Ég fékk nú bara hálftíma næði í morgun. Fór svo að sækja Kollu og við ákváðum að rölta og sækja Áróru í skólann því hún var búinn klukkan 12 í dag. Við gerðum það og fórum svo í bakarí og settumst niður á túninu hjá kirkjunni og borðuðum. Kolla hljóp samt aðalega um og týndi fífla en borðaði mjög lítið af brauðinu sínu. Konan í sjoppunni við hliðina á bakaríinu tuðaði nú yfir því að ég væri að láta hana strauja kort fyrir einni kók nú jæja ég skal bara versla annars staðar svo ég trufli hana ekki með kortinu mínu aftur!!
Við fórum svo á bókasafnið og stelpurnar lituðu og skoðuðu bækur og ég skoðaði líka bók. Tókum svo eina bók hver með okkur heim. Setti Kollu í hvíld og Inga María var að sofna úti í vagni svo smá hvíld hjá mér sem fer nú að vísu mest í að svara Áróru!!
Ví Inga María sofnaði hálf 11 þannig að ég fæ smá næði með tebollanum mínum núna :-) Er bara að bíða eftir að vatnið sjóði.
Inga María vaknaði rétt rúmlega 6 í morgun ekki við miklar undirtektir móður hennar, skil ekki afhverju!! Hún sofnaði samt loks aftur 7 og ég náði þá 20 mín áður en að klukkan hringdi til að koma Áróru af stað. Stuttur dagur hjá Áróru í dag. Skólinn er búinn hjá hennni klukkan 12 í dag og á morgun. Þetta var síðasti dagurinn minn til að vakna með henni í skólann þennan veturinn vííí (hún er skohjá pabba sínum í fyrramálið) en reyndar hefði það ekki skipt miklu máli í morgun þar sem að Kolla kallaði í mig ca 1 mín á undan klukkunni en þær sofa samt oft til 8 um helgar svo vonandi fer ég að sofa til átta hér heftir mmm það væri notalegt. Inga María svaf nú til næstum níu eftir að vaka svona í morgun þannig að hún var sármóðguð þegar ég ætlaði að láta hana leggja sig eins og venjulega um 10 enda nývöknuð. Hún situr því hérna og leikur sér á gólfinu hjá mér enginn notaleg stund hjá mér í dag einni með tebolla!!
Við áttum voða fínann dag í dag. Kolla fór á róló í morgun kát og hress. Ég var pínu kvíðinn eftir gær daginn því hún talaði um strákinn sem sló hana í allan gærdag. Eftir hádegið fórum við svo í húsdýragarðinn með Sirrý, Heiðu, Evu Mjöll og börnum. Það var voðagaman að fara í húsdýragarðinum. Kolla skemmti sér virkilega vel. Við borðuðum pulsur og svo fengu krakkarnir kremkex. Kolla lék í klifrugrindinni. Hún er orðin miklu frakkari að príla í henni (barnakastalanum ekki stóra skipinu) og renna sér niður rennibrautina. Við skoðuðum svo dýrin. Hænunum leist mjög vel á kexið hennar Kollu og voru orðnar svo ágengar að Kolla var orðin dauðhrædd og vældi í mér að halda á sér. Það var nú voðalega fyndið þó að Kollu greiinu hafi nú ekki fundist það :-)
Við löbbuðum svo til Ingu ömmu og stoppuðum stutta stund hjá henni. Hún var hress en þekkti mig nú ekki. Fannst samt voðalega gaman að sjá stelpurnar og var mjög ánægð að heyra að þessar stelpur væru barnabörn Gunnu hennar :-)
Núna er Matti farinn að sofa og ég sit hérna í ferðatölvunni hans jibíí voða fjör :-) samt voðalega erfitt að pikka á hana því ég rekst alltaf í músina og bendillinn fer þá eitthvert allt annað en hann á að vera!! Jæja Law and Order er að klárast svo best að ég fari að sofa líka
Góða nótt
Tölvan mín fraus í dag þegar ég var að senda langa dagbókarfærslu með öllu um síðustu daga. Sjáum til hvað ég nenni að skrifa núna ég var nefnilega hálftíma í morgun að skrifa það sem týndist!!
