June 28, 2002
Tönn

Ég fann fyrstu tönnina hennar Ingu Maríu áðan :-)
Ég var nú búinn að sjá fyrir ca viku að það var hvít doppa undir gómnum en tönnin var þá ekki búninn að sprengja upp góminn en var greinilega komin vel upp að gómnum. Núna er tönnin sem sagt komin í gegn og mér sýnist vera stutt í tönnina við hliðina á. Þetta er tönnin hægra meginn (frá Ingu Maríu séð) í neðri góm.
Ég fór í saumó í gærkvöldi til Nadíruh og skildi Ingu Maríu eftir heima hjá Matta!!! Matti var nú hálfkvíðinn yfir orgunum sem hann var viss um að kæmu fljótlega eftir að ég færi. Inga María svaf fyrst í 1 klst eins og hún gerir alltaf en svo vaknaði hún og Matti tók hana niður og hún steinsofnaði í fanginu á honum eftir 10-15 mín og svaf þar þangað til ég kom heim. Hún vaknaði nú samt eiginlega um leið og ég kom fann greinilega mömmu lyktina og vildi koma í fangið á mér. Það var voða gaman í saumó og gott að fara aðeins út barnlaus :-)

Posted by gydaa at 09:53 AM
June 27, 2002
Fallegur dagur

Yndislegt veður í dag. Stelpurnar vöknuðu hálf 7 annan daginn í röð!! En þær voru svo þreyttar og pirraðar líka, skil ekki afhverju þær sváfu þá ekki bara lengur!!
Ég fór því að gera þær tilbúnar í rólóför um 8 og vorum við lagðar af stað út úr húsi hálf 9. Þær lagast nú strax í skapinu við að koma út er alltaf svoleiðis. Kolla vildi alltaf hlaupa sem mér fannst nú óþarfi akkurat þegar ég var að reyna að labba rólega út á róló enda opnar rólóinn ekki fyrr en 9. Ég tók því krókaleið með hana en við vorum samt komnar út á róló rétt fyrir 9. Kollu fannst nú bara mjög gaman að vera fyrst og hjálpa konunum að fara út með dótið. Hún burðaðist með fullt fang af fötum og skóflum hæstánægð.
Áróra kom svo heim til að vera hjá okkur í dag svo hún þurfi ekki að hanga ein heima hjá pabba sínum.
Í hádeginu fórum við svo á Klambratún með Matta í lautarferð. Það var alveg yndislegt veður og auðvitað mjög góðar samlokur sem ég smurði handa okkur :-) ok ok Matti hefðu verið betri ef ég hefði munað eftir ostinum :-)
Núna erum við komnar heim dauðþreyttar eftir lautarferðina. Inga María sofandi úti í vagni og Kolla og Áróra að horfa á Harry Potter DVD mynd inni í góða veðrinu!!!
Annars hefur Kolla ekkert pissað aftur í koppinn harðneytar því!!

Posted by gydaa at 03:17 PM
June 26, 2002
Róleg stund

Þá er kominn róleg stund hjá mér :-) Alltaf svo notalegt þegar Kolla er á róló og Inga María sefur og meira að segja er Áróra hjá pabba sínum þannig að ég er hér alein. Ætli mér muni kannski leiðast ;-)
Kolla pissaði tvisvar í buxurnar í gær en bara einu sinni í koppinn þ.e. strax um morguninn. Höldum áfram að æfa okkur samt enginn spurning :-) Hún fer bara í þrjóskukast öðru hvoru og vill ekki pissa í koppinn og pissar þá bara í buxurnar!!
Stelpurnar úr born2001 klúbbnum mínum komu í heimsókn í gær. Voðahuggulegt og alltaf jafn gaman að hittast. Ég bakaði gulrótarköku og svo átti ég osta frá því að við vorum með grillboð fyrir ca mánuði síðan, gleymdum sko að bera þá fram um kvöldið!!
Í dag er líka sól og rosa fínt veður úti æ vonandi fara að koma fleiri svona dagar ég er orðin hálfleið á þessu leiðinlega veðri sem hefur verið síðustu daga. Hef verið að kappklæða Kollu greiið á róló!! En í dag fór hún bara í lopapeysu og strigaskóm mikið betra (ja reynar er hún líka í sokkabuxum svona til öryggis)
JÆja ætla að fara og fá mér heitt te og restina af gulrótarkökunni mmmm namm namm svo finnst manni skrítið að maður grennist ekki ha!!!

Posted by gydaa at 09:45 AM
June 25, 2002
Piss

LOKSINS LOKSINS :-)
Litla stóra stelpan okkar pissaði í koppinn. Fyrst kom oggu lítið piss og hún kallaði á mig (ég var frammi í eldhúsi) að sjá. Ég hrósaði henni mikið og við fórum að sturta pissinu niður í klósettið og hún fékk nammi að launum. Svo fórum við stuttu seinna upp að láta renna í baðið hennar (ég tók koppinn með) og eftir smá stund inn á baði með rennandi kranann þá þurfti hún að pissa. Hún settist á koppinn og pissaði alger hetja. Henni fannst þetta nú mjög merkilegt :-) Lá við að hún stingi nefinu ofan í bununa til að skoða. Við heltum þessu pissi líka í klósettið og Kolla sturtaði niður. Hún hringdi svo í pabba til að monta sig af því hvað hún hafði verið dugleg stelpa.
Svo fór hún í baðið og mmm það gekk ekki alveg eins vel. Ég fór með Ingu Maríu inn í Kollu herbergi að leifa henni að leika sér þar og að sækja náttföt á Kollu. Á meðan heyri ég rembingshljóp í Kollu. Ég fór til hennar og sagði hvað er Kolla að gera!!! Pissa í baðið sagði hún voða púkaleg á svipinn. EN nei þetta var sko ekki neitt piss heldur tvö væn stykki. Ég mátti því gjöra svo vel að kippa henni og dótinu hennar úr baðinu og þrífa baðið :-)
Svo í morgun pissaði hún aftur í koppinn þannig að nú vona ég að þetta sé bara að koma allt saman.

