Við fórum sem sagt í mat til Stebba á miðvikudag og það var mjög fínt. Skemmtum okkur vel fjölskyldan og stelpurnar léku sér af dótinu sem við komum með og svo borðuðum við fullt af kínverskum mat og borðuðum ís á eftir mm namm namm.
Á fimmtudagskvöldið fór ég á kaffihús með Sirrý og Evu Mjöll. Matti og Inga María voru bara góðir vinir á meðan. Ég kipptist samt við í hvert sinn sem gsm sími hringdi en minn sími hringdi samt ekkert allan tímann stelpurnar voru nú farnar að hlæja af þessum kippum í mér :-) Allavegana skemmti ég mér vel á kaffihúsinu enda alltaf gaman að hitta stelpurnar og kjafta.
Í gær fór ég svo í frænkuboð sem var haldið heima hjá mömmu og heppnaðist mjög vel. Gaman að sjá allar þessar frænkur og svo gefur það að vera með ungabarn með sér manni tækifæri til að spjalla við alla því allir vilja skoða svona lítið barn. Það var reyndar önnur lítil stelpa þarna sem var 6 mánaða.
Við erum nú búinn að gera ýmislegt í þessari viku sem ég hef ekkert skrifað. Á sunnudaginn fórum við í heimsókn til Ásmundar og Hörpu og skoðuðum nýja húsið þeirra. Það er mjögflott og sérstaklega fannst mér eldhúsinnréttingin þeirra æðisleg. Hlakka til þegar við förum að endurnýja eldhúsið okkar hvenær sem það verður svo!!
Á mánudag komu Fjóla og Emil í heimsókn. Það var gaman að hitta þau og sjá Fjólu ólétta :-) það var sko ekki farið að sjá á henni þegar ég sá hana síðast sem segir ýmislegt um það hversu langt er síðan ég sá hana síðast en hún er komin 6 mánuði á leið. Kolla ætlaði nú alveg að éta Fjólu og vildi að hún væri stanslaust að leika við sig.
Í gær fórum við í mömmumorgun í Kirkjunni en eftir hádegið var ég voðalega slöpp. Ég vona að þetta hafi verið bara eitthvað tilfallandi og verði ekkert meira nenni ekki að vera veik!!
En Stebbi bróðir á afmæli í dag.
Við fórum í Kringluna í dag að syngja í búðunum. Eða sko stelpurnar sungu ekki ég :-)
Áróra var Hermione (stelpan í Harry Potter) og Kolla og Inga María voru bangsar. Kolla fékk bangsabúning frá Stellu ömmu og Inga María var í bangsafötum sem Kolla fékk frá Ásmundi og Hörpu þegar hún var lítil. Þær voru mjög fínar allar saman. Kollu og Áróru fannst mjög gaman í Kringlunni. Kolla söng að vísu aðalega í röðinni "Allir krakkar" (hún kann sko ekki meira í laginu) og svo þegar komið var að þeim að syngja þagnaði hún og rétti bara fram nammipokann. Áróra söng þá fyrir þær báðar og svo fengu þær nammi. Inga María var hin ánægðasta í magapokanum sínum að skoða fólkið.
Við enduðum svo á Mcdonalds að borða og Kolla kláraði meira að segja matinn sinn þrátt fyrir nammiátið.
Áróra fór svo á öskudagsball upp í skóla og skemmti sér vel þar líka. Hún vildi svo fara líka í Smáralindina (skemmtun þar 2-5) en mamma hennar var búinn að fá nóg og klukkan líka orðin 4 þannig að við hefðum varla náð í neytt.
Mamma á svo afmæli í dag svo við sungum fyrir hana í bílnum á leiðinni heim úr Kringlunni (mamma var sko í gsm símanum) og förum í mat til þeirra annað kvöld.
Svo verð ég að segja eina sögu frá göngutúrnum um daginn sem ég gleymdi að skrifa um daginn. Kolla var alltaf að stoppa og við að kalla á hana og í eitt sinn þegar Matti kallar Kolbrún komdu nú þá lítur hún á hann og segir hátt ÉG HEITI KOLLA :-) okkur fannst þetta ferlega fyndið hún heitir sem sagt ekki Kolbrún heldur Kolla ekki von að barnið þekki neytt annað enda notum við alltaf bara Kolla en ekki Kolbrún.
