Held að Kolla sé komin aftur með í eyrun. Hún vildi allavegana ekki liggja í nótt eins og síðast þegar hún fékk í eyrun. Líklegast þíðir það að eyrnabólgan hefur ekki farið almennilega og pensilínið bara haldið því niðri en ekki losað hana alveg við það. Ég er búinn að panta tíma hjá barnalækni í dag klukkan 13:20 (Geir í Dómus Medica held ég hafi ekki farið til hans áður) og læt hann skoða þetta. Kannski hefur hún þurft lengri pensilínkúr. Kolla var með 39 stiga hita áður en hún fór að sofa en er ekki mjög heit núna. Mæli hana áður en við förum til læknisins.
Þá er Kolla komin með 38,6 stiga hita þannig að ekki förum við út í dag eða næstu daga. En Inga María er allavegana að verða góð svo vonandi er þetta það sama sem hrjáir Kollu en ekki önnur pest. Ég held nú að þetta sé það sama þar sem Kolla er orðin svaka hás eins og Inga María var.
uu ég var nú búinn að skrifa meira í gær en hlít að hafa gleymt að vista það!!!!
Jæja Ég tók sem sagt ekki til í tölvuherberginu í gær en er búinn að því núna :-) En Kolla hékk voðalega mikið í mér í gær. Hún vill eiginlega horfa á spólur endalaust og ég þarf að hafa stannslausar dagskrá fyrir hana til að hún fáist til að gera eitthvað annað. Þannig að í gær var ég alveg uppgefinn eftir daginn, hjálpar eflaust ekki til að ég er sjálf með hálsbólgu og kannski smá slöpp.
Stelpurnar eru báðar betri í dag nema að Kolla er alveg að verða vitlaus á inniveru og meira að segja hætt að nenna leika við mig!! Vill bara liggja og horfa á spólu sem er nú ekki holt að gera allan daginn. Hún er samt búinn að leggja sig í klst í dag enda var hún vöknuð um hálf 8 í morgun. Vonandi getum við farið aðeins út á morgun þó ekki sé nema aðeins í heimsókn eitthvert. Annars er ég með saumó annað kvöld svo ég hitti þá allavegana eitthvert fólk :-)
Gærdagurinn var nú dolidð erfiður hjá Ingu Maríu. Hún kvartaði ansi mikið þegar hún var vakandi en á móti kemur að hún svaf líka mikið eflaust slöpp þó hún hafi ekki verið með hita. Hún var hress í tæpa klst en svo var hún óróleg þar til hún sofnaði aftur og þá svaf hún í þrjá og hálfan tíma en sefur venjulega svona hálftíma til klukkutíma í einu!! Hún vaknaði líka upp í nótt og skældi í svona hálftíma en sofnaði svo og sefur ennþá!!
Kolla er líka mjög kvefuð ennþá en er samt hin hressasta og leikur sér. Við verðum sem sagt inni eitthvað áfram.
Verkefni dagsins hjá mér er að reyna að taka doldið til í tölvuherberginu. Ótrúlegt hvað það safnast saman af drasli hérna inni!!
Kolla steinsofnaði um hálf 7 (lagði sig sko ekkert um daginn) í gærkvöldi og fórum við bara með hana í rúmmið þá og héldum að hún myndi kannski sofa til morguns, bjartsýn. Hún vaknaði aftur einum hálfum tíma seinna og vakti með okkur til miðnættis!! Sem sagt bara "síðdegis"lúrinn hennar doldið seinna.
Ég hringi í læknavaktina og fékk lækni til að kíkja á Ingu Maríu fyrir nóttina er svo hrædd við RS-vírusin og kvashóstan sem Kolla fékk (sko hún fékk kvashósta ekki RS-vírus) um miðja nótt. Læknirinn heyrði ekkert í lungunum né sá neytt í eyrunum og sagði okkur að gefa henni Neseril dropa. Hún er síðan búin að sofa vel í nótt en hósta doldið og ég hef hrokkið upp við hóstana og strokið bakið á henni sem sagt ég svaf mikið verr en hún!! Læknirinn kíkti líka í eyrun á Kollu og sá vökva en sagði að bólgan væri farin. Hann var nú á svo mikilli hraðferð að ég spurði ekkert meir ætli svona vökvi jafni sig sjálfur??? Jæja hringi bara í Sigurð læknirinn okkar og spyr að því.
