April 26, 2002
æi voðalega notalegt hjá mér

æi voðalega notalegt hjá mér núna. Inga María er sofandi úti í vagni og Kolla er á róló mmm þögn og ró í húsinu og ég sit hér með tebolla og les póstinn minn.
Það er voðalega fallegt veður úti sól og heiðskýrt en doldið kalt svo ég setti Kollu í útigalla úti á róló og Ingu Maríu líka í vagninn. Ég og Inga María fórum í smá göngu eftir að hafa skilið Kollu eftir á róló og hittum Eggert, Hildi og Auði. Auður er orðin voðalega stór og farinn að labba um allt. Þau fullorðnast svo við það að labba :-) æi þessi grei eru svo stuttan tíma lítil !!
Í gær (sumardaginn fyrsta) fórum við stelpurnar með Kötu og Eyjólfi og Hafdísi og Veru (frænkum Eyjólfs) í húsdýragarðinn þar hittum við Guðný og Pétur og Kormák og skemmtum okkur mjög vel. Kata var svo sniðug að smyrja nesti sem var mjög gott. Kollu fannst gaman að skoða dýrin og hlaupa um og leika sér. Hún var máluð eins og kisa en held hún hafi nú ekki alveg fattað það því stelpurnar sem voru að mála voru ekki með spegla til að sýna krökkunum afraksturinn. Ég tók samt mynd af henni svo ég sýni henni bara myndina þegar Matti setur hana inn í tölvuna :-) Kolla steinsofnaði í bílnum á leiðinni inn. Matti bara hana inn og eftir smá stund fór hann upp og skipti á kúkableiju og hún steinsvaf yfir því líka!! Inga María aftur á móti svaf í vagninum í garðinum og svo glápti hún á allt fólkið þess á milli og bara lá í vagninum sínum allan tímann voða góð.
Jæja þá er ég að hugsa um að gerast dugleg og setja í þvottavél enda búinn að vinna þau afrek í dag að setja í uppþvottavélina og taka úr henni tvisvar ví (þ.e. taka úr henni áður en ég setti í hana og svo aftur þegar hún var búinn ekki þvo tvær fullar uppþvottavélar í dag sko).

Posted by gydaa at 12:20 PM
April 24, 2002
Ákvað að deila hérna með

Ákvað að deila hérna með ykkur bréfi sem ég var að senda á póstgrúbbu sem ég er í (born2001) og fjallar um svefn venjurnar hennar Ingu Maríu.

"Ég ákvað að skrifa smá um svefninn hennar Ingu Maríu líka :-)
Ég er farinn að láta hana út á daginn 1-2 sinnum. Hún tekur sko 2-3 lúra á dag. Morgnarnir okkar eru í mestri rútínu. Við vöknum milli 7 og átta (mmm reyndar klukkan hálf 7 í dag) og svo set ég hana í vagninn þegar ég labba með Kollu út á róló um 10. Ef við förum ekki út á róló þá sit ég hana í vagninn nær 11 því hún er rosa lengi að sofna í vagninum um 10 getur tekið allt að þrjú korter en ef hún fer í hann nær 11 þá er hún sofnuð áður en að ég er búinn að setja á hana beislið og setja regnstakkinn yfir vagninn. Hún sefur í 30 mín upp í 3 tíma sem er nú doldið mikill munur á milli sko en venjulega myndi ég segja að hún svæfi í 1-2 klst. Svo eftir hádegi sit ég hana stundum í vagninn og stundum leifi ég henni bara að sofa í fanginu á mér er ekki komin með neina reglu á það.
Á kvöldin er ég farinn að fara upp með hana um 9 og hún fer svo ekki niður aftur fyrr en um morgun þ.e. ég fer inn til hennar og sinni henni þar. Ég er búinn að ákveða að hætta að slást við hana um að sofa í sínu rúmmi og eftir að ég fór bara að svæfa hana í okkar rúmmi þá gengur þetta mikið betur. Reyndar ganga kvöldin doldið misvel. Í gærkvöldi vaknaði hún bara 1 sinni áður en ég fór að sofa þ.e. 1 sinni milli 9 og hálf 12 en í fyrrakvöld þá vaknaði hún á hálftíma fresti allt kvöldið. Reyndar kom ég svo til engum graut ofan í hana í fyrrakvöld og hún hafði fengið sprautuna sína þann dag þannig að eflaust er bara ekkert að marka hann eða við skulum vona það.
Alla vegana er ég þokkalega ánægð með þessar svefnvenjur en vonast samt til að hún fari að sofa alveg á kvöldin og sofi alltaf í 1-2 tíma í hverjum lúr á daginn.
Mig langaði bara að setja þetta á blað eftir að lesa um Þórhildi Önnu."

