblóðinu að fara á bílnum í vinnuna. :-)
Ég fór svo með Kollu á róló um 1 og við Inga María erum hér heima að slæpast og kannski smá að reyna að taka til fyrir grillið á morgun. Eigum sko von á 11 gestum í grill hingað á morgun vinahópur minn með mökum svaka fjör og mig hlakkar mikið til.
Það er búið að vera nóg að gera hjá mér í dag. Ég fór í kaffi til Ásu ömmu og Stefáns afa en komst nú ekki á stað fyrr en rúmlega 3 þar sem Inga Maria ætlaði aldrei að vakna úr lúrnum sínum og svo loks þegar ég ætlaði að fara að vekja hana þá var Kolla sofnuð í sófanum!!! Hún er sko hætt að sofa á daginn. Ég leifði Kollu að sofa meðan ég vakti Ingu Maríu og klæddi hana í hrein föt
Matti sagði mér svo að tengdamamma ætlaði að kíkja í heimsókn um sex leitið. Tíbískt að allt gerist á sama degi :-)
Við fengum voða góðar rjómapönnukökur hjá ömmu namm namm. Flíttum okkur svo heim til að vera komnar heim fyrir sex en þá rétt misstum við af Stellu (tengdamömmu) svo hún ætlar bara að kíkja seinna.
Við hituðum okkur bara pitsu en Kolla borðaði nú varla neytt enda ný búinn að háma í sig pönnsur. Inga María borðaði aftur á móti vel af epla og sveskju mauki ekki blanda sem mér finnst spennandi en henni virtist finnast hún góð.
Kolla fór á róló í morgun eins og venjulega. Það er nú ekki mjög gott veður en ég setti hana í sumarútigallann sinn og pollabuxur og stígvél og við röltum út á róló og sulluðum í bollum eins og venjulega.
Um 11 var svo hringt í mig frá róló (komum þangað um 10) og þá hafði hún verið að skæla í sandkassanum og skalf eins og hún væri hrikalega kalt. Þær fóru með hana inn og létu hana sitja við ofninn inni hjá sér og hituðu henni um hendurnar með volgu vatni og ég fór og sótti hana. Hún var mjög þögul þegar ég kom sat bara stjörf á stólnum við ofninn og sagði ekki orð. Vinkaði konunum bara bless en sagði ekki bless eða sjáumst á morgun eins og hún gerir venjulega. Þegar við komum í búðina var samt eins og það hafi verið ýtt á on takkann á henni og þá kjaftaði á henni hver tuska eins og venjulega og hún var kát aftur.
Þegar við komum heim og ég klæddi hana úr stígvélunum þá sá ég að annar sokkurinn var rennandi blautur svo það er ekki skrítið að henni hafi verið kalt veslingurinn. Hún er nú samt alveg búinn að jafna sig og hámaði pastað sitt sem við keyptum út í búð í sig. En leiðinlegt að henni hafi orðið svona kalt.
Svo er ég að lesa umræðu um greinina á Babycenter og þar segir ein þetta:
"Just wanted to mention something about this article. I read the actual research paper that this article was based on and the researches openly admit to not actually PROVING anything. That they are basically theorizing based the results of this research but there wasn't enough definitive proof to make fact."
og ég las þetta ekki áður en að ég setti fram mínar athugasemdir bara svo það sé á hreinu :-)
Matti er alltaf að segja frá greinum sem hann les svo ég er að reyna að gera það líka :-)
Ég var að lesa þessa grein á vefnum
Lesið hana og segið mér hvað ykkur finnst ég sit mitt álit í framhaldið svo þið sjáið það ekki fyrr en þið eruð búinn að lesa greinina nema þið svindlið og skoðið það fyrst :-)
Ég ætla að byrja á að taka það fram að ég hef aldrei skilið að börn eigi að gráta og hef alltaf stefnt að því að mín börn gráti sem allra minnst. Sammt stuðar þessi grein mig og mér finnst rannsakendurnir (er það orð) vera að komast að niðurtöðu með skrítnum aðferðum. Að vísu verð ég að viðurkenna að ég hef ekki lesið rannsóknina sjálfa bara þessa grein og er því að draga ályktanir út frá blaðagrein sem er náttúrulega alltaf doldið varasamt.
"The Harvard researchers' work is unique because it takes a cross-disciplinary approach, examining brain function, emotional learning in infants, and cultural differences, according to Charles R. Figley, director of the Traumatology Institute at Florida State University and editor of The Journal of Traumatology."