Ég ætla að afboða tímann fyrir Ingu Maríu í viktun því það er 10 stiga frost úti og ég get ekki farið með 2 mánaða hálfveikt barn út í svona mikinn kulda bara fyrir viktun.
Jæja Kolla var að vakna.
Í gær eftir hádegismat hjá mömmu fórum ég, Kolla og Inga María til Sæunnar sem hafði boðið okkur og meðlimum mömmulistans í kaffi. Það var gaman að sjá litlu snúlluna hennar í fyrsta sinn og svo náttúrulega að hitta hinar líka. Kollu fannst mjög gaman að leika að dótinu þeirra og leika við krakkana. Inga María svaf allan tímann svo það sá hana nú varla neinn nema bara svona rétt að kíkja á hana steinsofandi.
Í gærkvöldi var Kolla orðin voðalega þreytt þannig að við gáfum henni bara jógúrt og settum hana í rúmmið 7:30 en kjúklingurinn sem við vorum að elda var ekki ennþá tilbúinn þá. Við hjónin borðum svo fyrir framan sjónvarpið og horfðum á Monster inc. sem er mjög skemmtileg mynd.
Ég fékk svo að sofa út í morgun mmm það er alltaf jafn notalegt. Við Inga María sváfum til 11 :-) en vorum þá vakinn af Matta og Kollu (Áróra er hjá pabba sínum). Kolla og Inga María eru svo voðalega kvefaðar að við ætlum bara að vera inni með þær í dag. Inga María er hás og hóstar ef hún liggur á bakinu (hún svaf samt vel í nótt), vonandi verður ekkert meira úr veikindum hjá henni. Ég stefni á að fara með þær til Sigurðar læknis á morgun og láta hlusta þær og kíkja í eyrun og svo á Inga María að fara viktun klukkan 10:30 á morgun.
Matti var að kvarta yfir að ég væri ekki nógu dugleg að skrifa í dagbókina síðustu daga!! Jæja svo hér byrja ég að skrifa þá :-)
Matti var heima í gær með kvefpest og það var voðalega gott að hafa hann heima þó að þetta væri ekki frí heldur pest :-) Hann festi samt hillurnar í stóra herberginu niðri svo nú get ég raðað dóti stelpnanna í þær. Ég þreif svo barbíhúsið og raðaði þeim húsgögnum sem voru heil inn í það (ótrúlega mikið af þessum barbí húsgögnum eitthvað brotinn) og þreif hillurnar og setti smá dót í þær. Ég raðaði Áróru dóti efst og Kollu dóti neðst þannig að nú getur áróra bara kennt sjálfri sér um ef Kolla kemst í eitthvað sem hún má ekki vera með.
Í gærkvöldi lét Matti svo kvefið ekki stoppa sig í að kíkja í mat til Eggerts og Hildar. Þar fengum við æðislegan mat og svo er alltaf gaman að sitja og kjafta. Mér fannst líka voðalega gaman að punta mig upp enda gerir maður ekki mikið af því sem heimavinnandi húsmóðir :-) Kollu fannst rosalega gaman að skoða allt dótið hennar Auðar og varð nú heldur frek á dótið stundum, fannst eiginlega alger óþarfi að eigandi dótsins þyrfti nokkuð dót að hafa!! Inga María hagaði sér líka bara mjög vel. Ég var að koma í fyrsta skipti til þeirra eftir að þau fluttu í Kópavoginn og rosalega er íbúðin þeirra flott. Hún er á tveimur hæðum sem er eitthvað sem ég hef ekki séð á íbúð í blokk áður en kemur mjög vel út. Flott útsýni og allt. Svo í nótt þá svaf Inga María í 9 tíma streit!!! Þetta hefur hún nú ekki gert áður og Kolla var ekki upp í hjá okkur fyrr en klukkan 9 í morgun (sem sagt kom bara svona rétt upp í til að sækja mig) þannig að ekki get ég kvartað yfir svefnleysi í dag (get svo sem ekki kvartað mikið um það hina dagana heldur en það má reyna!!)
