Matti lagaði forsíðuna hjá mér þannig að athugasemdirnar sjáist betur. Gott að fólk getur notað athugasemdirnar mínar til að koma kveðju á gamla vini ;-)
Litla frænka er að kljást við hefðbundna fyrirburakvilla en dafnar að öðru leiti vel eftir því sem ég best veit. En þar sem að Kolla er búinn að vera veik og ég var sjálf hrikalega slöpp í dag þá höfum við ekki ennþá hitt hana. Ekki viljum við bera ábyrgð á að smita krílið.
Hún vill sem sagt aðalega sofa enda á hún auðvitað að sofa bara ennþá í móðurkviði og fá næringuna í gegnum naflastrenginn vitleysa í þessu fullorðna fólki að vilja alltaf vekja mann og trufla!! Ungbarnagula hefur líka verið að hrjá hana svo hún fær að liggja í ljósalömpum milli þess sem hún fær sopann sinn. Vonandi lækka bilirubin (sorrý veit ekki hvað þetta heitir á íslensku og doktor.is hefur ekkert um ungbarnagulu á síðunni sinni!!) stiginn hennar fljótt svo hún geti verið sem mest hjá mömmu og farið að koma heim fljótlega.
Jæja ég ætla að fara að sofa svo ég verði hressari á morgun enda er ég að fara að flytja í aðra skrifstofu í fyrramálið eins gott að hafa hausinn í lagi til þess.
Posted by gydaa at September 02, 2003 10:35 PMog enn er ég að bjartsýnast um að það sé búið að skrifa einhvað hér hehe kiki á hverjum degi það er ekki alveg í lagi með mig :C)
Posted by: sirrý on September 12, 2003 07:05 PMyss já þú ert ekkert smá bjartsýn :-)
Ég skal reyna að skrifa smá fyrir þig
Gyða