November 14, 2001
ólétt að eilífu

Þetta skrifaði ég svo 14. nóv tveim dögum áður en að Inga María fæddist

hæ hæ þá er nýr dagur kominn og ég er hér ennþá ólétt :-)
Verkirnir versnuðu fyrst eftir að ég lagist í rúmið en lognuðust svo út af og svo vaknaði ég 2 sinnum við verk en svaf að öðru leiti ágætlega !!!
Þannig að nú er ég kominn í ég verð ólétt að eilífu fílíng :-) Þannig að ég mæti bara í mæðraskoðun í dag klukkan 5 eins og ekkert sé.
Verið þið nú duglegar að skrifa eitthvað skemmtilegt í dag svo ég hafi eitthvað gott að lesa.
Sjái þið teljarann nú telur hann mínus ár!!!! ja hérna þarf nú að láta matta hjálpa mér að fjarlægja hann.
kveðja
Gyða

Posted by gydaa at 06:20 PM
November 12, 2001
12. nóvember

Þetta skrifaði ég 12. nóvember

--- In born2001@y..., Gyða Ásmundsdóttir wrote:
ooo ef ég vissi það :-) er sko búinn að reyna að ræða alvarlega við
þetta
barn en það virkar ekkert :-) Meira að segja Kolla er búinn að prófa

segja litla barninu að koma út og lúlla í fína rúminu. Við sko náðum
í
rúmið út í bílskúr í gær (reyndar er það ennþá niðri á ganginum í
kjallaranum setjum það kannski á miðhæðina í kvöld og svo áfram upp
hinn
daginn :-) og ég sagði við Kollu sjáðu fína rúmið sem litla barnið
ætlar að
lúlla í þegar það kemur út. Þá sagði Matti eitthvað um að jú nú ætti
það þá
bara að koma út og lúlla í rúminu. Kolla tosaði þá upp peysuna og
sagði
koddu lúlla koddu lúlla við bumbuna :-) Þannig að öll fjölskyldan er
sem
sagt farinn að bíða :-)
Ég er líka farinn að fá fullt af símtölum á dag og allt saman!! Jæja
mér
leiðist ekki á meðan.
Gyða
Áróra 3. júní 1992
Kolla 6. janúar 2000
Yngsti meðlimurinn átti að fæðast í gær!!!

Posted by gydaa at 06:17 PM
12. nóvember 2001

Þetta skrifaði ég svo 12. nóv

Ég var áðan með reglulega verki frá klukkan 8 til 10 en svo hafa ekki komið nema bara litlir óreglulegir samdrættir eftir það uhu ég hélt að nú væri þetta að koma og sit því hér í tölvunni í fílu :-) Allavegana var ég með verki fyrst á 10 mín fresti og svo komið niður í 8 mín og doldið kröftugir en ekkert óbærilegt eða neytt slíkt bara svona eins og verkir byrja.
Allavegana það styttist eitthvað í þetta er það ekki :-)
kveðja
Gyða

Posted by gydaa at 05:36 PM
November 01, 2001
1.nóv 2001

Þetta skrifaði ég svo 1. nóv 2001 en þá átti ég þrítugsafmæli

--- In born2001@y..., Gyða Ásmundsdóttir wrote:

Jæja ég bauð foreldrum og systkynum heim í gær í hádegismat. Það
gekk bara
mjög vel en ég var alveg búinn eftir á, ótrúelgt hvað maður hefur
lítla
orku!! Ég var með brauð frá Jóa fel og alls konar danskt álegg sem
mamma
keypti á dönskum dögum í Nóatúni í tilefni þess að ég fæddist fyrir
þrjátíu
árum í danmörk :-) Svo gerði Matti rosalega gott salat með þannig að
það er
svo sem ekki eins og ég hafi gert neytt rosalega mikið. Mamma fékk
meira
segja konuna sem þrífur hjá okkur til að koma til mín daginn áður
(átti sko
að þrífa hjá mömmu þá) svo ég þurfti ekki einu sinni að gera það en
sem sagt
enginn orka :-(
Jæja ég naut allavegana dagsins þangað til orkan kláraðist :-)
Svo svaf ég frameftir í morgun og nú erum við Kolla að reyna að halda
okkur
til friðs hérna í tölvuherberginu svo Matti geti horft á leikinn í
friði
sjáum til hvað það endist lengi að sitja og hlusta á svanhildi syngja
fyrir
börnin og leika af dótinu.

kveðja
Gyða

Posted by gydaa at 05:34 PM