Já nú er ég sem sagt ekkert að vinna næstu 6 virka daga. Mér hefur líkað vel þessa þrjá hálfu daga sem ég hef verið en samt verið alveg voðalega þreytt eftir þá!! Ótrúlegt hvað það fer mikil orka í að læra nýja hluti.
Ég valdi dagmömmu sem býr á Seljabraut og hefur verið dagmamma í 4 ár mínus 1 árs barnseignarfrí.
Er að aðlaga Ingu Maríu þar og gengur bara voða vel hingað til alla vegana. Við erum búnar að fara tvisvar í heimsókn (þrisvar ef maður telur skoðunar heimsóknina með) og svo í dag (þriðja skiptið okkar) þá skildi ég hana eftir í 10 mín svona til að æfa hana í að kveðja mig og svo hún héldi ekki að við ætluðum alltaf að vera saman í heimsókn þarna og leika við krakkana ;-) Ég var búinn að ræða við hana um að hún ætlaði að leika við krakkana og segja svo bless við mömmu og mamma myndi skreppa aðeins. Hún samþykkti það alveg í bílnum og sagði bless bless mömmu við mig, enda er hún svo klár :-) Við vorum hjá dagmömmunni í ca hálftíma þar til ég sagði henni að nú ætlaði ég að skreppa aðeins og hún kyssti mig bless og ég fór fram á gang með jakkann minn með mér í svona ca 10 mín. Það gekk bara voðalega vel. Dagmamman sagði að hún hefði verið aðeins óörugg í smá stund en svo bara verið að leika sér við hina krakkana. Hún hljóp nú samt upp í fangið mitt þegar ég kom aftur og var svo litla stund að sleppa mér aftur en svo var allt í lagi aftur að leika við krakkana áfram og svo fórum við stuttu síðar. Gekk sem sagt bara mjög vel. Ég mun svo skilja hana aftur eftir í ca 10 mín á mánudaginn og svo höldum við bara rólega áfram 20-30 mín næstu tvo daga eftir það en svo heldur hraðar þar á eftir enda er það mín reynsla að þegar þau eru orðin örugg og vön að kveðja mömmu þá skiptir tíminn orðið minna máli sem þau eru og dagmamman er sammála mér í því. Maður dagmömmunnar keyrir strætó og er því stundum heima á daginn, hann var heima í dag svo mér fannst gott að fá að hitta hann aðeins líka.
Voandi heldur þetta áfram að ganga vel.