Jæja þá erum við komin heim eftir að hafa verið í viku í bústað með mömmu minni og pabba. Við erum búin að hafa það rosalega gott. Ég las þrjár bækur (rosalega langt síðan ég hef gert það á einni viku) spiluðum Liverpool á kvöldin og fórum í sund og heita pottinn og slökuðum á.
Reyndar skruppum við hjónin heim í vikunni þar sem að matta snillingi tókst að skemma einhverja skrá í tölvunni sinni og gat alls ekki verið tölvulaus!! Þá komum við að húsinu rafmagnslausu og hefur rafmagnið eflaust farið af fljótlega eftir að við fórum í bústaðinn. Ég þreif því endalaust af kjúklingablóði út úr frystinum (ojjj) og henti 5 kjúklingum og dálitlu meiru (náði samt ekki 15þ kallinum sem sjálfsábyrgð tryggingafélagsins er). Matta tókst á ótrúlegan hátt að vera loksins búinn að redda tölvunni þegar ég var búinn að þrífa frystiskápinn hátt og lágt!! Jæja ok hann var reyndar aðeins lengur en ég að þessu.
Gott að við skruppum heim áður og komum ekki að þessu úldnuðu í dag!!
Svo er það bara venjulega lífið sem tekur við aftur!! Voðalega eru sumarfrí fljót að líða!!
Posted by gydaa at August 01, 2003 08:59 PM