Posted by gydaa at 10:36 AM
Áróra var orðin frísk í

Áróra var orðin frísk í gær en ég hélt henni samt heima. Skrítið að rjúka svona upp með hita einn dag!! Eflaust bara kvefið sem hún hefur verið að vinna á. Í kvöld eru svo tónleikar hjá henni í sleikipinnakórnum, fyrsta sinn sem við fáum að koma og sjá kórinn hennar en hingað til hafa bara verið tónleikar fyrir skólafélagana.
Matti var heima í gær að jafna sig eftir grillpartíið í vinnunni!!! Hann segist aldrei ætla að drekka aftur :-) við trúum því þegar við sjáum það mmmm.
Inga María vaknaði rúmlega sex í morgun og ég er því alveg dauðþreytt, geisp. Kolla svaf aftur á móti til 9 og er því ný vöknuð. Inga María fór út í vagn klukkan 9 og þegar ég kem upp aftur þá er Kolla að rölta niður stigann með knúsi kanínuna sína í hendinni. Við ætlum svo að rölta út á róló á eftir ef ég verð ekki sofnuð fram á lyklaborðið !!

Posted by gydaa at 10:30 AM
April 22, 2002
Inga María fór í fimm

Inga María fór í fimm mánað skoðun í dag. Hún er orðin 7.790 gr og 67 cm og höfuðmálið 43,2 cm. Hún fylgir sem sagt kúrfunni sinni eins og hún á að gera sem er bara fínt. Svo fékk hún sprautu númer tvö og vældi voða stutt yfir henni. Alger hetja. Kolla hafði nú doldlar áhyggjur af þessu hvað er þetta hvað er þetta sagði Kolla en þar sem Inga María vældi svo stutt þá hætti Kolla líka að hafa áhyggjur af þessu. Við fórum svo út á róló með Kollu og hún var þar í klst ein í þessu líka æðislega veðri ooo hvað ég vona að allt sumarið verði svona og hlýrra allavegana ekki verra :-) Ég tók svo myndir af Kollu á róló þegar ég kom og sótti hana læt Matta setja þær inn á morgun en hann er að fara í grillpartí í vinnunni í kvöld.
Annars er Áróra veik heima í dag. Vaknaði með hausverk og beinverki og hita. Hún er með 37,7 á munnmælinum en venjulegur líkamshiti þar er ca 36,5. Vonandi verður hún fljót að hrista þetta úr sér.

Posted by gydaa at 02:46 PM
April 21, 2002
Þetta er búinn að vera

Þetta er búinn að vera voðalega góð helgi. Í gær bauð ég þjónustufulltrúunum úr vinnunni til mín og var með uppáhaldssúpuna mína í matinn mmm namm namm. Það var voðalega gaman að hitta þær og að sitja og kjafta. Matti fór til foreldra sinna með Kollu og Áróru en Inga María var hjá okkur og var bara mjög góð. Hún sat hin ánægðasta yfir matnum og horfði á okkur kjafta saman og svo sat hún bara hjá okkur inn í stofu. Þegar Matti kom heim var hann með hana en hún vældi öðru hvoru á hann en brosti svo út yfir eyru um leið og hún kom aftur fram í stofu til okkar, alger snúlla.
Í hádeginu í dag buðum við foreldrum okkar og systkynum í afganga af súpunni (nóg til sko) og það er alltaf svo gaman að hafa alla saman. Matti og Stebbi horfðu svo á leikinn (Arsenal eitthvað) en fóru samt fyrst í bíltúr á nýja sportbílnum hans Stebba. Arsenal vann leikinn sem var ekki rétta niðurstaðan fyrir okkar menn (Liverpool), sko Matti segðu svo að ég hlusti ekki á þig ha!!! Við fórum svo í göngutúr og Matti sýndi mér húsið sem Eggert og Hildur voru að kaupa sér íbúð í. Veðrið var alveg yndislegt og svo hittum við líka strák sem var að vinna með Matta í Stefju mig minnir að hann heiti Svenni en er samt ekki alveg viss!! Kolla hafði voðalega gaman að því að hlaupa á undan okkur, hún er alveg agaleg með þetta að hlaupa burtu frá manni þegar maður er úti með hana. Þegar við vorum hjá Leikskólanum hennar þá tók hún á rás í áttina að húsinu hennar Gerðu systur mömmu. Ég og Matti settumst bara niður og ákváðum að hún myndi snúa við eftir smá stund (en það eru engar bílagötur alveg við) en hún bara hljóp og hljóp og var á endanum komin í hvarf sem okkur leyst nú ekki á svo Matti hljóp á eftir henni töluverðan spöl.
Í kvöldmatinn höfðum við svo restina af súpunni :-) og Inga María fékk hafragraut (svona Gerber barna hafragraut) í fyrsta sinn. Henni fannst hann nú töluvert betri en rísmjölsgrauturinn og ég tala nú ekki um sveskjumaukið sem ég gaf henni púff hvað henni fannst það hræðilegt. Ég bauð henni samt upp á það 3 kvöld í röð (má sko geyma krukkuna opna í ca 3 daga) því ég hef áhyggjur af hægðunum hjá henni á rísmjölsgraut því hann er svo stemmandi. Kolla vildi alls ekki leifa mér að mata Ingu Maríu og tók við skeiðinni og mataði systur sína svona mjög gott sagði hún við hana í hverri skeið. Matti náði mynd af henni sem hann mun setja á vefinn okkar.
Áróra er búinn að vera að leika við vinkonur sínar í allan dag en hefur samt ekki farið úr náttfötunum í allan dag!! Þannig að það var fljótlegt hjá henni að hátta sig í kvöld :-)