Posted by gydaa at 09:55 AM
June 22, 2002
Fyrstu 10 dagar í svefnvinnu!!

Þá eru fyrstu 10 dagarnir komnir eftir að við byrjuðum að vinna með aðferðir Elzabeth Pantley.
Ég er á póstgrúbbu fyrir foreldra að vinna með svefn barna sinna eftir þessari aðferð og er búinn að eyða rúmlega klst að koma yfirliti yfir síðustu 10 daga niður á blað með pælingum í bréfi til þeirra. Ég ætla því bara að afrita bréfið yfir í þessa dagbók nenni ómögulega að skrifa þetta allt aftur. Þeir sem eiga í vandræðum með að lesa ensku verða þá bara að bíta í það súra :-)
Það eru samt einhver internets orð þarna og þau sem ég man eftir í fljótu bragði eru:
dh= dear husband
NCSS= No-cry sleep solution (bókin sem við erum að fara eftir)
GR= gentle removal
ég set svo bréfið sjálft í framhaldið þ.e. ýtið á "lesa alla færsluna" hér að neðan til að lesa það.

Hi
We started the NCSS 10 days ago and I wanted to go over the last 10 days with you. Sorry this is very long.
6.11.02
Naps: 10-11 am, 3-4 pm and 5:30-6 pm
Night:
Went to bed at 8:33 and was a sleep 8:52. Fell a sleep nursing but with GR.
Woke up 9:16 crying and was back to sleep 9:27
Woke up 10:28 crying and was back to sleep 10:38
Woke up 23:22 complaining and back to sleep 23:43
The rest of the night I was to tired to keep doing the log but woke up a lot during the night ( I remember 4:30 and 6:30 but that was not the only waking). I did not nurse her at every waking but when I did not she woke up again few min later.
Woke up for the day 7:38

6.21.02
Naps: 10:15-10:45 am and 1:55-2:30 It is very unusual for her to nap this bad. She will usually nap total of 3 hours in two naps.
Night:
Went to bed at 8:50 (we started to go to bed at 8 but she needed a new diaper in the end of our routine witch explains the late bed time). Fell a sleep nursing with little GR ( I forgot and she was almost asleep when I remembered it!!)
Woke up 9:35 crying and was back to sleep 9:45. She well a sleep nursing with GR.
Woke up 10:55 complaining and was back to sleep 11:10. She fell a sleep nursing with GR.
Woke up 11:30 crying and went to sleep nursing with GR. The reason for her waking up was my dh (not so dear) making comments of my bad housekeeping and him cleaning up the kitchen not very quietly!! Since I went to bed angry I forgot my paper and pen downstairs and did not want to go down again to get them!!
But the good part is since she sleeps better I am better able to remember when she woke up. She woke up every 2 hours. 1:30, 3:30,5:30 and then she was up for the day at 7:15

For the last ten days she have once sleept 4 hours in the beginning of the night and waking up 30 min after she first go down to sleep is happening less and less and she will usually sleep one hour in the beginning. Before we started she always woke up 30 min after going to bed and every 30-60 min after that. We are very happy with this first 10 days of NCSS.

What we have been doing and I would like some comment on this part if anyone is still reading :-)
Develop a bedtime routine: We did not have a bedtime routine and never have for my middle girl (my perfect sleeper) but half way in to the 10 days I started with it. Bath (if bath day), new diaper, pyjamas, tell the family still awake goodnight (usually only my 10 year old since dh is working most nights), read one book and nurse laying in bed.
Early bed time: We where already going to bed at 8-8:30 pm and we have been keeping up with that part. I usually put my toddler to bed first so I can have time to concentrate on the baby. I don't thing this is a problem for us.
Follow a flexible yet predictable daytime routine: Having a toddler and a baby makes this not a problem for us. We already have our day pretty much in a routine especially until about 2-3 pm but if we need to go out that is usually the time witch have made the second nap a problem sometimes. Going out can be a problem at my house since the baby will nap 10-11:30 and the toddler will nap 1-2:30 and the baby will nap again 3-4:30.
Introduce a Lovey: We have been doing that since starting the NCSS. We have a teddy bear and I have been trying to keep it between us when we nurse but when doing the GR she will often through it away. I have seen her sleep hugging it though since I always place it next to her after she falls a sleep.
Make night sleeping different from daytime naps: The baby naps in the stroller doing the day and is not nursed to sleep but I am walking around with the stroller. At night she sleeps on her crib mattress next to our mattress. We have taken our bed apart an know sleep on the mattress on the floor and I thing this was one thing that made us all sleep better. More space for everyone and not waking up with the noise of the bed. We took our bed apart few days in to starting the NCSS.
Develop key word as a sleep cue: I have been saying the key words at the first wakening of the night (before I go to bed).
Use music or sound as sleep cues: We have not been doing that. And I don't really like this idea for us that is. At least it will be something we will wait to try unless everything else falls :-)
Change your baby's sleep association: We have been doing the GR but I am a little worried that I am not really teaching her this. I will unlatch her and she will start to complain right away. She never open her eyes unless I wait really long. She will root for the breast and complain. After few complains and rooting I have been nursing her again for 10-60 sec depending on how relaxed she is and I wait if I have a letdown. In the end I am afraight she is to asleep to be learning this but she usually will roll on to her other side (turning her back to me) so she is not complaitly asleep. Do you thing this is enough ore do I need her to complain for longer time (she will usually not cry hard at least not right away)?
Help your baby to fall back to sleep on his own while you continue to breastfeed and co-sleep. This is what we are working at and with taking the bed apart and putting the crib mattress next to ours she is not sleeping as close to me like she used to and I thing that is helping. She used to sleep in our bed next to me.
Help your baby fall back to sleep with another person assistance: This is not an option for us right know. My dh is working 12-14 hours a day until October but if she is still not sleeping through at that time we might use this option.
Sorry for this to be so long but it at least helped me to write it down and I would appreciate a comment on it if you have any.