Við fórum út að labba í dag í næstum 2 tíma. Voða gaman að labba svona og skoða hverfið og njóta útiveru. Kolla vildi nú ekki láta draga sig lengi heldur vildi hún bara labba eins og við. Það var nú rosalega seinlegt en markmiðið var svo sem ekkert að komast yfir miklar vegalengdir hvort eð er. Henni fannst gaman að kasta snjónum og borða hann og vildi alltaf vera að stoppa til að leika sér í snjónum. Inga María steinsvaf nú bara allan tímann í vagninum. Við enduðum svo út í búð og keyptum okkur brauð, kringlur og kanelsnúða í kaffitíma og fórum heim og sitjum nú og borðum namm namm. Matti var að sjálfsögðu með myndavélina með (fæst sko ekki út án hennar) og ég skal reyna að ýta á hann að koma myndunum á vefinn sem fyrst.
uss uss hvað ég er farinn að gleyma að skrifa í þessa dagbók!!
Áróra var sko ekkert veik á þriðjudaginn og hresstist undurfljótt eftir að hún kom heim svo hún kom bara með mér í Bónus að gera innkaupin og passaði Kollu á meðan, lúxus að eiga svona fullorðið barn.
Í gær fórum við svo í heimsókn til Ásu ömmu og Stefáns afa. Gott að komast út og hitta fólk en ég hélt nú samt á tímabili að ég kæmi ekki bílnum út úr bílskúrnum. Sko vandamálið snérist ekki um að koma stelpunum inn í bílinn eins og Matti virðist alltaf hafa áhyggjur af heldur því að opna bílskúrshurðina nógu mikið. Hún stoppar nefnilega venjulega þegar svona 1/3 er eftir sem er bara fínt til að labba inn í bílskúrinn en ekki nóg til að koma bílnum út. Til að ýta hurðinni alla leið þarf maður sko að vera doldið hærri en ég. Eftir miklar pælingar náði ég mér í kúst og notaði kússkaftið til að ýta hurðinni upp og svo til að ýta henni niður aftur eftir að bíllinn var komin út. Kolla og Áróra léku sér hinar ánægðustu í snjónum á meðan ég var að finna þetta út en Inga María var nú ekki alveg jafn ánægð með töfina enda aldrei mjög hrifinn af því að vera of lengi í stólnum sínum.
Í dag höfum við nú bara verið heima og ætlum að vera það í allan dag.
Það er voðalega gaman orðið að sjá stelpurnar (Kollu og Ingu Maríu) saman. Í gær var Kolla að hoppa fyrir Ingu Maríu og fannst þeim það báðum voðalega fyndið. Kolla stóð sem sagt fyrir framan stólinn hennar Ingu Maríu og hoppaði og hló og Inga María hló með henni. Svo í dag var Kolla að elda fyrir okkur á leikeldavélinni sinni og svo mataði hún mig, Ingu Maríu og dúkkurnar. Ég varð nú samt að stoppa Kollu í mötuninni því hún vildi alltaf stinga skeiðinni alveg upp í Ingu Maríu þannig að mér fannst eiginlega nóg komið!! En þær virtust nú báðar hafa gaman að þessu samt. Allavegana brosir Inga María orðið voðalega mikið við henni. Inga María er líka orðin voðadugleg í höndunum. Kemur við dótið sitt þó hún kunni nú ekki alveg að taka utan um það en er samt farinn að opna aðeins lófanna og halda í hluti sem maður setur í lófann á henni nú og að grípa í hárið mitt þegar hún er á öxlinni minni. Jæja hún er búinn að fá nóg af dótinu á gólfinu svo ég verð að hætta.
Við fórum í mömmumorgna í kirkjunni í gær og Kollu fannst voðalega gaman að hitta krakka og leika sér. Svo kíkti Stella til okkar eftir hádegi að sækja sængina hennar Kollu sem hún ætlar að láta stækka fyrir hana. Inga María sofnaði þegar við vorum að fara heim úr kirkjunni og svaf í 5 tima í stólnum sínum greinilega dauðþreytt.
Í dag er Áróra heima því henni er illt í maganum ég reynda sendi hana samt í skólann en kennarinn sendi hana heim aftur svo nú sitja þær systur og horfa á spólu. Vonandi er ekki að byrja magapest á heimilinu líka er sko búinn að fá mig fullsadda af pestum takk fyrir.
Kolla og ég fórum með Ingu Maríu í viktun áðan. Við áttum tíma klukkan 9 í morgun þannig að ég þurfti að vekja Kollu klukkan 8 drífa hana í föt og morgunmat ofan í hana. Átti bara næga mjólk fyrir hana svo ég fékk ekkert cherios sjálf :-) og bara endar eftir af brauðinu þannig að ég fékk te og brauðenda (sem ég borða sko ekki venjulega ojj). Síðan vakti ég Ingu Maríu og skellti henni í nýja bleyju og föt og beint út. Hún var svo viktuð og var 6.075 gr og 61,5 cm sem þíðir að hún er ekki að þyngjast eins mikið og hún á að gera. Líklegast er það kvefinu að kenna og svo fattaði ég nú ekki fyrr en eftir á að benda hjúkkunni á að hún var ekki búinn að fá að drekka síðan um miðja nótt svo eflaust hefur það spilað inn í núna. Allavegana förum við aftur í viktun 14. febrúar þar sem hún fer í 3ja mánaða skoðun þá og fær fyrstu sprautuna greiið litla. Ég get nú ekki sagt að ég hafi áhuggjur af þyngdinni hennar þar sem hún lítur pattaralega út en legg hana samt aðeins oftar á brjóst næstu 2 vikur svo hún nái þessu upp.