Föstudagur:
Þá kom Dagbjört og þreif mmm yndislegt að koma heim í allt hreint og fínt og hreingernignarlyktina á móti sér!! Ég fór og keypti strigaskó og stígvél á Kollu á meðan. Kolla óx nefnilega upp úr gömlu stígvélunum á einni nóttu!! Hún hafði verið í þeim í ullarsokkum en svo næsta dag kom ég henni ekki í þau nema án ullarsokka. Við mælingu á fótnum á henni kom stærð 24 en allir skórnir hennar eru númer 23 þannig að það er ekki nema von að þeir hafi verið of litlir. Reyndar virðast Steinar Waage skórnir frá mömmu vera fínir á henni ennþá þó þeir séu nr 23.
Laugardagur:
Tengdaforeldrar mínir komu og tóku Kollu með sér um 3 leitið og þá röltum við Matti og Inga María að kjósa í góða veðrinu. Það var erfitt að fara inn aftur og undirbúa komu gestanna. Matti fór samt í eldhúsið þessi elska á meðan konan hans fór í sturtu og að hafa sig til!!! Það var síðan virkilega gaman að hitta alla og bara allt. Maturinn hepnaðist vel og allir náðu vel saman og ég held bara að allir hafi skemmt sér vel allavegana skemmti ég mér mjög vel :-) Kolla kom heim um níu og var sko ekkert smá ánægð að sjá fullt að gestum. Hún náttúrulega lék á alls oddi og söng og hoppaði um kát að fá fullt af athygli. Hún ætlaði nú aldrei að sofna og eftir að hún var búinn að liggja í rúma klukkustund og kalla og kalla og ótal ferðir foreldra hennar að rétta henni duddur sem hún henti um allt herbergi þá lagðist Matti hjá henni í smá stund og þá náði hún loks að slaka á og sofnaði á fáeinum mínútum.
Sunnudagur:
Ásgeir og Stella sóttu Kollu um hádegið svo hún væri ekki að hanga í afmælisgestunum. Þau skutluðu líka Áróru heim frá pabba sínum en hún var búinn að vera þar síðan á fimmtudag og reyndar búinn að vera fárveik á laugardeginum. Sem betur fer var hún heldur hressari á sunnudeginum en samt ennþá með hita. Hún gat samt notið afmælisins þannig að allt fór vel. Áróra skreitti fínu kökuna sína með Harry Potter dóti og kom það mjög vel út. Það mættu 11 krakkar af 21 sem var boðið og fannst okkur það nú doldið lítið þar sem að enginn hafði afboðað sig!! Við áttum því nóg af pitsu afgöngum. Krakkarnir virtust skemmta sér vel og allt fór vel fram. Kolla skemmti sér mjög vel með Ásgeri og Stelllu en þau fóru í heimsókn til Ásmundar og Hörpu. Allir voru sem sagt mjög ánægðir með þessa helgi en doldið þreyttir samt.
Í gær var Áróra heima að jafna sig eftir veikindin en Kolla ég og Inga María fórum í lautarferð með Sírrý, Heiðu, Halldóru og dætrum (þ.e. dætrum þeirra allra ekki bara dætrum Halldóru!!). Við hittumst heima hjá Sirrý í Ásahverfinu í hafnarfirði og löbbuðum svo í áttina að vatninu sem er þarna rétt hjá. Þetta var nú ekki mjög auðveld ganga. Fyrsta lagi voru göngustígarnir úr möl og erfitt að ýta tvíburavagninum í gegnummölina þannig að ég endaði með að draga hann. Svo endaði göngustígurinn sem við völdum þannig að við komumst ekki áfram með vagnanna. Við urðum því að snúa við og völdum annan göngustíg og hættum svo við það en nenntum ekki alla leið til baka til að fara þriðju leiðina og fórum sem leið lá yfir gras, holt og hóla :-) Það var því mjög notalegt að setjast niður og borða nestið okkar. Kolla var búinn að hlaupa um allt og ég oft á eftir henni svo hún færi nú ekki of langt frá okkur og til að hinar þyrftu nú ekki að bíða of mikið. Meðan við borðuðum nestið okkar og kjöftuðum hljóp hún um allt og aðstoðaði fólk sem var að vinna við að planta trjám rétt hjá okkur. Samt spurning hvort að fólkinu hafi fundist mikil hjálp í henni en hún skemmti sér allavegana vel :-) Við vorum svo fljótar að labba til baka því við fórum aldrei mjög langt frá heimili Sirrýar fórum aðalega bara í einvherja hringi sko!!
