Það er stórfurðulegt hvað ég glaðvakna alltaf þegar börnin eru sofnuð!! Ég svaf sko bara ca 6 tíma í nótt og var svo dauðþreytt þegar ég kom heim úr vinnunni en um leið og þær eru sofnaðar þá glaðvakna ég!! Er reyndar búinn að liggja í heitu baði í millitíðinni sem er alltaf voðalega notalegt.
Annars er nú betra að taka það fram að það er ekki beint Ingu Maríu að kenna að ég svaf svona lítið í þetta sinn heldur fór ég ekki að sofa fyrr en um 1 og get engum kennt um það nema sjálfum mér ja eða kannski Matta :-) ef ég reyni vel að finna einhvern sökudólg :-Þ
Inga María byrjar svo í leikskólanum á morgun. Hún er voða spennt að fara og leika við krakkana. Matti og hún eiga að mæta klukkan 10 og verða alveg saman á morgun meira svona heimsókn. ÉG var að reyna að rifja upp nöfnin með henni á krökkunum á deildinni þar sem að Kolla er nú bara nýhætt þá kann maður ennþá nokkur nöfn. Hún sagði allavegana já við að hún ætlaði að leika við Sven og Ágúst Snæ osfrv.
Verður gaman að sjá hvernig fyrsti dagurinn hjá litla/stóra barninu mínu gengur.
Allir að koma til baka úr sumarfríi og sumarstarfsfólkið flest farið úr vinnunni. Soldið skrítið þar sem að ég byrjaði svo til um leið og sumarstarfsfólkið. Alltaf nóg að gera samt og ekki minnkar það við að hafa ekki sumarfólkið við að taka af sér álagið!!