Posted by gydaa at 11:32 PM
April 17, 2002
Þar sem að Inga María

Þar sem að Inga María er ný farinn að borða datt mér í hug að deila með ykkur vefsíðum sem mér finnst áhugaverðar um þessi mál. Fyrri vefsíðan er heimasíða Sears hjónanna. Ég hef lesið tvær bækur eftir þau og töluvert af efni þeirra á vefnum og líkar mjög vel við það sem þau skrifa. William Sears er barnalæknir og Nancy er hjúkrunarfræðingur og saman eiga þau 8 börn og einhver barnabörn. Vefurinn þeirra er mjög góður upplýsingavefur almennt en í dag eru það upplýsingar um að byrja gefa börnum að borða sem ég vil benda sérstaklega á.
Hinn vefurinn er vefur Kanadísks læknis Dr. Jack Newman sem ég hef mjög oft séð vitnað í á vefnum en hef lítið lesið eftir sjálf og var eiginlega bara að sjá þessa grein í fyrsta sinn sjálf áðan. Hann hefur mjög sterkar skoðanir á brjóstagjöf og því finnst mér mjög áhugavert að lesa hans efni. Þessi síða er ekki alveg eins og allar aðrar um þetta efni og sumt meira að segja stangast á við annað sem ég hef lesið!! þannig að ég leifi mér nú að taka sumum hlutum þarna með vissri varúð svo sem að ekki sé nauðsynlegt að bíða í ákveðna daga milli nýrra tegunda matar svona til að byrja með.
Jæja þá er ég farinn af stað labbandi til Evu og mér sýnist að þá sé einmitt að byrja að rigna!!! Heppinn er ég.

Posted by gydaa at 01:41 PM
April 16, 2002
Inga María er fimm mánaða

Inga María er fimm mánaða í dag hrikalega líður tíminn hratt. Hún átti að fara í fimm mánaða skoðun í gær en ég frestaði tímanum þar sem hún var með smá kvef og konan í ungbarnaeftirlitinu vill ekki fá börnin með kvef til sín (skil ekki að hún fái nokkur börn í skoðun á veturnar!!). Í staðinn fékk Inga María graut í fyrsta sinn í gær. Henni fannst þetta nú voðalega skrítið og gretti sig öðru hvoru en borðaði samt ágætlega af grautnum. Það varð nú ekki til að hún svæfi neytt vel samt og hún var alltaf að vakna og fá sér sopa í nótt en Kolla var upp í hjá okkur líka svo kannski var hún að vakna við það. Kolla svaf þvert á koddunum okkar beggja svo við foreldrarnir erum nú alveg lurkum laminn!! Vonandi líður kvefið hennar Kollu hjá sem fyrst svo hún fari að sofa betur og við þar með líka.
Kolla datt í gær. Við vorum að rabba saman inn í herberginu hennar Kollu, ég og Matti, og Matti lá á gólfinu. Kolla var á vappi í kringum okkur og ætlaði að fara yfir fæturnar á pabba sínum en datt um þær og á stólinn sinn. Hún fékk skurð á kinnina og Matti fór með hana upp á slysó. Það þurfti nú ekki að sauma heldur var sárið límt saman svo núna er hún með stórann plástur á annarri kinninni.

