Jæja nú er ég búin að vera í sumarfríi í rúma 3 daga og njóta þess heilmikið. Sérstaklega var gærdagurinn skemmtilegur.
Við stelpurnar (reyndar var Áróra hjá pabba sínum) fórum til Heiðu og hittum þar Sirrý, Evu, Jónellu og börn. Veðrið var það gott að krakkarnir röltu inn og út og dunduðu sér með hléum við það og við mömmurnar skemmtum okkur vel að kjafta og kjafta. Heiða var svo hrikalega myndarleg að hún bakaði gómsætar brauðbollur og gulrótarköku handa okkur og Jónella kom með vínarbrauð mmmm namm namm.
Um eitt varð ég að fara heim með Ingu Maríu að sofa og á meðan spiluðum við hjónin Baldurs gate (tölvuleikur). Þegar Inga María vaknaði ákváðum við að fara í sund og skemmtum við okkur öll vel þar þó að við fullorðnu höfum nú verið orðin vel þreytt á að hjálpa upp í rennibraut og taka við úr rennibraut taka á móti hoppandi börnum og láta börn synda osfrv. en það var allavegana voðalega gaman. Hittum Evu og fjölskyldu í sundinu :-)
Við fórum svo heim grilluðum pulsur og komum börnunum í rúmið og héldum áfram með Baldurs gate þangað til rétt fyrir 10 þegar ég þaut í 10 bíó með Kötu og skemmti mér vel á myndinni what a girl want. Kom svo heim og spilaði Baldurs gate með Matta til hálf 2 í nótt!! Sem sagt mjög góður dagur frá morgni til kvölds.
Posted by gydaa at July 23, 2003 11:22 AM