Jæja ætla að sinna Kollu smá !! Hún er voðalega rauð í klobbanum eftir lyktarlausar kúkableijur sem hafa verið of lengi á henni síðustu 2 daga. Ferlegt þegar maður veit ekkert af því að hún sé búinn að kúka maður þarf greinilega að kíkja oftar í bleyjuna hennar þessa dagana en ég er nú vön að finna lyktina langar leiðir en ekki núna. Hún er núna bleijulaus til að láta þetta jafna sig og vonandi pissar hún ekki um öll gólf á meðan, ég styllti nú koppnum upp hjá henni og hún sat smá á honum og horfði á barnatímann en ég á nú ekki von á að hún pissi í hann enda finnst mér hún ekki sína nein merki um að vera tilbúinn að hætta með bleiju.
Í gær vorum við bara heima og vorum voðalega duglegar í tiltekt. Ég er búinn að vera að vinna í því að taka til í stóra herberginu niðri en það hefur verið endalaus vinna og eiginlega draslað til í því hraðar en mér hefur tekist að sortera í dótakassana. Í gær tróð ég því sem eftir var á gólfinu í kassa og ryksugaði gólfið. Ég sorteraði samt heilmikið og þetta eru ekki margir kassar sem eftir er að sortera úr (4 minnir mig) en herbergið lítur líka svo mikið betur út svona hreint og fínt og auðveldara að sortera úr einum kassa í einu en ekki allt út um allt og maður veit ekki hvar maður á að byrja.
Ég og Áróra sváfum yfir okkur í morgun. Matti stillti klukkuna á 8:15 í stað 7:15 ég hrökk reyndar upp klukkan 8:05 og rak Áróru af stað á fullu og hún fór út úr húsi ca 20 mín yfir 8 sem gerir hana nú ekkert mjög sein. Maður vaknar svo hrikalega illa svona að ég er eiginlega ennþá að jafna mig.
Við gerðum sko fullt í gær. Inga María vaknaði klukkan 9 þ.e. á undan Kollu!! Sko ég hefði eflaust getað gefið henni upp í rúmmi og hún sofið áfram en sá bara enga ástæðu til þess. Við fórum svo í mömmu morgna í kirkjunni og í fyrsta sinn lék Kolla sér vel við krakkana og spjallaði við þau. Það eru þarna systkyn sem hafa verið þessi 3 skipti sem við höfum komið svo hún er farinn að þekkja andlitin á þeim vel og spjallaði við þau. Það var gaman að sjá hvað henni fannst gaman að vera með krökkunum. Við fórum svo heim og hlökkuðum til að borða pitsuna sem við höfuðum keypt í Bónus en pitsan var mygluð!!!! :-( Kollu sem finnst pitsur svo góðar hún sættist samt á jógúrt í staðinn enda orðin glorhungruð þegar ég fattaði þetta (þegar ég var að taka pitsuna út úr ofninum tók ekkert eftir því þegar ég henti henni inn). Ferlega varð ég fúl út í Bónus og pitsan var ekki útrunnin en að vísu á síðasta söludegi en ekki útrunninn.
Eftir matinn fórum við út á róló með stefnuna á að Kolla ætlaði að bíða hjá konunum og leika við krakkana meðan mamma færi í búðina. Hún gerði það með glans enda var ég nú bara ca 5 mín í búðinni. Hún skemmti sér svo vel þegar ég kom aftur úr búðinni að ég ákvað að skreppa heim með pokann og sækja hana svo. Það var greinilega vitlaust ákvörðun hjá mér og of mikið fyrir snúlluna mína því hún var hágrátandi þegar ég kom til baka (var 20 mín í burtu). Hún hljóp út úr rólónum um leið og konan opnaði fyrir mér og ætlaði að strunsa heim mjög fúl á svip. Ég talaði við hana og knúsaði hana og hélt á henni inn á rólóinn aftur því ég vildi ekki að hún færi af róló með svona slæmar minningar. Við lékum okkur svo við krakkana í ca 45 mín (fékk hana sko ekki heim fyrr) og hún skemmti sér mjög vel og hékk ekkert í mér þegar hún var búinn að jafna sig.
