December 16, 2003
vegna fjölda áskorana

Jæja vegna fjölda áskorana þá hef ég ákveðið að skrifa dagbókarfærslu mánaðarins :-)

Alltaf nóg að gera. Styttist í jól og nóg eftir að gera á okkar heimili, kaupa fullt af jólagjöfum, skrifa jólakort og kaupa þau eða búa til eftir því hversu mörg ég nenni að búa til :-Þ

Fjör að vinna hjá LSH þessa dagana!! Vonandi lendi ég ekki í þessum hátt í 200 manna hópi sem á að fækka um.

Stelpurnar eru kátar og hressar þessa dagana enda ekki hægt annað þegar jólin nálgast. Litlunum finnst nú jólin voða langt í burtu og tíminn líða hægt en mér finnst hann nú frekar líða of hratt eins og venjulega!!

Jæja veit ekkert hvað ég á að skrifa svo sjáumst í næsta mánuði og lesið bara bloggið hans Matta þangað til :-)

Posted by gydaa at December 16, 2003 11:11 PM
Comments