Jæja ég gaf mér aldrei tíma í gær til að segja ykkur hvað ég var að bralla í gær og þið getið auðvitað ekki verið án þess að vita allt sem að ég geri ;-Þ
Ég skildi Ingu Maríu eftir í 20 mín hjá dagmömmunni í gær og það gekk bara mjög vel. Við höfum hraðað aðeins ferlinu þar sem að þetta gengur allt svo rosalega vel að hún virðist alveg þola þetta aðeins hraðar og þá ætti ég líka að geta unnið róleg rúmlegan hálfan dag á mánudaginn sem ég verð eiginlega að gera.
Eftir dagmömmuna fórum við til Kötu og Baldurs Rökkva en við ætluðum með þeim í Smáralindina. Þau voru steinsofandi!! Lúxus líf á þessum heimavinnandi húsmæðrum að vera steynsofandi hálf 11!! En ok þau höfðu víst farið á fætur um 7 og voru að leggja sig svo ég hafi þetta nú rétt. Allavegana fórum við svo í smáralindina og borðuðum á Fridays namm namm rosagott. Síðan fórum við í Debenhams og náðum í gjafabréfið mitt og ég keypti mér hyljara (nei nei auðvitað þarf ég ekki að hylja neitt hvernig datt ykkur það í hug!!) og svo kíktum við á sundboli í Útilíf og bara röltum um og kjöftuðum eins og hægt var með börnin því auðvitað harðneytaði Inga María að sofna!! Ég keyrði svo Kötu og Baldur heim rúmlega 2 og þá steinsofnaði Inga María í bílnum sem var ágætt því við áttum að vera mætt til eyrnalæknis klukkan 3 þannig að hún náði nú rúmum hálftíma sem er eiginlega nauðsynlegt.
Hjá eyrnalækninum vildi Inga María ekki að ég sæti undir henni heldur sitja sjálf í stólnum hjá lækninum og læknirinn sagði að þetta væri örugglega yngsti sjúklingurinn sinn sem sæti bara sjálfur :-) Hún var líka alveg kjurr meðan hann skoðaði eyrun. Hann sagði að allt liti vel út, miðað við aðstæður sem sagt, en eitthvað af vökva í öðru eyranu svo annað hvort er rörið dottið eða stíflað. Hann hélt að það væri frekar stíflað. Ég á að gefa henni dropana í 4 daga í viðbót og koma aftur eftir mánuð. Persónulega væri það nú hátíð ef það liði heill mánuður þangað til ég hitti hann en við skulum vera bjartsýn og segjast ekki fara til hans fyrr en eftir mánuð!!
Matti var á fullu að leggja lokahönd á EVE sem kom út í morgun og kom því ekkert heim í nótt.
Í morgun var Inga María klst hjá dagmömmunni (og ég skrifaði byrjunina á bréfinu á meðan!!) og það gekk bara nokkuð vel. Var orðin pínu stúrinn í lokinn en ekkert alvarlega. Á morgun er því stefnan á að hún verði aftur í klst og svo jafnvel að prufa að láta hana vera lúrinn hinn daginn sjáum til ég er voða stressuð yfir lúrnum hennar hjá dagmömmunni þar sem hún er svo erfitt svefn barn.
Við fórum svo og stimpluðum mig atvinnulausa og ég ræddi við konuna þar út af vinnunni og þessum tímum sem ég vann í síðustu viku. Þær vildu frekar taka við tímunum á föstudaginn þegar ég vissi meira því það er ekki ennþá búið að ganga frá laununum!!! Þannig að í raun er ég ekki ráðinn ennþá.
Við fórum svo og sóttum Matta og Inga María var nú ekki leið yfir því að fá pabba heim en núna er hann farinn að sofa en ekki hún en hún dottaði í bílnum og vaknaði þegar ég færði hana yfir í vagninn og harðneytaði meiri svefn!!
Ég ætla svo í bónus á eftir og elda eitthvað sem Matta finnst gott fyrst hann er í mat hjá okkur þessi elska ;-) Kannski ég prufi kjúklingaréttinn hennar Sirrýjar!!