Gyda
Daughters:
Arora 3. June 1992
Kolla 6. January 2000
Inga Maria 16. November 2001
http://www.gmaki.com

Posted by gydaa at 11:13 AM
June 21, 2002
Koppurinn

Ég hef verið að reyna að fá Kollu til að pissa í koppinn með engum árangri til þessa. Í gær prufaði ég að láta dúkkuna pissa í kopp (laumaði vatni ofan í koppinn hennar) og síðan fékk dúkkan nammi að launum. Kolla var mjög hissa yfir pissinu sem fór í koppinn hjá dúkkunni og ánægð fyrir hennar hönd að fá nammi en varð svo rosafúl að fá ekki líka nammi. Í morgun vildi hún aftur að dúkkan pissaði í koppinn og fengi nammi. Dúkkan pissaði og fékk rúsínu. Kolla vældi svo og vældi og vildi fá nammi en ekki rúsínu. Svo vildi Kolla líka fá nammi en pissaði ekki í koppinn samt. Hún vældi svo og vældi yfir að fá ekki nammi!!!!!
Held ég haldi þessari aðferð ekki áfram takk fyrir.

Posted by gydaa at 11:35 AM
June 19, 2002
Vinkona Kollu

Kolla hefur oft verið að tala um einhverja Móu sem hún leikur við á róló. Ég var ekki alveg viss hvort hún væri að bera nafnið vitlaust fram því þetta er nú ekki alveg venjulegt nafn. Ég stakk upp á Lóa við Kollu en hún varð bara reið og sagði nei MÓA. Í dag spurði ég svo konurnar á róló hvort að það væri einhver Móa þar sem hún léki sér við og jú jú það stemdi það er stelpa á róló sem heitir Móa og þær leika oft saman :-) Ætli þetta sé þá ekki stytting á Móheiður eða eitthvað slíkt en gaman að Kolla sé búinn að eignast vinkonu á róló.

Voðalega er kalt úti í dag. Ég klæddi Kollu greiið í útigalla, húfu, vetlinga og trefil það mætti halda að það væri janúar en ekki júní!! Það var samt fínt að koma henni á róló þar sem hún hefur ekki farið í fjóra daga vegna langrar helgar og svo var svo mikið rok í gær.

Inga María var alltaf að vakna fyrrihluta nætur. Svo datt mér í hug að kannski væri henni kalt þar sem að hún sparkar alltaf af sér sænginni og hún var bara í samfellunni. Hún svaf náttúrulega alltaf alveg þétt upp við mig og því vön að vera ekki í meiru en núna er hún á sinni dýnu svo fær ekki hita frá mér. Ég klæddi hana í náttföt og þá svaf hún til sjö (hátt í fjórir tímar) aumingja stelpurófan henni var bara skítkalt!!!

Posted by gydaa at 10:57 AM
June 18, 2002
17. júní og veðrið

Við fórum í bæinn í gær á 17. júní en ekki hvað!! Við fórum í hálfleik á leiknum hans Matta þannig að við vorum komin niður í bæ um hálf eitt en skrúðgangan átti ekki að byrja fyrr en korter í tvö. Matti fór beint í vinnuna svo mér datt í hug að tékka á mömmu þar sem ég vissi að hún var að vinna. Hún kom með okkur á Italíu og fengum við borð við gluggan þar rosa heppnar. Við horfðum á fornbílana keyra niður laugaveginn meðan við borðuðum. Eftir matinn stóðum við fyrir utan Italíu og horfðumá skrúðgönguna þaðan. VIð hittum svo Kötu og Eyjólf og röltum áfram um bæjinn með þeim. Það var allt troðfullt af fólki og erfitt að komast áfram með kerruna en við áttum svo sem ekki von á öðru. Krakkarnir skemmtu sér vel en Inga María svaf voða stutt og Kolla svaf ekkert þannig að þær voru alveg búnar á því rúmlega fjögur. Þannig að þá röltum við bara í vinnuna hans Matta og vorum komin þangað um hálf fimm. Kolla steinsofnaði í bílnum og gátum við ekki vakið hana þegar við komum heim!! Matti sat með hana og reyndi að tala við hana en hausinn lá bara niður á bringu og hún rumskaði ekki í dágóðan tíma :-)
Borðuðum svo fína hamborgara og settum stelpurnar í rúmið og fórum sjálf svo allt of seint að sofa :-) æ maður verður að njóta þess að hafa kallinn heima einstaka sinnum ja reyndar var ferðatölvan líka heima :-)
Í dag er hræðilega vont veður á að vera 15-20 m/s og er eflaust eitthvað slíkt núna. Ég fór því ekki með Kollu á róló vonandi kemst hún á morgun við erum allar skapvondar af að hanga svona inni allan daginn.

Posted by gydaa at 10:28 AM
June 16, 2002
7 mánaða

Litla snúllan mín er 7 mánaða í dag rosalega líður tíminn hratt.
Hún svaf bara mjög vel í nótt ja sko miðað við hana fólk sem á börn sem sofa allar nætur finnst þetta eflaust ekki góður svefn en á okkar heimili er hann það. Hún byrjaði nóttina á tæplega fjögra tíma lúr sem er sko rosa rosa langur tími hjá henni. Restina af nóttinni svaf hún í tvo tíma í senn sem er líka fínt. Ég er því úthvíld í dag.

