Það var alveg yndislegt veður í gær og fórum við mamma í göngutúr um miðbæinn. Við fundum opna búð og keyptum brauð og röltum svo niður á tjörn og gáfum öndunum. Kollu fannst mjög gaman að henda brauði til andann (sem voru nú samt aðalega svanir og gæsir) og rabbaði heilmikið við þær. Sagði þeim að koma og fá brauð og hérna bra bra hérna er brauð. Þetta voru nú ekki mjög svangar endur og var brauð fljótandi um alla tjörn :-) en gaman að gefa þeim engu að síður. Kolla vildi svo helst hlaupa um og áttum við ekkert að halda í hana þó hún stæði á brúninni. Ég setti því á hana beislið úr kerrunni svo ég gæti haldið í hana án þess að hún fattaði það en hún skammaði mig nú fyrir það líka!! Á endanum þurfti ég nú að taka hana og setja í kerruna og labba af stað með hana organdi yfir að mega ekki hlaupa ofan í tjörn eða fyrir bíla!! Hræðileg móðir!!
Inga María svaf nú mest allan tímann í vagninum og lét endurnar ekkert hafa áhrif á sig.
Við hittum Þorgerði, Óttar og dætur (þorgerður lá með mér á fæðingardeildinni eftir að ég átti Áróru) og urðum við sammála um að ég bjóði þeim (sko stelpunum sem lágu saman ekki Þorgerði og co) heim fljótlega. Það er allt of langt síðan við höfum hisst og þær vita ekki einu sinni allar að Inga María sé til !!
Við vorum hjá eyrnalækninum áðan og sýnið úr kollu frá síðustu viku sýndi sýkla sem eru ónæmir fyrir sýklalyfinu sem hún fékk í síðustu viku og fékk hún því nýjan pensilínskamt. Hún er samt ekki með í eyrunum og svaf vel í nótt en eyrnalæknirinn vildi samt gefa henni þetta. Kannski er geta sýklarnir verið í eyranu þó hún sé ekki með sýkingu núna ég veit það ekki alveg. Kolla lét eins og brjálaður bavíani hjá lækninum þ.e. var upp á öllu og að fikta í öllu svo ég gat lítið rætt við manninn!! En við eigum svo ekki að koma aftur fyrr en í júní víí vonum bara að hún verði fín þangað til.
Við vorum að kaupa okkur tvíburavagn þannig að nú get ég farið út að labba á almmennilegum hraða ekki bara 2ja ára hraða :-) Vígði vagninn í gær og það var voða fjör að labba um með stelpurnar labbaði í rúman klst og var nú orðin doldið þreytt í fótunum að ýta vagninum upp brekkurnar hérna í breiðholtinu. Ég þarf að taka mynd af stelpunum í vagninum svo ég geti sett mynd af þeim á síðunni.
Við fórum í afmæli til pabba í gærkvöldi og það var mjög gott að komast út. Inga María var nú samt voðalega pirruð en er mikið betri í dag. Við vorum ekki komnar heim fyrr en rétt fyrir 10 og svo voru allir rifnir upp snemma í morgun því Áróra var að kynna þemaverkefnið sitt í skólanum. Áróru gekk mjög vel með það og stóð sig mjög vel. Þemaverkefnið þeirra var Kína og las Áróra upp ljóð sem hún samdi um kínabarn. Ljóðið er svona:
Barnið í Kína
Það heitir Stína
og systir hennar Nína
Þær búa í Kína
Kolla var nú ekki mjög þæg á kynningunni og vildi alls ekki sitja kjurr. Hún var ýmist að príla upp á stóla, aðra foreldra eða hlaupa til Áróru sem sat með hinum krökkunum fyrir framan alla foreldrana. Ég var nú komin nálægt því að fara út með hana en svo var kynningin búin og hún gat hlaupið um eins og henni sýndist.