Mánudagur:
Stebbi kom svo í mat í gærkvöldi og hjálpaði okkur að borða meira af pitsunum og pulsur líka reyndar enda heimilisfólkið orðið doldið leið á pitsum!!
Í morgun á róló var einhver strákur að hrekkja Kollu og lamdi hana með bíl og aðra stelpu líka. Hún hágrét þegar ég sótti hana (hafði gerst stuttu áður) og rólókonan sagði mér að hin stelpan hefði fengið voða mikinn sand í augun en Kolla hefði samt meitt sig líka. Kolla er svo búinn að tala um þetta í allan dag aftur og aftur. Strákur má ekki slá Kollu segir hún aftur og aftur upp úr þurru. Vonandi verður hún ekkert skelkuð að fara á róló á morgun. Við erum svo búnar að vera doldið úti í garði í dag og bara dunda okkur úti og inni.
Inga María að væla svo ég hætti hér.
Lífið er bara í sínum hefðbundna vanagangi hjá okkur ekkert merkilegt að gerast svo sem. Stelpurnar úr börn2001 grúbbunni komu í kaffi til mín í gær sem er alltaf voða gaman. Þannig að ég var með gesti frá hálf 2 til hálf 6 fljótur að líða sá dagur. Svo erum við að fá gesti um helgina. Fyrst koma vinir Matta og frúr í mat á laugardagskvöldið og í kostningasjónvarpspartý og svo er afmæliboð fyrir bekkjarsystkyn Áróru á sunnudaginn. Nóg að gera hjá okkur um helgina. Annars er ég svo heppin að konan sem þrífur hjá mömmu og pabba ætlar að koma hingað á morgun að þrífa í staðinn fyrir þeirra hús, lúxus líf hjá heimavinnandi húsmæðrum!!
Jæja þá er fjögra daga helgi lokið hjá okkur (Matti var í fríi á föstudaginn). Rosalega er erfitt að vakna aftur og koma sér í rútínuna sína uuu geisp geips en það verður gott þegar maður er kominn af stað í rútínuna samt. Við erum búinn að hafa það voða notalegt um helgina. Við fórum í kringluna á föstudeginum. Fengum okkur að borða á Hardrock og svo verslaði ég mér brjóstahaldar og bók fyrir inneignarnóturnar mínar á samt en þá eftir 10.000 frá afmælinu mínu ætli það þíði að ég eigi að fara að drífa mig að léttast um eitt númer svo ég geti keypti mér buxur eða að ég eigi að sætta mig við að kaupa mér buxur í þeirri stærð sem ég er!!! Við fórum svo í rúmfatalagerinn og keyptum borð og stóla í garðinn okkar. Á laugardeginum komu mamma og pabbi hingað í kaffi og við borðuðum úti á nýja borðinu og sátum á nýju stólunum voðalega fínt. Klukkan 6 fórum við svo í útskriftarveislu til Óttars (manns Jónu Dóru systur Matta). Borðuðum fullt að kræsingum og kjöftuðum. Kolla var alveg í bananastuði í veislunni og söng og dansaði fyrir alla helst út á miðju gólfi. Á sunnudeginum lágum við í leti (sumir meira en aðrir!!) og eftir heilan dag af því er fjölskyldan yfirleitt orðin létt (eða ekki mjög létt) pirruð og því var einstaklega gott að komast út til Stellu og Ásgeirs í kvöldmat. Fílann fór af fjölskyldunni um leið og í bílinn var komið. Á mánudag fórum við í húsdýragarðinn. Veðrið var voðalega hlýtt og því fínt útiveður. Stelpurnar skemmtu sér þrælvel bæði að skoða dýrin og í klifri kastölunum. Þær fóru líka í þessa fínu coco puffs lest þar sem lestarstjórinn var enginn annar en Einar hennar Kibbu. Okkur fannst það nú pínu fyndið að sjá strák um tvítugt keyra hring eftir hring á 5 km hraða einhvernveginn ekki að sjá draumastarfið fyrir hann (fyrirgefðu Einar minn ef þú lest þetta þú stóst þig mjög vel :-)