Þegar hún var að fara að sofa í gær velti hún sér á dýnunni sinni. Önnur hendin var reyndar ennþá undir henni og hún velti sér svo aftur á bakið en það er sama hún velti sér samt :-) Rosadugleg mmm börn byrja nú yfirleitt að velta sér 3-4 mánaða en kva við erum ekki að velta okkur (he he) upp úr svoleiðis smá munum. Hún var líka svo fljót að fara að sitja að hún hefur voða lítið viljað liggja til að æfa sig að velta verður bara fúl að vera lögð niður en ekki sett í sitjandi stellingu!! Þá er bara næst að læra að skríða og púff það má alveg bíða :-)

Posted by gydaa at 11:21 AM
June 15, 2002
Matti heima

Jæja ætla að skrifa um eitthvað annað en svefn :-) Annars er ég ótrúlega hress núna er miklu betur hvíld þegar ég vakna á 30-60 mín fresti heldur en þegar hún sefur betur!!! Skrítin er ég.

Í gær kom Matti heim klukkan sjö og borðaði kvöldmat heima vííí en hvað ég naut þess að hafa kallinn minn heima einu sinni svona snemma. En fyndið að fyrir þetta kröns hefði mér sko ekki þótt að koma heim klukkan sjö vera að koma snemma heim en hva þegar maður er orðin vanur að hann komi heim að verða 11 þá er þetta snemma :-)
Ég keypti voða fínt kjöt í kjötborðinu út í búð og pulsur handa stelpunum :-) Ég grillaði svo pulsurnar og gaf stelpunum að borða rétt fyrir sjö og við hjónin borðuðum svo um níu eftir að yngri stúlkurnar tvær voru komnar í rúmið og eyddum svo restinni af kvöldinu í að spila baldurs gate.

Posted by gydaa at 09:34 AM
Aðfaranótt 15.júní

Ég veit aldrei hvað ég á að setja í fyrirsögn á þessari nýju dagbók sem verður að hafa fyrirsögn!!

Kolla var rosalega erfið í nótt sem er nú ekki vaninn. Hún vaknaði í gærkvöldi um það leiti sem við vorum að sofna og gat ekki sofnað aftur og endaði með að koma upp í til okkar og svaf illa alla nóttina. Hún sefur núna inn í stofu stelpurófan. Vonandi er hún ekki að veikjast því hún vaknar yfirleitt ekki á nóttinni ef svo er ekki.

Inga María vaknaði á 30-60 mín fresti í alla nótt og svo um fimm vaknaði hún og vildi bara alls ekki sofa meir. Þar sem að Kolla var upp í hjá okkur og loksins sofnuð þá var ég að reyna að halda Ingu Maríu hljóðri og gat ekki ignorað hana eins mikið og ég gerði síðustu nótt þegar hún lét svona. Matti fór svo að horfa á fótbolta rúmlega sex og tók hana fram með sér og ég fékk þá að sofa til uuu átta held ég man það ekki alveg. Svo er Matti að leggja sig núna.

Í gær tókum við rúmið okkar í sundur. Það brakar alltaf svo mikið í því og það pirrar mig svo í öllum þessum næturvökum. Kosturinn við þetta er líka sá að við tókum dýnuna hennar Ingu Maríu og settum hana við hliðina á okkar rúmi og ég ætla að reyna að venja Ingu Maríu við að sofa þar svo við fáum meira pláss í okkar rúmi og svo er þetta líka eitt að þeim ráðum sem Pantley er með í bókinni sinni. Ég held að ástæða þess að hún svaf svona illa í nótt miðað við síðustu tvær nætur sé að hún þekkti sig ekkert þegar hún vaknar og verður hálfhrædd og þarf mömmu til að hugga sig. Vonandi venst hún þessu nýja um hverfi fljótt og við getum öll farið að sofa betur.

Posted by gydaa at 09:26 AM
June 14, 2002
nóttinn

Síðasta nótt gekk betur. Inga María er farinn að sofa í lengri lúrum á kvöldin allavegana. Það eru þá komin tvö kvöld sem hún hefur ekki vaknað nema 2-3 frá átta til miðnættis. Hún svaf líka í lengri lúrum í nótt en þegar hún vaknaði þá ætlaði hún aldrei að sofna aftur sem er sko ekki vaninn. Venjulega fær hún sér smá sopa og steinsofnar en hún bara vakti og skríkti og reyndi að brosa til mín og fíflast. Tosa í hárið á pabba sínum að fá hann til að vakna og fíflast!! Ég endaði með að snúa í hana baki og lá þannig dágóða stund þar til að hún var búinn að fá útrás fyrir fíflaganginn og fékst til að kúra og sofna. Þetta gerði hún tvisvar og var örugglega vakandi í 30-60 mín í hvort skipti!!
Ég er þess vegna alveg hrikalega þreytt í dag. Eiginlega ennþá þreyttari heldur en eftir að vakna 10 sinnum.

Posted by gydaa at 02:34 PM
June 13, 2002
Síðast nótt

Jæja síðasta nótt gekk nokkuð vel. Inga María svaf mjög vel í gær dag. Fyrri lúrinn var einn og hálfur tími og sá seinni rúmlega tveir tímar. Hún vaknaði svo "bara" ca 7-8 sinnum á timabilinu 8-7. Gallinn var samt sá að hún og Kolla reyndar líka heimtuðu að fara á fætur klukkan sjö. Yndislegi eiginmaðurinn minn fór á fætur með þeim og ég svaf til átta mmmm notalegt.
Kolla er núna kominn út á róló og Inga María sefur úti í vagni og Áróra er að leika sér með Harry Potter legó dótið. Ég er því að njóta þess að sitja í tölvunni í friði í stað þess að vera úti í þessu æðislega veðri!!!

