June 12, 2003
blogg

Jæja nú ætla ég að skrifa blogg pistill!!

Held að það séu strætóferðirnar sem geri Matta að svona góðum bloggara því maður hefur ekkert skárra að gera í strætó en sitja og hugsa upp gott blogg!!

Allavegana var ég að velta fyrir mér í strætó þessari strætó menningu. Sko fólkið situr saman eftir kynjum ef það mögulega getur. Þ.e. karlmenn hlið við hlið og konur hlið við hlið skrítið hvað manni finnst skárra að sitja hjá ókunnugri konu en ókunnugum kalli. Annað ef engin kona er í boði þá vel ég allavegana næst karlmann sem er yngri eða á svipuðum aldri og ég en helst ekki eldri ef ég kemst hjá því!! En nenni nú ekki að standa bara svona til að sitja ekki hjá eldri manni samt.

Svo virðist mér alltaf takast að setjast hjá manneskju (langoftast konu) sem er líka að fara niður í bæ þegar hálfur strætóinn fer úr í Mjódd!! Hef alvarlega velt því fyrir mér að standa þangað til ég kem í Mjódd til að fá gluggasæti en finnst það hálf hallærislegt að standa þegar það eru fullt af sætum veit samt ekki alveg afhverju ekki get ég sagt að það skipti máli hvað fólkinu í strætó finnst um mig!!!

Sætin í strætó eru líka voðalega há þ.e. í nýju vögnunum. Ég næ ekki niður með fæturnar og hendist því fram og til baka þegar vagninn hreifist og reyni að tilla hendinni á glerið fyrir framan mig (sat sko fremst af aftari röðinni í dag þ.e. fyrir aftan hólfið þar sem maður stendur) og að sjálfsögðu reynir maður að koma sem minnst við manneskjuna við hliðina á sér!!

Annars skil ég af hverju Matta líður vel í strætó þegar ég sé Asísku stelpuna (vandamál að koma frá sér að stelpan hafi Asískt útlit, auðvitað getur hún verið alíslensk stúlkugreiið ég veit ekkert um það aldrei talað við hana) sem kemur alltaf inn á hlemmi!!! Alveg rosalega flott stelpa.

Jæja þá ætla ég að klára skyrið mitt ná mér í te og byrja að vinna.

Posted by gydaa at June 12, 2003 08:15 AM
Comments

Ég sest nú alveg jafn oft við hliðina á konum og körlum :-)

En ég skil hvað þú átt við með að standa upp og fara í laust sæti. Ég fer nú yfirleitt alltaf í annað sæti þegar það losnar, en ég er alltaf voðalega meðvitaður um þá ákvörðun og velti því fyrir mér hvort það sé ansalegt. En auðvitað skiptir engu máli hvort það er asnalegt, maður á bara að gera það sem maður vill í strætó.

Það er svo skarplega athugað hjá þér að það skemmir ekki fyrir þegar það eru sætar stelpur í strætó ;-)

Posted by: Matti on June 12, 2003 10:41 AM

ég er sammála þér Gyða, að maður getur hugsað margt í strætó. Líka gaman að fylgjast með fólki, maður sér margt undarlegt fólk. Sérstaklega í Breiðholtinu. Þegar ég var strætókvendi og þurfti að setjast hjá einhverjum í strætó þá flutti mig alltaf ef laust sæti losnaði á einhverri stoppistöð til að geta setið ein. Lenti allt of oft í að sitja við hliðina á sveittum, illalyktandi farþegum. Ekki gott

Posted by: Kata on June 12, 2003 02:49 PM

Það er samt alltaf kostur þegar maður getur valið sér fólk til að sitja hjá frekar en að velja sér sæti og vera svo valin af einnhverjum ílla lyktandi farþegum sem koma á eftir manni inn í vagninn.

Posted by: sirry on June 12, 2003 10:38 PM

Mér finnst þetta sterkur punktur hjá Sirrý og valdi mér því sæti við hliðina á góðlegri eldri konu í morgun til að losna alveg við illa lyktandi farþega sem gæti komið inn seinna.

Posted by: Gyða on June 19, 2003 08:26 AM