Kolla var með eyrnabólgu í báðum eyrum og fékk því pensilín hjá lækninum. Læknirinn sendi líka sýni í ræktun og svo komum við aftur til hans eftir viku. Stelpurnar eru báðar mikið hressari í dag gæti vel trúað að þær verði hitalausar í kvöld. Kollu langar svo út og mig reyndar líka!! Hún vælir út út við gluggann og hurðina greiið stelpann. Vonandi verður gott veður eftir að allir verða orðnir hressir svo við getum farið að vera doldið úti.
Það er nú svo sem ekki búið að vera tíðinda laust síðan ég skrifaði síðast en ekki gefist mikill tími til að skrifa í tölvunni.
Fimmtudagur: Sá dagur var fínn og enginn veikur.
Föstudagur: Rétt fyrir 5 fékk Kolla 39 stiga hita og þar sem hún var bara ný búinn að fá rörin í eyrun þá hringdi ég strax í eyrnalæknirinn. Hann var farinn í helgarfrí svo við fórum með hana í barnalæknavaktina í staðinn. Eyrun voru mjög fín svo þetta var bara úrskurðuð sem einhver flensa.
Laugardagur: Um morguninn fór að leka gröftur úr hægra eyranu á Kollu þannig að við fórum aftur með hana til læknis, læknavaktina í þetta sinn (þ.e. þessa venjulegu ekki barnalæknavaktina). Hún var sem sagt kominn með sýkingu í hægra eyrað og fékk þessaeyrnadropa við því.
Sunnudagur: Kolla ennþá lasinn en enginn gröftur að leka úr eyranu. Við buðum Stellu og Ásgeir hingað í mat og Kolla var hress með það. Mamma og pabbi kíktu hingað með fullt fullt af fötum sem þau höfðu keypt á stelpurnar í USA. Um kvöldið var Inga María orðin heit og ég mældi hana fyrst um 8 þá var hún með 38 stiga hita og svo aftur um hálf 11 en þá var hún kominn með 38,8 stiga hita. Ég gaf henni stíl fyrir svefninn.
Mánudagur: Inga María var hitalaus en ég pantaði samt læknistíma fyrir hana hjá barnalæknavaktinni. Fékk ekki tíma fyrr en klukkan 20:10 greinilega margir krakkar veikir núna. Matti hringdi í eyrnalæknirinn og hann vildi kíkja á Kollu svo við fengum tíma hjá honum í dag (þriðjudag). Inga Mara var fín hjá lækninum ekkert í eyrunum né lungunum svo hún var úrskurðuð með kvefpest. Hún var svo með 38,5 í gærkvöldi (bara hitalaus svona rétt á meðan ég pantaði og talaði við læknirinn!! Hún var voðalega pirruð allan daginn og fékk svo stíl fyrir nóttina.
Kolla er núna hjá eyrnalækninum með Matta. Kolla var með 37,7 í morgun og Inga María var með 38,8 í morgun svo ég gaf henni stíl. Hún er voðalega pirruð en svaf doldinn lúr áðan. Ég sjálf var kominn með ca 38 stiga hita í morgun (sko 37,4 á munnmælinum sem er ca 38) þannig að við skulum bara vona að Matti veikist ekki líka einhver verður að hugsa um alla þessa sjúklinga!!! Æi ég er svo sem ekki mikið veik sjálf en hef verið hressari.
Jæja Kolla fékk rör í eyrun í morgun. Aðgerðin gekk bara vel og hún er hin hressasta núna. Matti fór með henni og hún var svæfð í fanginu á honum, hann fór svo fram á meðan aðgerðin fór fram (ca 5 mín) og var svo hjá henni meðan hún vaknaði og svo fóru þau heim. Hún finnur nú til í eyrunum öðru hvoru og æar öðru hvoru yfir því. Það er eins og það komi svona stingir því hún æar og svo er það búið. Hún hefur farið að hágráta einu sinni en annars er það meira á á æi og eyrað nuddað. Hún vildi nú ekkert taka lúrinn sinn og situr nú og horfir á stubbana í staðinn. Allavegana er ég feginn að þetta sé búið. Hún á svo að mæta aftur til læknisins eftir 2 vikur í skoðun.