Posted by gydaa at 09:59 AM
June 12, 2002
Svefn

jæja Matti var að skamma mig fyrir að vera ekki nógu dugleg að skrifa hérna. Það er alveg rétt hjá honum :-) Ég er búinn að vera voða upptekinn af svefninum hennar Ingu Maríu sem er ekki mjög góður. Ég hef samt ekki skrifað neytt um það hér hingað til þar sem að ég hef fyrir löngu síðan lært að ræða sem minnst við aðra um hluti sem mig langar ekki að fá álit þeirra á!!! Sumum finnst þetta kannski ekki fallega sagt en svona er það samt :-) Ég er búinn að lesa svo allt of mikið um barnauppeldi og svefn barna þar á meðal og hef svo ákveðnar skoðanir á þeim málum að ég nenni yfirleitt ekki að opna umræðu um það við fólk. Barnauppeldi er nefnilega ekki síður heit umræða heldur en trúabrögð og þá sérstaklega ef þú hefur ekki "hefðbundnar" skoðanir í þeim málum.

Matti sagði nú að ég ætti bara samt að skrifa um þetta og jæja hérna kemur það þá. Ykkur er velkomið að spyrja mig út í þetta en ekki að rökræða það við mig :-)

Inga María sem sagt vaknar mjög oft á nóttinni. Hún svaf mjög vel fyrstu ca 2-3 mánuðina en hefur sofið illa síðan. Ég myndi segja að klst flokakðist undir langan svefn hjá henni!! Ég er svo sem ekki óvön svona barni þar sem að Áróra var svona líka en þar sem að ég og mínar skoðanir hafa breytst mikið á 10 árum þá nota ég ekki sömu uppeldisaðferðir á þær tvær.

Áróra orgaði sem sagt heila nótt á pabba sinn (ég fór yfir í stofuna og svaf þar) þegar hún var 8 eða 9 mánaða. Þessi org nótt virkaði reyndar til að minnka næturvökurnar en hún tók brjóstið aldrei aftur eftir þessa nótt og hún hélt áfram að vakna 1-2 sinnum til 6 eða 7 ára aldurs. Það sem að ég sé að þessari aðferð er sem sagt að í mínum huga er illa farið með barn að láta það orga á þennan hátt jafnvel þó að pabbi sé hjá því (en að vísu mikið mikið betra en að það sé eitt). Í öðru lagi er brjóstagjöfin fyrir barn undir 1 árs í mínum huga mjög mikilvæg og jafnvel mikilvægari en svefninn minn. Í þriðja lagi þá finnst mér vafamál að þetta hafi verið endanleg lausn þar sem hún hélt næturvökunum áfram fram eftir öllum aldri þó það hafi ekki verið í miklu mæli.
Þær kenningar sem uppi eru um lausn á svefnvandamálum barna hafa aðalega skipst upp í tvo flokka. Svefnfræðignar sem mæla með að þú látir börnin grenja og þeir sem segja að lengri svefn komi með aldrinum og þú þurfir bara að gjöra svo vel og bíða þar til barnið er tilbúið jafnvel þó það taki 6-7 ár. Að mörgu leiti hef ég fundið mig meira í seinni flokknum en á meðan maður er að vakna 10-20 sinnum á nóttu þá eru 6-7 ár ansi langur tími :-) ok reyndar eru flest börn farinn að sofa betur um 2-3 ára aldurinn en það er samt helv. langur tími.

Núna mjög nýlega (allavegana á þessu ári stendur ekki inn í bókinni nákvæmlega hvenær) kom Elizabeth Pantley út með bók sem heitir The no cry sleep solution og eins og hún segir sjálf þá gat hún ekki hugsað sér að bíða í nokkur ár eftir að 1 árs gamli drengurinn hennar færi að sofa betur. Hann er fjórða barnið hennar og var að vakna að minnsta kosti 10 sinnum á nóttu á þessum aldri en eldri systir hans fór t.d. ekki að sofa almennilega fyrr en um 2 og hálfs árs. Hún ákvað að sætta sig ekki við að það væru bara til þessir tveir valkostir (þ.e. gráta eða bíða) og hóf að búa til sitt kerfi. Mér líst rosalega vel á bókina hennar og er sem sagt að byrja að nýta mér hennar aðferðir til að reyna að bæta svefninn hennar Ingu Maríu. Ég byrjaði á því að halda dag(eða réttarasagt nætur)bók um svefninn hennar. En það var erfiðara en ég hélt!! Ég gat ómögulega haldið mér vakandi til að bíða eftir að hún væri sofnuð almennilega svo ég gæti skrifað niður klukkan hvað hún vaknaði og hversu lengi hún hafi verið vakandi og hvað ég hafi gert til að svæfa hana. Þannig að dagbókin mín er sem sagt tóm eftir 11 jæja ég veit samt að hún vaknaði fullt eftir það er það ekki nóg :-)

Ég er líka að reyna að venja hana á það sem Pantley kallar lykilorð sem eru orð sem þú endurtekur aftur og aftur til að róa þau. Maður á sem sagt að segja orðin fyrstu vikurnar meðan börnin eru róleg svo þau tengi það við ró en svo á seinna að vera hægt að nota þau til að róa þau. Sjáum til hvort að það virkar eftir einvherjar vikur.

Næst er ég að reyna að kynna hana fyrir bangsa til að hafa sem svona huggi dýr í staðinn fyrir mömmu. Pantley mælir með að maður láti bangsann kúra á milli okkar meðan hún drekkur og skilji það svo eftir hjá henni til að kúra meðan hún sofnar. Ingu Maríu fannst þetta mjög fínn bangsi og vildi bara liggja og leika með hann en ekki kúra hann og sofna!!! Jæja það tekur kannski smá tíma að venjast því líka bjóst svo sem ekki við öðru.