Dagarnir eru nú komnir í ágætis rútínu hjá okkur. Kolla fer á róló á morgnanna og svo leggur hún sig og svo förum við út að leika okkur. Inga María sefur á morgnanna meðan Kolla er á róló og svo aftur eftir hádegi. Mamma labbaði til okkar í dag og við vorum leiðar í garðinum og Inga María þurfti að sofna svo við löbbuðum á móti henni. Við lengdum nú doldið göngutúrinn hjá henni því ég vildi alltaf finna göngustíga án trappa upp brekkurnar því það er svo erfitt að koma tvíburavagninum upp tröppur. Vonandi komst hún alla leiðina heim samt :-)
Ég fór svo á kaffihús í kvöld í Smáralindinni. Voða huggulegt kaffihús og gaman að kjafta við stelpurnar en ekki hvað!! Inga María var þokkaleg hjá pabba sínum ekkert meira en það skilst mér vældi doldið á hann en þau voru að horfa á stubbana þegar ég kom heim.
Það var nú ekkert voðalega hlýtt í gær en þar sem við höfum farið út eftir lúr í nokkra daga þá vildi Kolla náttúrulega gera það. Við klæddum okkur bara vel og fórum út. Ég klóraði smá í beð og Kolla lék sér. Inga María var fyrst inni með Áróru og Hrafnhildi sem voru að læra heima en kom svo út til okkar.
Við fórum svo í RV að kaupa bleijur en gekk ekki betur en svo að ég gleymdi veskinu heima!!! Maðurinn á kassanum geymdi vörurnar mínar meðan ég skutlaðist heim eftir veskinu og svo fórum við og sóttum Matta í vinnuna. Þvílíkur lúxus að hann var búinn að vinna klukkan 5!!! Vonandi heldur Davíð áfram að fara í ræktina með honum svo hann geti farið svona snemma.
Áróra var með eina holu og þarf að koma aftur til tannlæknisins 21. maí þetta er í fyrsta sinn sem það þarf að gera við eitthvað hjá henni. Henni kvíður doldið fyrir sprautunni sem er skiljanlegt. Það voru líka teknar myndir af tönnunum til a sjá hvort hún þurfi tannréttingar þegar hún eldist og hvenær hægt sé að byrja á þeim. Niðurstaðan var sú að hún þarf tannréttingar en fyrst þurfa fjórar fullorðins tennur að koma niður og læknirinn spáir því að þær komi ca 12 ára og fyrr er því ekki hægt að byrja tannréttingarnar. Hún mun því örugglega vera með spangir á unglingsárunum einmitt það sem pabbi hennar var hræddur um því að hann þurfti þess og vildi forða henni frá því. En skil ekki af hverju þar sem að hann eignaðist svo góða kærustu á unglingsárunum og einmitt með spangir þá :-Þ
Við erum búinn að hafa það voða fínt í dag. Fórum í mömmumorgun upp í kirkju í morgun eftir að vera búinn að leika okkur hér heima í rólegheitum í morgun. Stelpurnar léku sér og ég moppaði og tók til uppi og gekk frá fullt af þvotti. Þær eru báðar sofandi núna lúxuslíf. Áróra er svo að fara til tannlæknis á eftir en vonandi helst sólin svona fín og þá getum við farið út að leika okkur í garðinum á eftir þegar Kolla vaknar.
Yndislegt veður úti. Kolla farinn á róló og Inga María sofandi mmm og fuglarnir syngja úti er hægt að hafa það betra!!