Við fórum svo í Nettó að versla og ég held að Kollu hafi fundist mjög gott að komast aðeins út þó það væri bara í Mjóddina. Það er samt næstum 10 stiga frost svo við höldum okkur nú áfram innandyra en ég stefni svo á að fara í kirkjuna í fyrramálið þá getur Kolla leikið doldið við krakkana.
Úps ég gleymdi að segja að það eru komnar nýjar myndir á vefinn okkar. Þið getið ýtt hérna ef þið viljið komast beint yfir í myndasíðurnar á vefnum.
Matti sótti Áróru til pabba síns um hádegið í gær og fór og keypti handa henni Harry Potter búning þau hittu Karitas í Leikbæ þar sem hún var að kaupa sér nornabúning. Mamma og Pabbi fóru út úr bænum um helgina þannig að það var ekkert hádegiskaffi hjá þeim í gær. Í staðinn höfðum við það bara rólegt hérna heima og héldum stúlkunum inni einn daginn enn. Við erum svo líka bara hérna heima að dunda okkur í dag en ætlum til Stellu og Ásgeirs á eftir og Kolla getur sko ekki beðið eftir að komast út. Hún tosar í okkur og vill fara út núna en ekki á eftir, stelpu greiið. Ætli við reynum ekki að fara í fyrra fallinu en við þurfum líka að fara á sorpu með drasl þannig að hún fær að fara þangað líka í dag víí þvílíkt fjör. Annars tók hún síðasta pensilínskammtinn núna áðan þannig að vonandi er eyrnabólgan búinn. Við eigum svo pantaðann tíma hjá háls nef og eyrnalækni mánudaginn 11.febrúar til að ganga úr skugga um að allt sé farið.
Við förum svo með Ingu Maríu í viktun í fyrramálið þar sem ég frestaði því síðasta mánudag. Tíminn er klukkan 9!!! fékk ekkert seinna aumingja Inga María sem er vön að sofa til 11 þarf að vakna rúmlega 8 í fyrramálið því það tekur mig alltaf dágóðastund að koma þeim tveimur út.
Kolla er eitthvað hressari eftir hádegið en sjáum til hvernig hún verður í nótt. Hún er orðin alveg rosalega þreytt á að vera inni. Í gær þegar við fórum til læknisins ætlaði ég ekki að fá hana út úr bílnum þegar við komum heim aftur hún vældi bara nei nei ekki heim ekki heim. Greiið litla getur ekki beðið eftir að verða hress og komast doldið út. Gerum eitthvað virkilega skemmtilegt þegar hún hressist.
Áróra er búinn að ákveða að vera Hermione (stelpan í Harry Potter) á öskudag svo það er líklegast best að fara strax í fyrramálið og kaupa búningin í Leikbæ áður en hann selst upp skilst nefnilega að börnin verði annað hvort Hermione eða Harry Potter í ár!! Ætla svo að kaupa bangsa búning handa Kollu svo hún geti líka farið í búning á Öskudag og farið í búðir að syngja. Hún kann nú reyndar ekki að syngja :-) en segir eitt og eitt orð með manni meðan maður syngur og dansar með þannig að kannski verð ég bara að syngja og hún að dansa :-)
Kolla var hitalaus í gær en komin með aftur í bæði eyrun. Hún fékk því aftur pensilín en nýtt lyf núna sem á bara að taka einu sinni á dag í fjóra daga. Við eigum svo að panta tíma hjá háls nef og eyrnalækni til að skoða hana og vera viss um að allt sé farið. Hún er nú hálf slöpp og með fjótandi augu í dag svo ég held hún sé nú með smá hita í dag en hún er ekkert mikið heit og það er hætt að leka úr nefinu á henni í fyrsta sinn í margar vikur.
Ég var með saumaklúbb í gær voðalega gaman að sitja og kjafta sérstaklega þegar maður er búinn að vera heima í tæpa vikur með veik börn. Við færðum sjónvarpið hingað inn í tölvuherbergi sem er þá núna sjónvarps og tölvuherbergi. Svo settum við bara tágarstólana hingað inn og þá vantar okkur bara sófann svo það fari betur um okkur. Kolla situr núna hérna við hliðina á mér og horfir á lion king voðalega gott að hafa hana hjá sér þegar hún vill horfa á spólu frekar en að hún sé í öðru herbergi og maður veit ekkert hvað hún er að gera af sér.