Inga María svaf hræðilega í nótt tíbískt þegar fyrsti vinnudagurinn er fram undan ekki satt!! Þegar hún vaknaði þá sá ég að það lak blóð úr eyranu á henni!! Mér dauðbrá og hringdi strax í eyrnalæknirinn. Hann var á vakt upp á spítala en konan á skrifstofunni hans gaf mér upp hvert ég átti að hringja. Þar varð ég að skilja eftir skilaboð og hann hringdi nú ekki fyrr en rúmum 2 tímum seinna!! En allavegana fannst honum þetta greinilega ekkert stórmál og ætlar að skoða hana á morgun klukkan 5. Hann er nú frekar róleg týpa og spurði mig hvort hún væri með hita og hvernig henni liði og svo já ætli það væri ekki betra að kíkja á hana mmm jú ég held það nú takk ;-) En hún er sem sagt hitalaus og líður vel.
Ég skoðaði hjá þremur dagmæðrum í morgun og leist vel á allar svo nú ætla ég bara að setjast niður og hugsa og hugsa í kvöld. Sú fyrsta er að byrja sem dagmamma og er leikskólakennari og á sjálf strák fædd í nóvember eins og Inga María. Kostur að þau yrðu þá bara tvö þangað til annar sækir um pláss hjá henni. Næsta er búinn að vera dagmamma í 4 ár og er með 3 börn núna og sú þriðja er líka með 3 börn núna.
Ég talaði svo við konuna á ríkisspítulum og á að mæta upp í dauðhreinsun klukkan 13:30 þannig að ég fer bara að faraa ð leggja af stað.
Posted by gydaa at April 28, 2003 01:01 PM