Hvernig getur maður borið saman svo ólík samfélög sem USA og Kenea eru og dregið nokkrar skynsamlegar ályktanir út frá þeim. Hvernig tekur maður tillit til aðra menningaráhrifa sem geta verið ástæðan en ekki mis mikill grátur barna í þessum löndum.
Er þetta ekki doldið stór niðurstaða:
"The result, Commons and Miller said, is a nation that doesn't like caring for its own children, a violent nation marked by loose, nonphysical relationships."
Allavegana finnst mér þetta skrítið að geta dregið þessa niðurstöðu af svona einföldu atriði amerískar mæður láta börnin sín gráta meira en þær Kenísku enda er náttúrulega ekkert annað sem skilur uppeldi þessara barna að eða hvað!!!!
Þá held ég áfram sem frá var horfið og sett allt í meira af því það er svo langt.
Þriðjudagur 16. júlí:
Við fórum í sund á Suðureyri. Það var mjög gaman að fara í sund með stelpurnar ef frá er tekin ferð í og úr fötum og sturtur. Kolla hefur ekki farið í sund síðan síðasta sumar og Inga María hefur aldrei farið í sund. Kolla var hálfhrædd fyrst og hékk í mér en svo var hún farinn að hlaupa um alla laug (við vorum bara í barnalauginni þar sem hún botnaði). Inga María sullaði og sullaði með höndunum voða kát.
En það var samt alveg rétt ályktað hjá mér að ég gæti ekki farið ein með þær því ég og mamma áttum alveg í fullu fangi með að hugsa um þær þrjár í gegnum sturturnar og hræðslu við hárblásara!! Reyndar meiddi Áróra sig á leiðinni upp úr lauginni sem krafðist "náttúrulega" ómælds gráturs.
Miðvikudagurinn 17. júlí:
uuu man ekkert hvað við gerðum.
Fimmtudagur 18. júlí:
Pabbi og Stebbi fóru í ferðalag á látrabjarg en við mamma fórum með stelpurnar í gönguferð um Ísafjörð. Það var virkilega gaman að labba þar um og sjá öll gömlu húsin í miðbænum. Elsta húsið sem við sáum merkt var byggt 1853 sem sagt nokkuð gamalt og það voru mörg byggð fyrir 1900.
Þetta var eini dagurinn sem veðrið var gott og við sátum í garðinum eftir að við komum heim og slökuðum á og stelpurnar léku sér úti í góða veðrinu.
Föstudagurinn 19. júlí:
Fyrir hádegi fór í að klára að pakka og þrífa húsið og svo restin af deginum í að keyra heim.
Við Stebbi keyrðum af stað á undan mömmu, pabba og Áróru og þar sem að stelpurnar sváfu þá reyndum við að keyra eins langt og við gátum stemmdum bara á Hólmavík. Þegar við komum í Ísafjörð (sko fjörðin ekki bæinn) þá var Inga María orðin doldið pirruð svo við þorðum ekki annað en að stoppa áður en við færum upp á heiði. Við vorum búinn að vera að keyra í sól og góðu veðri en í Ísafirði var enginn sól og eiginlega bara rok og rigninga dropar (ekki mikil rigning). Við stoppuðum við eitthvað eyðibýli og komum okkur fyrir í laut undir stein og biðum eftir foreldrum mínum sem komu fljótlega en kvörtuðu samt mikið yfir því hvað við hefðum verið komin langt á undan þeim (það er ekki gsm samband í djúpinu).
Næsta stopp var svo í Hólmavík þar sem við fengum okkur aftur vöfflur á sama kaffihúsinu (ætli það séu nokkuð mörg þar hvort eð er!!)
Svo stoppuðum við í sjoppu sem ég man ekki hvað heitir og Kolla færði sig yfir til mömmu og pabba. Stebbi sagði að nú stoppuðum við sko ekkert fyrr en í Borgarnesi og við hin fussuðum yfir því að honum ditti í hug að við kæmumst það langt. Inga María var svo bara hin hressasta og hélt út alla leið til Borgarnes spes fyrir frænda sinn. Næsta stopp var svo eftir gönginn (Inga María þolir ekki göng það er alveg á hreinu) og þá var Inga María eiginlega búinn að fá alveg nóg og grét áfram eftir stoppið. Við stoppuðum einu sinni enn og svo sofnaði hún loksins 5-10 mín áður en við komum heim eftir væl en það var bara ekki hægt að vera að stoppa á 5 mín fresti alla leið frá göngum!!
Það var hrikalega gott að komast heim og ég fór sko snemma að sofa en kallinn minn mmmm hann kom ekki heim fyrr en klukkan 5 um morguninn af djamminu !!!
