May 04, 2003
Gærdagurinn

Já það var nóg að gera hjá mér í gær. Drifum okkur klukkan 10 í kaffi til mömmu og pabba þar sem að við (þá meina ég ég og stelpurnar Matti er næstum hættur að teljast í við strákgreiið!!!) kæmust ekki í það seinna. Um 12 drifum við okkur í skólann hennar Áróru. Skoðuðum aðeins það sem krakkarnir höfðu verið að gera og fundum svo tónlistastofuna. Áróra kom svo stuttu seinna (hún var hjá pabba sínum) og fjölskylda pabba hennar og við horfðum saman á hana dansa línudans og svo skiptidans. Hún og allir krakkarnir stóðu sig voða vel og það var voða gaman að horfa á þau.
Þegar dansinn var búinn flýttum við okkur yfir í leikskólann hennar Kollu þar sem að það var ca 3 korter eftir af opna húsinu þar. Í Kollu leikskóla var voða gaman líka. Kolla og Inga María leiruðu og ég skoðaði bæði myndir af Kollu og hinum krökkunum í starfinu og alskonar verk eftir þau. Svo fylgdi kennarinn hennar Kollu okkur yfir á stóru deildina sem Kolla byrjar á um næstu mánaðarmót og kynnti okkur fyrir konunum þar og sýndi okkur aðstöðuna þar. Mér kvíður pínu fyrir að færa hana þar sem að okkur líður svo vel á litlu deildinni en leist samt voða vel á konurnar og deildina þannig að þetta verður örugglega fínt líka.

Síðan fórum við heim og ég hafði Ingu Maríu til í vagninn meðan Kolla lék sér úti og svo löbbuðum við yfir til Kötu vinkonu minnar. Komum við í sjoppu og Kolla fékk ís þar sem það var nammidagur og ég keypti snakk handa mér og Kötu sem ég og Kolla borðuðum nú aðalega!! Við vorum hjá Kötu til rúmlega 5 og röltum svo heim. Heimferðin var nú mikið erfiðari þar sem að Inga María var vakandi og vildi ekki sitja í vagninum og stelpurnar voru stannslaust að stoppa að leika að hinu og þessu og við ætluðum aldrei að komast áfram. Endaði með að ég fékk Kollu til að vera í vagninum og þá var aðeins auðveldara að ýta bara eftir einu barni!!

Heima eldaði ég svo uppáhaldssúpuna mína og borðaði þar til mér var illt af henni!! Matti kom heim í kvöldmat sem var æðislegt yndislegt að sjá drenginn okkar svona einstaka sinnum ;-) Hann las svo fyrir Kollu en ég setti Ingu Maríu ekki í rúmið fyrr en rúmlega 9 þar sem hún svaf seinna umd aginn en venjulega (fer sko venjulega að sofa um 8)

Ég horfði á maður eins og ég með Jón Gnarr og hafði bara gaman af og Law and order svo mér leiddist ekkert í gærkvöldi sem er nú kostur :-)

Jæja nú þarf ég að fara að vekja Matta svo hann komist í vinnuna búinn að fá ca 8 tíma frí úr vinnu er það ekki nóg ;-O

Posted by gydaa at May 04, 2003 09:46 AM
Comments