November 16, 2003
Afmæli Ingu Maríu

Jæja ég skrifa bara á afmælum greinilega!! En litla barnið mitt varð sem sagt 2 ára í dag. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Mér finnst það hafi verið í gær sem ég fékk hana fyrst í hendurnar!!
Dagurinn er búinn að vera góður en ég er nú alveg voðalega þreytt eftir erfiðar helgi. Búinn að taka til og þrífa og baka eins og gengur þegar maður er með í afmæli. Nema það að ég tók heldur meira til heldur en venjulega. Kom leikherberginu niðri í almennilegt horf og tók til í herberginu hennar Áróru (sem er stórkostlegt afrek í sjálfum sér þó ég hafi svindlað með því að henda öllu bókstaflega í 3-4 dótakassa og fara með þá út úr herberginu og hún fær þá bara einn í einu og verður að koma öllu fyrir áður en hún fær þann næsta það er á hreinu!!). Verður spennandi að sjá hversu langur tími líður þar til hún biður um fyrsta kassann.
Matti tók auðvitað myndir í dag og skellti þeim á síðuna okkar. Hann er svo duglegur myndamaður, gott að einhver sér um það ef ég myndi gera það þá ætti fjölskyldan líklegast engar myndir!!
Jæja nú er ég farinn að sofa

Posted by gydaa at November 16, 2003 11:35 PM
Comments

Mér finnst alveg vera kominn tími á þína mánaðarlegu dagbókarfærslu.

Posted by: Matti Á. on December 16, 2003 04:05 PM