Jæja þá er best að ég setji niður nokkur orð um sumarfríið okkar til vestfjarða.
Þetta er svo mikið að ég setti það bara allt í framhaldið.
Föstudagurinn 12. júlí:
Við Matti stilltum klukkuna á 7:15 of ætluðum sko að vera lögð af stað úr bænum klukkan 8 en nenntum nú ekki alveg strax á fætur og svo tekur alltaf allt lengri tíma en það á að gera svo við vorum víst ekki kominn af stað fyrr en 9 og þá áttum við eftir að koma við á bensínstöðinni og bæta lofti í dekkinn á bílnum. Við lögðum sem sagt af stað úr bænum klukkan 9:30 og foreldrar mínir lögðu af stað doldið á eftir okkur eflaust um 10.
Fyrstu öskur dagsins byrjuðu í Hvalfjarðargöngunum og stoppuðum við því á bílastæðinu Akranesmeginn við gönginn og ég gaf Ingu Maríu að drekka. Við keyrðum svo áfram til Borgarness þar sem við stoppuðum og biðum eftir foreldrum mínum. Við keyrðum svo heldur lengra inn Borgarfjörðinn og stoppuðum og borðuðum hádegismatinn. Inga María byrjaði að dotta (loksins var ekkert búinn að sofa) þegar við vorum alveg að fara að stoppa og borða!! Það var virkilega huggulegt að sitja og borða nestið inn á milli trjánna.
Eftir hádegismatinn sofnuðu báðar stelpurnar svo við gátum keyrt góðan spöl. Við stoppuðum svo í Hólmavík (eflaust eitthvað þarna á milli man þetta ekki alveg) og fengum okkur vöfflur með rjóma en Matti fékk sér gulrótarköku og þá minnstu sneið sem sögur fara af en þeir hafa kannski frétt að hann á að vera í aðhaldi :-)
Svo fórum við á galdrasafnið sem var áhugavert.
Við keyrðum svo áfram bara Ég, Matti og Inga María því hinar stúlkurnar voru búnar að færa sig í ömmu og afa bíl. Inga María sofnaði fljótlega svo það var rosa rólegt hjá okkur hjónunum og ferðin gekk vel frá Hólmavík, ég fékk meira að segja að keyra síðasta spölinn örugglega góðan klukkutíma :-) og stóð mig bara nokkuð vel nema þegar ég svínaði fyrir aumingjamanninn sem var að reyna að fara fram úr mér !!
Það var rosalega gott að komast í húsið á Súðavík um 7 leitið eftir hrikalega langa keyrslu. Stebbi og Matti skutluðust yfir á Ísafjörð og sóttu pitzu handa okkur og við slökuðum á eftir erfiðann dag.
Laugardagur 13. júlí:
uuu ég man alls ekki hvað við gerðum þá !! En við fórum allavegana að versla í matinn á Ísafirði og fengum okkur ís í sjoppunni á móti Samkaupum. Gott ef það var ekki þá sem við löbbuðum yfir í gamla bæinn (á Súðavík) og skoðuðum grunnana af húsunum sem fórust í snjóflóðinu ferlega óhuggnalegt.
Ó jú á laugardeginum keyrðum við til Bolungarvíkur og stoppuðum á einhverju minjasafni og Kolla datt beint á andlitið á stein (hvernig gat ég gleymt þessu) og grét heilmikið og var vönkuð fyrst á eftir. Við létum því kíkja á hana á spítalanum á Ísafirði. Það var í lagi með hana sem betur fer en við (lesist ég pabbi hennar vaknaði ekki þó ég sparkaði fast og á endanum fór ég bara sjálf uuu annað hvert skipti hvað!!! ) þurftum að vekja hana á 2 tíma fresti alla nóttina. Hún var ferlega syfjuð og skildi alls ekki þetta vesen á mér en það var allavegana í fínu lagi með hana.
Sunnudgur 14. júlí:
Við fórum á Sæluhelgi á Suðureyri og skemmtum okkur vel. Keyrðum á Flateyri og skoðuðum varnarmannvirkið þar, ótrúlegt mannvirki.
Mánudagur 15. júlí:
Við slökuðum aðalega á og keyrðum svo Matta á flugvöllinn um 4 það var nú ferlega leiðinlegt að horfa á eftir honum fara heim án okkar uhu :-(
Jæja ég held áfram með þetta á morgun ætla að fara að sofa núna
Matti var að skamma mig fyrir að hafa ekki skrifað síðan 9. júlí !!! mér finnst nú ekki svona langt síðan en jæja ok
Við vorum að borða rosa gótt lambalæri sem snillingskokkurinn á heimilinu matreiddi. Tengdaforeldrar mínir og Diddi voru í mat mmm namm namm.