Við erum búinn að eiga voðalega góða helgi. Í gær fórum við til mömmu og pabba í hádeginu eins og venjulega og svo fór Matti á Players að horfa á Liverpool og skruppum við stelpurnar í Smáralindina á meðan. Ég var alger bjáni og gleymdi að taka veskið mitt með mér og Kolla grét nú mikið yfir því að það skildi kosta í Barnalandið og við komumst því ekki þangað inn!! Við fórum samt í Skífuna og Kolla fékk að hlusta á lög með heyrnatóli og horfa á stráka spila tölvuspil, voða gaman. Svo fórum við í Eymundsson og skoðuðum bækur og hún fékk að fara í bílinn fyrir utan hagkaup (svona bíll sem maður setur pening í til að hann hreyfist). Hún hefur aldrei prófað að hann hreifist svo hún var hin ánægðasta að vera í honum án þess að ég væri með pening. Svo sóttum við Matta og fórum heim í garðinn okkar. Það var yndislegt veður í garðinum. Mér hafði fundist svo mikið rok þangað til ég kom heim til okkar því það er svo skjólsælt í garðinum okkar. Nágrannar okkar voru búinn að leigja vélklippur og klipptu trén á milli garðanna bæði sín megin og okkar megin fyrir okkur og svo klippti Matti niður rósarunnann og ég vann í beðunum. Stelpunum fannst líka voða gaman að leika sér í garðinum. Matti fór svo í fótbolta en ég grillaði hamborgara fyrir okkur Kollu alveg sjálf, hrikalega dugleg en reyndar skrúfaði ég vitlaust fyrir gasið!! en Matti lagaði það þegar hann kom heim.
Í dag svaf ég út eða sko til hálf 11 voðalega notalegt. Við fengum okkur svo hádegismat og Stella, Ásgeir og Þórður komu til okkar að lána okkur sög. Matti, Þórður og Ásgeri söguðu svo niður 2 aspir í garðinum okkar og grófu upp stofninn af rósatrénu. Hrikalega duglegir!! Þau fóru svo á siglfirðingakaffi en ég og Matti héldum áfram að vinna í garðinum á meðan stelpurnar sváfu. Ég er búinn með tæplega hálft blómabeðið og Matti sópaði saman öllum greinum og laufblöðum og fór með allt draslið á sorpu. Við kíktum svo í Garðheima og síðan í mat til Stellu og Ásgeirs. Voð borðuðum rosalega góðan lax og silung mmm namm namm.
Kolla fór út á róló í dag hress og kát. Það er yndislegt veður og eiginlega er ég hálfhrædd um að Kolla sé of mikið klædd hjá mér!! Jæja betra að fækka fötum en að vera kalt. Þegar við komum á rólóinn þá fór hún beint í sandkassann og vildi fyrst að við mokuðum saman. Ég sagði bara nei Kolla moka með krökkunum, þá fann hún skóflu og rétti strák hana og þau fóru að moka saman og hún sagði svo bara bæ mamma :-)
Inga María er voðalega kvefuð greiið stelpan vonandi gengur það yfir sem fyrst. Við erum svo að fara heim til Ingu á eftir að hitta fullt af krökkum og mömmum voða gaman.
Ég fór á árshátið hjá mömmuhóp sem ég er í á laugardagskvöldinu. Það var rosalega gaman. Stelpurnar byrjuðu reyndar daginn í bláa lóninu en ég og Inga María hittum þær svo í hafa sig til partíi sem var mjög gaman. Ég og Sirrý skutluðum svo Ingu Maríu heim og fórum svo og hittum restina af stelpunum á veitingastaðnum. Við fengum rosa fínan mat og svo er bara svo gaman að fara út með góðra vina hóp. Fórum á Nasa eftir matinn en ég fór heim eftir ca 20 mín þar (plús 15-20 mín í röð fyrir utan Nasa) því Inga María var alveg hoppandi ill við pabba sinn. Hann stóð sig mjög vel heima með hana og ég kom sem sagt ekki heim fyrr en klukkan 1 þannig að það var svo sem alveg kominn tími til að halda heim :-)
Að öðru leiti er helgin búin að fara í leiðindarmál (sem ég ætla ekkert að fara frekar í svona á hálfopinberum vettfangi) í öðrum mömmuhóp sem ég hef tilheyrt í 2 ár sem endaði með því að ég hef slitið mig út úr þeim hóp. Það er erfitt en gott að því er lokið alla vegana.
Í gær fórum við (þ.e. öll nema Áróra) út að borða í hádeginu á pottinn og pönnuna. Það var rosalega gott að komast út með Matta og hressa sig við. Matti eldaði svo rosalega gott lasagnia í gærkvöldi sem ég er að borða afganginn af núna áðan mmmm namm namm.