Í þriðja lagi ætla ég svo að stytta tímann sem hún drekkur svo hún læri að sofna án brjóstsins síns. Það er gert þannig að þegar hún er svo til alveg sofnuð er brjóstið tekið út úr henni. Ef hún fer að væla fær hún brjóstið aftur í smá stund og svo er það tekið af henni aftur og endurtekið eins oft og það tekur hana að sofna. Ég hef reyndar aldrei beðið eftir að hún sleppi brjóstinu sjálf hef ekki þolinmæði í það en ætla sem sagt að vinna í að taka það af henni fyrr.

Þarna hafi þið sem sagt það sem ég hef verið að velta mér upp úr síðustu daga. Ég gæti auðveldlega skrifað margar blaðsíður um þetta efni þ.e. ef ég ætti ekki þrjár stelpur sem trufla mig stannslaust svo það tekur langan langan tíma að skrifa t.d. þetta :-) en ég hætti bara hér og fer að sinna þeim frekar.

Posted by gydaa at 04:01 PM
June 10, 2002
Afgangahittingur

Þetta er búinn að vera voða góður dagur. Kolla fór á róló í morgun eins og venjulega og Inga María svaf svo. Ég hjálpaði þá Áróru að laga Harry Potter púslið sem kolla hafði skemmt fyrir henni í morgun.
Um hádegi fórum við svo og sóttum Kollu og stelpurnar fengu að fara út í búð og kaupa sér jógúrt að eigin vali. Um tvö komu svo Sirrý, Eva Mjöll, Ragga og börnin þeirra í afganga frá afmælinu hennar Áróru. Afgangarnir kláruðust svona nokkurn veginn allavegana hendi ég bara þessu litla sem eftir er. Alltaf jafn gaman að kjafta við stelpurnar og svo leika krakkarnir sér svo maður þarf ekki að hafa ofmikið fyrir þeim. Arnar Leó og Daníel fóru út að leika og leifðu Kollu að vera með sér þannig að ég þurfti lítið að hafa fyrir henni á meðan og hún skemmti sér vel. Enda gaman að vera með stóru strákunum :-)
Núna sit ég og bíð eftir að Matti minn komi heim en hann sagði mér rétt áðan á msn að hann væri að leggja af stað víí gaman að sjá hann svona aðeins áður en maður fer að sofa!!

Posted by gydaa at 10:16 PM
Helgin

Þá er þessari annasömu helgi lokið púff það er nú gott!!
Á laugardaginn fór ég í hádegiskaffi til mömmu og pabba eftir að hafa bakað tvo marensbotna um morguninn og tekið smá til. Svo fór ég aftur heim eftir að hafa borðað og drukkið kaffi og bakaði restina af kökunum. Mamma passaði stelpurnar á meðan þ.e. Kollu og Ingu Maríu en Áróra var hjá pabba sínum. Ég var alveg á fullu allan tímann og kom til baka til mömmu og pabba um hálf sjö (fór sko um 3). Inga María vældi á þau stórann hluta af tímanum þannig að þau slást örugglega ekki um að passa hana :-) Um leið og ég kom inn fóru þær báðar að væla (voru sko að leika rólegar við mömmu á gólfinu ) en jöfnuðu sig fljótt og voru voða góðar. Við fórum svo heim og borðuðum pulsur sem mamma gaf mér og svo fóru stelpurnar að sofa og ég að taka til. Það er ótrúlegt hvað þessar stúlkur eru fljótar að drasla út því það var allt þrifið daginn áður!! ja reyndar var eldhúsið á hvolfi eftir baksturinn hjá mér sjálfri. Kannski taka það fram að Matti var í vinnunni allan daginn og fram eftir kvöldi strák greiið.
Á sunnudag kláraði ég baksturinn og að setja á og skreita kökur. Matti fór í vinnuna eftir að hafa útbúið rosa gott eggjabrauð, beikon og steikt restsina af pulsunum og borðað það með okkur. Mamma kíkti svo á mig um hádegi og þreif eldhúsið og tók til (já tók til aftur ég sagði ykkur að stelpurnar mínar væru afkastamiklar í að drasla út!!) og fór svo heim um hálf þrjú að skipta um föt. Pabbi kom líka með fullt af stólum og passaði Kollu meðan ég labbaði smá hring með Ingu Maríu svo hún sofnaði í vagninum sínum. Áróra, Dóri, Hrund og stelpur komu svo rétt fyrir þrjú svo Áróra gæti skreitt barnakökuna alveg sjálf enda gerir hún það svo vel.
Í afmælið komu fullt af gestum og allir virtust skemmta sér vel. Krakkarnir voru bæði úti og inni og fullorðnafólkið svo sem líka enda rosalega heitt úti. Áróra fékk fullt af fínum gjöfum og meira að segja pakka númer tvö frá of mörgum :-) en henni fannst það nú ekki verra. Ég var alveg uppgefinn eftir að gestirnir fóru og við hjónin fórum bæði snemma í rúmið.
Matti ætlaði svo að vakna klukkan 6 í morgun en var ennþá við hliðina á mér þegar ég vaknaði klukkan 8!!! Alger svefnburka og hann fór svo ekki í vinnuna fyrr en um 9 uss uss letimaður er þetta og sleppti World class. :-)

