September 21, 2003
Helgin mín

Ég er búin að hafa ágæta helgi þó ég hafi verið meira og minna eiginmannslaus um helgina!! Matti var með lokahóf Henson (fótboltaliðið hans í utandeildinni) hérna heima hjá okkur og góða eiginkonan hans flutti til foreldra sinna eina nótt svo strákarnir gætu verið í friði :-)
Við fórum til mömmu strax eftir vinnu eða svo til vorum komin þangað rétt um 6 ég fór sem sagt bara heim og tók saman dótið okkar og sængur og svo fórum við. Fengum Mcdonalds hjá mömmu og pabba sem stelpunum fannst ekki leiðinlegt. Svo fór Inga María að sofa en Kolla sofnaði ekki fyrr en klukkan 10 var rosalega spennt að fara í rúmið en gat svo ekkert sofnað svo ég tók hana fram til okkar aftur. Horfðum á einhverja hundleiðinlega hundamynd og ég las bók þess á milli. Kolla vaknaði svo 7 og tókst að vekja systur sína fljótlega þar á eftir með því að þurfa nauðsynlega að kyssa hana aftur og aftur á tærnar. Hún var sko ekkert að vekja hana þetta voru bara svo krúttlegar tær!! Mömmu hennar fannst þetta nú ekkert sniðugt enda dauðþreytt eftir að hafa sofið illa um nóttina. Kolla þurfti nefnilega nauðsynlega að fara á klósettið klukkan 3 og svo voru líka rosaleg læti í veðrinu. Svaf sko í herbergi með stórum gluggum að sjónum og rokið barði bókstaflega stannslaust á gluggunum. Síðan kom Inga María upp í til mín um 4 og hún var alltaf að velta sér alveg á brúnina þannig að ég var alltaf að næstum grípa hana áður en hún rynni út á gólf svaf sem sagt ekki mjög fast með hana svona.
Kosturinn var samt sá að herbergið okkar er við hliðina á sjónvarpsherberginu, sófinn við hliðina á hurðinni svo ég lá og dottaði í tæpa klst meðan Kolla horfði á banatímann og Inga María lagði sjónvarpsherbergið i rúst!! Þvílíkir gestir. Svo klukkan 9 fór ég með þær fram að fá morgunmat og þá vöknuðu gömlu hjónin fljótlega enda ekki mjög hljóðlegir næturgestir sem þau höfðu.
Stebbi bróðir og frú komu svo um hádegið með Matta glæran af svefnleysi og þynnku (hann var að skemmta sér til 6 eða 7 um morguninn!!). Við borðuðum ástamt foreldrum Margrétar (kærustu Stebba) og það var gaman að hitta þau í fyrsta sinn. En þau komu sko að skutla stráknum hennar til þeirra og kíktu inn í hádegiskaffi. Um leið og Matti var búinn að borða lagðist hann í sófann og svaf þar þangað til ég rak hann í rúmið sem ég hafði sofið í um nóttina svo stelpurnar gætu horft á spólu. Ég vakti hann svo um 4 til að við gætum farið heim. Við fórum heim og hann náði í íþróttafötin sín og ég skutlaði honum í fótbolta og þaðan fór hann beint á næsta djamm sem var 10 ára reunion með Versló.
Við stelpurnar borðuðum afganga frá kvöldinu áður hjá Matta og svo fóru litlurnar að sofa en ég fór út í sjoppu og keypti nammi og gos handa okkur Áróru og við horfðum á sjónvarpið þar til hún fór að sofa rúmlega 10. Ég naut þess þá að liggja í sófanum með ferðatölvuna alveg fyrir mig og fjarstýringuna líka en það var reyndar ekkert í sjónvarpinu!! Ég fór svo bara að sofa um miðnætti og rumskaði um 5 við að eiginmaðurinn skilaði sér í rúmið til mín (sem þýðir að hann kom heim milli 3 og 4 því hann fer aldrei beint að sofa!!) og ég var voða glöð yfir því að hann kæmi svona snemma heim :-)
Vaknaði svo með skvísunum í morgun (ekkert í boði að sofa út þessa helgi) og lág upp í sófa áfram með ferðatölvuna meðan stelpurnar horfðu á barnatímann og vakti svo Matta rúmlega 11. Hjálpaði Áróru með ritgerð um Vespur sem verður skilað á morgun og gerði tilraun til að lesa bók þess á milli. Endaði nú í pirring upp í rúmi og skipaði eiginmanninum að hugsa um dæturnar þar sem ég ætlaði að fá korters pásu með bókina mína. Pásann entist nú ekki nema í 5 min en þá kom Kolla upp til mín og talaði og talaði og svo kom Inga María fljótlega á eftir urr ég var nú ekekrt rosakát með eiginmanninn þá. Reif mig þá á lappir og í að koma liðinu í spariföt þar sem við vorum boðin í afmæli. Vorum svo í 4 ára afmæli milli 5 og rúmlega 8. Ætlaði fyrst ekki að fá stelpurnar til að koma heim og svo tók tíma að koma kallinum út líka þó hann vildi ekki viðurkenna að hann væri verri en börnin ;-) En við skemmtum okkur öll vel í afmælinu. Alltaf gaman að kjafta við ættingja en Ásthildur (afmælisbarnið) er dóttir Ásmundar bróðir Ásgeirs tengdapabba (voðalega er þetta eitthvað flókið hjá mér þegar maður les þetta). Ásthildur og Kolla ná alltaf vel saman enda bara nokkrir mánuðir á milli þeirra og Dóra Sóldís (eldir dóttir þeirra) og Áróra skemmtu sér ágætlega saman líka. Það er helst að Inga María hafi verið út undan og var hún mikið uppi hjá okkur á milli þess sem að stelpurnar notuðu hana sem hálfgerða dúkku í mömmuleiknum!!
Annars var ferðatölvan hans Matta að bila aftur svo það er spurning hversu mikið ég fæ að komast í tölvu þangað til hún kemst í lag!! Fyrst þarf ég að slást við dæturnar en á kvöldin við eiginmanninn um tölvuna!! Eins gott fyrir heimilisfriðinn að við fáum fleiri en þessa einu tölvu í lag.

Posted by gydaa at September 21, 2003 10:30 PM
Comments