Það var voðalega sniðugt í gær þegar Áróra var að segja mér frá nýju dóti sem hún fékk frá pabba sínum. Inga María sat í stólnum sínum við hliðina á henni og Áróra notaði hendurnar til að útskýra mál sitt og Ingu Maríu fannst þetta voðalega sniðugt og brosti og hló upp hátt. Áróra gat varla klárað frásögnina því það var svo fyndið að fylgjast með Ingu Maríu sem var örugglega sannfærð um að Áróra væri að segja sér brandara :-)
Kolla var doldið þreytuleg í gær svo ég ákvað að láta hana leggja sig og sofa eins og hún gæti. Hún var fljót að sofna og svaf í 3 og hálfan tíma!!!! Reyndar ætlaði hún aldrei að sofna í gærkvöldi og sofnaði ekki fyrr en að verða 11 aumingja Matti sem var að svæfa hana og ætlaði sjálfur í rúmmið um 10.
Inga María og Kolla eru báðar sofandi ennþá en ég vaknaði klukkan 7 með Áróru sem er núna farinn í skólann svo ég sit bara í rólegheitum og drekk te og dunda mér í tölvunni.
Kolla svaf í alla nótt, en hvað við erum heppin að lifa á tímum þar sem búið er að finna upp pensilín. Hún er nú ennþá kvefuð enda bara búinn með einn dag í pensilínkúrnum og hóstar doldið en er greinilega aðeins skárri fyrst hún svaf alla nóttina. Ég sprauta bara neseril í nefið á henni líka til að hjálpa til með kvefið og henni finnst það mjög sniðugt og vill helst fá meira þegar hún er búinn að fá skammtinn sinn!! stórskrítið barn sem ég á.
Það er allt í drasli hérna á þessu heimili, ótrúlega mikið drasl alltaf eftir helgarnar ég er víst ekki ennþá búinn að ná því að heimavinnandi húsmæður eiga ekki helgarfrí jæja best að fara þá í tiltekt áður en Inga María vaknar.
Æi Kollan mín er komin með eyrnabólgu. Nú fæ ég samviskubit að hafa ekki farið með hana strax á fimmtudag eða föstudag :-( Hún svaf mjög illa í nótt og gat hreinlega ekki legið út af milli 3-5. Hún settist upp og lagðist niður til skiptis enda örugglega dauðþreytt eins og foreldrarnir en það var of sárt að leggjast niður. Hún virtist ekkert skána mikið við að fá verkjastillandi. Svo í dag fór Matti með hana á læknavaktina og fékk pensilín fyrir hana. Hún ætti því að lagast fljótlega.
Inga María svaf samt mjög vel þrátt fyrir bröltið í systur sinni og vaknaði bara einu sinni frá 12 til hálf 11. Vonandi sleppur hún við eyrnabólguna.
Við skruppum í Mjóddina áðan því okkur fannst orðið of hvasst til að fara út að ganga eða á róló. Kolla var hálfhrædd við rokið bara frá bílnum og inn í Mjóddina svo þetta hefur greinilega verið rétt ákvörðun. Í Mjódd fórum við og létum setja batterí í úrið hans Matta og svo fórum við í bókabúðina og ég keypti möppu undir reikningana og Kolla fékk nýja litabók með myndum af bangsímon og vinum hans. Síðan kíktum við í dýrabúðina. Kolla var dauðhrædd við páfagaukinn og kanínurnar en leyst mjög vel á hvítu mýsnar og hamstrana. Eflaust fannst henni þær vera í betri stærð fyrir sig :-)
Í dag ætla ég að skrifa smá um hvað er að gerast hjá stúlkunum mínum.