Ég fer með Ingu Maríu í 8 mánaða skoðun á morgun og skal lofa að skrifa meira á morgun er þetta þá ekki nóg í bili elsku Matti minn :-)
Inga María sofnaði án þess að hafa brjóstið upp í sér í fyrsta sinn jibíí þá er bara spurning hversu lengi hún sefur því oftast sefur hún bara 30 mín í fyrstu lotu. Þetta tókst með svona 3 mín kvarti og þegar ég var akkurat að fara að hugsa nei nú ætlar hún að fara að grenja almennilega (ekki bara kvörtu væl) þá hætti hún :-)
Allavegana eru þetta mikil framför og tókst með hjálp Elísabeth Pantley.
Inga María er búinn að sofa hræðilega lítið í dag. Fyrst voru nágrannar okkar að láta háþrýstiþvo (gera við) þakið hjá sér og byrjaði sá hávaði stuttu eftir að lúrinn hennar Ingu Maríu byrjaði. Hún svaf því bara í 15-20 mín í morgun. Svo eftir hádegi fórum við í heimsókn til Heiðu og Töru og Inga María sofnaði á leiðinni þangað en harðneytaði að sofa áfram í vagninum!! Þannig að hún svaf aftur í ca 20 mín eftir hádegi (sofnaði rétt áður en við komum í vinnuna til Matta að láta hann fá tölvuna sína og svo á meðan við keirðum upp í Garðabæ til Heiðu).
Það var voðagaman að hittast hjá Heiðu enda alltaf gaman að hitta stelpurnar. Eva og Halldóra komu líka með stelpurnar sínar. Kollu fannst hundurinn og kanínann skemmtilegust. Hún var mikið að vesenast og leika við hundinn (ótrúlega þolinmóður hundur) og svo þegar við vorum að fara uppgötvaði hún kanínuna sem þau hafa lausa í garðinum hjá sér og það var nú ekkert smá sport. Kolla var alveg til í að eiga heima í garðinum hjá þeim og fannst ekkert mál þó að mamma myndi ekki eiga heima þar með henni!!
Núna eru báðar stúlkurnar sofnaðar og ég ætla að fara að fá mér meiri pitzu að borða namm namm.
Ég hef verið voða löt að skrifa hef ekkert skrifað í viku!!
Ég náði mér í einhverja hálsbólgupest og var með hátt í 39 stiga hita á fimmtudagskvöldið en hef svo verið nokkurnveginn hitalaus síðan en finn ennþá vel til í hálsinum en það lagast vonandi fljótlega.
Næsta föstudag erum við stelpurnar að fara til Súðavíkur með mömmu, pabba og Stebba. VIð ætlum að vera þar í viku og hafa það rosalega gott. Matti kemmst eflaust ekki með uhu en stebbi ætlar að keyra með mér svo ég verði ekki ein í bílnum með stelpurnar og svo segist hann ætla að keyra stóra hluta af leiðinni svo við komumst hraðar en 60 og verðum ekki viku á leiðinni skil ekki hvað drengurinn á við!!
Inga María er búinn að sofa hrikalega illa síðustu nætur og mér er virkilega farið að langa í góðan nætursvefn. Kolla svaf líka illa í nótt enda er hún rosalega kvefuð og með eitthvað í eyrunum. Spurning að bíða samt og sjá til hvernig hún sefur næstu nótt þannig að hún geti unnið á þessu sjálf áður en maður fer að fá pensilín handa henni.
Við áttum fína helgi. Matti fór ekkert í vinnuna á laugardeginum sem var voðalega notalegt :-) Við þrifum sófann sem var í bílskúrnum hjá mömmu og pabba búinn að ætla að gera það mjög lengi en komum því sem sagt loksins í verk. Það tók okkur kannski 15-20 mín þegar við komum okkur loks að verki!!! Fluttum svo sófann heim til okkar og svo skruppum við stelpurnar í afmælisboð til Karitasar frænku. Skemmtum okkur vel í afmælinu og Kolla borðaði yfir sig af nammi og bleiku skrauti ofan af kökunni :-)
Í gær lágum við svo bara í leti um daginn Matti að vinna eins og venjulega eftir leikinn. Borðuðum svo góðan mat hjá Stellu og Ásgeir líka eins og venjulega sem sagt bara voða hefðbundinn sunnudagur rólegur og góður.