Ég byrjaði daginn á því að koma við í mötuneytinu og kaupa mér kjallarabollu og setja kjötálegg ofan á mmmm namm namm þó að ég verði nú að viðurkenna að brauð með kjöti flokkist frekar undir kvöld eða hádegismat heldur en morgunmat en alltaf jafn gott samt. Þægilegt að hafa svona mötuneyti í vinnunni sem er með allar máltíðir svo maður getur alltaf fengið eitthvað gott í gokkinn. Ekki er það heldur dýrt brauðbolla með áleggi kostar bara einn miða sem er 55 kr.
Síðann fékk ég þennan fína gratineraða fisk í hádeginu svo ég haldi nú áfram að hrósa mötuneyti Landspítalans ;-)
Síðan var hringt í mig úr leikskólanum klukkan 3 í dag þar sem að Inga maría var komin með hita. Það hefur verið að leka úr eyrunum á þeim báðum síðustu daga svo við kíktum á læknavaktina eftir vinnu og létum kíkja í eyrun á þeim báðum.
Kolla er með væga eyrnabólgu í því eyra sem er ekki rör og við máttum ráða hvort við fengjum pensilín eða létum kíkja á hana aftur á morgun. Ákváðum að bíða og kíkja frekar aftur á morgun. Hún hefur verið rosalega lengi að sofna síðustu kvöld en í kvöld gaf ég henni verkjalyf fyrir svefninn og hún sofnaði svo til strax!!! Stelpu greiið henni hefur bara liðið illa að liggja þar til hún gat ekki setið og leikið sér lengur og svefninn náð yfirhöndinni. En aldrei kvartar þetta barn nei það er á hreinu!!
Inga María er með eyrnabólgu í öðru eyra og smá roða í hinu. Hún fékk eyrnadropa og verður heima hjá pabba á morgun. Ég mældi hana nú ekki fyrir svefninn en hún var doldið heit ekkert rosa mikið. Henni hefur samt ekkert liðið illa og sofið vel síðust nætur svo rörin eru að vinna sitt verk við að losa
Við komum svo við á kínverska staðnum í smáranum (í sama húsi og læknavaktinn) meðan við biðum eftir að eyrnadroparnir hennar Ingu Maríu væru tilbúnir. Tókum með okkur 4 rétti heim: kjúklingarétt, lambarétt, nautarétt og núlðlurétt. Allt mjög gott nema nautakjötsrétturinn hann var hreinlega vondur!! En hitt var borða upp til agna í staðinn.
Ekkert í sjónvarpinu í kvöld. Matti að horfa á fótbotla rosa fjör jæja ég skoða bara eitthvað á internetinu í staðinn og mmm fæ mér snakk sem ég á afgangs frá pottapartíinu mmm ætla upp að sækja það. Bannað að tuða Matti :-)
Posted by gydaa at September 15, 2003 08:55 PMNo non non. Þú ert orðin svona öflug í skrifunum elskan. Ég ætti að taka þig mér til fyrirmyndar. En verðum við ekki að fara að funda bráðum, du og jeg?
Posted by: Kata on September 16, 2003 10:12 AMJá engin spurning þú verður að vera duglegri að blogga. Ójú löngu komin tími á fund milli þín og mín gætum t.d. tekið rúntin á apótekin og skoðað nýjustu snyrtivörurnar ;-)
Posted by: Gyða on September 17, 2003 08:38 PMJá líst vel á það, skoðað nýju haustlínurnar. Miðvikudagurinn kemur sterkur inn, hlakka til að sjá þig.
kveðja keit
Já sömuleiðist sjáumst á miðvikudag
Gyða