Ingu Maríu er búið að ganga alveg rosalega vel í aðlöguninni í leikskólanum eins og Matti er svo sem búinn að segja frá í dagbókinni sinni.
Hún er sem sagt búin að vera ánægð með leikskólann frá fyrsta degi og er alltaf jafn kát og hress að fara þangað og að tala um skólann og allt bara.
Í dag fór Matti með hana í 18 mánaða sprautuna og skoðun (já já hún er vel rúmlega 18 mánaða ég veit) og hún tók því með sama jafnaðargeðinu og heyrðist víst ekki bofs í henni á meðan hún var sprautuð.
Í staðinn fyrir að fylgja dótturinni í sprautu þá var ég í pulsupartíi í vinnunni :-)
Það voru sem sagt grillaðar pulsur fyrir utan vinnustaðinn minn fyrir alla þá sem vinna á Eiríksstöðum (sem er sem sagt Eiríksgata 5). Gaman að sjá fleiri andlit þó ég hafi nú bara kjaftað við þá sem ég þekkti fyrir gerir maður ekki alltaf svoleiðis. En sniðugt að hafa hitting öðru hvoru fyrir allar deildirnar svo maður sjái þá sem vinna í húsinu.
Núna er Matti að horfa á einhverja stökkbreytinga mynd. Ég er búinn að gefast upp á að þykjast geta horft á hana. Sjaldan sem ég sé myndir sem mér finnst hreinlega hundleiðinlegar!! En Matta finnst hún góð þó ég skilji ekki af hverju. Mæli ekki með henni.
Posted by gydaa at August 29, 2003 11:03 PMGaman að heyra frá þér Gyða.
Merkilegt að maður skuli enn kíkja hingað inn :C)
Hvað var Inga orðin stór og þung ? Eða fékk hún bara sprautu ?
Já það er satt þú ert þolinmóð kona að tékka á mér reglulega og sjá að ég skrifa svona á 2 vikna fresti eða svo!!
Matti fékk ekki á miða þar sem að hann gleymdi bókinni heima hvorki þyngd né hæð og hann man bara að hún var rúmlega 11 kg (ég vissi það nú alveg af heimilisviktinni)en hefur ekki hugmynd um lengdina!! Karlmenn :-Þ