Posted by gydaa at 11:22 AM
June 07, 2002
Þrif ofl

Jæja núna er búið að þrífa allt hjá mér mmm það er svo þægilegt :-) Mamma og pabbi eru búinn að vera úti þannig að hún kom til mín og þreif fyrir afmælið hennar Áróru.
Ég var voðalega slöpp í gær og var eiginlega hætt við að fara til Sirrýjar eins og ég var búinn að segjast ætla að gera. En Sirrý dreif mig bara á stað og það var mjög fínt. Alltaf gaman að kjafta ja og svo var nú ekki verra að borða slatta af eplaköku :-)
Í gærmorgun fórum við til eyrnalæknisins til að kíkja í eyrun á Kollu. Þetta var bara rútínu skoðun eftir rörin en enginn sýking eða neytt slíkt. Kolla kjaftaði bara við læknirinn og eyrun á henni voru fín og rörin lágu vel þannig að allt lítur vel út. Vonandi hittum við því læknirinn ekkert fyrr en í desember en þá er næsta tékk.
Í dag var sem sagt þrifið hjá mér og svo var ég að undirbúa afmælið hennar Áróru. Setti niður og keypti í kökurnar og kláraði að bjóða gestunum. Við buðum 28 fullorðnum og 9 börnum!! Hvernig haldi þið að fermingarveislan verði.
Þetta verður í boði í veislunni:
Tartalettur 40 stk
Eplakaka 2 stk
Skúffukaka svona barnaafmæliskaka
Brauðtertur 3 stk Ein með rækjusalati, ein með skinkusalati en mig vantar góða uppskrift af skinkusalati svo endilega setjið inn hugmyndir af því í coments takk og sú þriðja er óákveðin en þá.
Brauðréttur eins og ég hef alltaf!! 2 stk
Marens nammi kaka að hætti Sirrýjar 2 stk
Finnst ykkur þetta nóg fyrir 28 fullorðna og 9 börn?
Jæja þá ætla ég að fara að lesa bókina sem ég var að fá frá Amazon

Posted by gydaa at 08:30 PM
June 05, 2002
Einkunnir

Áróra var að fá einkunnirnar sínar voða fínar.
Íslenska 8,5
Lestur 9
Ljóð Ágætt
Skrift Gott
Stærðfræði 9,5
Kristinfræði Gott
Samfélagsfræði Ágætt
Náttúrufræði Ágætt
Grafík Ágætt
Myndmennt Gott
Saumar Ágætt
Íþróttir 7
Sund IV stig
Lífsleikni Ágætt
Tónmennt Ágætt

svo er umsögnin: Duglegur og getumikill nemandi. Vinnur vel í tímum. Skapmikil!!

Rosa fínar einkunnir en bara halda áfram að bæta stjórninni á skapinu ekkert sem kemur á óvart svo sem.

Posted by gydaa at 11:16 AM
slöpp :-)

Æ ég er ferlega slöpp ennþá þó að ég sé ekki með hausverkinn sem ég var með þegar ég fór að sofa púff sem betur fer.
Stelpurnar eru að borða morgunmat og svo fer Kolla á róló og Áróra og Hrafnhildur að sækja einkunnirnar sínar. Vonandi sefur Inga María svo vel svo ég geti slakað vel á.
Hvernig lýst ykkur annars á þetta nýja dagbókarkerfi? Núna geti þið skrifað koment á það sem ég skrifa endilega skrifið eitthvað það er svo gaman :-)

Posted by gydaa at 08:54 AM
June 04, 2002
fyrsta færslan í nýrri dagbók

Jæja Matti er að kenna mér að nota nýja dagbókarkerfið en ég er með svo mikinn hausverk að ég læri þetta bara betur seinna.
Góða nótt

Posted by gydaa at 11:50 PM
Þetta er bara búinn að

Þetta er bara búinn að vera ágætis dagar. Veðrið hefur verið alveg rosalega gott í dag. Matti fór ekki í vinnuna fyrr en um níu og svo fór ég með Kollu á róló. Inga María svaf nú ekki nema hálftíma þannig að það var ekki mikil afslöppun hjá mér og Áróra reyndar alltaf heima núna líka. Kolla vildi svo ekkert leggja sig þannig að hún var ansi þreytt og erfið á köflum og Inga María svaf líka bara í hálftíma í einu þrisvar sinnum sem er nú ekki mikill svefn fyrir svona lítið barn.
Það átti að koma til mín maður frá Sjóvá að skoða húsið út af Húseigendatryggingunni en hann hefur ekki látið sjá sig!!! ótrúlegt.
Stebbi bróðir sótti svo ömmu og afa um kaffileitið og komu þau í kaffi til okkar í góða veðrinu. Ég hafði skroppið í bakarí og keypt vínabrauð og snúða sem hurfu ofan í fólkið. Amma fór með Kollu í smá göngutúr en Kollu datt í hug að stinga af eins og hún gerir orðið ansi oft við mig. Henni finnst eitthvað sniðugt að hlaupa í burtu og aumingja amma gat náttúrulega ekki hlaupið á eftir henni. Við vorum dágóða stund að finna hana en hún var að leika sér á rólónum fyrir neðan húsin!! Veit ekki hvað ég á að gera við þennan stinga af orm. Hún eyddi svo þó nokkrum tíma eftir að þau fóru organdi yfir því að fá ekki að vera úti eftir rólóferðina.
Stebbi borðaði svo kvöldmat með okkur og hann sá líka um að grilla kvöldmatinn. Að vísu þurfti gashylkið akkurat að klárast í miðri eldamennskunni en ég skaust út á bensínstöð og reddaði því.
Hrafnhildur vinkona hennar Áróru er svo hérna líka og ætlar að gista. Þær eru að koma sér í háttinn smá saman stelpurnar tekur sinn tíma eins og vill oft verða þegar vinkonur gista saman.
Matti fer rétt bráðum að koma heim úr vinnunni bara búinn snemma í kvöld mmm klukkan tíu!! Jæja 120 dagar eftir af krönsi.

Posted by gydaa at 11:14 PM
June 03, 2002
Jæja þá er ég búinn

Jæja þá er ég búinn að koma stelpunum í rúmið Kolla er nú ekkert á því að sofna og Inga María fer að verða búinn með hálftímann sinn (vaknar sko alltaf eftir að sofa í hálftíma fyrst eftir að hún sofnar). Matti greiið er ennþá í vinnunni síðan fyrir 8 í morgun fór héðan rúmlega 6 í morgun. Mér finnst ég vera voðaleg einstæð móðir og verð það víst fram í október uhu jæja bara 121 dagur eftir þar til þessu krönsi þeirra CCP manna líkur.

