December 20, 2003
laugardagsmorgun og síðustu dagar

Jæja ég skrifa orðið voðalega sjaldan!! Er alltaf að vona til að lífið róist hjá mér en veit ekki alveg hvenær það á að gerast!! En maður lifir í voninni :)

Núna sitjum við og Kolla og Áróra eru að horfa á barnatímann en Inga María er aðalega að hanga í mér þannig að ég verð örugglega klukkutíma að skrifa þetta :)

Inga María er með eyrnabólgu reyndar er nú doldið langt síðan hún fékk í eyrun svo ég get ekki kvartað mikið. Matti var með hana heima á fimmtudaginn og við fórum með hana til læknis í domus medica heppilegt fyrir mig því þá gat ég skotist með þar sem ég er að vinna þar rétt hjá. Jæja þú ætlar bara að treysta mér til að fara einn í apótekið sagði Matti þegar ég kvaddi þau í apótekinu og hljóp aftur í vinnuna :-þ Hún fékk eyrnadropa og sent í ræktun en svo hringdi læknirinn í mig í gær og vildi setja hana á pensilín þar sem hann var með bakþanka um að rörin væru að virka svo nú er hún komin á pensilín. Hún er búin með 3 skammta (tekur 2 á dag) svo vonandi fer henni að líða betur. Hún er reyndar alveg hitalaus og svaf alveg í nótt sem er fyrsta nóttin en reyndar vaknaði hún rúmlega 7 sem mér fannst nú allt of snemmt en það hefur nú eflaust ekkert með eyrnabólgu að gera!! Hún geyspaði svo áðan og bókstaflega æpti upp af sársauka og fór að hágráta svo ekki er hún orðin góð enda er svo sem of stutt liðið fyrir það.

Í gærkvöldi fórum ég, Áróra og Sóley vinkona hennar saman á idolið. Það var alveg rosalega gaman. Við fórum rúmlega sex og ætlaðum að fara og fá okkur að borða fyrst ég var nú með frædeis eða dominos í huga en þegar við komum voru þegar nokkrir komnir í röð fyrir framan innganginn að idolinu svo ég skellti stelpunum í röðina og fór og keypti subway og pulsur og gos allt eftir því hver vildi hvað. Hitti Sirrý og Badda og krakka og kjaftaði smá við þau. Það var svo hleypt inn klukkan korter í átta þannig að við vorum ansi lengi í röð en fengum fín sæti í staðinn :) . Það var byrjað með skemmtikrafti svona uppistand en man því miður ekki hvað hann heitir. Svo byrjaði keppnin og það var voðalega gaman að horfa á keppnina svona live. Líka gaman að sjá allt í auglýsingarhléum. Aðalega Simmi sem ræddi við áhorfendur svona svo fólki leiddist ekki á milli. Sagði frá því að í þar síðasta þætti hefði sótavatnið hans farið allt yfir hann þegar hann opnaði það í auglýsingahléi og hann hefði þurft að vera rennandi blautur þar sem eftir var en var sem betur fer í svörtum fötum svo það sást ekki. Stelpurnar voru himinlifandi með þetta allt saman eins og ég. Reyndar voru þær mjög leiðar yfir því að Helgi skildi hafa farið út en samt völdu þær Önnu Katrínu og ég kaus hana fyrir þær og já auðvitað Jón líka Sirrý :-)

Reyndar fannst mér rosalega leiðinlegt hvað það var púað þegar Helgi féll út þar sem að þetta var náttúrulega líka Jón að fá að halda áfram fannst það leiðinlegt gagnvart honum svo ég klappaði fyrir því alein he he :-)

Við eigum svo eftir að gera rosalega mikið fyrir jólin en ekki hvað. Eftir að kaupa nokkrar gjafir og senda jólakortin (eftir að gera listann og kaupa kortin og skrifa þau!!) og svo auðvitað versla jólamatinn og þrífa yss ég er bara orðin stressuð á að tala um þetta!!

Ætla að reyna að taka smá til fyrst að Inga María er loksins sest niður og farinn að horfa á smá barnatíma endist örugglega ekki lengi. Enda er hún alltaf vælandi um eyrnaverk aumingja stelpan mín :-(

Posted by gydaa at December 20, 2003 10:14 AM
Comments

Þú ert nú meiri dagbókar skrifarinn sleptir meira að segja afmæli og allt :C)
Jæja kannski nógu erfitt að vera 3 barna súper mamma svo maður sé ekki að halda dagbók líka.

Posted by: sirry on February 21, 2004 08:46 AM


Jú það er alveg satt ég er hræðilega lélegur bloggari og meira segja eiginmaðurinn er hættur að nenna að tuða í mér yfir því :-O
Markmiðið hjá mér nú er frekar að reyna að skrifa vinunum oftar tölvupóst en við sjáum til hvort ég get potað einhverju hér inn á þessu ári eða svo !!

Posted by: Gyda on February 21, 2004 09:01 AM