Hrikalega er ég þreytt!!
Ég fór á kaffihús með Sirrý í gærkvöldi sem var alveg rosalega fínt. Manni líður alltaf vel eftir að hafa setið og kjaftað og kjaftað en verst hvað maður sofnar seint bæði koma seint heim og svo sofnaði ég nú ekkert mjög auðveldlega eftir kaffidrykkjuna!!
Sofnaði því ekki fyrr en langt gegnin í 2 og svo var Inga María alltaf að vakna (jú Matti hugsar um hana á nóttinni en ég vakna samt alltaf) og ég átti erfitt með að sofna aftur og svo vöknuðu þær báðar skvísurnar rúmlega sex!!! Hoppuðu á hausnum á mér góða stund fóru svo fram að leika í 20 mín og komu svo aftur inn og þá druslaðist ég á fætur (rúmlega 7) og tók svo strætó í vinnuna 10 mín yfir 8.
Ég hef svo verið í vandræðum að halda mér vakandi í allan dag!! Fór svo á pöbb með vinnufélugonum eftir vinnu sem var fínt líka þó ég hafi þurft að stoppa stutt þar sem ég varð að taka strætó 20 mín yfir 6 til að Matti kæmist í fótboltann.
Nú sit ég hér að pústa aðeins út áður en ég ætla að skríða undir sæng enda stelpurnar sofnaðar.
Posted by gydaa at July 10, 2003 09:17 PMHvað er þetta hefur þú ekkert þol stelpa :C)
Ég svaf sko til 11 um morguninn eða hádegi.
En mikið er gott að fara svona út að spjalla maður er alveg endurnærður á eftir.