Posted by gydaa at 09:54 AM
April 15, 2002
Kolla vaknaði klukkan 6 í

Kolla vaknaði klukkan 6 í morgun sem vakti nú ekki mikla lukku hjá foreldrum hennar mmm skil ekki af hverju. Held samt að Matta hafi bara fundist ágætt að koma sér aftur af stað í rútínuna sína að vakna rúmlega 6 og mæta í leikfimi eða snemma í vinnu en ég vildi svo sannarlega sofa lengur takk. Í staðinn dundaði ég mér í að setja inn meiri upplýsingar í dagbókina hennar Ingu Maríu svo endilega kíkið á það. Ég vona að stelpurnar fáist til að sofa á sama tíma svo ég geti lagt mig líka.

Posted by gydaa at 01:11 PM
April 14, 2002
Ég var að búa til

Ég var að búa til heimasíðu fyrir Ingu Maríu kíkið endilega á hana. Ég ætla svo að gera svona síðu fyrir Kollu líka og svo hjálpa ég Áróru við að búa til síðu fyrir sig. Síðan er reyndar ekki alveg tilbúinn þar sem ég ætla að setja inn síðu með upplýsingum um hvernig Inga María vex og dafnar en er ekki byrjuð á því. Gæti verið að ég þyrfti að bíða fram að næstu helgi til að fá frið í tölvunni að gera svona dúllerí.

Posted by gydaa at 10:24 PM
Jæja þá ætla ég

Jæja þá ætla ég að reyna að setja myndir í dagbókina mína alveg sjálf. Önnur myndin er af Ingu Maríu að sitja. Finnst ykkur þetta ekki góð mynd af henni? Það finnst mér. Hún er orðin voðalega dugleg að sitja sjálf og getur orðið sitið og leikið sér á gólfinu eða í leikgrindinni sinni. Þessi nýji hæfileiki gerir það líka að verkum að hún getur sitið og leikið sér við stóru systur sína eins og sést á hinni myndinni. Þær eru ótrúlega góðar saman miðað við hvað Inga María er lítil. Kolla rífur nú samt doldið mikið af henni með látum svo Inga María dettur um koll en þá reinir Kolla bara að tosa hana upp aftur mmm sem gengur nú ekkert of vel en mamma kemur þá bara til bjargar.
Ingu Maríu finnst líka voða fjör að sitja í matarstólnum og horfa á okkur borða. Hún fær AD vítamíndropana sína úr skeið og galopnar munninn og finnst fjör að borða þá því hún heldur örugglega að hún sé að borða það sama og við hin :-) Hlakka til að fara að gefa henni að gefa henni að borða grauta því hún er svo áhugasöm um það sem við borðum. Ætli við byrjum ekki á hrísmjölsgraut um miðja næstu viku þegar hún er orðin alveg 5 mánaða.
Kolla er því farinn að sitja oftast í venjulegum stól við matarborðið og Inga María situr þá í barnastólnum. Gallinn við þetta er aðalega sá að venjulegu stólarnir okkar eru orðnir ansi skítugir því hún Kolbrún er nú ekkert of hreinleg við borðið.

Posted by gydaa at 04:57 PM
Matti er að kenna mér

Matti er að kenna mér að setja myndir inn í dagbókina mína.
Sjáum hvernig þetta gengur. Myndin ætti að vera við hlið textans en það gengur eitthvað illa hjá Matta að setja þetta upp, enda er hann forritari en ekki vefhönnuður :)

Posted by gydaa at 03:55 PM
April 10, 2002
Það var mjög hressandi að

Það var mjög hressandi að fara út í fyrrakvöld og hitta stelpurnar. Kaffihúsið var reyndar á endanum heimili Sirrýar þar sem hún fékk ekki pössun en ekki var það verra. Inga María svaf í fanginu á pabba sínum allt kvöldið alger engill.
Við skruppum út á róló áðan og Kolla skemmti sér vel við að leika við hinar stelpurnar þar. Voru reyndar bara tvær aðrar stelpur en það var svo sem ágætt meðan hún er að venjast. Veðrið var reyndar hundleiðinlegt svona íslenskt sýnishornaveður sól, haglél, snjókoma til skiptis. Ég skrapp út í búð og verslaði meðan Kolla lék sér á rólónum en var reyndar ekki nema svona 5-10 mínútur í burtu þar sem búðin er við hliðina á rólónum. Kolla var bara kát með það og tilkynnti rólókonunni að mamma búð kaupa brauð og hélt svo áfram að leika sér. Kannski skil ég hana aðeins lengur eftir á morgun. Ég ætla að reyna að vera dugleg að fara á róló með hana þessa daganna svo hún venjist þar. Er svo erfitt að venja hana við þegar maður fer bara 2 í mánuði!!

