April 27, 2003
Vinningur

Ég fékk hringingu áðan frá Debenhams. Ég verslaði þar í gær svona dollu undir meikið mitt, átti sem sagt meik fyllinguna en ekki dolluna utan um. Það var svona leikur í gangi að maður setti verslunarstrimilinn sinn með skrifuðu nafni og síma á í kassa og konan í símanum sagði sem sagt að ég hafi unnið og svo kláraðist batteríið í símanum mínum tíbískt ha!!! Jæja ég hringdi í hana aftur hálftíma seinna þegar ég komst í almennilegan síma og ég vann andlitshreinsun á snyrtistofu Kanebo í Debenhams :-) Hlakka til að fara þangað og láta dekra soldið við mig.

Posted by gydaa at April 27, 2003 10:37 PM
Comments

Já Gyða mín, það margborgar sig að versla snyrtivörur. ÉG held að þetta hafi ekki verið vinningur heldur voru þetta laun fyrir að vera viðskiptavinur ársins.
Knús Kata

Posted by: Kata on April 28, 2003 01:25 PM