Ég er búin að hafa það voðalega gaman síðustu daga (ja gærdagurinn var nú samt doldið slappur!!)
Loksins búin að klára að ganga frá því sem mér viðkemur í þetta 6 mánaða uppgjör og farinn að vinna eðlilega aftur. Reyndar rosalega mikið að gera hjá mér og sumarstelpan sem hefur unnið hluta af störfunum mínum að hætta á föstudag veit ekki hvað ég geri þá!!
Á laugardag fórum við æðislega brúðkaupsveislu Sirrýjar og Badda og skemmtum okkur alveg rosalega vel bæði ég og Matti. Takk kærlega fyrir okkur. Fyrst var falleg athöfn í Fríkirkjunni í hafnarfirði og meira að segja Matti hafði ekkert mjög mikið út á prestinn að setja :-Þ Sirrý var æðisleg í brúðarkjólnum, með flotta hárgreiðslu og bara æðislega fín í alla staði. Tinna Björk var algert krútt og Arnar Leó rosalega mannalegur svona herramannslega klæddur :-) Þau voru líka alveg ótrúlega þæg systkynin alveg fram eftir öllu kvöldi enda soddan engla börn ekki við öðru að búast. Já Baddi var náttúrulega fínn líka ætlaði ekki að skilja hann útundan :-)
Eftir athöfnina ruku brúðarhjónin í myndatöku svo hratt að við sáum bara rétt glitta í skottið á bílnum hverfa fyrir hornið þegar við komum út úr kirkjunni. Við fórum svo og drukkum kampavín á fullu meðan þau létu mynda sig. Ja reyndar þurfti Gyða klaufi aðeins að skreppa heim fyrst skildi nefnilega gjöfina þeirra eftir heima á ganginum!!
Svo komu brúðhjónin og aðeins seinna fengum við að borða þennan líka æðislega mat sem pabbi Sirrýjar eldaði handa okkur mmmmm fæ sko vatn í munnin við að hugsa um matinn namm namm. Bróðir Sirrýjar var veislustjóri og stóð sig bara vel í því. Borðhaldið tók sinn tíma eins og gerist í veislum en við létum okkur sko alls ekki leiðast á meðan. Kjöftuðum saman og hlóum að bróður Sirrýjar á milli þess sem við borðuðum já og drukkum víst ansi vel með matnum líka!!
Eftir matinn og leiki og fleiri ræður þá var dansað við hljómsveitina sem var mjög fín þó þeir hafi ekki viljað spila Begees í hvert sinn sem við báðum um það!! Langt síðan ég hef dansað svona mikið og ennþá lengra síðan ég hef dansað eitthvað að viti við kallinn minn!! Ja svona á milli þess sem hann var ekki of upptekin við að spjalla við gamlar bekkjasystur (hann og Sirrý voru sko saman í bekk í barnaskóla). Við vorum svo samferða brúðhjónunum út um hálf 2 og ég vil bara einu sinni enn segja takk fyrir okkur og æðislegt kvöld.
Já sunnudagurinn!! Hann var ekki alveg jafn skemmtilegur eins og gengur eftir svona skemmtileg kvöld :-Þ Annars verð ég sko aldrei þunn en var doldið slöpp á sunnudaginn þó ekkert alvarlega og ekkert á við eiginmanninn minn. Hann verður hreinlega fárveikur skil ekki að hann nenni að drekka!! En hann var voðalega stolltlur af því að hann missti heilt kíló frá því að hann viktaði sig um morguninn og þar til að hann viktaði sig aftur um eftirmiðdaginn (sem sagt eftir að hafa legið með hausinn ofan í klósetti hálfan daginn!!) gott að hann sér eitthvað jákvætt við þetta drengurinn. Við fórum svo með skvísurnar í bíó rúmlega 3 (útpælt að velja eitthvað þar sem við gætum bara setið og horft út í loftið og ekki þurft að elta þær út um allt!! Þær skemmtu sér allar mjög vel og meira að segja Inga María sat alveg stjörf með popppokann sinn allan tíman. Við sáum Grísling (grísinn í Bangsimon) og þetta var fínast mynd en hrikalega er dýrt að fara með 5 manna fjölskyldu í bíó!!! Þarna fauk rúmlega 5 þúsund kall eins gott að gera þetta ekki of oft greinilega mikið ódýrara að kaupa reglulega spólu handa skvísunum og poppa svo handa þeim!!
Ég fór svo í vinnuna hálf 8 í morgun, hrikalega var erfitt að vakna. Borðaði þorsk í hádegismat og vann á fullu og Matti sótti mig svo 4 og hann fór í ræktina en við stelpurnar heim. Já þetta var fyrsti dagurinn hjá Kollu eftir sumarfrí í leikskólanum og hún var rosalega ánægð með að vera komin aftur í skólann. Dreif sig víst í föt strax og hún vaknaði sagði Matti ætlaði sko ekki að mæta of seint :-)
Posted by gydaa at August 11, 2003 09:53 PMNei, Sirrý að gifta sig! Óskaðu henni til hamingju frá mér. ;)
Fjóla.
Takk Fjóla :C)
Posted by: sirry on September 2, 2003 08:12 PM