Þriðjudag: Þá var sko mikið að gera fórum í mömmumorgna í kirkjunni svo heim að leggja sig. Fórum svo til Sirrýar og svo heim og svo fór ég í saumó um kvöldið og kom ekki heim fyrr en klukkan 3 um nóttina!! Ég var heppinn að það var frídagur daginn eftir svo ég gat sofið út.
Miðvikudagur: Kolla og Áróra fóru með Didda í húsdýragarðinn og skemmtu sér vel þar. Ég, Matti og Inga María fórum á Amerikan Stile (ekki viss um að þetta sé rétt skrifað) og svo í bíltúr. Keyrðum langleiðina þar sem afi á sumarbústaðarland en það voru svo stórir steinar á veginum að við hættum við að fara alla leið og snérum við. Óþarfi að skemma bílinn í bíltúrnum. Við grilluðum svo um kvöldið mjög góðar lambasneiðar úr kjötborðinu hjá Þín verslun fyrir ofan okkur þeir eru með mjög gott kjötborð þar.
Fimmtudagur: Kolla fór á róló og ég fór í klippingu. Inga María vaknaði þegar ca 10 mín voru eftir af klippingunni og hin hárgreiðslukonan (þ.e. ekki sú sem var að klippa mig en þær eru tvær saman á stofu) fór út og labbaði um með vagninn meðan klippingin var kláruð. Þvílíkt góð þjónusta :-) Nú er ég sem sagt ný klippt og fín enda að fara á árshátíð á laugardaginn!!
Föstudagur: jamm sem sagt dagurinn í dag :-) Kolla fór á róló og nú er hún að leggja sig. Svo verður bara að koma í ljós hvað restin af deginum ber í skauti sér.
Kominn vika síðan ég skrifaði síðast voðalega líður tíminn hratt!!
Ég var vakinn í morgunn við söng og gleði einhvern veginn var ég ekki jafn glöð og stúlkan sem söng hástöfum en svona getur maður verið vanþakklátur. Kolla var sem sagt vöknuð og stóð frammi á gangi og söng veit ekki hvað hún var búinn að vera vakandi lengi en ég rumskaði ekki þegar hún fór fram úr!!
Jæja best að renna yfir síðustu viku.
Sunnudag: Fórum í Perluna og fengum okkur ís. Það var hræðilega mikið rok úti svo maður hljóp eiginelga frá bílnum og inn!! Kollu fannst gosbrunnurinn æðislega flottur og svo er svo gaman að hlaupa hring eftir hring í Perlunni!! Matti stakk meira að segja upp á að við færum eitthvað´!! Konan hans var nú ánægð með það. Keyrðum svo aðeins um og skoðum t.d. leikskólann sem Matti var á þegar hann var lítill :-) Fórum svo til tengdó og stelpurnar fengu sumargjafir frá þeim og Jónu Dóru voða fínar.
Mánudagur: Fórum á kynningarfund í leikskólanum hennar Kollu. Auk okkar voru foreldrar 2 annarra barna!!!! Ótrúlegt að fólk skuli ekki mæta á svona kynningar. Leikskólastjórinn sagði okkur að það væru 20 börn að byrja í sumar/haus þannig að það vantaði ansi marga foreldra. Kolla fer á Bangsadeild mynnir mig (Matti þú verður að leiðrétta mig ef þetta er vitlaus deild). Mamma kom og var hjá stelpunum á meðan við fórum á kynninguna. Inga María kúkaði langt upp á bak á meðan svo þetta var skemmtileg klst sem mamma fékk að passa barna barnið fór aðalega í að þrífa hana hátt og lágt og finna ný föt á hana :-) Annars sagði mamma að hún hefði verið mjög góð en þær sátu nú allar við gluggan og veifuðu okkur þegar við komum sem okkur fannst nú ekki góðs viti en mamma fullyrti að það hefði bara verið því Kollu finndist svo gaman að sjá okkur koma.
Jæja verð að fara að sækja Kollu á róló skal reyna að klára þetta á eftir ef ég fæ hana til að leggja sig.