Posted by gydaa at 11:11 PM
Við erum búinn að eiga

Við erum búinn að eiga góðan dag.
Stelpurnar vöknuðu um átta (greinilega vitlaust styllt klukkan á dagbókinni því það sem ég skrifaði í morgun var skrifað 7:50 ekki 8:50) og Kolla færði Áróru pakkann sinn frá okkur og við sungum fyrir hana. Kolla fékk líka pakka sem Stella amma hennar hafði keypt handa henni. Ég pakkaði honum í alveg eins pappír og Áróru pakka. Áróra fékk Harry Potter legó kastalann frá okkur og erum við því bestu foreldrar í heimi :-) Hún var sem sagt mjög ánægð með pakkann sinn. Svo fékk hún líka pakka frá Stellu og Ásgeir. sem í var bolur og buxur og Harry potter myndaalbúm. Hún fékk svo líka flíspeysu frá Ingu ömmu.
Kolla fór svo á róló og Áróra dundaði sér með kastalann sinn.
Um hádegið hittum við svo Stellu, Ásgeri, Jónu Dóru og Þórð á Hard rock. Það var virkilega gaman að fara þangað og borða eins og alltaf. Áróra var mest spennt yfir að láta syngja fyrir sig og Kolla var sko rosa hissa yfir stjörnuljós ísinum hennar Áróru og söngnum hjá þjónunum. Kolla og meira að segja Inga María fengu svo líka ís (Inga María fékk nú samt ekki að borða sinn og mamma hennar ekki nema smá af vanilluhlutanum en Þórður græddi) en við hin fengum kaffi sem við þurftum reyndar að bíða doldið eftir. Vonandi voru Stella og Ásgeir því ekki allt of sein aftur í vinnuna. Við skemmtum okkur alla vegana allar vel.
Þegar við komum heim var Kolla yfir sig þreytt. Fyrst ætlaði ég ekki að láta hana leggja sig því klukkan var orðin svo margt en eftir að hún gerði ekkert nema væla þá fór ég með hana í rúmið og hún vældi smá þar og steinsofnaði svo.
Áróra fékk því klst í viðbót í friði með kastalann sinn. Eftir lúrinn skruppum við svo heim til mömmu og pabba að taka póstinn frá dyrunum og vökva blóm þannig að Áróra fékk smá frið í viðbót.
Núna er Áróra farinn út að borða með pabba sínum og fjölskyldu og fóru þau á Mcdonalds en þangað langaði Áróru mest. Kolla er aftur á móti að horfa á Mikka mús og Inga María að lúra þannig að það er best að ég fari að setja upp matinn í stað þess að hanga hér.

Posted by gydaa at 06:57 PM
Áróra er 10 ára í

Áróra er 10 ára í dag!!!
Hún er nú reyndr sofandi ennþá og Kolla líka það er bara Inga María sem vildi endilega fara á fætur klukkan 7 ég hefði sko alveg þegið að sofa lengur. En jæja sit hérna með tebolla og hún að leika sér í göngugrindinni svo ekki get ég kvartað.
Við fórum í afmæli til stelpna Auðar og Sverris í gær (þ.e. ég, Kolla og Inga María) það var mjög fínt. Gaman að sjá hvað stelpurnar eru orðnar stórar og að hitta fólk sem ég hef ekki séð lengi. Inga og Matthías sem voru að dansa með okkur komu líka og hún heitir Inga María hrikaleg fannst okkur það sniðugt :-) og maðurinn hennar Matthías. Þau eiga svo von á barni í ágúst. Kolla skemmti sér mjög vel að leika við krakkana þurfti sko ekkert að hafa fyrir henni.
Jæja þolinmæði Ingu Maríu búinn í grindinni ja eða sko hún er að skemmta sér við að henda öllu af sófaborðinu!! og ég ekki byrjuð á teinu mínu jæja best að hætta í tölvunni.

Posted by gydaa at 08:50 AM
June 02, 2002
Jæja þá er kominn sunnudagur

Jæja þá er kominn sunnudagur ooo þeir eru alltaf svo notalegir. Venjulega er það nú af því að ég fæ að sofa út en manninum mínum fannst ég búinn að sofa nóg klukkan hálf níu!!! Spurning hvort að honum finnist hann vera búinn að sofa nóg hálf níu þegar HM er búið mmmm!!! En jæja nú sit ég hér með kaffibolla (kaffi en ekki te af því að það er meira koffín í því og mig langar svo í kók!!) og Inga María er sofandi úti í vagni og Kolla að horfa á barnatímann hérna við hliðina á mér. Matti er að horfa á England - Svíþjóð og vinna í tölvunni sinni hann er svo duglegur þessi elska.
Inga María er orðin voðalega dugleg að stíga í fæturnar sínar, hún stendur nú ekki lengi en pompar á rassinn þegar hún fær nóg. Ég var að reyna að sýna henni hvernig maður getur haldið í borðið í gær en hún skildi nú ekkert hvað ég átti við og lamdi bara í borðið eins og trommu. Kollu finnst líka rosalega gaman að tjútta við hana og vill alltaf að ég sé að láta Ingu Maríu tjútta. Ingu Maríu finnst það nú líka gaman en samt bara í hófi sem er ekki alveg það sem Kolla hefur í huga :-)
Stór dagur á morgun þegar stelpan mín verður 10 ára. Hugsa sér að fyrir 10 árum lá ég á meðgöngudeildinni og var að safna saman þvagi uuuu það er nú notalegra að sitja hér :-) Annars er bráðum 10 ára stelpan mín hjá Hrafnihildi hún gisti þar í nótt.

Posted by gydaa at 11:16 AM