May 11, 2003
Helgin

Á föstudagaginn var verið að halda upp á útgáfu EVE-oneline
Ég mætti sem sagt klukkan 4 upp í CCP og þaðan fórum við konurnar í Baðhúsið og þar í heitapottinn og fengum kampavínsglas (eða glös eftir því hvað við vildum mikið sem voru auðvitað glös hjá mér!!). Við sátum þarna í pottinum og röbbuðum saman í rúman klukkutíma og svo fórum við að punta okkur og þaðan niður í Apótek að hitta eiginmennina í fordrykknum. Það teigðist nú voðalega á fordrykknum og var ekki byrjað að borða fyrr en um 9 en átti að borða 8 samkvæmt dagskrá. Ég og Hildur vorum orðnar ansi vel svangar og hámuðum í okkur brauðið um leið og okkur var hleypt inn í salinn ;-) kallarnir okkar voru líka orðnir ansi vel í glasi enda búnir að vera í koktel og svo fordrykk síðan um 5 og það var líka verið að bjóða upp á skot með fordrykknum!! Maturinn var ágætur en mér finnst nú alltaf vanta meðlæti með veitingahúsamat!! Ég fór svo heim um 11 að sinna börnum og búi en hef svo ekki grun um hvenær eiginmaðurinn skilaði sér heim því ég svaf það af mér og hann var það drukkinn að hann hefur ekki grun um það sjálfur!! Ætli Hildur viti það ekki helst því hann endaði víst kvöldið í að fara heim með þeim að glápa á vídeó.

Við erum svo búinn að eiga voðalega góða fjölskyldu helgi og löngu kominn tími á slíkt. Rosalega var gott að hafa eiginmanninn heima hjá sér heila helgi vá ekki verið heima í 2 heila daga síðan um jól held ég!! Í gær fórum við til mömmu og pabba og þegar við komum heim sofnaði Inga María og Áróra passaði þá stelpurnar báðar (Ingu Maríu sofandi en Kollu lék hún við) og við hjónin röltum út í Ölduselskóla og kusum. Við fórum svo og versluðum grillmat (með stelpurnar með okkur) og grilluðum og horfðum svo á kostningarsjónvarpið.

Í dag fórum við í Heiðmörk og svo heim. Matti að horfa á Liverpool tapa en ég að vinna í garðinum meðan stelpurnar léku sér. Ég náði að afkasta ótrúlega miklu miðað við síðasta sumar sé hvað það munar rosalega miklu um þetta ár sem stelpurnar hafa elst. Núna leika þær sér meira sjálfar þó ég þurfi nú að sinna þeim reglulega og Inga María hafi voða gaman af að setja mold á mig alla og sig alla enda vorum við drullugar upp fyrir haus!! Matti kom svo út eftir leikinn og rakaði saman einhverjar greinar en aðalega sagðist hann að sitt hlutverk væri að spjalla við mig meðan ég inni í garðinum ;-) en ég var svo sem alveg sátt við það. Fórum svo í mat til tengdaforeldra minna og fengum rosa góðan grillaðan kjúkling namm namm.

Svo er það bara fyrsti vinnudagurinn á morgun!! Sælan búin púff voðalega hefur þetta eina og hálfa ár verið fljótt að líða ja reyndar bara allur tími almennt líður voðalega fljótt ég verð níræð áður en ég sný mér við!!

Posted by gydaa at May 11, 2003 10:23 PM
Comments