Áróra fór í skólann í morgun en mér fannst hún samt hósta doldið mikið í nótt. Hún tók síðasta pensilín skammtinn sinn í morgun og erum við báðar fegnar að þetta pensilín sé búið. Hún kvartar og kveinar yfir hverjum einasta skammti enda er þetta alveg einstaklega bragðvont pensilín. Ég vakti hana um miðnætti í gær til að gefa henni hóstasaft hún húðskammaði nú mömmu sína fyrir að vekja sig!! en tók hóstasaftið. Ég sendi hana með miða til kennarans um að hún væri inni í fríminotum og að hún færi ekki í sund. Vonandi er þessi pest þá búinn hér á heimilinu.
Ég er búinn að vera að reyna að kynna mér svona rörísetningar hjá vinkonum mínum og sýnist að best sé að senda Kollu í þetta á morgun. Læknirinn hringir samt ekki fyrr en í kvöld svo ef þið hafið einhverjar hugmyndir af spurningum þá má endilega senda mér þær í tölvupósti. Póstfangið mitt er gydaa @ simnet.is þetta á samt að vera allt í einni lotu sko en Matti sagði að ég ætti að skrifa þetta svona svo ég fái ekki ruslpóst því það séu einhverjir sem leiti að póstföngum á netinu til að senda ruslpóst!!
Þá erum við farnar í mömmumorgnana í kirkjunni enda erum við svo kirkjurækin fjölskylda eins og þið vitið :-)
Ég fór með Kollu til eyrnalæknisins aftur í dag. Hún er ennþá með vökva í eyrunum og vill hann því setja rör í eyrun. Hún fer því líklegast í rörísetningu á miðvikudaginn þ.e. ekki á morgun heldur hinn!! Púff greiið litla stóra barnið mitt.
Áróra hóstar voðalega mikið en er samt laus við hitann þ.e. búinn að vera hitalaus síðan á sunnudag. Ég ætla því að hleypa henni í skólann á morgun áður en við verðum búnar að gera hvor aðra alveg endanlega brjálaðar!! Sendi hana samt með miða um að fara ekki í sund né út meðan hún er að jafna sig.
Áróra er orðin hitalaus í dag svo ég leifði henni að fara í heimsókn til pabba síns en hún átti sko að vera þar þessa helgi. Hún klæddi sig því bara vel og fór þangað. Ég ætla nú samt að halda henni heima á morgun svo henni slái nú örugglega ekki niður.
Matti fór út í gær að djamma með strákunum og á meðan sat ég hér og dundaði mér að búa til heimasíður fyrir Kollu og Ingu Maríu á Barnalandi. Síðurnar þeirra eru Inga María og Kolla. Endilega kíkið á þær og skrifið í gestabækurnar þeirra.
Áróra er búinn að vera lasinn síðan á fimmtudagsmorgun. Hún byrjaði að hósta um nóttina og var svo kominn með háan hita um morguninn. Systur hennar (hjá pabba hennar) hafa verið með strktókokkasýkingu þannig að henni var skelt á sýklalyf en núna er þriðji dagurinn á þeim svo vonandi fer henni að batna. Við krossum svo bara putta og vonum að við hin í fjölskyldunni sleppum. Við höngum sem sagt bara inni og horfum á vídeó eða gerum eitthvað álíka uppbyggilegt!!
Svo erum við líka alveg foreldralaus þessa dagana þar sem foreldrar okkar beggja eru að þvælast í útlöndum!! Meiri fjölskyldan sem maður á að geta ekki verið hérna hjá okkur :-)
Ég átti eftir að skrifa um Áróru og Kollu mmm ætlaði víst að gera það á eftir fyrir hálfum mánuði síðan!!!