Bara svona að deila því með ykkur að þetta er færsla númer 300 í dagbókina mína :)
Inga María var með pest í vikunni. Fékk hita aðfaranótt þriðjudags. Við áttum akkurat tíma hjá eyrnalækninum og hann skoðaði hana og Kollu. Inga María var ekki með eyrnabólgu bara pest en Kolla er með þrýsting í eyrunum. Ég ræddi við hann um að ég væri hrædd um að hún heyrði illa því hún ætti t.d. erfitt með að læra texta við sönglögin í skólanum. Spurði á hvaða aldri hægt væri að fara með þau í heyrnapróf. Það er nú hægt frá ca 3 ára aldri en hann staðfesti að hún heyrði ekki vel út af þrístíngnum og vildi sestja rör í hana aftur til að laga það (seinna rörið datt úr um miðan september). Við komum aftur eftir mánuð til að sjá hvernig þrýstingurinn í eyranu á henni verður þá. Matta fannst nú óþarfi hjá mér að bíða í mánuð en æi ég er orðin svo þreytt á röraðgerðum að ég vildi aðeins sjá til. Á samt von á að hún fari í aðra aðgerð í nóvember.
Við Inga María vorum svo heima á þriðjudaginn. Henni fannst mjög skrítið að vera svona ein heima hjá mömmu. Var alltaf að benda mér á að Kolla og Áróra og pabbi væru ekki hér bara Inga María og mamma.
Á miðvikudeginum kom Diddi og var hjá Ingu Maríu til hádegis svo ég gæti farið smá í vinnuna en þar sem að þetta var fyrsta vinnuvikan hans Matta var ansi erfitt að láta hann taka sér frí. Inga María var svo hitalaus á miðvikudagskvöldið svo hún fór í leikskólann á fimmtudag. Hóstar reyndar doldið ennþá en er að öðru leiti hress.
Jæja ætla að vekja Matta og koma mér í vinnuna einhvernveginn verður maður að bæta upp það að vera ekki í vinnunni einn og hálfan dag í vikunni.
Posted by gydaa at October 18, 2003 10:25 AMTil hamingju með 300 færsluna :) þú ert ekkert smá dugleg að skrifa.
Vona að þrístingurinn verði betri eftir mánuð svo hún þurfi ekki að fá rör.