Ég vaknaði með Áróru í morgun ooo voðalega erfitt en hva ég lifi það af :-) Þarf að venja mig við að vakna fyrr. Matti fór á fætur hálf 7 og tók strætó 6:45 þvílíkur dugnaður í drengnum en það þýddi náttúrulega að ég varð að vakna 7:15 til að vekja Áróru. Langt síðan ég hef verið með henni á morgnanna svo það var fínt. Kolla fór svo á fætur um hálf 9 en Inga María steinsefur ennþá. Jafnvel þó að Kolla hafi fyrst verið aðalega að leika sér upp í sínu herbergi og glamra með kubbum og spila allar spiladósir sem hún á, held hreinlega að hún hafi verið að reyna vera með eins mikil læti og mögulegt er en litla snúlla svaf þrátt fyrir það.
Kolla svaf alveg strait til 6 þannig að hún er ekki með í eyrunum svo ég fer ekkert með hana til læknis en ef rokið verður ekki orðið of mikið þegar Inga María vaknar þá stefnum við á rólóferð.
Inga María svaf og svaf í morgun enda örugglega þreytt eftir að vakna svona oft í nótt :-) en allavegana vakti ég hana korter yfir 11 svo við misstum af lækninum!! Ég fer þá bara á morgun. Í staðinn fórum við að borða á Mcdonalds og Kolla hámaði sko barnaboxið sitt í sig mmm hvað henni fannst það gott og mér fannst það svo sem ekki slæmt heldur. Kolla fékk svo strump í barnaboxinu sínu og fannst það voðafjör líka. Síðan kíktum við til Ásu ömmu og Stefáns afa en þar sem þau voru á leiðinni út þá stoppuðum við nú stutt hjá þeim. Fórum svo heim í húsið okkar allt strokið og fínt :-)
Ég er alveg voðalega þreytt eftir erfiða nótt með stúlkunum mínum tveimur. Inga María vaknaði þrisvar (vaknar venjulega bara einu sinni og þá undir morgun) og Kolla kom upp í og sparkaði í bakið á mér hálfa nóttina!! Ég er að hugsa um að kíkja með þær til læknis og láta kíkja í eyrun á þeim. Kolla er venjulega ekki óróleg á nóttinni nema hún sé með í eyrunum og hún er búinn að vera með kvef doldið lengi.
Gærdagurinn: Afslöppunin entist sko ekki lengi bara ca 10 mín ef þá svo lengi náði allavegana ekki einu sinni að hita mér te :-( Þegar Kolla vaknaði fórum við út í göngutúr og ætluðum að æfa okkur á róló en rólóinn lokar 3 svo það var búið að loka þegar við komum þangað. Ég verð greinilega að fara með Kollu á róló á morgnanna en það gengur voðalega erfiðlega að hitta á opnun. Rólóinn er opinn á morgnanna milli 10-12 og Inga María vaknar venjulega um hálf 11. Þá á ég eftir að gefa henni og klæða þannig að við erum aldrei lagðar af stað fyrr en rúmlega 11 og Inga María er þá tiltörulega ný vöknuð og sofnar ekki í vagninum og er því óróleg hálfa leiðina ef ekki alla. Ætti kannski að fara bara með hana í magapokanum og vera ekkert að reyna að láta hana sofna en væri bara svo kósí ef Kolla væri á róló í klst og Inga María sofandi í vagninum :-) Eftir hádegið er rólóinn opinn 1-3 en þegar Kolla leggur sig á daginn sem er svo sem ekki alltaf en ég reyni samt að hafa allavegana hvíld þá er hún að sofna um 1 og vakna ca hálf 3 þannig að ekki er mikill tími fyrir róló þá.
Við erum reyndar að venja okkur smá saman við að vakna fyrr svo kannski lagast þetta vandamál með því en þarf sko að láta Ingu Maríu sofna fyrr og vakna fyrr. Gæti sko vakið hana fyrr ég veit það vel en tími því bara alls ekki :-)
Í dag er konann sem þrífur hjá okkur að koma í síðasta sinn og eftir daginn í dag er þetta sem sagt mitt verk :-( erfitt að vera heimavinnandi húsmóðir!! Ætla sko að njóta þess að koma heim á eftir í allt hreint og fínt. Vonandi kemur hún samt ekki mjög snemma svo ég geti leift Ingu Maríu að sofa sem lengst.
