Inga María kom óvenju snemma upp í til okkar og tók svo til allt rúmið og Kolla kom líka upp í en svaf reyndar á dýnunni við hliðina á okkar þannig að það var í fínu lagi en ég svaf nú ekkert mjög vel. Rauk svo á fætur 20 mín yfir 7 þar sem að Áróra hafði ekki stillt klukkuna sína og ég þurfti að drífa hana á fætur. Gerði það og rauk svo og náði strætó 10 mín í 8 hálfsofandi ennþá.
Langaði alls ekki í steiktan fisk og ekki í salatbarinn þar sem að ég fékk mér hann í gær þegar það voru soðnar kjötbollur (og örugglega ógeðslega mikil fita í þeim eða var það allavegana síðast þegar ég gerði tilraun til að borða þær). Ég hringdi því í mömmu og við fórum út að borða í hádeginu. Gekk ekki áfallalaust að finna stað samt. Hittumst fyrir utan Pasta basta en þar var allt læst, fórum næst á Cafe List en þar voru 2 reyklaus borð mitt á milli reyk borðanna og fólk að reykja við hliðina á reyklausu borðunum spennandi að borða þannig ekki satt!! Við horfðum bara hneikslaðar á þjóninn fyrir að ætla að bjóða okkur upp á þetta og fórum út. Næst fórum við á vegamót en það eru engin smá læti þar sem að mér skilst að sé bara "eðlilegt" fyrir þennan stað svo við flúðum þaðan líka og enduðum á Ítalíu. Keypti mér hálfmána og var mjög ánægð með matinn át reyndar yfir mig en það fylgir víst.
Mamma sagi mér frá samræðum sem hún átti við Kollu á laugardaginn var. Þær voru að ræða um litlu frænku (dóttur Jónu Dóru og Óttars) og mamma segir við Kollu. Borðar hún eitthvað (því við borðum alltaf öll saman á sunnudögum hjá tengdó). Já hún gerir það segir Kolla en hún borðar bara heima hjá sér. Nei segir mamma svona lítil börn drekka bara úr brjóstinu sínu þau borða ekki mat. Jú víst gera þau það segir Kolla en hún borðar bara mat heima hjá sér ekki hjá ömmu Stellu. Mamma reyndi áfram að rökræða þetta við hana en hún gaf sig ekki. Hún sagðist nefnilega vita vel að lítil börn dykkju bæði úr úpa (orðið sem Inga María notar yfir að drekka brjóst) og borðuðu mat því að Inga María gerði bæði og reynið ekki að plata hana að fyrst að litla systir hennar geri bæði þá geri ekki öll lítil börn bæði!! :-)
Annars fór ég með Kollu aftur á læknavaktina þar sem læknirinn mælti með því um daginn að við létum kíkja í eyrun á henni eftir 1-2 daga. Rörið í því eyra sem enn hafði rör er að detta úr en eyrnabólgan er samt að hjaðna svo hún sleppur við sýklalyf í þetta sinn.
Posted by gydaa at September 17, 2003 08:55 PMHefður átt að koma til mín á Carpe diem að borða :C)
Yss já auðvitað átti ég að gera það
Gyða