June 19, 2003
Fólk með Sirrý og feministar

Ég settist niður í gær eftir að börnin voru sofnuð og horfði á fólk með Sirrý. Svo sem ekki frásögum færandi þar sem ég geri það flest miðvikudagskvöld (nýt þess að ráða hvað sé í tækinu alveg ein meðan kallinn er í boltanum).

Í þættinum var fólk frá feministafélagi Íslands (held það heiti það). Til að byrja með var rætt við strák og stelpu og farið um bæinn og bærinn skoðaður með kynjagleraugum eins og þau kölluðu það. Ég hef nú voðalega lítið lagt mig fram um að lesa það sem femínistar hafa fram að færa en ef þessi þáttur átti að fá mig til liðs við þau þá mistókst það alveg hræðilega. Tilgangurinn er ekki að fá þér til að líka við okkur mundu þau þá eflaust segja heldur koma málstaðnum á framfæri. En hvers virði er málstaður sem maður hristir bara hausinn yfir og hættir að hlusta þegar maður rekst á marga hluti sem pirra mann. Allavegana er ég þannig. Það dynur stanslaust á manni áróður um hitt og þetta og ef einhver af áróðursfólkinu segir aftur og aftur eitthvað sem pirrar mig þá hætti ég að hlusta jafnvel þó það geti vel verið að eitthvað af því sem það hefur fram að færa sé gott og gilt.

Hvað var þá svona mikið að pirra mig?

Í fyrsta lagi nauðganir sem þau sáu í hverju horni. Ég get ómögulega séð hvernig hægt er að lesa nauðgun út úr myndunum sem sýndar voru. OK stelpan var með sand og drullu nálægt nærbuxunum en hún sat líka í sandi með sjóin nálægt sér svo mér fannst það nú ekki óeðlilegt og hin stelpan sem lá í glenntri stellingu með skugga af hendi að nálgast klofið á henni. Í mínum huga tengdist sú mynd frekar erótík/klámi heldur en nauðguninni sem þau sáu út úr myndinni. Reyndar getur verið að þau sjái allt klám sem nauðgun þannig að þar liggur kannski skýringin!!

Þaðan sem ég sat hljómaði þetta eins og í bíó þar sem sálfræðingurinn lætur sjúklinginn skoða spjald með klessum og sjúklingurinn á að segja hvað hann sér út úr klessunum. Nauðgun væri án vafa svar femínistafélagsins eða allavegana er það álitið sem þátturinn Fólk með Sirrý skildi eftir hjá mér af Femínista félagi Íslands.

Annars hef ég marg fleira að segja um þetta mál en skrifborðið er yfirfullt af óleystum verkefnum svo nú ætla ég að snúa mér að því frekar en pikka meira inn hér.

Posted by gydaa at June 19, 2003 08:23 AM
Comments