Ég er búinn að vera voðalega dugleg að taka til í skápunum hennar Kollu og tók út 6 kg af fötum (að sjálfsgögðu viktað og sent kg fjöldi til flylady). Hún á of mikið af fötum og því sér maður ekki fínu fötin hennar sem maður vill virkilega nota. Ég tók því út öll þau föt sem eru farinn að láta á sjá eða bara skildi eftir þau föt sem mér fannst flottust sum fötin sem fóru út voru samt mjög fín en það er ekki hægt að nota allt og því einblíni ég á föt sem hún hefur fengið sjálf ekki sem Áróra hefur átt eða fengið notað af öðrum.
Ef veðrið helst svona gott ætla ég að fara með Kollu út á róló á eftir til að venja hana við svo ég geti bráðum farið að skilja hana eftir á rólónum. Gott að rokið er ekki sem veðurstofan spáði alltaf gott þegar slæmu spárnar þeirra rætast ekki :-) Ég ætla samt fyrst að reyna að láta hana leggja sig en er búinn að ákveða að stytta hvíldina hennar úr klukkutíma og korteri í 45 mínútur. Sem þíðir að ef hún er ekki sofnuð eftir 45 mín þá tek ég hana úr rúminu en hef hingað til látið hana liggja þar í klukkutíma og korter ef hún sofnar ekki. Sjáum hvernig það gengur en hún er yfirleitt voðalega fín að liggja í rúminu og spjalla við snuddurnar sínar en sofnar ekki næstum því alltaf :-)
Góðan dag
Þessi dagur byrjar nú í fyrralagi fyrir minn smekk en hva ég lifi það af :-) Áróra vakti mig rúmlega 7 þar sem að hún hafði klórað sig svo illa í nótt. Ferlega er leiðinlegt að vera með excem. Annars er Áróra búinn að vera voðalega dugleg síðustu daga að koma sér ein af stað í skólann. Matti vekur hana rúmlega 7 og svo fer hann í vinnuna og hún fer sjálf í skólann klukkan 8:15. Hann hjálpar henni að vísu að smyrja nestið en að öðru leiti gerir hún allt sjálf. Þetta er sko orðin fullorðin stúlka sem ég á. Ég stefni nú á það að fara fyrr á fætur svo ég sé með henni allavegana eitthvað. Gæti t.d. vaknað korter í 8 og verið síðasta hálftímann með henni en forsendan fyrir því er að ég komist fyrr í rúmið. Inga María sofnaði 11 í gær svo kannski fer hún að venjast á það og svo áfram aðeins fyrr en hún hefur hingað til farið að sofa um 12 jafnvel rúmlega það. Í staðinn sefur hún lengur á morgnanna sem mér finnst líka ágætt. Þá hef ég tíma á morgnanna til að sinna Kollu og vera smá í tölvunni.