Posted by gydaa at 02:06 PM
April 08, 2002
Við höfðum það bara voða

Við höfðum það bara voða gott um helgina. Mamma og pabbi buðu okkur í humarveislu á laugardagskvöldið og mmmmm ég hef sko aldrei áður borðað mig pakk sadda af humri. Rosalega góður og við torguðum ekki einu sinni öllum humrinum heldur voru nokkrir eftir!!! Stebbi og Matti hjálpuðu mömmu og pabba að hreinsa drasl úr bílskúrnum fyrir matinn og þá gátum við loksins séð sófann sem við ætlum að fá í sjónvarpsherbergið. Hann er bara mjög fínn en vantar virkilega að komast í bað :-) Það var svo sem ekki við öðru að búast eftir að hafa verið lengi úti í bílskúr. Við ætlum því að þrífa hann næstu helgi og flytja hann svo hingað heim.
Á sunnudeginum fórum við í fermingarveislu og borðuðum fullt af góðum kökum mmm namm namm. Á leiðinni heim sofnaði Kolla og Matti hélt á henni inn í rúm en nei nei hún vaknaði klst seinna og fannst þetta bara góður lúr en ekki til í nætursvefn. Hún sofnaði því ekki fyrr en um 10 og þurfti ég að vekja hana í morgun klukkan rúmlega 9. Við fórum í morgun til Sæunnar að hittast nokkrar úr mömmulistanum. Það var fínt að hittast og leifa krökkunum að leika sér. Núna eru báðar stelpurnar sofandi sem gerist nú ekki á hverjum degi svo ég er að reyna að njóta þess :-) Í kvöld er ég svo að fara á kaffihús með börn2001 listanum mínum ví mig hlakkar til að fara aðeins út barnlaus og vonandi verður Inga María þæg og góð við pabba sinn.

Posted by gydaa at 03:21 PM
April 06, 2002
Doldið langt síðan ég hef

Doldið langt síðan ég hef skrifað!!
Við fórum á róló í gær og Kolla skemmti sér nú bara vel innan um krakkana þó að hún talaði nú ekkert við þau. Ég var hjá henni allan tímann og ætla að reyna að fara núna nokkuð þétt til að venja hana við rólóinn. Við erum samt svo mikið á flakki að það liggur við að maður komi ekki rólótíma fyrir í planinu :-) Er að reyna að venja Ingu Maríu við að sofa úti í vagni því mér finnst hún sofa heldur betur þar. Hún tekur sko venjulega bara litla lúra hér og þar yfir daginn en er að reyna að fá hana til að lúra betur og lengur í einu. Ég hef því vakið hana með harðri (ok ekki mjög harðri kannski) hendi þegar hún dettur út af á brjóstinu og ætlar í einn af sínum smá lúrum. Hún vaknar venjulega um átta og hef ég verið að setja hana út um 11. Ég vonast til að hún geti farið í lúr um hálf 11 því þá myndi henta að labba með Kollu út á róló og Inga María sofni í vagninum á röltinu en hingað til hefur hún ekki verið orðin nægjanlega þreytt um hálf 11 finnst mér allavegana er hún doldið lengi að sofna þá en dettur út af um 11 áður en ég næ að breiða yfir vagninn og setja hann út.
Inga María er farinn að geta setið í smá stund!!!! Mér finnst það nú alveg ótrúlegt og lét Matta taka mynd af henni sitjandi í gær svo einhver myndi trúa mér að fjögra og hálfsmánaða barn sitji. Hún vildi þá náttúrulega ekki sitja og henti sér alltaf aftur á bak og Matti hló bara af mér og sagði já já og hún talar líka á meðan ég er í vinnunni er það ekki!!! Svo samþykkti hún að sitja og sat og Matti gat ekkert rökrætt þetta við mig meir og smellti af henni mynd en sú mynd er reyndar ennþá í vélinni. Matti var samt að setja inn nýjar myndir á vefinn okkar svo endilega kíkið á þær.
Kolla er farinn að tala mikið meira og hún segir stannslaust hvað er þetta!! Doldið þreytandi stundum en svona læra börn víst :-) Allavegana lærir hún fullt af orðum með því að endurtaka svörin við hvað er þetta. Hún var reyndar hálf fúl við mig í gær þegar hún benti á mynd af hundi á náttfötunum sínum og sagði hvað er þetta? Voffi sagði ég nei hvað er þetta endurtók hún. Svona gekk þetta nokkrum sinnum og endaði með því að ég sagði hvað er þetta og bendi á hundinn. Hundur sagði Kolla!!!! Vitlausa mamman að segja alltaf voffi þetta var greinilega hundur!!!

Posted by gydaa at 10:45 AM