Matti skipaði mér að skrifa eitthvað annars hótar hann að slökkva á blogginu mínu!! Ég er kúguð eiginkona greinilega :-Þ
Matti er að byrja að vinna á morgun svo það verða breytingar á heimilislífinu hjá okkur. Ég sem var virkilega farinn að njóta þess að vera svona "eiginmaður" sem kemur heim og segir hvað er í matinn elskan og þurfa ekki að þvo þvotta né taka til nema í litlu magni. En ég er auðvitað himinlifandi að drengurinn sé kominn með vinnu.
Svo er pabbi að skipta um vinnu líka ekki var það verra.
Stelpurnar eru alltaf kátar og hressar og Inga María syngur orðið voðalega mikið. Í dag söng hún afi minn og amma mín á leiðinni heim voða kát. Svo var hún að klippa áðan (sem reyndar var þannig að hún klippti smá inn í bréfið og reif svo bréfið) og svo gaf hún okkur afrifurnar voða stolt. þegarhún kom frá pabba sínum eftir að hafa gefið honum bréf þá sagði hún: hvar er klippið mitt hvar er klippið mitt og var sem sagt að leita að skærunum sínum. Flott nýyrði.
jæja þetta var nóg er það ekki Matti :-Þ
ég ætla þá að leggjast í sófann með ferðavélina og virkilega njóta þess að Matti sé í fótbolta.
Þetta er mjög fínt ástin mín :-)
Posted by: Matti Á. on October 9, 2003 10:54 PM