Mig langar að segja aðeins frá Flylady sem er vefur og póstgrúbba sem ég kynntist síðasta haust en hef verið að reyna að fara eftir því sem þau segja síðan um áramót. Þetta er hópur fyrir fólk til að læra að skipuleggja heimilisstörfin. Mjög sniðugt fyrir fólk sem nennir ekki að þrífa og taka til eins og ég :-) Maður fær áminningar nokkrum sinnum á dag, sérstakt verkefni dagsins og bréf sem fjalla um skipulagningu. Fyrsta skrefið er að búa til grunnrútínur og er ég sem sagt að vinna í því að gera þær alla daga. Flylady (konan sem stjórnar þessu) mælir með að maður byrji smátt og bæti svo smá saman við frekar en að taka hlutina með trompi nenna svo ekki að gera allt það einn daginn og þá er allt komið í drasl. Grunnrútínan mín er mjög einföld og eflaust finnst mörgum hún einum of einföld en þegar maður er með 2 lítil börn er líka voðalega gott að hafa grunninn einfaldan og geta allavegana sagst hafa afrekað því þennan daginn :-)
Morgunrútina:
Borða morgunmat og gefa stelpunum að borða
Ganga frá eftir morgunmatinn
Þrífa borðin í eldhúsinu og matarborðið
Setja í þvottavél
Miðdagsrútína:
Útbúa hádegismat
Ganga frá eftir matinn
Svæfa Kollu
Taka úr þvottavélinni
Taka til í korter
Kvöldrútína:
Elda kvöldmat (eða setja Matta að gera það :-)
Ganga frá eftir kvöldmatinn
Þrífa borðin í eldhúsinu og matarborðið
Þetta er sem sagt engin ósköp eins og þið sjáið en gefur manni samt tilfinningu fyrir að maður hafi gert eitthvað sem vantar oft mikið fyrir heimavinnandi húsmæður. Síðan hef ég reynt að gera eitthvað af sér verkefnunum líka eftir því sem að stelpurnar reyna. Núna er verið að vinna í baðherberginu og einu öðru herbergi. Einnig er átak í að losna við hluti sem við notum ekki og drasl út úr húsinu. Markmiðið er að henda/gefa hluti/drasl upp á þyngdina 1 milljón pund í gær voru komin 887.477 pund og bara einn dagur eftir svo við sjáum til hvort þetta næst en sniðugt átak engu að síður. Ég hef nú bara hent ca 10 kg sem eru 20,2 pund svo valla verð ég meðlimur ársins :-) Jæja þá ætla ég að skella mér í morgunrútínuna og mun leifa ykkur að fylgjast með hvernig gengur hjá mér. Sko maður á nú eiginelga að gera rútínuna áður en maður leifir sér að fara í tölvuna en ég borða hafragrautinn minn fyrir framan tölvuna svo það getur ekki átt við mig :-)
Ég fór svo aldrei í mömmumorguninn nennti því ómögulega!! En í staðinn fórum við stelpurnar og fengum okkur að borða í hádeginu með karlmanninum í fjölskyldunni. Við borðuðum á grænum kosti og maturinn var virkilega góður en það var nú ekkert einfalt mál að borða með eina 2 ára stúlku sem vildi helst hlaupa um staðinn og einni 2 mánaða sem vildi ekki sitja í bílstólnum sínum og leifa mömmu að borða. Ég get því ekki beint sagt að ég hafi notið matarins eins mikið og ég hefi viljað en það var gaman að fara í bæjarferð engu að síður. Kolla naut þess virkilega að fara í bæinn hélt voðalega mannalega í hendina á mér og sagði vá vá við búðargluggunum :-)
Eftir hádegið fórum við heim og Ragga sem er með mér á mömmulistanum kíkti í heimsókn með stelpurnar sínar. Við sóttum svo Matta í vinnuna og fórum í Bónus mmm sem ég mæli ekki beint með með 2 litil börn, við höfðum greinilega gleymt upplifun hádegisins!! Matti var voðalega þreyttur og fór að sofa með Kollu rúmlega 8 og Inga María var að sofna núna klukkan 11. Þannig að ég er farinn i rúmmið. Góða nótt :-)
Jæja þá er komið að fyrsta degi þessarar dagbókar. Hér ætla ég að skrifa sitt lítið af hverju um það sem ég er að gera og hugsa á daginn svo verður bara að koma í ljós hvort það sé eitthvað :-)
Ég sit hér og nýt þess að geta verið í tölvunni á meðan Inga María sefur og Kolla horfir á Stubba spóluna sem hún fékk í afmælisgjöf mmm þvílíkt letilíf sem þessar heimavinnandi húsmæður lifa. Ég ætlaði að fara í mömmumorgna í krikjunni en tími ekki að vekja Ingu Maríu því mig langar svo að sitja í tölvunni og drekka te. Stefni nú samt á það að kíkja smá en hva við sjáum bara til hvenær hún vaknar. Það er svo gott að sofa á morgnanna.