July 05, 2003
ÉG er á lífi

Matti sagði að ég ætti að skrifa eitthvað til að sýna að ég væri á lífi svo ég nota það sem ágætis byrjun :-)

Annars er allt gott að frétta af okkur ja fyrir utan það náttúrulega að Matti missti vinnuna fyrir tæpri viku síðan svo kannski er ekki við hæfi að segja að allt sé gott að frétta!! En ég á loksins mann sem er afslappaður og brosir meira að segja líka svo ég get hreinlega ekki tekið það sem mjög slæman hlut því hann fær auðvitað bara mikið betri vinnu fljótlega (þ.e. þegar hann er búinn að slaka aðeins á eftir allt of langan tíma í brjáluðu vinnuálagi).

Áróra er út á spáni með pabba sínum og fjölskyldu og skemtir sér rosalega vel. Hún hefur verið úti að borða í 24-28 stiga hita að kvöldi til þegar ég hef talað við hana svo ekki er það slæmt!! Hún ætlar að vera í burtu í tvær vikur og á örugglega eftir að skemmta sér rosalega vel allan tímann.

Inga María kvaddi Guðmundu á föstudaginn og er því kominn í sumarfrí og byrjar svo á Hálsaborg 18. ágúst. Hún er orðin voðalega stór stelpa allt í einu finnst mér. Talar orðið heilmikið og leikur sér orðið með Kollu eins og krakki en ekki smábarn. Að vísu er hún orðin alger frekjudolla líka!! Svo maður verður nú að reyna að passa að Kolla lúffi ekki ofmikið fyrir henni og maður sjálfur auðvitað þegar hún hendir sér organdi í gólfið og æpir og æpir!!

Kolla er líka voða kát og hress þessa dagana. Er farið að líða voðalega vel á kisudeild og gaman að heyra hvað hún er að gera á daginn. Hún talar stannslaust orðið og vill nú stundum fá ansi mikla þjónustu. Var t.d. að leika sér við borðstofuborðið með smádót og svo datt eitthvað af því á gólfið og þá var kallað mamma mamma komdu og þegar ég kom þá átti ég sko að beygja mig og rétta henni dótið svo hún þyrfti ekki að teygja sig sjálf í það!! Jæja hún hendir sér nú samt ekki í gólfið og öskrar og æpir þegar maður segir uuu náðu bara í þetta sjálf góða kostur að hafa bara eitt barn í einu á því stigi!!

Jæja nú er ég búinn að skrifa fullt og ætla að heimta að Matti fari að horfa á spóluna með mér sem hann valdi fyrir okkur úti á leigu áðan.

Posted by gydaa at July 05, 2003 09:49 PM
Comments

Gaman að sjá að þú sért á lífi Gyða og fjölskylda þín.Það verður að segjast að þú ert ekki besti bloggari í heimi sko en jæja betri en ég :C)

Posted by: sirry on July 10, 2003 12:10 AM