April 27, 2003
Vinna og fleira

Heil vika síðan ég hef skrifað ferleg leti er þetta í mér!! Reyndar helltist sótavatn yfir lyklaborðið mitt og ég var því að nota ferðavélina hans Matta í tvo daga og var þá voða lítið í tölvunni en er núna búinn að kaupa mér nýtt lyklaborð á heilar 900 kr þvílík útgjöld ;-)

Það var hringt í mig á miðvikudag frá Ríkisspítulum eða segir maður Landsspítali háskólasjúkrahús uuu veit það ekki alveg kemst eflaust af því vonandi og vildu fá mig í annað viðtal. Ég fór sem sagt í viðtal númer tvö á föstudaginn og konan vill endilega ráða mig :-) eins og ég sagði áður þá vantar þeim manneskju bókstaflega strax en hún var samt ekki með á hreinu hvaða laun ég fengi!! Niðurstaðan var því sú að hún ætlar að gera sitt besta til að fá launakröfurnar mínar samþykktar (getur víst tekið allt að viku) og ég mæti hálfan daginn þrjá daga í næstu viku og ef launin verða svo ekki samkvæmt mínum kröfum þá fæ ég bara greitt fyrir þessa þrjá daga og er ekki skuldbundinn að vera neytt meira. Doldið skrítið ég viðurkenni það en vonandi fæ ég bara uppsett verð og þá verður þetta ekkert mál. Allavegana er ég mjög spennt yfir starfinu og hlakka til að byrja að vinna á morgun vá pælið í því!!! Svo fer ég í rúmlega viku frí til að venja Ingu maríu við hjá dagmömmunni og svo vinn ég ca hálfan daginn vikuna þar á eftir eða eins mikið og ég treysti Ingu maríu til að vera hjá dagmömmunni fer eftir því hvernig gengur þar.

Dagmamman er svo annað mál!! Hringdi í hana og þá er hún búinn að ákveða að hætta í haust ;-( Hún er samt búinn að ræða við aðra dagmömmu sem er í sama húsi og gæti tekið hana. Ég verð bara að skoða hjá henni á mánudag og ég ætla að hringja í lausar dagmömmur núna og vonandi get ég skoðaða hjá nokkrum á mánudag. Ég ætla líka að hringja í dagvist barna og athuga hvort að Inga María komist kannski inn hjá þeim í haust er nú ekkert rosa bjartsýn en vona samt.

Inga María er er kominn með eyrnabólgu einu sinni enn. Það byrjaði að leka úr eyranu á henni á fimmtudag og lak rosalega mikið á föstudag. Ég fór svo með hana á læknavaktina í gær og fékk dropa í eyrun á henni og finnst nú eiginlega að droparnir hafi virkað of hratt svo mig grunar nú að eyrnabólgan hafi minnkað að sjálfum sér því dropar eiga ekki að virka svona hratt!!

Í gær eftir læknavaktina fórum við Inga María svo heim og sóttum Kollu og Áróru (Matti var auðvitað farinn í vinnunni en ekki hvað!!) og við fórum til mömmu og pabba í kaffi. Það var æðislegt veður og ég fór beint út með Ingu Maríu í vagninn og mamma fór að kaupa hádegiskaffið. Kolla var á meðan hjá Unnari Óla frænda mínum sem var að endurnýja pallinn hjá mömmu og pabba og auðvitað hjá áróru líka en Kollu finnst svo gaman að spjalla við nýtt fólk (hittir hann ekki oft og er því nýr fyrir henni hún kynnti sig og Ingu Maríu t.d. í byrjun ;-)

Ég labbaði um allt Arnarnesið með Ingu Maríu í góða veðrinu hún er svo mikið að slást við að sofna á daginn þessi unga dama. Harðneytar að leggjast í vagninum og þegar ég labba bara um eins og við séum bara í göngutúr þá dettur hún út af sofandi en verður brjáluð ef ég reyni að leggja hana svo í dag beið ég bara þar til hún datt sjálf aftur á bak ja hallaði soldið vel vagninum á leið niður brekku ;-) þá vorum við hinum megin á nesinu lengst frá mömmu og pabba svo ég naut þess að labba alla leið til baka í góða veðrinu.

Svo borðuðum við hádegismatinn og svo fór ég og Áróra í Smáralindina að kaupa skó frá mömmu í sumargjöf til Áróru og mamma hringdi svo í mig og sagði mér að kaupa mér föt fyrir vinnuna og svo í öðru símtali sem við vorum að ræða skó á Áróru sagði hún mér að kaupa mér skó fyrir vinnuna líka. Ég var ekkert að mótmæla þessu og keypti mér pils, bol og skó og svo skó á áróru alls 14þ !!! Æ þú hefðir átt að kaupa jakka í stíl við pilsinn var það eina sem móðir mín sagði um upphæðina :-) Ég keypti mér líka gloss alveg sjálf he he er svo gjafmild á sjálfan mig!!

Svo sóttum við litlu stelpurnar og skutluðum áróru til vinkonu sinnar að gista og fórum og sóttum Matta í vinnuna og heim að grilla okkur hamborgara. Við Matti fengum okkur bjór og Breezer (uuu hvernig er þetta skrifað) meðan við grilluðum sem var ekki slæmt ;-) Komum svo stelpunum allt of seint í rúmið og Inga María var klst að sofna eftir að hún var kominn í rúmið og ég endaði með að gefa henni verkjalyf og hún sofnaði 10 mín síðar veit ekki hvort að hún var með verki í eyrunum eða bara loksins orðin úrvinda. Alla vegana var ég orðin vel þreytt þegar hún var loks að sofna klukkan 10!!

Posted by gydaa at April 27, 2003 01:50 PM
Comments